Ertu nokkuð á leið í Sjálfstæðisflokkinn Kristinn minn?

Ég var undrandi þegar mér barst það til augna gegnum Vísi.is að Kristinn H. hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslyndaflokksins.

 Það eru nefnilega ekki nema fjórir dagar síðan við vorum saman á kjördæmaráðsfundi að Reykjum, þar sem hann hélt skelegga ræðu um stöðu flokksins og bauð sig fram í fyrsta eða annað sætið í Norðvesturkjördæmi.  Það voru fimm manneskjur sem buðu sig fram til forystu þar, svo ákveðið var að efna til póstkosninga og er undirbúningur þegar hafinn að því. 

IMG_6143

Hér talar Guðjón Arnar.  Þetta var góður fundur og mikill hugur í mönnum um uppbyggingu og bætta stöðu flokksins.

IMG_6146

Hér tekur Kristinn svo til máls og ræddi um stöðuna og var ekki annað hægt að heyra en hann vildi leggja sitt af mörkum.  Bauð sig svo fram í fyrsta og eða annað sætið hér fyrir vestan.

Þar var reyndar fríður flokkur Sigurjón Þórðarson bauð sig fram í hvaða sæti sem var, Ragnheiður Ólafsdóttir bauð sig fram í annað sætið, Magnús Þór einnig.   Þetta er öflugur hópur og góður.

Það var svo ákveðið að efna til póstkosninga meðal þessa ágæta fólks. 

Þetta er dálítið snubbótt útganga að mínu mati Kristinn minn, svo mér er dálítið þung í sinni þú fyrirgefur.   Af því tilefni komu þessi brot upp í hugann.

 

Frjálslyndiflokkurinn.

 

Fúasprek og kalakvistir

 

Keppast við að skipt‘ um vistir.

 

Stendur eftir stofninn hreinn.

 

Stífður vel og tálgabeinn. 

 

 

Kætast munu karlafans

 

Kíma beint til andskotans.

 

En við munum aftur rísa.

 

Enn á ný og málin prísa. 

 

 

Okkar stefna öll er skýr.

 

Öðrum betri, við mér snýr.

 

Þó móti blási þetta fokk.

 

Við munum rétta okkar flokk.  

 

 

Mestu skipta málin góð.

 

með þeim alla tíð ég stóð.

 

Leitt mér þykir lýðsins tal.

 

Að leikslokunum spyrja skal. 

 Við erum þá sem sé kominn aftur til upprunans. Við því er ekkert að gera, en það er ekki inn í myndinni að gefast upp fyrr en í fulla hnefana.  Þó gefin hafi verið út dagskipun um að þegja okkur í hel, af stóra helbláa flokknum, sem aldrei hefur þolað tilvist okkar, þá skulum við berjast ótrauð áfram samt. 

Og þó okkur takist ef til vill ekki að saxa af ykkur atkvæðin, þá legg ég á og mæli um að það muni verða gert af einhverjum.  Það er komið nóg af ykkur, og þið hafið fengið nóg frá okkur. 

Ef þið haldið að þið eigið ennþá eitthvað inni hjá þjóðinni þá er það misskilningur.  Hvað sem þið æpið og ljúgið, þá veit fólkið hverjum það er að kenna að þjóðin er hnýpin í sárum, og hver það var sem ykkur stóð að baki lengstan tímann.  Ég ætla allavega að gera mitt til að það gleymist ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það væri mátulegt á JM hinn flokkaskelfirinn að fá KHG í Sjálfstæðisflokkinn.

En í alvöru hef ég orðið fyrir miklum vonbrigðum með KHG eftir að minnihlutastjórnin tók við völdum, hann virtist leggja mikið á sig að finna henni allt til foráttu.

Ég sem varið kallinn með kjafti og klóm.

Svona er lífið, lengi skal manninn reyna.

En knús á þig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.2.2009 kl. 13:00

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristinn fer öruglega í Framsókn.

Kær kveðja og knús

Kristín Katla Árnadóttir, 26.2.2009 kl. 13:36

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Frjálslyndi flokkurinn átti mikið erindi í íslenska pólitík og mér þykir sárt að sjá hann í svaðinu og jafn kærkomin og brottför Kristins er illt til þess að vita að sennilega kemur hún of seint. Ég á kunningja í ýmsum flokkum og þeir segja mér allir sömu söguna:  "Kristinn H hefur verið að banka á dyr hjá okkur. " Upp á síðkastið hefur hann reynt að komast í vinfengi við Bjarna Harðarson sem er málkunnugur mér, þar sem við störfum saman í Heimsýn. Bjarni er bráðskemmtilegur sögumaður og öðrum fróðari um drauga.  Mér er vel til Bjarna og velti því nú fyrir mér hvort ég hefði ekki átt að vara hann við?

Dýrt ort hjá þér Ásthildur

Sigurður Þórðarson, 26.2.2009 kl. 17:39

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Siggi minn.  Nú var sagt í fréttum að Kristinn væri kominn í framboð hjá Samfylkingunni.   Ekki hefur hann farið bónleiður til búðar þar.  Samt feginn að hann fékk inni þar en ekki í Sjálfstæðisflokknum.  Við skulum sjá til með Frjálslynda.  það er alveg óþarfi að jarða líkið fyrr en það er dautt. 

Nei Katla mín, ég hef frétt að hann hafi ekki fundið hljómgrunn þar. Knús

Já Jenný Kristinn hefur ekki gengið í takt við Frjálslynda undanfarið því miður.  Knús til baka

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 18:46

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ásthildur, þetta er rosa fyndið! 

Kristinn sem reyndi mikið að koma sér í framboð á þeim forsendum að hann væri einlægur andstæðingur Evrópusambandsins en nú orðinn stuðningsmaður ESB aðildar.   Þetta er næstum jafn öfugsnúið  og að setja smábáta í kvóta og ganga síðan í Frjálslynda flokkinn, sem vill leyfa frjálsar krókaveiðar. Mætti ég þá heldur biðja um Kalla Matt eða Ólínu Þorvarðar ef ég kysi í Samfylkingunni, sem ég geri auðvitað ekki.

Sigurður Þórðarson, 26.2.2009 kl. 19:20

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

pjukkk. ....gott að vita að K er ekki á leið í VG:-)

þar er ég og vil vera áfram (en er ein af mörgum þar sem vilja Ísland í ESB í langri framtíð)

Kær kveðja kæra vinkna...knús

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 26.2.2009 kl. 21:23

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Greiddi hann ekki einmitt atkvæði með kvótageifunum núna á þinginu um daginn, sum sé að ekki yrði opnað fyrir innkomu smábáta fyrir hluta af þessum 30.000 tonnum?  Vonandi vegnar honum bara vel í Samfylkingunni.

Anna mín já þú getur verið róleg þar um sinn mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 21:26

8 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

http://www.amx.is/stjornmal/4740/

hihihi...samfylkingin er ekki ríkari af svona manni?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 26.2.2009 kl. 21:28

9 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Nú hlýtur þú að vera kát Ásthildur. Allt Reykjavíkurhyskið horfið, eða svona hér um bil. Nú getið þið Vestfirðingarnir haft ykkar hentisemi með flokkinn eins og þið hafið alltaf viljað. Ég er aftur á móti sorgmædd. Í hjarta mínu græt ég þau tækifæri sem eru glötuð. Tækifæri sem við höfðum til að bæta samfélagið okkar. Því í rauninni greindi okkur aldrei á um málefnin síður en svo. Í einfeldni minni hélt ég að það væri ykkar hagur sem og minn að flokkurinn yrði stór og sterkur á landsvísu, en það var misskilningur.

Ég er hrædd um að sá liðsauki sem formaðurinn þinn fagnar, muni ekki reynast sá happafengur sem hann heldur.

Það að Kristinn skuli hafa gengið til liðs við Samfylkinguna sýnir líka, svo ekki verður um villst, að hann átti aldrei málefnalega samleið með okkur.

Þóra Guðmundsdóttir, 26.2.2009 kl. 21:33

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei Þóra mín ég gleðst ekki yfir brotthvarfi ykkar. 

Reykjavík gat orðið öflug, en ekki á kostnað landsbyggðarinnar, heldur samhliða.  Mér var sagt af fólki sem starfaði innan Reykjavíkurfélaganna, og þar var fullyrt að sjaldnast hefðu málin getað verið rædd, sífelldar árásir á forystuna, og allt fundið henni til foráttu.  Þegar svo Guðjón Arnar bauðst til að koma á fundi og ræða málin við ykkur, til að fyrirbyggja misskilning þá var ekki áhugi á því. 

Allavega eru mikil sárindi þarna, sem ég eiginlega skil ekkert í.  En ég óska ykkur góðs á öðrum vettvangi.  Ég er sammála því að flest málefnin áttum við sameiginleg.  Þó heyrði ég að þið hefðuð viljað sleppa kvótaumræðunni, hún væri ekki á dagskrá lengur.  En svona eru málin bara. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 21:43

11 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

í framhaldi af döpru bréfi Þóru...vona ég innilega að kvótamálin eigi heima inni hjá sem flestum flokkum!  Vestfirðingar eiga að hafa sitt að segja, ekki spurning, þótt ég sé hlynnt kosningum á landsvísu þar sem öll atkvæði hafa jafnt vægi!...en einmitt þar er styrkur Vestfirðinga falinn, þá viljum við öll , Íslendingar styðja okkar "höfuð! og það verður að setja vægi sveitastjórna í öndvegi!

Ég er sjálf af Vestfirskum ættum (amma Ólína fæddist að Stökkum, Rauðasandi) og hjarta mitt slær þanngað, en stundum finnst mér að "lausnin" væri að "grafa skurð" og Vestfirðir yrðu "sjálfstæðir!...það yrði hinsvegar "gervilausn, eins og kosningakerfi framsókanar þar sem vægi atkvæða um landið allt er mismunað!

Leyfið okkur "Vestfirðingum " að vinna fyrir Vestfirði?...höfum nefndir, félög, ættarsamtök..."what ever...the Vest is the best"!!!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 26.2.2009 kl. 21:46

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Anna mín Kristinn er nú genginn til liðs við Samfylkinguna, vegni honum vel þar.  Það verður forvitnilegt að vita hvaða sæti hann fær þar.  En ég óska honum góðs, þetta er vænsti maður.  Hann vildi bara yfirgefa okkur og það skyndilega.  Nú er bara að byrja upp frá grunni aftur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 21:47

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ekki veitir af Anna mín.  Við höfum setið eftir hér og fáum ekki sömu þjónustu og aðrir landshlutar.  Ef við viljum bæta okkar hag, þá er það kallað væl og nöldur.  En þeir tóku frá okkur fiskinn og svo margt fleira. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 22:10

14 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Hvernig sem á því stendur þá er einhver rosalegur misskilnigur hér á ferð. Við vildum aldrei sleppa kvótaumræðunni, aldrei. Innan okkar raða finnur þú hörðustu andstæðinga kvótans. Það er heldur ekki satt að við höfum neitað sáttafundum.  Þvert á móti fórum við margítrekað fram á fundi. Oftar en ekki var okkur ekki svarað.

Þóra Guðmundsdóttir, 26.2.2009 kl. 22:12

15 Smámynd: Kolbeinn Már Guðjónsson

Það er rétt Þóra að í raun greindi okkur ekki á um málefnin, en það var líka út af því að málefnin voru ekki rædd á fundum! Það er leitt að þú sért farin úr flokknum, en það verður hver og einn að velja sína vegferð.

Kolbeinn Már Guðjónsson, 26.2.2009 kl. 22:52

16 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Blessuð!

Kristinn fær ekkert sæti þarna hjá Samfó, yrði mjög hissa ef hann væri nú ekki búin að syngja sitt síðasta í stjórnmálunum, í bili að minnsta kosti!

Ef S flokkurinn er skynsamur, þá rúllar Ólína þessu upp og gæti svo leitt þann lista til árangurs í kjördæminu. En hvernig sem á það er litið, þá virðist ekki blása byrlega fyrir FF, í dag að minnsta kosti.

Magnús Geir Guðmundsson, 26.2.2009 kl. 23:38

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl  kæru vinir Þóra, Kolbeinn og Ásthildur.

Mér er líka þungt um hjarta enda er ég búinn að vera með í þessu frá fyrsta degi. Við höfum sannarlega vaðið í færum en ýmist ekki reynt við þau eða brennt af, jafnvel skotið í eigið mark. Ég man þá tíð þegar enginn maður minntist á hver væri úr Djúpinu og hver ekki. Sumir hafa alið á þessari tortryggni og það er miður en ég trúi því að hið sanna muni þó koma í ljós. Því hefur verið haldið fram að JM stjórni okkur flokksfélögunum í Reykjavík eins og strengjabrúðum, hann er þó aleinn um að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Því er ekki að leyna að skiptar skoðanir hafa verið um starfsaðferðir til að ná settum og sameiginlegum markmiðum. Því er ekki að leyna að ég hef verið í hópi þeirra sem hef haft skoðanir á því máli. Í stað þess að taka þá umræðu eins og til hennar var stofnað hafa sumir reynt að tengja hana við hrepparíg.  Nú lítur út fyrir að flokkurinn hverfi af þingi en það mun ekki breyta því að við berum sömu hugsjónir í brjósti.  Vonandi finnum við þá farveg  til að vinna að þeim.

Sigurður Þórðarson, 27.2.2009 kl. 00:04

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég vil ekki hlusta á svona niðurrifstal Siggi minn.  Bara strax í morgun var fylgið komið upp í 3.5% og við með einn mann inni samkvæmt Gallup.  Þetta er áður en við byrjum kosningabaráttuna. 

Ég verð nú að viðurkenna að ég hafði rangt fyrir mér með að þau stæðu saman í hópi fólkið hans Jóns, eða hann sveik þau í tryggðum alla vega.  Mér sýnist líka að fyrst það eru ekki málefnin sem eru þrándur í götu þá er líklegt að þar sé einhver misskilningur á ferðinni eins og Þóra segir.  Ég myndi vilja skoða þann misskilning betur.  Ég hef svo sem heyrt beggja sjónarmið, en þau stangast á og ég veit ekki hvar misskilningurinn liggur.  Það liggur við að ég vilji fara suður og halda fund með báðum aðiljum og vita hvort þetta sé ekki leysanlegt mál.  Auðvitað er alltaf beggja sök þá tveir deila, og stundum þarf einhvern utanaðkomandi til að sjá hvað betur má fara. 

Ef til vill hefur fólk úr báðum fylkingum hlustað á niðurrifsraddir sem þau hafa trúað og tekið mark á, en ekki leitað eftir staðfestingu á réttum stöðum.  Það vill stundum verða svo.   Mér finnst alltaf gefast best að reyna frekar að sætta menn heldur en að tæta sundur.   En það er vissulega til fólk sem gerir einmitt það og er ekki ljóst þær afleiðingar sem það hefur á einmitt það sem fólk vill verja, sem sagt flokkinn okkar.

Það er fjarri mér að gefast upp fyrirfram, og allt tal um að flokkurinn sé búin að vera styrkir mig einmitt í því að gera mitt til að svo verði ekki.  Maður hættir ekki veiðiferð ef ekkert kemur upp í fyrsta hali, þegar sjórinn er fullur af fiski, bara spurning um að nota réttu veiðigræjurnar, þ.e. sannleikann, einlægnina og góðan málstað.  Þetta eigum við nefnilega allt saman til.  En það hefur því miður verið valtað yfir okkur á allan máta af fólki sem er í öðrum flokkum, og vill þess vegna að við lognumst út af.  Þess vegna eru endalausar dómdagsspár í gangi út og suður, vel til þess fallnar að drepa niður væntingar.  Þetta þekkjum við öll bæði sem enn erum hér og þeir sem hafa kosið að yfir gefa okkur.

Ég hef til dæmis alla tíð blásið á það þegar sérfræðingar í garðyrkju hafa sagt mér að þetta og hitt sé ekki hægt að rækta eða framleiða á þennan eða hinn háttinn, þá hef ég einmitt lagt mig fram um að sýna fram á að það er hægt.  Og oft tekst það.  Annað er ekki í mínum kokkabókum. 

Svo er bara spurningin um hver vill taka slaginn með mér.  Þessi flokkur er heiðarlegur, og tilgangur þeirra sem bjóða sig til forystu er heiðarlegur.  Það getur vel verið að þeir séu sumir klaufar í mannlegum samskiptum, en það er þá hægt að laga það. 

Það er annað með spillingu og sérhagsmunagæslu sem viðgengst sumstaðar annarsstaðar.  Svo er alltaf auðveldara að hafa áhrif á gang mála í litlu samfélagi en stóru.  Ef fólk bara áttar sig á því og tekur slaginn með okkur, þá getum við verið bjartsýn, nú eða að okkur tekst að laða fólkið aftur heim með því að finna út hvað er raunverulega að. 

Það er enginn ómögulegur, og það er enginn ómissandi. Ef viljinn er fyrir hendi þá er ansi margt hægt að laga, bæta og betra ef fólk stefnir að sama marki, hefur sömu gildi og sjónarmið.  Þá er ég ekki alveg að skilja hvað fór raunverulega úrskeiðis. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2009 kl. 11:25

19 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Sæl Ásthildur mín, og aðrir félagar. Það er skelfilega leiðinlegt að sjá í hvaða farveg þessi góði flokkur er kominn. En eins undarlegt og það nú er, þá virðist enginn segja það upphátt hér sem allir eru að tala um sín á milli. Og það er að kominn sé tími á að Guðjón víki úr formannsstólnum. Það er engum flokki hollt að hafa alltaf sömu forystuna, hversu ágætt sem það fólk annars er. Ég held að það sé alveg borin von að flokkurinn komi að tveimur mönnum með núverandi formann sitjandi. Hann er einfaldlega orðinn of umdeildur til að um hann ríki einhugur. Nú hef ég ekki búið heima lengi og hef þessvegna ekki tekið þátt í neinum fundarhöldum og plotti - en ég er í tölvusamskiptum við nokkra tugi fyrrum stuðningsmanna við FF sem myndu kjósa flokkinn undir forystu Magnúsar Þórs en gætu ekki hugsað sér að fylgja núverandi formanni að svo búnu. Eins og þú sagðir svo réttilega þá er enginn ómissandi og það er hreinlega óhollt að sömu mennirnir séu jafn þaulsentnir í brúnni og verið hefur í FF.

Það er nú bara mitt ómerkilega álit.  

Bestu kveðjur til ykkar allra, Ásthildur mín.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 27.2.2009 kl. 15:40

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Helga mín Guðrún, ég ætla ekki að fara að ræða um þetta mál hér, en vil samt segja að ef Addi er umdeildur, þá er Magnús Þór ennþá umdeildari, báðir flottir auðvitað. En fólk á fyrst og fremst að horfa á málefnin, og hve vel menn fylgja þeim eftir, það hafa Frjálslyndir gert bæði Guðjón Arnar, Magnús Þór, Sigurjón og Grétar Mar.  Þar eru málefnin fyrst og fremst, og það er ég ánægð með. Knús á þig mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2009 kl. 21:17

21 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Látt´ekki sona. Maggi er mikkklu yngri og sætari.. :) Hey, bara að grínast.. *knús*  Þeir eru flottir báðir. x

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 28.2.2009 kl. 01:24

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Amm knúsírófan mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2009 kl. 01:38

23 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er sammála þér Ásthildur um að þetta sé allt ágætis fólk en ég er líka sammála Helgu í því að flokkurinn hefur ekki efni á að stilla ekki upp sínu sterkasta liði. Þú mátt kalla það niðurrifstal ef þú kýst svo en mér finnst það ekki sérlega háleitt markmið að stefna á að ná einum þingmanni eftir að hafa vaðið í færum í heilt ár.

Sigurður Þórðarson, 28.2.2009 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband