2.3.2009 | 14:10
Kolbrún Bergþórsdóttir drullar upp á bak.
Það barst mér til eyrna blaðagrein í Morgunblaðinu í gær eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur, ég varð að lesa hana tvisvar yfir, til að skilja að hún var að ræða um Frjálslyndaflokkinn. Fyrir utan að greinin er á allan hátt Kolbrúnu til háborinnar skammar, þá eru hún ein staðreyndavilla út í gegn. Ég vil ráðleggja henni að kynna sér málefnahandbók Frjálslynda flokksins, hún er aðgengileg á www.xf.is, þar kemur meðal annars fram að flokkurinn hefur mörg góð mál á sinni stefnuskrá.
Ég er reyndar mest hissa á Morgunblaðinu sem vill láta taka sig alvarlega sem fjölmiðil að birta svona sora og ómerkilegheit.
Í þessari grein ræðst hún með offorsi á þingmenn flokksins, og segir eftirfarandi; Það var mikið mein þegar fulltrúar þessa flokks komust á þing og töldu sig vera gilda fulltrúa þjóðarinnar, jafn illa talandi og illa þenkjandi og þeir sýndu sig vera.
Og svo síðar: Það má svo sem halda því fram með nokkrum rökum að ágætt sé að menn sem hafi engan áhuga á þjóðfélagsmálum en því meiri áhuga á sjálfum sér safnist saman í einn flokk, en dreifi sér ekki á milli bæja.
Og hérna;
Það er svo margt furðulegt við Frjálslynda flokkinn þar á meðal sú staðreynd að formaður flokksins virðist vera ágætis maður sem virðist aldrei átta sig á því að flokkur hans var kominn út á hættulegar villigötur. (Leturbreytingar eru mínar)Nú langar mig að spyrja þig Kolbrún Bergþórsdóttir;
Hvað áttu við með því að Guðjón Arnar, Sigurjón Þórðarson Magnús Þór Hafsteinsson og Sverrir Hermannsson séu illa talandi og illa þenkjandi, eða ertu ef til vill að vísa í Grétar Mar, Jón Magnússon eða Kristinn H. Gunnarsson? Ég veit ekki til þess að Guðjón Arnar né neinn þessara manna sé illa þenkjandi og ekki eru þeir illa máli farnir, svo mikið er víst.
Og hvað áttu við með að flokkurinn hafi verið kominn á hættulegar brautir? Útlendingaumræðan var blásinn út m.a. af Jóni Magnússyni, sem er nú gengin til liðs við Sjálfstæðismenn, svo þessi hættulega umræða er nú komin heim í föðurhús sín. En við í Frjálslynda flokknum höfum góða stefnu í málefnum útlendinga, sem þú getur kynnt þér ef þú nennir að lesa samþykktir og málefnaskrá flokksins áður en þú ryður út úr þér lyginni og ómerkilegheitunum.
Þar stendur m.a. þetta;
Úr málefnahandbók bls. 34.
Innflytjendur og flóttafólk.
Leggja þarf aukna áherslu á íslenskukunnáttu innflytjenda til að auðvelda þeim þátttöku í íslendsku þjóðfélagi. Tryggja ber að þessi hópur njóti félagslegs jafnréttis og geti tekið fullan þátt í samfélaginu, öllum til hagsbóta.
Íslenskt þjóðfélag mun í framtíðinni að hluta til verða myndað af hópum fólks sem á rætur að rekja til ólíkra menningarheima. Frjálslyndi flokkurinn telur að tilkoma fólks af erlendu bergi brotið leiði til víðsýni meðal þjóðarinnar og auki samkeppnishæfni hennar á aljóðavettvangi.
Ísland á ekki að skorast undan ábyrgð í málefnum flóttafólks. Einnig ber íslendingum að taka þátt í mannúðar- og hjálparstarfi á erldnum vettvangi.
Hvar sérð þú hættulegar yfirlýsingar hér.
Nei Kolbrún Bergþórsdóttir, með þessum skrifum hefur þú svo sannarlega sýnt skítlegt eðli, og fyrir mér allavega verður þú hér eftir ómarktæk. Þar sem þú hirðir ekkert um sannleikann, eða það sem rétt er, heldur þína bjöguðu sýn á menn og málefni. Ég vona svo sannarlega að þú kunnir að skammast þín, og vinsamlegast biddu okkur fólkið í Frjálslyndaflokknum formlega afsökunar á lygum og illa ígrunduðum áróðri þínum.
Að þú skulir kalla þig blaðamann er algjörlega út úr korti. Þú ert hér á við Eirík Stefánsson Útvarpssögu hetju í sleggjudómum og skítkasti. Lýðræðið er þér greinilega ekki ofarlega í huga, þegar þú vilt þagga niður í fólki sem kosið hefur verið á þing út á sín góðu málefni og áhuga að að bæta kjör fólksins í landinu, því ef þú nennir að skoða þau þingmál sem flokkurinn hefur lagt fram, þá sérðu að þar eru mörg þörf og brýn mál sem ættu svo sannarlega að koma fram, en því miður þá er í gangi þöggun á Frjálslynda flokkinn, nema þegar fólk eins og þú finnur hjá sér hvöt til að afbaka og falsa málefnin sem flokkurinn stendur fyrir.Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað getur maður annað en hrist höfuð stundum - þegar maður hugsar um að svo verður maður að hafa sumt af þessu fólki yfir sér með stjórnartauma í hendi ... hvernig getur maður treyst fólki sem lætur svona frá sér?
Hafðu það ljúft Vestfjarðardrottning mín, knús og kram!
Tiger, 2.3.2009 kl. 16:17
Svona skrif eins og hjá Kolbrúnu Bergþórs dæma sig sjálf, henni og Morgunblaðinu til lítils sóma. Verði nýjum eigendum Morgunblaðsins að góðu að hafa innan sinna vébanda slíkan blaðamann. Það er ekki gæfulegt fyrir nýja eigendur, sem vonast til að geta fengið nýja áskrifendur og þá sem fyrir eru til að standa undir rekstri blaðsins. Ekki mun ég kaupa blaðið með þessa manneskju innanborðs.
Ragnheiður Ólafsdóttir, 2.3.2009 kl. 17:09
Var að lesa þennan pistil...og verð að segja að mér varð barasta orðavant... þvílíkt bull , og hrokinn. Fúkyrðaflaumurinn sem þessi aumingja manneskja getur ausið úr sér, er með ólíkindum. Hvar í ands..... fær hún þennan óskapnað í höfuðið. Eitt og annað annarlegt hefur svo sem frá henni farið en nú tekur út yfir allan þjófabálk. Ja ef þetta er ekki ,,Rasismi" þá hef ég eitthvað misskilið það orð. Vil bara vona að þessi kona leiti sér hjálpar hjá viðeigandi stofnun. eða þá að hún verði látin standa fyrir orðum sínum, nú eða sótt til saka fyrir meiðyrði af verstu gerð. Það getur svo sem vel verið að einhverjum finnist þetta hlægilegt, ekki mér,,,Ég er sjóðandi vondur. Man ekki eftir að hafa fengið slíkan óþverra yfir okkur sem aðhillumst stefnu Frjálslynda flokksins. kv .Steini Árna
Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 18:14
Þú ert kona sem stendur með þínum flokki.
Helga Magnúsdóttir, 2.3.2009 kl. 18:55
Takk TíCí minn elskulegi. Já það er sannarlega hrollvekjandi að hugsa til þess að þetta fólk nái ef til vill vopnum sínum og verði áfram í ríkisstjórn eftir kosningar. Eins og við viljum breytingar og annað hugarfar.
Búkolla mín, já hún tilbiður Davíð eins og Guð, hehehe þetta með f*********una er flott.
Segi sama Ragnheiður mín, verði þeim að góðu að hafa slíka blaðamenn eins og Kolbrúnu og Agnesi, sem eru gjörsamlega heilaþvegnar og eru með suma frammámenn eins og Davíð bókstaflega á heilanum ef ekki í öðrum líkamshlutum líka.
Steini minn já ég er reið að lesa svona. Af því að ég veit að þetta er allt saman tóm lygi og þvæla. Mikið má þessi kona skammast sín. Ég vona að hún verði kærð til siðanefndar blaðamannafélagsins.
