26.3.2009 | 21:47
Austurríki og Ísafjörður.
Hún dóttir mín sendir mér stundum myndir frá skólanum sínum og svo göngutúrum með hundana.
Eins og fram hefur komið áður þá býr hún í gastanki þeir eru fjórir hlið við hlið sem hafa verið gerðir að íbúðarhúsum, skemmtilegir gamlir tankar en sannarlega bæjarprýði.
Austurríkismenn eru ekkert feimnir við að prjóna nýtísku viðbyggingum við gamlar fallegar byggingra, spurning hvort það virki. Þessi viðbygging sem er íbúðarblokk er kölluð skelin.
Hér er hún í skólanum, og það er greinilegt að þau eru að fara í aðgerð.
Ójá hvutti litli þarf meðhöndlun.
Það snjóaði líka í Austurríki um daginn. Þetta er Trölli, ég var með hann í fóstri nokkra mánuði, en svo fór hann til Austurríkis og er þar núna þessi elska.
Hér er kærastan hans hún Goldie. Þau eru rosalega góðir vinir og búa saman eins og er. Því honum líður betur í sveitinni hjá vinum okkar þeim Samúel og Heidi.
Þetta er sannkallað hundalíf.
Svo er gengið niður að á.
Það getur líka verið skemmtileg birta í Austurríki.
Skuggar og skin. Það er virkilega gaman að ganga þarna um í skóginum og fylgjast með lífinu í ánni.
Það er náttúrulega ekkert á við snjóinn hér heima, og þessi var tekin í dag.
Veðrið er fínt.
Krílin nýkomin úr baði og nú eru þau sofnuð.
Og ég segi líka góða nótt.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sofðu vært 'Asthildur min og takk fyrir skemmtilegar myndir eins og alltaf
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 26.3.2009 kl. 22:03
Frábærar myndir
Verst að Sigurjón Dagur er sofnaður - annars hefði ég tekið hann og étið hann 
Hrönn Sigurðardóttir, 26.3.2009 kl. 22:14
Það er ekki amalegt að skreppa með þér til Austurríkis á kvöldrúntinum
Sigrún Jónsdóttir, 26.3.2009 kl. 22:51
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 26.3.2009 kl. 23:57
Gaman að þessum myndum. Ótrúlega undarlegur arkitektúr þarna þessi nýja skel utan á gömlu húsinu
ég get eiginlega ekki gert upp við mig hvort mér líkar það eða ekki haha bara absúrd og kannski skemmtilegt að hrista aðeins upp. 
Takk fyrir ferðalagið, alltaf gaman að sjá skemmtilegar myndir. Dýralæknir var eitt af því sem ég ætlaði mér sko að verða þegar ég yrði stór en komst svo að því að ég er svo mikil písl í mér að ég gæti ekki sprautað og hvað þá skorið upp! hahaha eins gott að einhver getur það
Ragnhildur Jónsdóttir, 27.3.2009 kl. 10:47
Sama segi ég Ragnhildur ég get ekki gert upp við mig hvort mér líkar þetta eða ekki, svo eru glergöng milli tankanna sem tengja þá saman. Eins gott að það er til fólk sem getur krakað í bæði mönnum og dýrum, ég er eins og þú gæti það aldrei
Gaman að geta farið með ykkur í smáferðalag Sigrún mín
Knús og sömuleiðis Helga mín
Einmitt Sígrún mín, svona aðeins á bakka Dónár.
Hahaha Hrönn mín, skil þig vel
Knús Sirrý mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2009 kl. 10:57
Trylltur arkitektúr, svona fallega ljótur.
En börnin eru krútt og birtan falleg á Ísafirði.
Hundarnir eru ótrúlega sætir og eigulegir.
Knús.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.3.2009 kl. 11:04
Hæ ,Ásthildur
Já alltaf fallegar myndir, en ég er alltaf að skoða svæðið frá Engidal og yfir á Breiðadalsheiðina. Skýjafarið er magnað.!
Kærleikskveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 11:51
Knús Jenný mín
Hehe Þói minn já þetta er útsýnið frá mér nebbbnilega sko!!! Annars takk.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2009 kl. 12:21
Takk fyrir skemmtilegt ferðalag. Ég er sammála, þessi arkitektúr er truflandi, en ég hef svolítið gaman af að fara útúr þessu reglulega svo þetta er skemmtilega skrítið.

Dísa (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 18:11
Já einmitt, þetta er eitthvað alveg út úr kú, en samt heillandi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2009 kl. 18:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.