Maskar, mamman og fiskarnir.

Við hér á Ísafirði möskum á mánudeginum bolludag.

IMG_6169

Kátir maskar.

IMG_6167

Sumir voru með einkabílstjóra hehehe... En það er gaman að þessum sið.  Og þetta hefur lítið breyst síðan ég var krakki. Nema búningarnir eru oftast viðameiri og flottari í dag.  Við vorum gjarnan í búning búnu til úr sængurveri málað andlit á og klippt út fyrir munninn, svo var erfitt að troða bollum gegnum gatið, og var hin besta skemmtun fyrir gefendurna.  En það voru líka maskaböll og þar var oft mikið lagt í búninga.

IMG_6172

á leið á leikskólann.  Þær hafa skipt um leikskóla, Hanna Sól er á Sólborg, sem er miklu stærri skóli og Ásthildur í Bakkaskjóli sem er lítill skóli í Hnífsdal.  Þær eru mjög ánægðar í þessum skólum, alveg eins og á Suðureyri.

IMG_6176

En svo er komin kveðjustund.  Mamma er farin aftur til Vínar og hversdagsleikinn tekinn við.  Við vorum allar dálítið sorgmæddar í gær svo gengur lífið bara sinn vana gang.

IMG_6179

Beðið eftir flugvélinni.

IMG_6180

Skyldi hún vera að koma.

IMG_6182

Ja þarna kemur hún til að taka mömmu í burtu.

IMG_6184

Bless elsku mamma mín, sjáumst í sumar Heart

IMG_6187

Og Júlli vinnur hörðum höndum að því að gera listaverk sem samanstendur af mörgum fiskum.  Segi meira um það síðar. 

Eigið góða nótt elskurnar mínar. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þvílíkt fiskasafn og hver öðrum flottari.  Væri ekki flott að útbúa tvö til þrjú fiskabúr og vera með svolítið öðruvísi listasýningu?  Fiskarnir eru snilldarverk og verðskulda flotta umgjörð.

Jóhann Elíasson, 26.2.2009 kl. 22:24

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

gaman að þessum maskadegi þarna fyrir vestan, en knús í kúlu það er stutt í sumarið

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 26.2.2009 kl. 22:38

3 Smámynd:

Ósköp var þetta mömmustopp fljótt að líða  En amma sér vel um snúllurnar þar til mamma kemur aftur (og auðvitað afi líka)  Flottari og flottari fiskarnir hans Júlla. Það liggur við að maður verði að gera sér sumarfrísferð vestur til að berja þá augum

, 26.2.2009 kl. 23:29

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Reyndi að setja hér inn athugasemd í gær, en það var allt frosið  Hélt að það hefði verið lokað á okkur.

Flottar myndir af "möskum" og fiskum

Sigrún Jónsdóttir, 27.2.2009 kl. 11:27

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sigrún mín.

Já Dagný mín mömmustoppið var bara allt í einu búið  En svona er lífið, það gengur sinn vanagang. Þær eru nú ósköp ljúfar og þægar þessar litlu elskur

Hulda mín já það styttist í sumarið.  Nú nálgast páskar, og þá er alltaf fjör hér fyrir vestan.  Orðin hefð hér að skemmta sér á páskum á skíðum, brettum og allskonar uppákomum á Skíðaviku og svo núna Aldrei fór ég suður.

Það er góð hugmynd Jóhann, annars var fyrsta sýningin hans í fiskabúri niður við sjóminjasafnið hér í ágúst í fyrra og heppnaðist mjög vel.  En auðvitað eiga þeir best heima í fiskabúrum þessir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2009 kl. 11:41

6 identicon

Maskamyndirnar voru flashback aftur í tímann.  Ég man mest eftir hvað Helgi "brúðgumi" var alltaf spenntur að gefa okkur bollur svo hann gæti séð niðurandlitið og þá betur giskað á hver var hver. En sumir láta sér enn nægja gamalt, ég sá á öskudaginn mannveru sem ég var ekki viss hvort væri lítill gamall kall eða kelling í karlmannsfötum, en þá var það unglingur í gömlum ofstórum jakka og með sixpensara og grímu, sem augsýnilega var það eina sem sérstaklega var fyrir hlutverkið. Samhryggist Báru að þurfa að fara frá dúllunum sínum en tíminn líður svo hratt. Ekki væsir um þær hjá afa ömmu og stóra frænda.

Dísa (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 12:00

7 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Æ!!Ég fer alltaf sjálf að tárast þegar ég sé myndirnar af mömmu þeirra fara burt..... Annars er það líka það sem þú skrifar undir myndirnar :) Það er alltaf svo gaman gott og fróðlegt að koma inn á síðuna þína :) Ég væri til í að eiga myndasögubók eftir þig. Myndir með texta undir hverri mynd, svona eins og á blogginu þínu :) Viltu enn og aftur skila kveðju til Júlla frá mér :) Ég dáist að honum, hvað listaverkin hans eru flott og hann duglegur :) Mér þykir líka mjög vænt um hann og það sama á við um þig... þó að ég hafi bara hitt þig á blogginu :) Kannski að ég láti verða að því að skoða Vestfirði í sumar, og þá kem ég sko pottþétt við í kúlu :) Knús í kúluhús.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 27.2.2009 kl. 17:55

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe já Dísa mín Helgi Brúðgumi.  Og ég man líka eftir mömmu Iðunnar upp í Haraldshúsi, þar var hlegið að manni meðan maður var að troða í sig bollum.  Það eru sumir ansi grímuklæddir í dag, á grímu

Elín mín það væri gaman ef þú kíktir við elskuleg mín.  Það er örugglega ansi sárt fyrir dóttur mína að kveðja.  Takk fyrir hrósið, hver veit nema ég setji eitthvað á blað, þegar ég fer að hafa nægan tíma.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2009 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband