Smá hugleiðingar um frambjóðendur, frá hjartanu mínu.

Kæru vinir ég hef verið upptekin í gróðurstússi, þar sem ég tók að mér að vera með fyrirlestur um nytjajurtir sem vaxa hér fyrir vestan.   Það er af mörgu að taka, og erfitt að gera upp á milli.  Ég kaus að nota mér lítið rit frá 1880, um íslenskar nytjajurtir til lyfjagerðar.  Þessi bók er enn í fullu gildi þrátt fyrir aldurinn, og plönturnar eru þær sem eru hér allt í kring um okkur, eins og njóli, fífill, vallhumall og fleiri.  Ég ætla að koma með þetta hér inn seinna ykkur til fróðleiks, því það er margt hægt að gera við þær plöntur sem við í daglegu tali köllum illgresi. 

kvöldið var í gær og tókst mjög vel, þó ég segi sjálf frá.  Það var húsfyllir, þau héldu jafnvel að þetta væri mesta aðsókn sem verið hefði, og ég er stolt af því, einnig var fjarfundabúnaður notaður til að fólk á Hólmavík gæti verið með okkur.  En þetta tók allan minn tíma.  Svo þess vegna gerðist ekkert hér.  Blush

En ég ætla að setja nýjar myndir inn á eftir, frá snjónum og veðrinu hér, sem er mjög gott í dag, og í gær reyndar líka, þó umferð hafi verið erfið á götum, því mikið var að moka og skafa snjó.  Karlarnir okkar hér snjómokararnir eru sem betur fer vanir og eldsnöggir að ryðja þá vegi sem þarf, sumir þurfa þó að bíða aðeins, því þetta tekur allt sinn tíma. 

Ég var svona að hugs um það áðan, nú þegar allt er komið á fullt í kosningabaráttu hjá þeim sem vilja bjóða sig fram, að nú þurfum við aðeins að stoppa við, skoða hlusta og kynna okkur það fólk sem býður sig fram.  Það þarf að meta unnin störf þeirra líka.  Það ætti nefnilega ekki að vera nóg að hafa bara hátt og láta mikið á sér bera.  Vera duglegur að kynna sig og sitt, ef ekkert liggur svo á bak við það annað en að komast að völdum. 

Nú ríður á mín kæru að vinna að lýðræðisbyltingunni, því ég hugsa að það sé ekki nóg að stökkva bara á eitthvað nýtt, heldur er sennilega affærasælast að reyna að hafa góð áhrif á frambjóðendur í þeim flokkum sem við ætlum að kjósa yfir okkur í vor.

Ekki láta glepja okkur með fagurmælum, ef viðkomandi hefur ekki sýnt neitt í þá veru áður, þá er hann svo sannarlega ekki líklegur til að fara að taka upp á því eftir kosningar. 
Ekki heldur láta plata okkur með því að viðkomandi sé svo duglegur að afla fylgis.  Það er ekki grunnurinn undir lýðræðið.  Því oftast er slíkt mest byggt á að mylja undir sig sjálfan sig. 

Nei þið skuluð taka eftir þeim sem er rólegur þögull en hefur sýnt af sér að vilja vinna í þágu fólksins.  Hann þarf ekki að gala hátt til að heyrast, því hann vill einmitt láta meta sig að verðleikum.  Það er til svona fólk, það er bara að gefa sér tíma til að finna það í öllum þessum hamagangi.  Ég bendi til dæmis á Jóhönnu Sigurðardóttur, af því að hún er gott dæmi, en það eru Jóhönnur í öllum flokkum trúíð mér.  Þær verða bara oftast undir af því að fólk glepst á þá sem hafa hærra. 

Málið er að nú ríður á að vanda valið.  Ekki bara á þeim flokk sem viðkomandi ætlar að styðja, heldur líka að taka þátt og vanda valið á frambjóðendum þar. 

Reyndar kemst það vonandi á koppinn að hafa óraðaða lista, það er vilji til þess hér hjá mér, og ég mun beita mér fyrir því að svo verði.  Að vísu verður það sameiginleg ákvörðun frambjóðenda og forystu, en ég hef trú á því að fólk setji sig ekki upp á móti þeirri lýðræðislegu gjörð sem það er. 

Annað sem vert er að hafa í huga er að það er líka á ykkar ábyrgð að veita konum brautargengi í flokkunum.  Það fer alltaf best á því að sjónarmið beggja kynja komi sem mest að málum.  Oft var þörf en nú er nauðsyn.

Látið aldrei telja ykkur trú um að þessi eða hinn sé ómögulegur, af því ..... eitthvað bara, eða að þessi sé ómissandi af því .... eitthvað bara. 

Við erum oft svo fljót að dæma, og taka mark á því sem við okkur er sagt.  En það er einmitt í svona tíð sem reynt er að olnbogast í gegnum skarann og þá er sama hver verður fyrir, hann skal burt.  Það er í okkar valdi að láta ekki olnbogarana troðast fremst, og láta hina sitja eftir af því að þeir troða sér ekki.  Ég vona að þið skiljið hvað ég er að fara. 

Skoðum hvern og einn fyrir sig, og hugsum hverjum treysti ég best til þess að vinna að því að koma þjóðinni út úr þessari vansæmd.  Hvað hefur þessi manneskja gert, og hvað hefur hún sagt.  Fer það ef til vill ekki saman?

Ekki bara hlusta á næsta mann og trúa því sem sagt er.  Nú ríður á að við sýnum hæfni okkar sem kjósendur til að lyfta lýðræðinu upp á æðra plan.  Gera það skilvirkara og dempa aðeins niður í olnbogurunum, þeir eru oftast fullir af sínu eigin lofti, og sjá ef til vill ekki neitt fram fyrir eigið nef.  Ef þið spáið í það, þá sjáið þið að það er oftast satt.  Narrzissus horfði bara í spegilinn, af því hann var flottastur, við höfum ekkert að gera með slík spegladýr á þessum tímum.  Heldur alvöru fólk sem vill vinna fyrir okkur. 

Þetta er bara hugsun sem sækir á mig í öllum þessum æsingi fólks við að kynna sig.  Ekki halda að ég hafi á móti því að fólk láti uppi þau góðu verk sem þau hafa gert.  Heldur þarf einmitt að skoða hvort það stenst.  Hvort viðkomandi hafi í raun og veru þann kaliber til að bera að vinna þjóðinni sinni og okkur öllum sem best í hag en það er einmitt það sem þarf núna. 

Eitt að lokum, sumir gerast rosalega lýðræðislegir rétt fyrir kosningar, þó þeir hafi ekkert sýnt annað en hroka.  Biðjast afsökunar á þessu og hinu og skilja allt svo vel.  Þetta fólk treystir á gullfiskaminnið fræga.  Ekki láta slíkt fólk glepja ykkur til að vinna þeim brautargengi, við höfum nákvæmlega brennt af okkur allar stélfjaðrir með slíkt fólk í fararbroddi undanfarin svona 20 ár.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Þetta er eins og talað frá mínu hjarta. Setningin með þann sem horfir á sig í speglinum af því að hann er flottastur, segir heilmargt! Nú þurfum við að vera ábyrg og fylgjast vel með. Það er einmitt oftast sem hávaðabelgirnir gera minnst en hinir sem læðast eru að vinna verkin sín. Og það er það sem við þurfum.

Takk fyrir þessar góðu ábendingar  og alls ekki hafa móral yfir því að vera ekki stanslaust með nýjar færslur handa okkur. Það þurfa allir að sinna sínu, og þú líka

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 5.3.2009 kl. 15:44

2 Smámynd:

Góður og þarfur pistill Ásthildur. Notum nú innsæi og dómgreind til að skilja kjarnan frá hisminu.

, 5.3.2009 kl. 16:49

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að heyra að fleiri hugsa eins og ég.   Það læðist svon að mann hálfgerður hrollur við alla átroðsluna, pappírinn inn um bréfalúgurnar og bloggvinátta og facebook til að kynna sig og koma sér á framfæri.  Ekki illa meint, en maður er bara einhvernveginn búin að fá nóg af þessu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2009 kl. 16:54

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Stórt faðmlag til þín elsku Ásthildur mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.3.2009 kl. 18:56

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 5.3.2009 kl. 19:40

6 identicon

Hefði viljað vera fyrir vestan og hluta á fyrirlesturinn um jurtirnar.

En pistillinn var þarfur, óþolandi allur þessi aukaburður með pappíra sem eru ekki einu sinni skoðaðir. Þvílík peningasóun að eyða peningum í svona kosningaáróður. Enn sem komið er mun ég skila auðu, mun ekki kjósa flokk fyrr en ég get valið sjálf fólkið sem ég treysti best fyrir landi og þjóð. Eða td ef ég ætlaði að kjósa FF og myndi vilja Heiðu í 1.sæti þá gæti ég það ekki af því að hún er í öðru kjördæmi, ég vil fá að velja sjálf og hana nú.

Er ekki annars annatíminn að fara að hefjast í gróðurhúsinu, ákvað að þetta árið skyldi engu sáð hérna heima.

Knús í kúluna fyrir vestan

Kidda (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 20:44

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á móti Katla mín

Knús Hrönn mín

Kidda mín það verður ekki langt í prklun hjá mér Sáðum um miðjan febrúar og sprettur vel.  vorið fer lika að koma í garðskálann minn, ég lofa að taka myndir af vorinu um leið og að sést, að vísu blómstrar páskarósin sem aldrei fyrr.  Knús á þig. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2009 kl. 21:03

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það hefur aldrei verið nauðsynlegra en nú að vera vel vakandi og á verði.

Sigrún Jónsdóttir, 5.3.2009 kl. 21:35

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

úpps og afsakið..ég er glaðvöknuð og mun ekki bregða brá fyrr en ísland er oröið land réttlætis og sanngirni...

Knús vestur til ykkar í kærleikskúluna

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.3.2009 kl. 14:07

10 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæl, mikið er ég þér sammála Ásthildur. Ég tel að persónukjör sé til bóta. Þá þarf kjósandinn að leggja á sig vinnu og jafnvel að hugsa sig um. Hefur þessi frambjóðandi staðiðs sig vel? Gullfiskaminnið á ekki heima þarna. Sá sem fær afgerandi kosningu á þann hátt í efsta sætið hefur mjög afgerandi völd, beint frá fólkinu-ekki flokknum. Td Geir Haarde gæti ef hann vildi verið efsti maður í Rvk eins lengi og örhópurinn í Valhöll vill það. Aftur er næsta víst að hann yrði ekki  efsti maður ef persónukjör væri notað.

Gunnar Skúli Ármannsson, 8.3.2009 kl. 10:05

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mikið rétt og þetta er líka góður punktur hjá ér Gunnar, að með svona persónukjöri hefur þingmaðurinn meira vald frá fólkinu sjálfu, og hlýtur að hugsa aðeins öðruvísi þegar kemur að umdeildum málum.  Hann hefur verið valin af fólkinu vegna málefnanna.  Það er vert að hafa í huga. 

Gott að heyra Katrín mín, ég veit það sé að á þínum skrifum.

Við verðum að brýna fólk til dáða Sigrún mín, vekja það og reyna að fá fólk til að hugsa á sínum eigin forsendum en ekki mötun samfélagsins.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2009 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband