25.4.2009 | 00:25
Á morgun kjósum við.
En í dag var hátíð hjá okkur nágrönnunum í Kosningarstræti á Ísafirði, sem heppnaðist mjög vel.
Veðrið var ekki til að hrópa húrra fyrir... eða þannig, en fólk lét það samt ekki aftra sér frá því að taka þátt með okkur í dag.
Feðgarnir elda fiskisúpuna, sem allir voru rosalega ánægðir með. Enda algjörlega frábær súpa.
Úlfur uppvartaði súpuna upp úr gömlum mjólkurbrúsa og stóð sig rosalega vel.
Já fólki fannst notalegt að koma inn og fá sér heita ljúffenga fiskisúpu í boði Frjálslyndra.
Og listaglugginn er endalaus uppspretta aðdáunar fólksins.
Og allir lögðust á eitt við að fá gesti til að koma inn
Hér eru vinstri grænir glaðværir og í góðum fíling.
Og Samfylkingarfólk grillaði ofan í svanga maga.
Frú Ólína leggur svo línurnar inn á þeirra kosningaskrifstofu.
Já fólk þáði pylsur Samfylkingarinnar með þökkum rétt eins og fiskisúpuna okkar.
Hér eru allir í stuði inn á kosningarskrifstofu Flistans.
Ekki var síðra músik atriði Vinstri grænna.
Og greinilegt að fólki líkaði sá flutningur vel.
En það er gott að spila svona saman. Við fundum öll hve gott er í raun og veru að leggjast á eitt við að gera gott. Það verður líka vonandi gott innlegg inn í næstu bæjarstjórnarkosningar, því ég vona að Ílistinn verði aftur í framboði og val fyrir Ísafjarðarbæ.
En á morgun göngum við til kosninga, það er val hvers og eins hvað hann gerir í kjörklefanum. Það eru leynilegar kosningar, og hver og einn gerir það upp við sig hvað hann gerir. Stundum taka menn ákvörðun sína í kjörklefanum, og menn eiga þennan rétt. Dagurinn á morgun er okkar dagur, dagur hins venjulega alþýðumanns. Og vissulega höfum við áhrif nákvæmlega þennan dag, þau áhrif verða ekki aftur tekin næstu fjögur ár eða svo. Þess vegna er sú ákvörðun vandasöm. En ég treysti fólkinu í landinu til að taka rétta ákvörðun, ákvörðun sem þið getið verið stolt af. Ákvörðun sem getur haft áhrif á líf þjóðarinnar næstu misserin og jafnvel árin. Því ber að vanda valið, og ekki kasta til þess höndum eða hlýta loforðum eða smjaðri.
Nei nú er alvaran sjálf á morgun og sennilega aldrei verið alvarlegri en einmitt nú.
En ég er að fara að halla mér, ég er stolt af Júlla mínum og Úlfi sem stóðu sig eins og hetjur í dag. Líka ánægð með hve vel fólk tók flokknum og bara dagurinn var frábær. það eru sennilega ríkari bönd milli þessara þriggja flokka hér einmitt vegna Ílistans og sýnir að þessir flokkar geta svo vel staðið saman og gert góða hluti.
En ég segi bara góða nótt og hjartanlega takk fyrir mig.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sigrún Jónsdóttir, 25.4.2009 kl. 00:59
BAra flott.Kveðja vestur og gangi ykkur vel .
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 10:15
Flott hjá ykkur, við stöndum alltaf sterkari ef við getum unnið saman. Það var einmitt það sem þurfti í vetur. Viðværum örugglega betur stödd ef allir hefðu getað unnið saman. En sumir halda alltaf sína leið betri og það hindrar. Óska ykkur öllum góðs gengis í dag og megi afrakstur dagsins koma okkur öllum til góða.


Dísa (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 10:22
flott hjá ykkur fyrir vestan
en gleðilegan kosningadag mín kæra
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 25.4.2009 kl. 12:08
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.4.2009 kl. 15:22
Gledilegan kosningadag Y--
Ásta Björk Solis, 25.4.2009 kl. 15:39
Skemmtilegt að hafa svona kosningastræti ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 25.4.2009 kl. 16:10
Mikið eru þetta flottar myndir.Er ekki í kosningar hugleiðingum og ætla ekki að kjósa.Kveðja
gaddur, 25.4.2009 kl. 16:42
Sæl og blessuð Ásthildur mín.
Flottur kosningaglugginn hjá ykkur og hörku fjör.
SPENNANDI KOSNINGANÓTT FRAMUNDAN.
Vertu Guði falin
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 25.4.2009 kl. 18:39
Takk öll. Já Það er hörkufjör hjá okkur. Og góð stemning milli þessara þriggja flokka. Höfum ekki heyrt neitt frá Framsóknarfólki, en ég hef heyrt af smá afbrýðsem hjá Sjöllum. Þeir eru líka að hringja í fólk með allskonar skröksögur bæði um okkur og önnur framboð. Þeir hreinlega ljúga að ungu fólki, eins og þeir segja þeim að þeir hafi barist af fullri hörku fyrir dreyfðri aðild að sölu bankanna, en það hafi verið Samfylking og vinstri grænir sem vildu endilega selja bara fáum útvöldum. Þetta er hrein og klár lygi sem við vitum, en ef til vill ekki þeir sem eru að kjósa í fyrsta skipti. Það er greinilegt að Sjálfstæðsimönnum er ekki annt um sannleikann ef annað þjónar þeim.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.4.2009 kl. 18:52
Já músíkatriði Vinstri grænna hefur greinilega verið gott
.
Laufey B Waage, 25.4.2009 kl. 21:20
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Rósa Aðalsteinsdóttir, 25.4.2009 kl. 23:47
Leiðinlegt hvernig fór fyrir flokknum þínum mín kæra.
En vonandi kusum við þjóðin rétta aðila sem munu koma okkur upp úr þessum ólgusjó.
Knús í vorkúluna
Kidda (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 09:23
Myndasyrpan flott hjá þér. Ég borðaði fiskisúpu um hádegi kosningardaginn á Friðrik V. með skólasystkinum mínum. Pólitík ekki rædd þar, en einn úr hópnum sýndi okkur myndir frá siglingu sem hann fór í ásamt nokkrum körlum á skútu sinni til Grænlands. Feyki tilkomumiklar myndir, en ekki vildi ég búa þar.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 26.4.2009 kl. 15:01
Skemmtilegar myndir, dásamleg myndin af henni nöfnu þinni litlu þar sem hún býður ungum vegfaranda að ganga í bæinn. Og flottur glugginn, og flottir strákar sem þú átt og elduðu og veittu súpuna góðu. -
Mikið þykir mér leiðinlegt að Guðjón Arnar skuli ekki hafa náð kjöri, það er mikill missir að þeim mæta manni af Alþingi. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 26.4.2009 kl. 21:39
Huld S. Ringsted, 26.4.2009 kl. 23:50
Sorglegt að sjá á bak Guðjóni Arnari. Knús til þín.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.4.2009 kl. 00:27
Skemmtileg myndasyrpa hjá þér.
En Ásthildur það gengur bara betur í næstu kosningum.
Bestu kveðjur /Jenni
Jens Sigurjónsson, 27.4.2009 kl. 01:23
Takk öll sömul. Já þetta var sorglegra en tárum taki. Þið eruð æði.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.4.2009 kl. 12:36
Takk Halla mín. Vonandi fær Guðjón annað tækifæri. Við skulum sjá hvað framtíðin ber í skauti sér, hvort það er ennþá eitthvað haldreipi fyrir fortíðina og þau góðu gildi sem hún stendur fyrir. Knús.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2009 kl. 13:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.