Lýðræði og íslendingar - tveir andstæðir pólar.

Lýðræði.

 

 

Nú er mikið rætt um lýðræði og að færa valdið til fólksins.  Þetta eru háværar raddir, og allskonar framboð í bígerð.  Fólk með fullt af væntingum og von um að geta komið lýðræði á í landinu og komið á Nýju Íslandi.

  

Ég er farin að hallast að því að það sé tálsýn.  Samfélagið vill ekki lýðræði eða breytingar  Samfélagið sem samanstendur af okkur mótmælendum og öðrum, margir eru einlægir en alltof margir vilja bara hjakka í sama farinu áfram. Kjósa sinn Sjálfstæðisflokk, Framsóknarflokk, Samfylkingu eða Vinstri græna hvað sem tautar og raular.

  

Af hverju segi ég þetta?  .......................... Jú það gerðist nefnilega dálítið í dag, sem er sorglegt.  Nei það hefur ekkert með Davíð og kó að gera, þessi útbrunni karl yfirgnæfir svo samfélagið að það er meira að segja rætt um fyrir og eftir Davíð.

 

Þetta hefur með að gera að í dag sá fylking fólks sem fór af stað fyrir síðustu kosningar, til að breyta samfélaginu, það einu útleiðina að ganga í Samfylkinguna.  Ég er að tala um Íslandshreyfinguna.  Stolt fólk sem vildi breytingar, og fremst þar var einmitt ákallið til landsins og umhverfisins.  Það er hlálegt að daginn sem þau ganga í Samfylkinguna er gengið frá enn einni virkjuninni.  Það er reyndar bæði grátlegt og sorglegt. Skipsbrot lýðræðisins að mínu mati.

  

Við í Frjálslyndaflokknum höfum þraukað núna í um það bil tíu ár, með þrautsegjunni einni saman.  Sífelld þöggun hefur átt sér stað, og endalausar dómdagsspár um að nú sé flokkurinn búinn að vera, eða dauður.  Það hefur farið fram jarðarför fyrir hverjar kosningar hvort sem um er að ræða bæjarstjórnarkosningar eða í alþingiskosningar.

Eftirtektarvert er  að núna er mikið rætt um pólítík, og ef ekki er hægt að komast hjá að minnast á Frjálslynda, þá eru fengnir menn út í bæ til að ræða um endalok flokksins, menn eins og Þórhallur Baldursson eða hvað hann heitir sá ágæti maður, sem hefur sýnt á ósmekklegan hátt að hann þolir ekki flokkinn.  Það er ekki rætt við fólkið sjálft sem ber hita og þunga af starfi flokksins.  Það hentar sennilega ekki, meðan verið er að reyna að drepa þetta frumkvæði niður.  Það eiga nefnilega bara að vera fjórir flokkar í umferð ekkert annað. Skemmtileg tilhugsun fyrir alla þá aðila sem núna sitja við að semja málefnaskrár og finna fólk í framboð. 

Íslandshreyfinginn varð líka fyrir því að þó hún fengi ágætis kosningu á einum stað dugði það henni ekki yfir landið til að koma að manni.  Það þarf nefnilega að passa upp á að það komi ekki eitthvað nýtt fólk inn, sem getur rokkað bátnum, þetta á allt að vera í föstum skorðum, og ef mönnum bara tekst að sparka frá sér þessari óþægilegu flugu sem kallar sig F, þá er björnin unninn.  Ekkert svoleiðis vesen.  Og það sem grátlegast er fólkið dansar með.  Tekur undir drápskórinn og er búið að panta pláss til að dansa á gröfinni.

 

Lýðræði hvað?  Fólk vill bara hafa þetta sama aftur og aftur, það vill fá að röfla og skammast, garga og láta öllum illum látum, en að gefa einhverjum utanaðkomandi pláss, nei það fittar ekki inn í hið íslenska samfélag.  Samt er svo skrýtið að ég hef heyrt raddir sem hafa áhyggjur af því að ef flokkurinn hverfur, þá verði enginn rödd á alþingi sem talar gegn kvótakerfinu, en tekur um leið fram að það kjósi ekki flokkinn. 

  

Ég held að við séum grátlega aftarlega á lýðræðismerinni, svo aftarlega að við dveljum eiginlega neðst á taglinu þar sem við slettumst sífellt í skítnum.  Meðan hugsunarhátturinn er svona, þá breytist ekkert.  Þó fólk vilji fara fram með nýjar hugmyndir og lýðræði að leiðarljósi, þá er þjóðin einfaldlega ekki tilbúin í svoleiðis, hvort það verður nokkurntíma veit ég ekki.  En í dag var til moldar borin Íslandshreyfingin, það var varla fréttnæmt, því allir voru svo uppteknir af því hvort Davíð myndi fara í framboð, eða hvort hann ætlaði að skrifa bækur, eða hvað hann tæki sér fyrir hendur.

Það getur vel verið að einhverjir séu að rumska, en dásvefninn er þungur og í raun og veru öruggur, þó allt sé að fara til fjandans, þá er þetta ástand eitthvað sem við þekkjum og viljum ekki breyta.

 

Þess vegna getur hreyfing eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn lifað góðu lífi í okkar samfélagi, þó þeir hafi í raun og veru sett á okkur og börnin okkar og barnabörnin, hlekki sem við komumst ekki út úr fyrr en Guð má vita hvenær.  Það er skrautlegt að sjá þá núna, hvernig þeim er skítsama um fólkið í landinu, og gera allt til að setja fót fyrir þá stjórn sem nú ríkir, og er þó að reyna að gera eitthvað.  En kemst ekki áfram fyrir brúnum rassförum sjalla, sem allt í einu hafa svo miklar áhyggjur af fólkinu í landinu að það þarf að gaumgæfa allt vel og rækilega, af því að það eru ekki þeir sem eru í forsvari. Bíðið aðeins meðan ég æli.    Og fólk gleymir að meðan þeir réðu gerðist nákvæmlega ekki neitt til bjargar venjulega jóni og gunnu.  Þau máttu þegja og borga.  Meðan Jón og Gunna lifðu í vellystingum praktuglega.  Heldur fólk virkilega að þetta sé eitthvað náttúrulögmál?  Já ég held að fólk haldi að allt fari til fjandans ef Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki tögl og haldir í samfélaginu, enda hvernig má annað vera.  Þeir hafa einokað alla fjömiðla síðustu tuttugu árin og jafnvel lengur, endalaus áróður þeirra til að halda völdum hefur gjörsamlega lamað alla sjálfstæða hugsun fólks.

 

Ef til vill einhverntíman þegar börnin okkar vaxa út grasi og sérstaklega ef þetta fólk fæt nú langt frí frá kjötkötlunum, verður fólk aftur sjálfstætt í hugsun og getur umborið lýðræðisöfl sem vilja koma einhverri réttlætingu á.  Þó það sé ekki annað en að berjast fyrir byggðir landsins, ef einhverjar verða þá eftir til að verja.   Meira að segja Einar Oddur heitinn var búin að gera sér grein fyrir að allt stefndi í borgríki á Íslandi.  Og núna er svo heitasta óskin og aðalbjargræðið að koma sér í hlýjuna í ESB. 

  

Aftur að mínum flokki Frjálslynda flokknum, menn eru að tala um að hann komist ekki í fréttir, nema ef minnst er á að við séum nú að þurrkast út.  Við höfum góð málefni, heiðarlegt fólk og góðar ætlanir.  Ég hef stundum leitt hugann að því hvað hægt væri að gera til að vekja athygli á okkur, og stundum hefur mér dottið í hug í alvöru hvort ég ætti ekki bara að ganga niður laugaveginn í mínu eigin skinni einu fata með plakat sem á stendur; F-listi frelsi einstaklingsins til athafna! til að vita hvort það muni fá fólk til að tala öðruvísi um flokkinn!

Eitt að lokum, mynd frá deginum í dag.  Þrátt fyrir allt þá skein sólin yfir Ísafjörð.

IMG_6196

Svo segi ég bara góða nótt.  Munið að lýðræðið er ekki náttúrulögmál, að er pjúra vinna, við að halda vöku sinni og hleypta lýðnum að með það sem hann hefur fram að færa.  En ekki velja bara út það sem fólk vill heyra, og keyra hina niður í skít og drullu.  Heart  Þessu er mest beint að fjölmiðlafólki, en svo má segja, það sér ekki þessi orð mín.  En einhvernveginn komast þau samt til skila held ég eftir krókaleiðum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já lýðræðismerin  nefndu það ekki ógrátandi mín kæra.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.2.2009 kl. 22:58

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Guðrún María þó!!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2009 kl. 23:51

3 identicon

" Lýðræðismerin " Þetta er náttúrlega alveg frábært orðskrípi...Maður verður nú alltaf hissari og hissari á þessari pólitík,, og núna síðast þegar Íslandshreifingin, gekk inn í Samfylkinguna,"gafst hún upp á rólunum" já þetta þóttu mér mikil tíðindi og ég fór ósjálfrátt að hugsa inn í hvaða flokk við myndum ganga, en komst svo að því að kjarni FF er svo sterkur að mér fannst það aldeilis fráleitt að FF berðist ekki til síðasta blóðdropa. Í mínum huga er ekkert til sem heitir uppgjöf, minnist þess hvernig spáð var fyrir okkur í upphafi, og þá sagði ég við ágætann mann sem var "að koma út úr skápnum" og viðurkenna að hann væri Framsóknari, "sá hlær best sem síðast hlær"  hef þetta bull ekki lengra að sinni. kv Steini Árna

þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 11:35

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hrikalega sorglegt...var að lesa þetta á blogginu áðan og fékk næstum hjartaáfall

Óformlegar viðræður eru nú í gangi milli þessa flokka að mynda meirihlutastjórn á alþingi og verði þá kosningum aflýst.Eftir að Jón Magnússon gekk í Sjálfstæðisfl.og Kristinn í Framsóknarfl.hafa flokkarnir fimm þingmanna meirihluta á alþingi.Fróðlegt verður að fylgjast með þessum pólutíska draugagangi,mikið er í húfi fyrir auðvaldið.Öllum rannsóknum og úttektum á bönkunum hafa verið í hægagangi eins og kunnugt er.Eftir hverju eru þeir að bíða ?

Núverandi ríkisstjórn þarf að fylgjast vel með framvindu þessa mála.Hvaða gögn hefur Davíð undir höndum til að ýta þessum aðgerðum úr vör ?

Það er eins og það þori enginn að láta gamla gengið gossa og hafa hugrekki til raunverulegra breytinga....hvernig er eiginlega komið fyrir þessari þjóð? 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.2.2009 kl. 22:40

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góð færsla.  Takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.3.2009 kl. 11:30

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér Steini minn, nú er bara að bretta upp ermarnar og fara að koma flokknum upp úr lægðinni. Já sá hlær best sem síðast hlær.

Katrín þetta er svo hrollvekjandi að ég get ekki hugsað þá hugsun til enda.  En þá verður líka allsherjarstríð, ekki bara pottaglamur. 

Takk Jenný mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.3.2009 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband