25.2.2009 | 12:46
Trúum ekki öllu sem að okkur er rétt. Látum verkin sýna merkin.
Já ég var að enda við að hlusta á Kastljósið frá því í gær, hafði ekki tíma eða nennu í gærkveldi. 'Eg er ekki sammála þeim sem finnst Sigmar hafa staðið sig illa. Mér finnst hann einmitt hafa staðið sig vel. Hvað var annað hægt að gera í stöðunni, það er greinilegt að Davíð er ekki í jafnvægi, og skildi ekki umhverfi sitt. Honum fannst allar spurningarnar vera árásir á sig. Hér fer greinilega veikur maður, og það er ekki hægt að gera neitt í svoleiðis. En af hverju var verið að hafa þetta viðtal?
Maðurinn hefur ekkert fram að færa sem skiptir máli í raun og veru. Það er hægt að túlka þetta og hitt út úr því, eftir því sem menn kjósa. Alveg eins og listamenn túlka atómljóð eða abstrakt list. En þegar málið er skoðað, þá var þetta tilraun manns sem er búinn að vera, að reyna að fá uppreisn æru. Það er ekki hægt í einu viðtali. Það er ekki hægt að reisa æruna við, hafi menn hagað lífi sínu þannig að fólk ber ekki traust eða virðingu fyrir þeim.
Þetta er eins og þegar alþingismenn og ráðherrar kvarta yfir virðingarleysi því sem menn sýna alþingi, þeir virðast ekki skilja að einungis þeirra eigin vanhæfni og skilningsleysi veldur því að fólk er hætt að bera virðingu og traust til þeirrar stofnunnar. Virðing og traust eru hugtök sem hvorki verða keypt né tilskipuð. Slíkir eiginleikar verða aðeins unnir af eigin verðleikum sérhvers manns. Orðspor deyr aldreigi hverjum sér góðan getur, er sagt. Og það er alveg rétt.
Mér finnst það sama um þegar dómarar dæma orð dauð og ómerk. Hvaðan hefur manneskja leyfi til þess að dæma slíkt. Hver gaf það leyfi og að hverjum beinist það? Það er nefnilega þannig að ef við breytum ekki þannig í okkar lífi að samborgarar okkar vili treysta okkur eða virða, þá er það vegna þess að við höfum einfaldlega ekki staðið okkar pligt og eigum hana því ekki skilda. Það getur svo sem vel verið að reynt sé að rægja og úthrópa fólk, en ef viðkomandi hefur ekki sýnt neitt í þá átt, þá er ekki hlustað á slíkt.
Davíð talaði mikið um rógherferð á hendur sér, og óvinveitta fjölmiðla. Ég held að enginn maður hafi farið með jafnstórtækri rógsherferð á hendur mönnum en einmitt hann sjálfur. Má þar til dæmis geta um Sverrir Hermannsson, þegar hann var rekinn úr Landsbankanum, af því að hann vildi ekki gera eins og til var ætlast. Mútumálið gegn Jóni Ásgeiri og þær eru margar smjörklípurnar sem hafa runnið undan ryfjum þessa manns sem nú þykist vera fórnarlamb.
Og ekki bara slíkar herferðir, heldur hefur þessi maður í krafti síns embættis og stöðu í samfélaginu lagt niður stofnanir sem ekki gerðu eins og hann vildi. Við megum ekki gleyma fortíðinni og hvernig þessi maður hefur komið fram gegndarlaust gegnum tíðina. Þó við auðvitað vorkennum gömlum útbrunnum manni sem á enga framtíð fyrir sér lengur, þó hann langi til þess. Hann má vel við una með allan eftirlaunaforréttinn sem hann á inni.
Og svo er allt þetta bara hatursáróður, við sem þannig tölum hötum þennan mann. Gott og vel það getur vel verið að sumt fólk hati hann. En það eru miklu fleiri sem eiga um sárt að binda eftir stjórnartíð hans í rúman áratug, og þær áherslur sem hann lagði, og komst ansi langt með í krafti þess að hann var nánast einræðisherra. Gat til dæmis sett okkur á lista yfir viljugar þjóðir til að ráðast inn í Írak, ásamt með undirskrift annars manns Halldórs Ásgrímssonar. Sat svo fyrir svörum og taldi að það þyrfti að koma þessum ofbeldismanni frá með öllum tiltækum ráðum. Ég man að ég hugsaði þá; hvað með alla hina einræðisseggina í okkar veröld? En það var ekkert spurt að því.
Ég er ein þeirra sem áttu framundan ágætis líf í góðum málum að hlú að mínum, það var að engu gert núna í haust, vegna þess að m.a. þessi maður brást okkur þjóð sinni. Ekki bara að hann ásamt sínum mönnum steinsvaf á verðinum, heldur er þetta ferli allt saman rauður þráður í hans spunavef mörg unanfarin ár. Þjóðfélag sem hann á mestan þátt af öllum í að skapa hefur nú gert Ísland rústir einar. Ég kann honum litlar þakkir fyrir það. Ég hata ekki þennan mann, en ég vil að hans gjörðir séu upp á borðum og til viðvörunar þjóðinni um að læra af mistökum sínum og treysta ekki lengur þeim fagurgala sem þetta fólk hefur nú uppi.
Ég verð að segja þegar Davíð talar um ófrægingarherferð og Baugsmiðla sem skekkja myndina, þá er það nokkuð ljóst að sjálfstæðismenn eru með tögl og haldir í öllum íslenskum fjölmiðlum, og það sést reyndar vel ef að er gáð. Fréttir undanfarið eru nánast þannig að við fáum það á tilfinninguna að stjórnin sem nú situr þvælist fyrir hinum góðu sjálfstæðismönnum sem eru að reyna að bjarga þjóðinni. Þetta er gert með lúmskulegum hætti hvernig fréttir og umræður eru matreiddar ofan í okkur alveg eins og alltaf hefur verið að hætti Sjálfstæðisflokksins. Þar er ekki skeytt um neitt annað en að reyna af almætti að halda völdum. Þeim hefur tekist það nokkuð vel hingað til, ég vona bara að fólk sé nú orðið meðvitaðra um landsmálin og hvernig pólitíkin er rekinn, að það trúi ekki öllu sem sagt er af þessu fólki. Þar sem oftar en ekki "sannleikurinn" er matreiddur að Valhallar sið, og svo er velsmurð kosningamaskína sjálfboðaliða látinn malla sínkt og heilagt. Maður festir hvergi hönd á þessu en finnur vel hvernig það virkar. Óheilindin allstaðar sem hafa gegnsýrt þjóðfélagið núna lengi. Og aðrir hafa auðvitað tekið þetta upp eftir þeim, því eftir höfðinu dansa limirnir. Og loks erum við orðin svo rugluð að við hreinlega vitum ekki hvort svart sér svart eða hvort það sé ef til vill hvítt.
Það sem af þessu leiðir svo er upplausnarsamfélag, þar sem enginn treystir lengur neinum.
Ég ætla að vona að íslensk þjóð gleymi ekki af hverju við erum í þessum vanda. Að við látum ekki fagurgala, falshugulsemi þeirra gagnvart okkur nú og sýndaráhyggjur þeirra villa okkur sýn. Þetta er allt saman svikamilla til að fá okkur að kjörborðinu með xD í huga og svo megum við eiga okkur eftir það fram að næsta kjördegi. Einhverjir allavega hljóta að hafa lært það núna að lýðræðisást þeirra sem lengst hafa farið með völdin er hjóm eitt, og einungis til að reyna að halda í þau völd sem þeir þrá svo mikið og óttast að missa. Þetta á líka við um Framsóknarflokkinn, þar sem ekkert hefur breyst nema að búið er að mála framhliðina nýjum spennandi litum, til að plata Hans og Grétu aftur inn í kökuhúsið, þar sem nornin bíður eftir þeim.
Íslensk þjóð á einfaldlega betra skilið en þessa sýndarveröld sem við virtumst vera að losa okkur út úr, en gerir allt til þess að fá að vera áfram.
Förum að opna augun og horfa í kring um okkur, viljum við þetta sama aftur og aftur, eða þorum við að breyta til, krefjast meira lýðræðis og sannleika?
Ef svo er, þá verðum við líka að sýna að við þorum. Lítum til annara úrræða en þessara spillingarafla sem tröllríða nú umræðunni svo ekkert annað kemst að. Eða eins og einhver sagði; hættum að öskra svo við getum hlustað, tölum hljóðlegar svo við heyrum orðaskil. Og trúum ekki öllu sem að okkur er rétt, látum verkin sýna merkin. Eigið góðan dag elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 2023212
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er alveg ótrúlegt hvað fólk lætur ginna sig endurtekið í spunavef Davíðs og hans líka, sem eru bæði staddir í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki.
Góð þessi samlíking þín með kökuhúsið og nornina
Sigrún Jónsdóttir, 25.2.2009 kl. 13:04
Einmitt.....mér hrýs hugur við því hvernig spunameistararnir spinna í vef sinn fólkið í landinu til þess að viðhalda spillingunni og völdunum þar sem au hafa verið allt ogf lengi...og því miður gætu þau verið þar áfram ef þjóðin glaðvaknar ekki núna.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.2.2009 kl. 13:15
Mér fannst Sigmar einmitt standa sig með afbrigðum vel. Hann lét Davíð ekki komast upp með moðreyk en sýndi honum þó fulla virðingu!
Ég er ekki viss um að ég hefði getað stillt mig um að flissa þegar DO fór að tala um árásir á sig og "bankann sinn"
Hrönn Sigurðardóttir, 25.2.2009 kl. 13:21
Mér finnst Davíð veikur í höfði. Eftir þennan þátt í gær er það það fallegasta sem mér dettur í hug.
Sigmar stóð sig með prýði.
Jenný Anna Baldursdóttir, 25.2.2009 kl. 15:58
Góð færsla Ásthildur. Maður er hræddur um að fólk sé of fljótt að gleyma - það þarf að halda vakandi umræðunni um ástæður efnahagshruns og meðferð D og B flokkanna á landi og þjóð.
, 25.2.2009 kl. 20:08
Sæl Cesil.
Þótt Davíð hafi verið forsætisráðherra lengi þá tel ég nú ekki að hann einn geti mögulega borið ábyrgð á öllu sem gerst hefur persé.
Varðandi stórfyrirtæki hverju nafni sem þau nefnast er það og verður afar óeðlilegt að þau hin sömu drottni og dýrki á flest öllum sviðum samfélagsins, hvað eignarhald varðar. Það er óheilbrigt og engum til hagsbóta.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 26.2.2009 kl. 00:29
Hvar hefur það komið fram Guðrún María mín að hér sé við Davíð einn að sakast? Ég held bara hvergi. Aftur á móti finnst fólki þar á meðal mér að hans sök sé ekki minnst, eða bara hreint út mest, því hann réði og stjórnaði meðan þetta kerfi var sett á laggirnar. Það var undir hans forystu og hans fólks sem þessi gengdarlausa græðgisvæðing komst á koppinn.
Ég er alveg sama sinnis og þú að stórfyrirtæki eiga ekki að deila og drottna, en það er einmitt það sem Davíð Oddsson og hans flokkur stóð fyrir, að einkavæða og mylja undir stórfyrirtæki. Menn áttu að fá frelsi og frið til að auðgast og deila og drottna. Þú ert því hér komin í andstöðu við sjálfa þig í þessu máli.
Eða ætlarðu að mótmæla því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið fyrir tilfærslum á fjármagni frá almenningi til fyrirtækja eins og í sjávarútvegi í bankakerfinu og á fleiri stöðum?
Dagný mín því miður þá er gengdarlaus áróður frá maskínum þeirra sem ráða yfir fjölmiðlunum að reyna að heilaþvo almenning svo þeir falli aftur ofan í me me já já svefninn sem augnablik tókst að vekja hann upp úr.
Einmitt Jenný Anna.
Takk sjálf og knús Búkolla mín.
Hrönn þetta var sennilega of sorglegt fyrir fliss.
Katrín mín við megum ekki láta það gerast að fólkið gleymi þessu núna, það er hreinlega of mikið í húfi.
Sigrún já mér finnst sjálfri þetta bara ansi góð samlíking. Finnur Ingólfsson getur alveg verið gömul galdanorn, bíðandi bak við fallega málaðan vegg eftir fórnarlömbunum sínum. Hann þarf að viðhalda ríkidæmi sínu eins og aðrir auðmenn þessa lands, sem fengið hafa sitt fé á gráu svæði.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 09:28
Var búin að ákveða að kvitta hjá þér í dag, vegna þess að mig dreymdi þig í nótt (2. skipti) .. Er í vinnunni svo ég hef ekki tíma til að lesa færsluna, en las fyrstu línurnar og er sammála þeim!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.2.2009 kl. 11:58
Góð og þörf grein hjá þér. Ásthildur! Mér sýnist hluti þess fólks sem telur sig þurfa að "verja" Davíð Oddson Seðlabankastjóra hreint ekki kunna skil á stjórnmálaferli mannsins og þeirri ábyrgð sem hann ber á svikamyllu-starfseminni sem nú hefur knésett íslenska þjóð.
Hlédís, 26.2.2009 kl. 12:27
Ég varð mjög hugsi yfir þessu viðtali.Fannst eitt og annað koma fram sem alveg gat fegrað Davíð oggu...í gær aftur á móti var byrt viðtal við hann sem var tekið fyrir nokkrum mánuðum og þar talaði hann þvert á það sem hann sagði í umræddu viðtali.
Mér finnst líka alveg ótrúlegt að fólk skuli vera að velta sér upp úr hvoert Sigmar hafi verið góður eða slæmur.....mér fannst hann fínn......án spurninga ....engin svör.
Solla Guðjóns, 26.2.2009 kl. 19:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.