Takk Helga mín, en það er af því að ég þekki fólkið mitt, og veit að þarna er gott og heiðarlegt fólk sem vill vel, þess vegna fylgi ég flokknum. Ég myndi aldrei styðja flokk sem hagaði sér eins og fólk hefur látið við hann undanfarið með rógi og illmælgi, og þetta toppar allt slíkt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2009 kl. 19:24
Þessi skrif Kolbrúnar dæma sig sjálf. Ótrúlegt hvað fólk getur látið út úr sér um aðra og komist upp með það!
Mér er mikið hugsað til ykkar núna þegar ég heyri að verið sé að rýma hús í Bolungarvík. Ég vona að það fari vel um þig og þína, svo og aðra íbúa fyrir vestan, á meðan þetta veður gengur yfir. Knús í þitt hús elsku Ásthildur
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.3.2009 kl. 20:14
Að lesa þessa grein hjá Kolbrúnu þá dettur mér hug hvort hún og Eiríkur St. séu vinir, ég bara spyr? Þvílíkir fordómar hjá henni og til háborinnar skammar. Við frjálslynd svörum þessu best með málefnalegri kosningabaráttu og jákvæðni, ég er viss um að við munum ná lengra en margur heldur í vor. Bestu kveðjur vestur.
Kolbeinn Már Guðjónsson, 2.3.2009 kl. 20:20
Mér finnst Kolbrún óttalegur rugludallur en þín skrif eru flott
Sigrún Jónsdóttir, 2.3.2009 kl. 21:28
Kolbrún er hrekkjusvín - á ekki annað orð yfir svona skrif!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.3.2009 kl. 21:50
Hér er allt í lagi Sigrún mín. Auk þess er ég sannfærð um að þó hér kæmi snjóflóð, þá myndi það bara fara yfir. Snjóflóð haga sér þannig, að þau skella á beinum vegg, það kemur hljóðbylgja á undan sem getur lyft þakinu og þannig skemmist húsið, hjá mér myndi þetta bara allt fara yfir og áfram. Það er mín trú, knús á þig elskuleg mín
Kolbeinn alveg gæti ég trúað því að þau væru skyld andlega allavega, þessi tvö. En rétt er það við munum standa keik og bera okkur vel. Bestu kveðjur til þín líka.
Takk Sigrún mín. Stundum getur maður ekki annað en látið í sér heyra, þegar svona ósvífnar manneskjur reyna að tæta af manni æruna. Því þetta snertir ekki bara þingmenn flokksins heldur alla kjósendur hans.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2009 kl. 21:51
p.s. ég held að það megi ekki klína allri neikvæðu útlendingaumræðunni á Jón Magnússon, Magnús Þór átti sinn skerf með að valda misskilningi hjá fólki með sína framsetningu varðandi flóttakonurnar sem komu á Skagann. Viðar hinn ungi hefur líka átt spretti ...
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.3.2009 kl. 22:08
Já það er alveg rétt hjá þér Jóhanna mín. Var bara að hugsa um greinina sem átti þáttaskil í þessari rasistaumræðu; manstu...Ísland fyrir íslendinga. Það var bara fyrirsögnin sem gerði allt vitlaust, ég held að fólk hafi ekki lesið greinina, bara horft á fyrirsögnina og dæmt út frá því.
En stefna flokksins er skýr hvað varðar innflytjendur. Þar sem allstaðar annarstaðar skal virða manneskjuna sem slíka, og ég er stolt af því.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2009 kl. 22:21
Ásthildur! Bakið á konunni er svo óhreint að það munar ekkert um drullu í viðbót. Álit mitt missti hún endanlega fyrir alllöngu er hún bölsótaðist gegn því að tekið væri á einelti - og fullyrti að tal um einelti væri þvættingur! Þá munu þær stöllur, Agnes og hún, hafa farið hamförum gegn skríl með kröfuaðgerðir á Austurvelli, hef ég heyrt, en nenni varla að lesa greinar þeirra lengur.
Hlédís, 2.3.2009 kl. 23:21
Þessi grein Kolbrúnar minnir mig um margt á grein sem var skrifuð síðastliðið haust. Aðför að grundvelli Frjálslynda flokksins. Sú grein var full af óhróðri og rangfærslum og vó klárlega að æru þeirra sem höfðu sér það eitt til "saka" unnið að reyna að koma á flokkstarfi í borginni. Ég varð rosalega reið þegar ég las hana.
Kolbrún er þó ekki ráðast á flokksystkin sín.
Svo bætir þú nú um betur og klínir útlendingaandúð á Jón Magnússon. Magnús Þór og Viðar Guðjohnsen hafa gengið mun lengra í sínum málflutningi t.d. í Akranesmálinu.
Þóra Guðmundsdóttir, 2.3.2009 kl. 23:54
Veit ekki um ykkur, en ég er orðin soldið þreytt á fólki sem veit ekki hvað réttsýni og réttlæti, óháð flokka-pólitík, þýðir, hvað þá meir.
Hlédís, 3.3.2009 kl. 00:02
Þóra ég var að segja að greinin um Ísland fyrir íslendinga hefði farið fyrir brjóstið á mörgum, sagði jafnframt að sennilega hefði fólk ekki lesið hana bara fyrirsögnina. ´Mér finnst það dálítið skrýtið að þú sért að bera saman greinina mína um aðförina að Frjálslyndaflokknum, og þessa grein Kolbrúnar. Þar sem öllu er snúið á hvolf. Ég hafði fyrir mér í greininni frásagnir af fólki sem var einmitt að starfa með ykkur í Reykjavík, sem sagði mér hvernig þetta var allt saman, og hefur reyndar sýnt sig að vera rétt, þegar tekið er tillit til niðurrifsstarfssemi sumra hér, það þarf ekki að nefna nöfn, þetta segir sig alveg sjálft.
Við fengum á okkur stimpilinn út af þessari grein Jóns, og höfum ekki getað náð af okkur af því ennþá greinilega. Ég er ekki að bera í bætifláka fyrir það sem Magnús Þór og Viðar hafa skrifað, þeir hafa örugglega líka haft áhrif. En fyrirsögn greinarinnar gerði útslagið með stimpilinn á flokkinn, það er nokkuð ljóst. Umræðan fór út af sporinu. Ég er ekki að klína neinu á Jón Magnússon, ég sagði;
Útlendingaumræðan var blásinn út m.a. af Jóni Magnússyni, sem er nú gengin til liðs við Sjálfstæðismenn, svo þessi hættulega umræða er nú komin heim í föðurhús sín. Inn í þessu er ákveðin ironía, sem þú misskilur.
Sjá hér:
Var bara að hugsa um greinina sem átti þáttaskil í þessari rasistaumræðu; manstu...Ísland fyrir íslendinga. Það var bara fyrirsögnin sem gerði allt vitlaust, ég held að fólk hafi ekki lesið greinina, bara horft á fyrirsögnina og dæmt út frá því.
Þetta er nefnilega tilfellið, hvort sem þér líkar betur eða verr.
Hlédís mín, ég les ekki greinar eftir þessar konur. Mér var bent á þessa af flokksystur minni sem var jafn bit og ég, svo ég varð að verða mér út um blaðið til að sjá. Já ég er líka orðin afskaplega þreytt á þessari flokkapólitík og öllu í kring um þetta. Það er ekki þverfótað fyrir þessum umræðum, og á eftir að versna. Ætli ég gerist nú ekki sek sjálf um að taka þátt í því hér. Vona að mér verði fyrirgefið það. En ég hef það eitt að leiðarljósi að reyna að bera í bætifláka fyrir fólk sem ég veit að á ekki skilið þessar umræður, hvort sem það stafar af misskilningi eða bara reiði vegna þess að þeim varð ekki kápan út því klæðinu að breyta áherslum flokksins. Ég ætla ekki að dæma um það, og sjálfsagt eru margar útskýringar.
Skil ekki alveg alla þessa reiði. Hef reynt að setja mig niður við að skilja þetta, en mér hefur ekki tekist það ennþá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.3.2009 kl. 00:33
Það hefur frá fyrstu tíð einkennt blaðamennsku Kolbrúnar Bergþórsdóttur hversu húsbóndaholl hún er. Hún er alltaf í því hlutverki að þjóna húsbóndanum sem gefur henni að éta úr lófa sínum. Á sínum tíma var hún - sem yfirlýstur krati - mjög og réttilega gagnrýnin á Framsóknarflokkinn. Síðar varð hún blaðamaður Tímans (eða Dags eða hvað blaðið hét á þeim tímapunkti), málgagns Framsóknarflokksins. Á því tímabili var ekki hægt að merkja að fjósalyktin angraði hana. Núna er hún í því hlutverki að geðjast ríkisstyrkta málgagni Sjálfstæðisflokksins. Og kemur ekki á óvart.
Jens Guð, 3.3.2009 kl. 00:47
Ásthildur! Mér þykir aðeins eðlilegt að þú verjir félaga þína og flokk fyrir ómaklegu aðkasti og er sannfærð um að þú tekur ekki upp á skítkasti. jafnvel í kosningabaráttu.
Hlédís, 3.3.2009 kl. 00:49
Jens einmitt það er hægt að setja spurningamerki við "blaðamennsku" af þessu tagi, og hversu trúverðugt slíkt fólk er í umfjöllun. Fólk eins og Kolbrún dregur líka aðra blaðamenn niður á lægra plan, ef svona fær að standa.
Takk Hlédís mín. Ég held að enginn upphækki sjálfan sig með að niðurlægja aðra, þó manni verði stundum fótaskortur á tungunni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.3.2009 kl. 08:51
Ég tek undir með þér Ásthildur, svona skrif eru Kolbrúnu til ævarandi skammar, uppfull af undirlögðu hatri gagnvart FF. Þótt ég sé ekki þar innanbúðar lengur þá vil ég verja málefnin, því þau eru góð og gild.
Svona skrif dæma sig sjálf og er Kolbrún haldinn einhverri einkennilegri áráttu gegn FF. Ef á að gagnrýna, þá skal það gert með rökum og ekki dylgjum eins og grein hennar er uppfull af, það lærði maður í öðrum bekk í grunnskóla að minnsta kosti.
Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.3.2009 kl. 10:36
Já Guðsteinn minn, einmitt við lærðum kurteisi í grunnskólanum. En sumir hafa greinilega ekkert lært. Takk fyrir þetta.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.3.2009 kl. 11:03
Heil og sæl; Ásthildur Vestfirzka, sem og þið önnur, hér á síðu hennar !
Tek undir; með þér, sem mörgum annarra, Ásthildur mín. Kolbrún er; einhver andstyggilegasta afurð kratanna, og hundflöt undirlægja húsbænda sinna, í Hádegismóum, í ofanverðri Gullbringusýslunni.
Bókelsk vel, er hún, en,...... hefir lítt náð, að öðlast skilning á, hverju Íslendingar hafa lifað, aldirnar um kring, og mikilvægi réttmætrar baráttu sjóhunda- og þungavigtarsveitar Frjálslynda flokksins, undirstöðu atvinnuvegunum til handa, þar með.
Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 15:11
Ég mun allavega ekki þegja þegar ég sé hana Kolbrúnu úti á götu, því get ég alveg lofað.
einnig hef ég verið að velta því fyrir mér að safna saman Morgunblaðinu og fara með nokkra svarta ruslapoka upp á hádegismóa þar sem aðsetur þessa skeinipappírs er og kveikja í þessum skeinipappír á bílastæði þeirra.
Arnar Bergur Guðjónsson (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 16:49
Sæl Ásthildur.
Mér hefur aldrei geðjast að henni eða hennar málum. Nei, TAKK.
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 17:12
Því miður kaus Frjálslyndi flokkurinn þá leið fyrir síðustu kosningar að gera sérstaklega út á andúð og tortryggni gegn innflytjendum í sinni sókn eftir atkvæðum. Ég held að flokkurinn megi búast við því að fá á sig greinar í anda þessarar sem Kolbrún skrifar allt þar til flokkurinn hefur formlega beðist afsökunar á þeim ljóta leik sem þar var stundaður.
Þá var þetta Skagamál, þar sem þeir komu að málum bæði formaður og þó sérstaklega varaformaður, flokknum til ævarandi skammar og lítt í anda þeirrar stefnuskrár sem Ásthildur birtir hér í sínum pistli.
Ég held að rasistar megi alltaf búast við því að vera kallaðir rasistar. Þá er einnig líklegt á að flokksmenn í flokki sem gerir sérstaklega út á andúð gegn innflytjendum eigi það á hættu að vera kallaðir "illa þenkjandi". Þó eflaust séu þau í minnihluta í Frjálslynda flokknum sem aðhyllast svona fiskirí í gruggugu vatni fordóma og öfgafullrar þjóðernishyggju.
Það má segja Frjálslynda flokknum það til hróss að lítið hefur borið á þessháttar umræðu nú í seinni tíð. En flokkurinn skuldar enn afsökunarbeiðni á öllum tilhæfulausa hræðsluáróðrinum sem kom hart niður á saklausu fólki.
Vel má vera að Kolbrún þessi eigi ekkert gott skilið fyrir skrif sín. En eruð þið í Frjálslynda flokknum ekki að falla nokkuð í sömu gryfju með viðbrögðum ykkar hér í þessum athugasemdum? Mér sýnist satt að segja þið tala heldur verr um hana en hún um ykkur.
Jón Kristófer Arnarson, 3.3.2009 kl. 17:47
Kolbrún er ótrúleg bullukolla og er maður stundum gapandi yfir þvættingnum og hundalógíkinni sem vellur upp úr konunni.
Georg P Sveinbjörnsson, 3.3.2009 kl. 18:31
Ég efast um að nokkur taki mark á þessari konu sem blaðamanni. Manni býður við svona skrifum og þau dæma sig sjálf.
Svipað og skrif Jóns Kristófers hér fyrir ofan. Hann virðist lítið hafa kynnt sér stefnu og mál Frjálslyndaflokksins og étur upp óhróður pólitískra andstæðinga og dreifir honum áfram.
Það er eitthvað mikið að þarna... það er augljóst.
Góður pistill Ásthildur og er ég þér 100% sammála.
ThoR-E, 3.3.2009 kl. 19:56
Kolbrún Bergþórs horfir á karla fótbolta og finnst það skemmtilegt, hún er reyndar ekki að spá í fótboltann sjálfan heldur liggur áhuginn hjá henni að mæra út lærin á strákunum. Þetta er frá henni sjálfri komið, þannig að kannski ættu strákarnir í Frjálslyndaflokknum að klæðast stuttbuxum í kosningarslagnum næsta
- en þar sem sonur minn er í Frjálslyndaflokknum, að þá mæli ég ekki með því.
Þessi skrif dæma sig sjálf.
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 3.3.2009 kl. 20:23
Því miður er það ekki rétt að neikvæð ummæli fyllt með rógi og rangfærslum dæmi sig sjál, - því miður. Fjöldi fólks smjattar á rógi og nærist á honum. Ekki síst ef undir eru rituð nöfn þekktra einstaklinga.
Árni Gunnarsson, 3.3.2009 kl. 20:58
Sannleikanum er hver sárreiðastur Ási minn. Ég hef fylgst ágætlega með Frjálslynda flokknum og er einfaldlega sammála Kolbrúnu í flestum atriðum. Þetta var ágætur flokkur og eflaust er til besta fólk í honum. En það hvernig flokkurinn réðst að innflytjendum var til háborinnar skammar. Slíkt gera heldur varla nema illa þenkjandi menn eða hvað?
Í flestum nágrannalöndunum eru til flokkar sem gera út á þessi sömu mið en hér á landi höfum við ekkert við slíka flokka að gera og það er kjarninn í grein Kolbrúnar. Ég vona reyndar að FF séu hættir í hræðsluáróðrinum gegn innflytjendum, enda lítið farið fyrir því frá því að Magnús og Guðjón urðu sér til skammar í Skagamálinu.
Hugsanlega á Frjálslyndi flokkurinn aftur erindi við land og þjóð en það verður ekki gert með illum talanda og hugsunum sem beinast að ákveðnum þjóðfélagshóp. Þið í Frjálslynda flokknum sitjið uppi með skömmina allt þar til að þið biðjist formlega afsökunar með afgerandi og trúverðugum hætti. Ef þið ætlið að haga ykkur eins og hér og neitið að horfast í augu við þann svarta blett á ykkar fortíð sem innflytjendaandúðin er þá held ég að margir muni deila skoðunum með okkur Kolbrúnu um að flokkurinn eigi ekki að vara til. Gleymið því ekki að þið hafið valdið sára saklausu fólki ómældum hörmungum og hvatt til illinda milli Íslendinga og innflytjenda. Gleymið því ekki að fátt er jafn hættulegt í stjórnmálum og að stunda þessháttar hræðsluáróður og að slík stjórnmál eru grundvöllurinn að mestu hörmungum 20. aldar. Hugsið örlítið um það og lesið grein Kolbrúnar út frá þeirri staðreynd.
Jón Kristófer Arnarson, 3.3.2009 kl. 21:10
Drulla upp á bak? Það kalla ég hæfileika!
Brúnkolla (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 01:30
´"Drulla upp á bak" er nýlegur, geysivinsæll frasi, Brúnkolla! Merkilegt tæki, tungumálið.
Hlédís, 4.3.2009 kl. 08:34
Ekki er það nú rétt sem kvinnan hér að ofan segir,að orðbragðið í fyrirsögninni sé nýtt, í örlítið annari mynd hef ég nú þekkt það frá blautu barnsbeini, komin vel á fimmtugsaldur!
En mín kæra frú Cesil, ég er hvorki fylgismaður FF né aðdáandi KB, finnst hún eiginlega bara frekar leiðinleg í viðmóti er ég hef hlýtt á hana og frekar góð með sig. Þú og margur fleiri í þínum flokk hins vegar bloggvinir mínir og það meir en kærir.
Það breytir hins vegar ekki því og skiptir þá ekki máli hve slæm og meiðandi skrif KB eru, sem þú og árni m.a. talið hér um, að hörð og óhefluð svör til baka og kannski gefin í reiði og snarhasti, bæta ekki úr eða taka sérstaklega málstað þess sem þykir að ´sér vegið í augum óhlutdrægs.
Og það sem verra er og JK kom aðeins að með spurningu í athugasend 26., svör þín kalla á jafnvel enn verri viðbrögð og sakir en kannski nokkurn tíman var borið á þig og þinn málstað í upphafi!?
Fyrirsögnin er vond og ljót Ásthildur, alls ekki við hæfi hjá konu sem þér og vill að tekið sé mark á sér. Hversu slæm sem grein KB var svo, þá hefur hér til að mynda ákveðin óskráður félagi þinn samt engan rétt til að efast um geðheilbrigði hennar og þú eða aðrir þar með að taka undir slíkt eða að hún sé "skyld andlega einhverjum öðrum" sem þú eða aðrir hafið ekki mikið álit á. Þetta hljómar bara í eyrum þess sem hlustar hlutlaus á sem engu betri getsakir eða dylgjur en þær sem er verið að bregðast við!
Í ofanálag fara svo sumir einfaldlega með rangt mál, eins og minn kæri félagi Jens gerir hérna því miður. Þegar þessi blaðasamruni átti sér stað og KB varð starfsmaður, var ekki lengur um flokkaaðild að ræða, heldur höfðu feðgarnir SVeinn R. Eyjólfsson og Eyjólfur SVeinsson keypt útgáfuna.
SEt þetta að sjálfsögðu fram í mestu vinsemd í nafni hins hlutlausa sem fylgist með úr fjarlægð, frú Cesil, ekki að neinum öðrum hvötum!
Magnús Geir Guðmundsson, 4.3.2009 kl. 19:23
LÍU mafían er búinn að eignast stóran hlut í mogganum ef hann ekki allan, margir í þessum hóp sem keyptu moggan eru kvótagreifar eða hafa starfað innan stærstu útgerðarfyrirtækja landsins og vilja núna verja kvótakerfið með öllum tiltækum ráðum,
einnig eru þeir sem keyptu þennan skeinipappír sjálfstæðismenn og framsóknarmenn, sýnist að það sé einn samfylkingarmaður þarna samt ekki viss.
og hverjir settu þetta meingallaða kvótakerfi á...auðvitað framsókn og sjálfstæðisflokkurinn....
Arnar (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 22:48
Auðvitað máttu gagnrýna talsmátan í mér Magnús minn. Ég hef þó ástæðu til að nota þung orð, sem þessi svokallaði blaðamaður hefur ekki, eða hvað hefur Frjálslyndi flokkurinn gert henni. Og það sem hún segir er allt saman bull og kjaftæði. Það er því ólíku saman að jafna.
Það hlaut eitthvað að vera Arnar minn, nú á að jarða Frjálslynda flokkinn og kvótamótmælin fyrir fullt og allt, þar lá að.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2009 kl. 15:37
Kvótamótmælin skulu halda áfram! Erum við menn eða mýs?
Hlédís, 7.3.2009 kl. 22:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.