29.3.2009 | 11:17
Viðbrögðin við ræðu Davíðs.
Viðbrögðin við ræðunni hans Davíðs eru ýmist upp í himninum eða niður í svarta Hel. Það er með ólíkindum að einn maður geti komið slíku róti á fólk. Svo sennilega hefur hann eitthvað við sig sem tekið er eftir. Fyrir mér er hann bara venjulegur maður, sem hefur náð að sópa að sér völdum og safna kring um sig hirð fólks sem sér ekkert eða heyrir annað en það sem hann lætur út úr sér, trúir öllu sem hann segir og engu sem aðrir reyna að benda á. Sennilega er ekki hægt að tala um venjulegan mann í því samhengi, nema að þessi virðist vera annað hvort algjörlega veruleikafirrtur eða samviskulaus, nema hvort tveggja sé.
Því miður hef ég ekki komist í að lesa ræðuna hans, en ég hef séð glefsur hér og þar, en það eru viðbrögðin sem ég vil ræða.
Það sem stendur upp úr fyrir mér eru þessi orð Davíðs;
"Arftaka sinn í embætti kallaði hann lausamann úr norska Verkamannaflokknum og sagði að enginn hefði áður heyrt þennan mann áður nefndan, ekki einu sinni Google, sem marga þekkti. Þannig hefði enginn þroskuð þjóð áður hagað sér."
Ég veit ekki af hverju Davíð heldur að íslenska þjóðin sé þroskuð þjóð. Ef hún væri það almennt, þá hefði Davíð og Sjálfstæðisflokkurinn ekki setið að völdum óslitið í 18 ár. Þroskuð þjóð hefði fyrir löngu síðan hent þeim út á hafsauga.
Þroskuð þjóð hefði ekki sett gamla pólitíkusa í æðstu stöður landsins eftir áratuga þaulsetu við stjórn landsins.
Þroskuð þjóð mun ekki veita Sjálfstæðisflokknum brautargengi í næstu kosningum. Ef þjóðin væri þroskaðir sjálfstæðir einstaklingar myndi Flokkurinn ekki koma manni að í næstu kosningum.
Viðbrögðin við þessu skítkasti eru brandari út af fyrir sig. Það hefur verið rækilega sannað fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki pólitískt afl, heldur trúfélag. Eins og Hannes Hólmsteinn orðaði það svo ágætlega. Sjálfstæðismenn er fólk sem vill hafa sterkan leiðtoga sem hugsar fyrir þá. (mann ekki orðrétt) Þeir vilja græða á daginn og grilla á kvöldin.
Þetta er Sjálfstæðisflokkurinn í hnotskurn. Þeir vilja sterkan leiðtoga, þess vegna gráta þeir Davíð nú. Þeir vilja græða á daginn, og gerðu svikalaust svo að öll þjóðin er lömuð, grillið verður svo að bíða aðeins, meðan þeir einbeita sér að því að fá fólk til að veita þeim áframhaldandi brautargengi við kjötkatlana svo þeir geti byrjað að gefa vinum og vandamönnum aftur banka og önnur verðmæti.
Ég hef aldrei verið hrifin af Vilhjálmi Egilssyni, hann er dæmigerður spenapólitíkus sem notið hefur þess að vera sogfastur á spenanum. En ég held samt að hann hafi ekki átt skilið þær trakteringar sem foringinn veitti honum i lok ræðu sinnar.
Ósmekklegheitin voru víðar; Seðlabankastjórinn nýji fékk sína sendingu, Jóhanna Sigurðardóttir og margi fleiri. Og fólkið gapir yfir snilldinnin hjá foringja sínum. Það var dramatísk þögn eftir að hann lauk máli sínu og svo var klappað kannski ekki í klukkutíma eins og vera bar í Rússlandi, en örugglega alveg heillengi.
Það má sjá á bloggsíðum andsvörum og spjallrásum að sjálfstæðismenn halds ekki vatni yfir snilldinni. Setningar eins og þarna jarðarði Davíð Samfylkinguna, eða niðurlæging Baugsliðsins algjör og svo framvegis. Tek samt eftir að það er ekki orðað neitt um Vinstri Græna. Það er sennilega verið að halda einhverjum dyrum opnum um að komast í sæng með þeim eftir kosningar.
Ég veit fyrir víst að á fundinum voru öryrkjar, gamalt fólk og verkamenn og aðrir sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sparkað í gegnum tíðina. Samt fer þetta fólk hnarreist á fundi og dásamar forystuna. Ef það er ekki að kyssa á vöndinn þá veit ég ekki hvað. Mér líður eiginlega hálf illa við að hugsa til þessa fólks, vil ekki kalla það kjána, en ég á eiginlega ekkert annað orð yfir það. Hugsunin er enginn, það er ekki lagt saman tveir og tveir og fengið út fjórir. Heldur hanga menn í þessari gloríu og flottu fólki og finnst mikið til koma að fá að vera með í þessum glæsilega hópi. En gerir sér enga grein fyrir að þau eru þarna eingöngu sem atkvæði til að halda fína fólkiniu við völdin. Sorrý þið, en þetta er bara mín meining.
En það gerðist samt dálítið gleðilegt; það gengu nokkrir út undir ræðunni. Nokkrir fengu nóg, það nægir þeim ef til vill ekki til að fara úr flokknum, því flestir skila sauðirnir sér heim til slátrunar, en það sýnir samt að einhverjir þarna eru hugsandi fólk, sem ofbýður og þorir að sýna það.
Sumum finnst ef til vill að ég sé hörð í dómum mínum hér. En ég er alveg gáttuð á því að það sé til fólk sem ennþá treystir ráðamönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir fjöreggi sínu fjölskyldunni og lífinu. Stendur á brunarústunum með eldspýturnar og olíuna tilbúna til að rétta þeim, svo þeir geti haldið bálinu áfram. Og að það skuli enn þora að segja það upphátt, heldur er þar á ofan stolt yfir því. Hvað gerist í hausnum á slíku fólki? Ég bara spyr. Ég skil þá sem eru með silfurskeiðar í munninum, og réttbornir í stöðurnar sem bjóðast. En þeir sem náðarsamlegast fá að koma til að greiða atkvæði sitt, hafa lítið til að vera stoltir yfir.
Mig langar til að höfð til skynsemi fólks sem er farið að hugsa lengra en það að Davíð sé Jesú Kristur og hinir postularnir. Kjósið eitthvað annað en þessa spillingu. Hvað sem er. Vinstri græn og Samfylkingin hafa sýnt góða takta nú við stjörnvölin. Þó mér finnist að þar megi koma inn rödd Frjálslynda flokksins, til dæmis í Sjávarútvegsmálum, og ég tel að stjórnin yrði sterkari með okkur innanborðs. Borgaraflokkurinn er líka góð lausn fyrir fólk sem vill breytingar, margt gott og heiðarlegt fólk þar. En fyrst og fremst lesið ykkur til um stefnumál flokkanna, en ekki bara það heldur skoðið hvað þeir hafa haft fram að færa, það er til dæmis fróðlegt að skoða frumvörp frá stjórnarandstöðunni sem ekki hafa fengið brautargengi á þinginu, eins og frumvarp Frjálslynda flokksins um afnám verðtryggingar, sem Sjálfstæðismenn þykjast nú ætla að framkvæma, en gerðu ekki meðan þeir gátu það.
Við höfum ekki efni á að láta reka á reiðanum. Við verðum að velja að natni og heiðarleika það fólk sem við teljum að geti bjargað þjóðinni frá glötun. Og ég vil að við gerum það sjálf. Það fólk sem heimtar að við förum inn í ESB er að mínu mati landráðafólk, hvorki meira né minna. 'Eg get skilið að það sé ríkulegur áhugi á að fá okkur inn, því þeir geta ekki beðið með að koma höndum yfir auðlindir okkar, fiskinn, heitavatnið og ekki síst okkar hreina ómengaða vatn. Það er hreinn og klár barnaskapur að halda að útlendingar vilji okkur inn af einhverri góðsemi. Hún er því miður sjaldgæfari en hvítur hrafn. Látum ekki landið okkar í hendur annara baráttulaust. Og látum ekki Sjálfstæðisflokknum takast að plata okkur eina ferðina enn með að koma þeim til valda.
Svo óska ég ykkur öllum góðs þennan dag, sem er frekar hryssingslegur.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Ásthildur og takk fyrir síðast.
Þessi pistill þinn er að mínu mati snilld, sannleikurinn í hnotskurn án þess að níðast á nokkrum. Tími Sjálfstæðisflokksins (þvílíkt rangnefni) ætti að vera löngu liðinn það sér hver heilvita maður en því miður.
kveðja
Róbert Tómasson, 29.3.2009 kl. 11:24
Ásthildur mín staðreyndin er bara sú að sumir hafa aðra skoðun og styðja önnur málefni en það er samt ekki samasem merki um það að það sé sagt já og amen við öllu. Ekki stimpla okkur öll sem kjána þó að við styðjum okkar flokk og málefni, þú vilt ekki að það sé gert við "þitt" fólk. Margt af því fólki sem mætir á Landsfund kemur þarna til að knýja fram breytingar en ekki af því að það sé þarna til að tilbyðja allt sem rennur frá forystunni. Ekkert frekar en í öðrum flokkum.
Eigðu góðan dag
Huld S. Ringsted, 29.3.2009 kl. 12:00
Hulda
Afhverju þarf Sjálfstæðisflokkurinn an knýja framm breitingar?? Höfðuð þið ekki síðastliðinn 18 árinn til þess ?? Og af hverju er Ísland ein rjúkandi rúst eftir setu þessa flokks,spyr sú sem ekkert veit :(
Nikólína (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 12:29
Takk fyrir það Róbert.
Huld mín ég er ekki að stimpla einn eða neinn. Einungis að benda að að samkvæmt mínum skilningi þá er fólk sem styður Sjálfstæðisflokkinn veruleikafirrt, setur ekki samasemmerki milli orða og gjörða flokksforystunnar. Þeir hafa nú haft 18 ár til að gera Ísland að því góða samfélagi sem þeir ræða svo mikið um í kosningum, en einhvernveginn breytist svo allt þegar þeir hafa náð sigri. Það á ekki heldur eftir að breytast neitt meðan þeir fá að ráða. Því verðið þið að sitja undir því að viðhalda þessum brunarústum, meðan þið styðjið þetta fólk til valda. það er bara þannig því miður. Skil reyndar ekki hvernig nokkur einasti útgerðarmaður getur veitt þeim atkvæði sitt nema kvótagreifarnir í L.Í.Ú. sem eru þeirra menn númer eitt tvo og þrjú, og það mun ekki neinu verða breytt meðan þessir menn eru við völd. Og til dæmis er Kristján Þór þarna beinlínis til að styrkja Samherjavini sína og frændu og þar með L.Í.Ú.
Knús Helga mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2009 kl. 15:27
ég hef nú aldrei farið leynt með það að ég styð ekki þeirra nálgun á fiskveiðistjórnunarkerfinu en yfirgef ekki flokk fyrir eitt málefni, frekar en að ganga í flokk fyrir eitt málefni. Ég er heldur ekki svo stórhuga að ætla sjálfstæðisflokknum að eiga sök á heimskreppu, ég er heldur ekki sátt við hvernig útrásarvíkingarnir fengu að vaða uppi óáreittir en er fullviss um að landið stæði enn verr ef að vinstriflokkar hefðu verið við stjórn, þá hefðum við einfaldlega verið í bullandi skuld áður en bankaskuldirnar bættust við.
En þetta er mín skoðun sem mér er frjálst að hafa en að ég sé veruleikafirrtur kjáni sem elti flokkinn minn sama hvað er ekki rétt, ég hef jú frjálsar skoðanir og þær ansi ákveðnar. Ekki gef ég öllum í frjálslyndum að vera forhertir rasistar þó að ansi oft hefðu hlutirnir gefið tilefni til þess, ég bara veit betur og ég veit að innan þíns flokks er fullt af fólki með ólíkar skoðanir á því máli. Þessi umræða um að stimpla alla sem einn finnst mér alltaf svolítið barnaleg. Það yrði allt vitlaust ef að ég segði að allir Rússar væru drykkjumenn. (bara dæmi). Gefum fólki leyfi til að aðhyllast ólík málefni og að hafa ólíkar skoðanir án þess að setja alla undir einn pakka og kalla þá slöppum nöfnum bara af því að þeir eru ekki á sömu skoðun og þú. Hvernig væri heimurinn ef að við litum öll í sömu át. Svo er ég ekki í útgerð í dag, svona til að leiðrétta. En eins og þú veist þá erum við hjónin í sitthvorum flokknum og höfum gjörílíkar skoðanir á hlutunum en aldrei dytti okkur til hugar að fara í þann farveg að setja stimpil á hvort annað, því við vitum betur
Eigðu góðan dag Ásthildur, ég nenni ekki að þræta við þig um þetta, er bara orðin hundleið á að mér séu gefnar upp skoðanir eða stimpluð sem ein með fjöldanum, ég veit að þú hefur orðið reið þegar rasistastimpillinn hefur komið á ykkur, hugsaðu málið, komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig.
Huld S. Ringsted, 29.3.2009 kl. 16:44
Huld mín ég er ekki að gera þér upp skoðanir alls ekki. Ég er bara að segja að það er nokkuð ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki fyrir miklu þegar á reynir annað en að hygla flokksgæðingum, þeir hafa hafa haft 18 ár til að sanna það. Ég var alin upp við sjálfstæðiskenninguna, afi minn og amma sem ég ólst upp hjá voru hatrömm í sjálfstæðiskenningunni, og ég fékk að heyra kommagrýluna frá a til ö. Lengi vel kaus ég svo þennan sama Sjálfstæðisflokk, eða þangað til ég gerði mér grein fyrir að hann var ekki lengur sá flokkur sem afi minn og amma tóku þátt í. Eða flokkur allra stétta, þetta gerðist held ég við inngöngu Davíðs, ég er næstum viss um að hann breytti flokknum í það frjálshyggjubæli sem hann er í dag. Steingelt fyrirbæri sem aldrei mun koma landinu okkar til góða, það hefur 18 ára stefna hans sýnt sem forystusauður allan þann tíma.
Því fyrr sem sauðirnir gera sér gerin fyrir því, því betra.
Ég er leið yfir að þú skulir bera saman þann rasistastimpil sem settur hefur verið á Frjálslynda flokkinn, sem óheilt fólk kom á hann, og aldrei hefur verið samþykkt af félögum flokksins og orð mín um Sjálfstæðisflokkinn. Sú umræða hefur verið óvægin og mjög óréttlát. Við höfum ekki getað komist í þá aðstöðu að sanna eða afsanna neitt. Það hefur Sjálfstæðisflokkurinn aftur á móti haft, svo sannarlega. Sú stefna og það frjálsræði sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft gegnum tíðina er gjaldþrota, en þeir boða að ennþá eigi að halda áfram þeirri stefnu. Stefnan er nefnilega rétt, en fólkið brást. Svo ég vorkenni ykkur elskan mín fyrir að verja þessa afstöðu ykkar, en ekki kenna okkur hinum um að þið þurfið að standa berskjölduð og verja afstöðu ykkar. Það er ykkar mál algjörlega, en um leið lýsir ákveðinni hvað á ég að segja.... nei ég vil ekki segja neitt.
Það breytir ekki því að mér þykir vænt um þig sem manneskju og bloggvin. Og óska þér alls hins besta í því skemmtilega sem þú ert að takast á við núna, opnun fiskbúðarinnar, sem ég vona að gangi vel. Ég get nefnilega alveg leitt hjá mér pólitík við fólk sem ég vil eiga að vinum. Þá ræði ég það einfaldlega ekki.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2009 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.