Smá mömmó, veður, og ýmislegt skemmtilegt.

Kæru bloggvinir ég hef ekki haft mikinn tíma til að heimsækja ykkur eða vera hér, ætlar að bæta úr því á morgun.  Meðan Sjálfstæðisflokkurinn stendur í því að eyða sjálfum sér, og rífast um það hver eigi mestu sökina, Ástþór og kó hamast á Borgarahreyfingunni hafa fundið sér verðugan andstæðing þar og Framsókn reynir að ákveða hvort þeir eigi að birta bókhaldið eða ekki, þá hef ég verið á fullu við að ganga frá listum, fara yfir meðmælendalista og setja þá í rafrænt form, með dyggri hjálp Rannveigar Bjarna á Akranesi og Ragnheiðar Ólafs.  Það er rosalega mikið mál að komast yfir að lesa og rita inn nöfn kennitölur og heimilisfönd fólksins sem mælir með framboðum.  En nú þarf að skila þeim þannig inn.  Það er líka erfitt að lesa svona eiginhandaráritanir og ef kennitalan er óskýr er maður í vondum málum.  Sem betur fer sprengdum við efra markið á meðmælendalistum og það er bara besta mál.  Svo þurfti að koma Elísabetu einum frambjóðandanum okkar til manna, en hún býr á Ingjaldsandi og þangað var bara fært fuglinum fljúgandi, svo það voru góð ráð dýr.  Eða dýr góð ráð.  En það eru auðvitað mannréttindi að geta verið í framboði og komast til að votta það með undirskrift.

En fyrir hádegi á morgun þarf allt að vera klárt allir listar komnir á réttan stað í okkar tilfelli í Borgarnes.  Og nú loksins er hægt að fara að einbeita sér að sjálfri kosningabaráttunni.  Reyndar hafa okkar menn og konur verið á faraldsfæti og hitt mann og annan og það er gott hljóð í fólki. 

Svo það gleðilegast sem gerðist í dag var að litlu krílin okkar komu heim.  Heart

IMG_7461

Veðrið lék við okkur alla páskana en fallegasta veðrið var í gær og í dag, eins og svo oft áður.

IMG_7466

Afi leitar að páskaegginu sínu, Úlfur hafði falið það.

IMG_7467

Úbbs og þarna var það hehehe LoL

IMG_7468

Eins og ég sagði var veðrið fallegt í gær.

IMG_7469

Við erum boðin í mat til sonar míns í Hnífsdal.

IMG_7470

Og það er óhætt að segja að litirnir séu ferskir og sterkir.

IMG_7471

Við vorum boðin í þennan líka gómsæta kalkún og afi gamli var boðin líka.

IMG_7473

Þau spöruðu páskaeggin sín allan daginn og þangað til eftir matinn. 

IMG_7474

Og afi gamli les einum óþekktaranganum lífsreglurnar.  Smile

IMG_7475

Hann var líka kátur og reifur og reif af sér brandarana, eins og hann getur svo vel á góðri stund.

IMG_7476

Veðrið var svo ekki síðra í dag.  Það var loftbrú því fólkið var að koma sér heim eftir páskagleðina.

IMG_7477

Okkur datt í hug að það væri vel við hæfi að fá nokkra steina frá Júlla til að skreyta glugga kosningaskrifstofunnar, og hér er listamaðurinn að skreyta.

IMG_7479

Þeir eru margir ótrúlega flottir, hann er alltaf að gera flottari listaverk.

IMG_7480

Fiskinn til fólksins.  Það er mottóið.

IMG_7481

Fallegur dagur að kveldi komin og við bíðum með óþreyju eftir að flugvélin komi með okkar kríli.

IMG_7482

Meira að segja himininn er dulúðugur, eins og hann vilji gera allt dularfullt.

IMG_7484

Þetta er hin eina og sanna Snæfjallaströnd Heart

IMG_7486

Og svo eru þær komnar!!! Heart Sama fóstran og þær fóru með kom með þær heim aftur.

IMG_7489

Og það er náttúrulega tekið til hendinni. LoL

IMG_7491

Það var líka greinilegt að þeim fannst gott að koma heim.  Hanna Sól hafði mikið orð á því hvað allt væri gott og gaman á Hellu.   Það er svo margt hægt að gera ef þið farið á Hellu amma og afi, sagði hún spekingslega, þar er hægt að fara í klippingu, og svo er hægt að fara í sund.

IMG_7495

Og svo þurfti að segja frá og ræða málin eftir matinn.

IMG_7498

Skreyta sig með páskaungum og svoleiðis.

IMG_7503

Já maður er sko voða fín!!!

IMG_7505

Amma nú máttu taka mynd.

IMG_7508

Og Ásthildur fékk líka páskaunga.

IMG_7522

Svo þurfti að máta sig við töskuna hennar Hönnu Sólar LoL

IMG_7524

Ótrúleg þetta barn.

IMG_7527

svo var rúminu breytt í rennibraut.

IMG_7529

Það er nefnilega svo gaman.

IMG_7530

Ég er hætt að láta lesa fyrir mig, sagði Hanna Sól.  Ha sagði amma á ég ekki að lesa fyrir þig.  Jú kannski bara núna, við eigum eftir að klára söguna frá því síðast sagði sú stutta. 

IMG_7535

En fyrst þarf að bursta tennurnar og þvo ennibein og augu, nebba, flipa, hökuskegg og hálsakot Heart

Nú eru allir sofnaðir á kærleiksheimilinu nema amma, sem ákvað að skrifa smá mömmó, svona af því að það var svo langt síðan dóttlan mín hefur fengið myndir af skottunum sínum.

Ég vil líka bjóða ykkur öllum góðrar nætur og ég ætla að gefa mér tíma á morgun til að lita við hjá ykkur elskuleg mín. Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Vá hva það er langt síðan ég hef kíkt hérna við, enda er ég búin að eyða heilmiklum tíma í að skoða niður alla síðuna. Elsku bloggvinkona gleðilega páska, vonandi voru þeir góðir hjá þér og þínum.

Linda litla, 14.4.2009 kl. 02:26

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Alltaf jafn sálarbætandi að kíkja hér við.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.4.2009 kl. 09:37

3 Smámynd:

Æ hvað hlýtur að vera gott að vera búin að fá snúllurnar aftur heim  Eigðu góðan dag vinkona

, 14.4.2009 kl. 09:45

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er frábært að vera búin að fá þær heim aftur þessar elskur Dagný mín

Takk Jenný mín

Hæ Linda mín, ég átti góða páska.  Knús

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.4.2009 kl. 10:18

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús og kveðjur í Kærleiks - Kúluhús

Sigrún Jónsdóttir, 14.4.2009 kl. 11:28

6 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Alltaf jafn gaman að sjá myndirnar þínar, ég skynja samt smá kosningaáróður þarna  X-F hvað

Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.4.2009 kl. 11:48

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe Guðborg mín jamm, ég reyni að hafa það í lágmarki sko

Knús til baka Sigrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.4.2009 kl. 12:11

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2009 kl. 13:45

9 identicon

Til hamingju að vera búin að fá gleðigjafana til baka, þær eru óborganlegar

Knús í gleðikúluna

Kidda (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 17:37

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín og Hrönn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2009 kl. 10:53

11 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er svo gaman að fylgjast með þessum skottum. Þær eru svo skemmtilega uppátækjasamar  Gaman að sjá hvað Úlfur nýtur sín að fela páskaeggið hans afa, ferlega sposkur  Flott hugmynd að fá sjálfan fiskalistamanninn til að stilla upp kjörorðinu!

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 16.4.2009 kl. 00:44

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sigrún mín, já Júlli minn er flottur, og fólk hópast framan við gluggan og dáist að fiskunum. 

Knús.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2009 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband