Veðrið í dag.... myndir og fleira skemmtilegt.

Hér ríkir nú vetrarveður allt ófært enginn skóli og ekki fóru litlu prinsessurnar mínar í leikskólann í morgun.  Meira að segja bankinn var lokaður, það stóð á hurðinni: því miður er lokað í dag vegna vorhátíðar starfsfólks eru allir starfsmenn veðurtepptir í Reykjavík. Heart Auðvitað engin blöð en sem betur fer er rafmagn, þá erum við ánægð.  

1111

Á svona dögum þarf að hugsa vel til smáfuglanna, þeir eru svangir blessaðir.

IMG_6974

Snjórinn hrannast upp eins og sjá má.

IMG_6975

Og það er gaman að gefa fuglunum því þeir eru svo þakklátir.

IMG_6976

Nammi namm.

IMG_6977

Búin fær ég ekki meira???

IMG_6978

Litlu innifuglarnir þurfa líka smámola sem detta á gólfið og sona!

IMG_6981

Og blómin fyllast af snjó.

IMG_6983

Það vantaði líka ýmislegt eins og mjólk og brauð, svo amma þurfti að ráðast í safaríferð.

IMG_6988

Úff þetta var erfitt.

IMG_6991

Svo er ágætt að leika sér í garðskálanum.

IMG_6992

Jafnvel á snjóþotu LoL

IMG_6996

Og heitt kakó getur farið víðar en í munninn.

IMG_6998

Þetta er að vísu ekki Titanic......

IMG_7001

Kallast bara fikt, en jafn skemmtilegt fyrir því.

IMG_7002

Svo datt þeim í hug að fá afa til að fara með sér út, og þau fóru á bókasafnið.  Þar er svo gaman að skoða bækur og leika sér.

IMG_7004

Búbbsí lagt af stað út í sortann.

IMG_7005

Svona er nú veðrið og stemningin hjá okkur í dag.  Heart

Ó gleymdi einni mynd, svona í öllum þessum snó...

IMG_6980

Það er örugglega þess vegna sem við höfum stofublóm.  Skátengdadóttir mín gaf mér þessa ensku pelargoníu hún nýtur sín vel núna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Meiri menning á Ísafirði en hér. Búin var lokuð!! Það er búið að snjóa mikið en allir halda ró sinni. Við kunnum þetta alveg hér á hjara veraldar. Þetta lagast einhvern tímann.

Flottar myndir og mikið er ég fegin að innifuglarnir fengu líka mat.

Guð veri með ykkur og varðveiti frá hættum og slysum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.3.2009 kl. 16:28

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Vá er þetta svona heima hjá ykkur? Það er meiri krafturinn í ykkur. Það féllu þrjú snjókorn heima hjá mér og ég ætlaði varla leggja í það að fara út:)

Kveðja

p.s. skemmtilegar myndir

Finnur Bárðarson, 30.3.2009 kl. 16:31

3 identicon

Best er nú í svona veðri að þurfa ekki út, en e.kki efa ég að þú fáir mörg prik fyrir að fóðra fuglana sem enga björg hafa aðra en góðhjartað fólk. Nú held ég kúlan sé komin í ekta igloo stíl í öllum snjónum. Vonandi fer vel um ykkur þegar búið er að sækja björgina og viðra smáfólkið.

Dísa (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 19:15

4 Smámynd: Auður Proppé

Ja hérna, ekkert smá snjór og krafturinn í þér að fara í búðarferð.  Svo er ég að tuða yfir smá föl hér í Reykjavík, annars er best að hafa svona svaka snjó og fjör með, eða ekki neitt.

Auður Proppé, 30.3.2009 kl. 19:55

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll, jú ég hafði svo sem gott af því að fara í bæinn, valdi það sjálf til að fá smáfrið   Þau geta verið dálítið fyrirferðamikil þessar elskur þegar þær komast ekki út.

Smáföl er raunar miklu leiðinlegra en svona skaflar Auður mín, þetta er safaríferð.

Dísa mín útifuglarnir voru svo hungraðir að við þurftum að gefa þeim hvað eftir annað, svo sá ég för eftir rjúpur lika.

Velkomin hingað inn Finnur minn.  Hehehehe.... heil þrjú snjókorn eru nú líka þrjú snjókorn.

Hjari veraldar Rósa mín já þar erum við mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2009 kl. 20:35

6 identicon

Sæl og blessuð Ásthildur mín.

Alltaf ánægjulegt að skoða myndirnar þinar.  Það er fallegt í Skutulsfirði! Himnagallerýið eins og þú segir svo hnittilega er frábært.

Og þú telur ekki eftir þér að taka ömmubörnin uppá þina arma þegar mikið liggur við.  Flott gert!  Og afi er betri en enginn sé ég.  Börnin eru algjörar dúllur!

Gamli góði flokkurinn okkar er í þungum sjó.  Þori varla að segja þetta en samt:  Þetta var fremur fyrirsjáanlegt.  Nýtt afl var ekki góður kostur fyrir flokkinn.

Engu að síður vona ég að flokkurinn nái að komast í gegnum þetta erfiðleikatimabil.  Hef alltaf taugar til flokksins enda var ég meðal stofenda hans og vildi hag hans sem mestan og bestan.

Kærar kveðjur til þín og fjarðarins míns fallega.

Auður

Auður M (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 22:54

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessi orð Auður mín, já ég er sammála þér að þetta var ekki góð sending sem við fengum.  Það er bara svo erfitt að banna fólki að ganga í flokk.  En þið Margrét höfðuð rétt fyrir ykkur svo sannarlega mín kæra.  Mér finnst gott að vita af þér og þínum góðu óskum okkur til handa.  Það skiptir máli.  Við erum bjartsýn þrátt fyrir allt, því það er góður hugur í okkar fólki.  Kosningabaráttan verður hörð og ekki mikið fé til að hlaupa upp á.  Það sem ég er stoltust yfir er að aldrei hefur verið kvikað frá stefnuskrá okkar, svo vel var hún úr hendi gerð og af fólki sem þekkti vel til, að þar hefur ekki þurft að breyta neinu, aðeins bæta við þegar ný mál hafa dúkkað upp.   Ég hef grun um að faðir þinn blessaður hafi verið þar innanbúðar um samningu sjávarútvegsstefnunnar, og þú átt örugglega þitt innlegg þar líka.  Það sýnir sig vel þegar fyrrverandi stærsti flokkur landsins er hræddur við okkur, að það skiptir máli sem við stöndum fyrir.  Þeir vita sem er að ef okkar málstaður kemst til fólksins þá munu þeir glata miklu.  Þess vegna er auðveldast að þegja okkur í hel.  Takk fyrir innlitið og hlý orð.    

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2009 kl. 09:00

8 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Alltaf eru þær skemmtilegar færslurnar þínar og myndirnar. Myndin af ömmunni að versla í matinn "no matter what" og afinn að fara með prinsessu á bókasafnið! Já þið eruð alveg met

Yndislegar fuglamyndirnar líka. Ég elska þessa litlu dásamlegu söngengla sem koma og syngja einmitt þegar dagarnir eru dimmir og veðrin vond. Ég var einmitt að enda við að klára fyrstu krosssaumshönnunina mína, auðvitað mynd af snjótittlingi

Bestu kveðjur vestur, hafið það gott í vetrinum svo fer að vora bráðum eins og plönturnar þínar bera greinilegt vitni um

Ragnhildur Jónsdóttir, 31.3.2009 kl. 12:56

9 identicon

Ekki beint hægt að segja að það sé vorlegt í kring um þig. Dáist af ykkur að hafa látið ykkur hafa það að fara í búðina og bókasafnið.

Það verður fróðlegt að fylgjast með kosngunum í þetta skiptið, hef aldrei gert það en mun sjálfsagt gera það núna. Ef við kjósum yfir okkur D og B og jafnvel hina 2 þá er okkur ekki viðbjargandi og verðum að taka hverju sem þeir voga sér að bjóða okkur upp á. 

Knús í snjókúluna

Kidda (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 2023199

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband