Má bjóða ykkur í smágönguferð í skógum Austurríkis?

Jæja nú er sumarið á næsta leyti .... eða þannig.  Á morgun er sumardagurinn fyrsti, og litla Hanna Sól er voða spennt, segir að nú komi sumarið á morgun.  Þá ætlar hún að gera ýmislegt, það er nefnilega hlýtt og notalegt á sumrin.  W00t  En mér datt í hug að bjóða ykkur aðeins til Austurríkis fékk sendar nokkrar fallegar myndir frá Vín og svo smábæ rétt utan við Vín, þar sem vinir hennar búa, þau Samúel og Heidi.  Man ekki hvað þorpið heitir, en nafnið þýðir þar sem heilög jómfrú gekk á land, minnir að það heiti ELLEND.  En þar er fallegar gönguleiðir í skógi og við ár og vötn.  Og þar er vorið greinilega komið.

P4055216[1]

Þetta er Trölli, hann er í raun og veru íslendingur, en fluttist út með fjölskyldu sinni.  Hann er voða vinsæll meðal Vínarbúa.  Það er svo merkilegt við það ágæta fólk að það heilsar ekki horfir ekki á mann, foragtar mann algjörlega, nema maður sé með hund í bandi, þá er viðhorfið allt annað, þau klapa hundinum, og brosa til manns.  Þetta er ekki svona í smábæjunum fyrir utan.  Þar eru allir glaðlegir og brosandi.  Sennilega er þetta svona allstaðar í stórborgum, fólk á varðbergi gagnvart ókunnugum.  En Trölli er megakrútt.

P4055212[1]

Þetta er Mirjam, dóttir vina Báru minnar og vinkona Hönnu Sólar. 

New Image

Hér er verið að skreyta hana með skjaldfléttu, sem vex villt allstaðar í skógum í evrópu.

P4055235

Eins og sést er allt orðið grænt í Austurrík.

P4055236[1]

Þetta er sennilega vorsóley, stærri en okkar reyndar að öðru leyti eins.

P4055358[1]

Þetta er þægilegur og friðsamur göngutúr.  Það er mikið um skemmtilega göngu og hjólreiðastíga bæði inn í borginni og utan. 

P4055371[1]

Hér ættuð þið að heyra fuglasöng og tíst, kvak í öndum. 

P4055387[1]

Fallega stelpan mín og þetta er sennilega samleigjandi hennar sem er með henni í heimsókn hjá Samúel og Heidi.

P4055419[1]

Hér eru Tröllo og vinkona hans Goldie, hún á heima hjá Mirjam.  Trölli er þar líka oftast, því honum líður betur í sveitinni.

P4055426[1]

Þið sjáið að hér er Jasminin að blómstra. 

P4055435[1]

Hér er kirkja sem er tileinkum hinni heilögu jómfrú. Fagurlega skreytt.

P4055440[1]

Þessi mynd er skemmtilega tekinn. 

P4044627[1]

Hér er svo Dóná sjálf. 

En þetta var nú svona friðsamlegur göngutúr í sveitinni í rólegheitum út í Austurríki, svona rétt til að slaka svolítið á mitt í öllu stressinu hjá okkur.  Það er gott að geta aðeins farið um stund og lyft huganum upp fyrir allt argaþras. 

Eigið góðan dag elskurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Takk fyrir göngutúrinn friðsæla

P.S.

Auðvita ætti þjóðin að eiga fiskinn.Þetta er eitt af þeim ránum sem alþjóð þarf að fá skilað í sinar hendur

Solla Guðjóns, 22.4.2009 kl. 09:46

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt Solla mín.  Ég vil að það verði haldið áfram að berjast fyrir breyttri sjávarútvegsstefnu, það verður því miður ekki að veruleika nema með þátttöku Frjálslynda flokksins, það hefur sýnt sig að allar aðrar raddir þagna eftir kosningar.

En njóttu mín kæra göngutúrsins

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2009 kl. 10:10

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Æðislegar myndir frá Austurríki. Þegar skottan þín talaði um að sumarið kæmi á morgunn þá rifjaðist upp fyrir mér skemmtileg minning í svipuðum dúr. Bróðurdóttir mín fór einu sinni fram í forstofu og opnaði hurðina og sagði: "Ég sé að jólin eru að koma."

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.4.2009 kl. 11:29

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislegt vor.  Ég fæ fiðrildi í magann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2009 kl. 12:00

5 identicon

Myndirnar vekja upp löngun til að fara til Austurríkis Vorið er komið en spurning hvort sumarið komi á morgunn, einhvern veginn hef ég grun um að vorið verði aðeins lengur en sumarið kemur að lokum.

Knús í vorkúluna

Kidda (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 12:00

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kidda mín Austurríki eða Vínarborg sem ég þekki best til er mjög skemmtileg og menningarleg borg.  Gaman að koma þangað.  En sennilega mjög dýr fyrir okkur í dag.  Já sumarið kemur að lokum, og vonandi færðu garðskálann þinn sem fyrst elskuleg mín svo sumarið lengist hjá þér.

Knús Jenný mín  

Já Rósa mín þessar litlu skottur eru skemmtilegar og lífið einfalt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2009 kl. 12:13

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir þessa utanlandsferð Ásthildur mín...þær verða víst að vera í þessu formi um ókomin ár

Sigrún Jónsdóttir, 22.4.2009 kl. 15:49

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Skemmtilegar myndir er með ykkur í huganum . Gleðilegt sumar Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 22.4.2009 kl. 18:57

9 identicon

Oh hvílík fegurð.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 20:09

10 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Skemmtilegar myndirnar hjá þér 'Asthildur mín og aman að fara með til AusturríkisGleðilegt sumar til ykkar.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 22.4.2009 kl. 21:23

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Bestu kveðjur vestur í tilefni sumarkomunnar, þetta verður væntanlega góð tíð hjá þér framundan, hlý og happadrjúg!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.4.2009 kl. 23:12

12 Smámynd: Róbert Tómasson

Takk fyrir göngutúrinn Ásthildur og Gleðilegt Sumar.  Ég kynntist þessu sjálfur þegar ég fluttist til Danmerkur með fjölskyldu og hund að ein besta leiðin til þess að kynnast fólki á nýjum stað er að fara út að labba með hundinn, eignaðist marga góða vini sem ég hef samband við enn í dag.

Róbert Tómasson, 23.4.2009 kl. 09:10

13 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þakka þér innilega fyrir þennan notalega göngutúr um fagran friðsælan skóg Ég er alveg sammála Hönnu Sól, barnið innra með mér er fullt tilhlökkunnar og spennu fyrir góðu sumri

Gleðilegt sumar og kærar þakkir fyrir bloggvináttuna í vetur

Ragnhildur Jónsdóttir, 23.4.2009 kl. 09:54

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul.  Gleðilegt sumar og megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2009 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband