Myndir úr kúlunni.

Það er frekar vetrarlegt um að litast í dag.  En veðrið er að lagast.  Eins gott því við ætlum að gefa ísfirðingum fisk í soðið í dag Frjálslyndi flokkurinn, eins og við höfum alltaf gert fyrir kosningar. 

fiskur í soðið

Á morgun ætlum við svo að skemmta okkur og bæjarbúum ásamt Vinstri grænum og Samfylkingu.  Við ætlum að elda fiskisúpu og Vinstri grænir eru með músikatriði og svo ætlar Samfylkingin að grilla.  Auðvitað eiga menn að standa saman um að skemmta sér og öðrum.  Það getum við ágætlega.

En hér koma nokkrar myndir síðan í gær og fyrradag.

IMG_7630

Leikskólinn bíður.

IMG_7631

Það er orðið ansi vorlegt, þó hretið komi á morgun. (í dag).

IMG_7632

Þá er sólin ekki langt undan. 

IMG_7633

Vorverkin auðvitað hafin 

IMG_7634

Stóri "Bróðir" lítur eftir þeim litlu.  Hann er stundum mjög duglegur.

IMG_7635

Já það er margt sem þarf að moldast svona á vorin. LoL

IMG_7637

Miður geðslegar, en vorboðar engu að síður.  Ég er að fá ránmaura í dag, sem munu eiga veislu framundan.

IMG_7638

Sigurjón mættur á svæðið.

IMG_7640

Og alltaf er það tjörnin sem heillar.

IMG_7639

Já þetta er ljúft líf.

IMG_7644

Svo er hægt að renna sér á þotu.

IMG_7646

Já sulla sulla sulla!!!

IMG_7647

ÚBBS!!! þetta var ekki meiningi.

IMG_7649 

Æ Æ Æ LoL

IMG_7650

Já lognið er mjög oft hér fyrir vestan.

IMG_7651

Og svo er það leikskólinn.

IMG_7652

Og svona til að hnykkja á því að vorið er á sama tíma í kúlu og í Vín. Þá er þetta zakúrakirstuberjatré hjá mér.

P4146603[1]

Og hér á sama tíma út í Vín.

P4156642[1]

Hvað svo með smáreiðtúr.  Ef til vill á kjörstað.  Cool

toppur_vinstri

Eigið góðan dag elskurnar mínar.  Heart Öll hvað sem þið ætlið að kjósa á laugardaginn.  Sem betur fer ríkir frelsi einstaklingsins til athafna í orði allavega, þó stundum skorti á að það sé á borði.  En vonandi lagast það eftir þennan hrunadans. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Takk fyrir skemmtilegar myndir eina ferðina enn! - Gleðilegt sumar og takk fyrir samskiptin í gegnum tíðina.

Haukur Nikulásson, 23.4.2009 kl. 14:08

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gleðilegt sumar kæra Ásthildur og kærleiksknús í kúluhús

Sigrún Jónsdóttir, 23.4.2009 kl. 14:19

3 identicon

Gleðilegt sumar

Guð hvað kirsuberjatréð er fallegt. Innan árs verð ég vonandi komin með garðskála í líkingu við þinn

Knús í kirsuberjakúluna

Kidda (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 15:15

4 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir. Gleðilegt sumar og takk fyrir myndasýninguna.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 23.4.2009 kl. 16:51

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll fyrir innlitið og gleðilegt sumar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2009 kl. 17:01

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Alltaf jafngaman að skoða mydirnar hjá þér. Gleðilegt sumar.

Helga Magnúsdóttir, 23.4.2009 kl. 17:32

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

myndirnar meina ég

Helga Magnúsdóttir, 23.4.2009 kl. 17:33

8 identicon

Ránmaurar, finnst eins og það sé gleðiefni að fá þá í skálann sem við viðbót vit skotturnar (stelpurnar) eða er það rangt hjá mér?

Kidda (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 18:15

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kidda mín ránmaurar og önnur rándýr lifa á afætunum lúsinni og spunamaurnum.  Í staðin fyrir að eitra skálann og drepa þar með dýr eins og kóngulær, járnsmiði og önnur eðaldýr þá fær maður sér rándýr sem halda þessum óværum niðri.  Það er besta lausnin.

Takk Helga mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2009 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband