24.2.2009 | 01:17
Afmæli, unglingapartý og þorrablót.
Í dag var hinn raunverulegi afmælisdagur litlu prinsessunnar Hönnu Sólar. Það var líka maskadagur í leikskólanum, og allar stelpurnar voru prinsessur, nema mín hún var í sollustirðu búning, og alsæl með það. Hún er nefnilega prinsessa í sínu daglega lífi svo það var meira sport í að vera eitthvað annað
Komin heim af leikskólanum, með mömmu sinni.
En á laugardaginn var haldið upp á afmælið hér heima, pabbi var rosalega duglegur og bakaði fullt af pizzum, en það var líka hrekkjavökupartý hjá unglingunum um kvöldið, svo það þurfti að baka extra mikið.
Hér er verið að leggja á prinsessuborðið, allt í stíl. Og mjallhvít sest við borðið.
Uppáklædd og tilbúinn í veisluna sína.
Hér er svo ein kakan úr uppskriftinni frá Sigrúnu minni kæru.
Þessi vakti líka stormandi lukku.
Pizzurnar biðu í röðum eftir að verða bakaðar.
Veislugestirnir fóru svo að týnast að. Bara svona til að árétta, þá segjum við hér að börnin skýrist í tjörninni, þau hafa flest dottið þar ofan í og í dag var það litla Evíta Cesil sem datt í tjörnina, pabbi hennar sagði að héðan í frá hlyti hún að sjá álfa og tröll, eftir slíka skírn
Glæsilegt veisluborð.
Rugguhesturinn vekur alltaf lukku.
Úlfur fékk prinsessurnar til að dansa.
Og hér var bara ansi fjölmennt, ætli það hafi ekki verið um 50 manns eða meira þegar best lét.
Stórir og smáir.
Og ég held bara að allir hafi skemmt sér vel.
Fjölskyldan var auðvitað öll, og hún er stór.
Og þröngt mega sáttir sitja, og þar sem kærleikur ríkir er alltaf nóg pláss
Suðureyrarvinkonurnar.
ég vona svo sannarlega að þær haldi hópinn, þær eru svo góðar vinkonur, hér vantar reyndar Sóldísi Björt en hún var veik þennan dag.
Má ég ekki fá líka, spyr Sorró.
Unglingarnir mínir, þau verða áfram í partýinu í kvöld.
Siný mí krúsídúllann hennar ömmu, og stelpan hennar mamadí
Já það var bara fjör.
Og hér eru stóru krakkarnir í herberginu hennar ömmu, búin að hreiðra um sig í hjónarúminu hehehehe
Þetta eru góð og falleg börn.
Og gamla brýnið búið að klæða sig upp á þorrablót.
Tvær Ásthildar Cesil og einn Elías
Tvær knúsírófur.
Hér erum við svo actually komin á þorrablótið.
Hluti af skemmtinefndinni, en þar er alltaf kosnir fulltrúar frá öllum stöðum, Fljótavík, Hornvík, Aðalvík og svo framvegis. Allir verða að taka þátt, enda er alltaf fullt hús á Þorrablóti slétthreppinga.
Hér er svo kórinn að syngja.
Smá yfirlits mynd fyrir fólk sem vill reyna að þekkja hehehehe...
Ísbjörnin var svo ekki langt undan frekar en fyrri daginn.
Björgunarsveitinn Tindar reka félagsheimilið og þjónusta þorrablótsgesti, hér hvíla tveir sín lúnu bein í eldhúsinu í félagsheimilinu í Hnífsdal.
En á sunnudeginum fór ég svo á fund á Reykjum í Hrútafirði, segi nánar frá honum seinna, en það er margt sem gleður augað á svona ferðalagi.
Já það er margt sem er svo fallegt og alveg ókeypis í okkar fagra landi, bara ef við nennum að stoppa til að njóta... ekki satt?
Hæ sæti hvað segirðu gott ?
Nú allt þetta bara fína en þú!!!
Þessi er fyrir fyrrverandi nágranna minn Gísla Svanbergsson frá Engi sem hringdi og þakkaði mér fyrir bloggið mitt og myndirnar. Það hafa reyndar margir aðrir gert, bæði hringt og líka komið til mín og mér þykir alltaf jafn vænt um að fá svonleiðis viðbrögð. Takk fyrir mig. Það er alltaf notalegt að finna að fólk kann að meta það sem maður er að gera. Knús á ykkur öll og innilega takk fyrir mig.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 2023212
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Innilegar hamingjuóskir með Hönnu Sól ofurprinsessu
Gaman að sjá stelpurnar með mömmu sinni
og alla þessa stóru kærleiksfjölskyldu sem þú átt. Flott afmæliskakan ;) Frábært fyrir unglingana að fá að halda svona hrekkjavökupartý og gaman að þið skemmtuð ykkur vel á þorrablótinu.
Alltaf gaman að njóta myndanna þinna, takk fyrir mig. Knús og kram
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 24.2.2009 kl. 02:02
Til hamingju með prinsessuna, þetta hefur greinilega verið fjörug veisla

Huld S. Ringsted, 24.2.2009 kl. 07:55
Til hamingju með afmælið í gær Hanna Sól. Þú ert prinsessukrútt
Fallegar myndir og frábærlega flottar kökur!
Hrönn Sigurðardóttir, 24.2.2009 kl. 08:58
Vá, flottar kökur. Til hamingju með afmælið Hanna Sól
Takk fyrir myndir og knús í Kúlu
Sigrún Jónsdóttir, 24.2.2009 kl. 10:14
Til hamingju með afmælið Hanna Sól.
Og mikð ertu flott á leið á blót.
Þú rokkar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.2.2009 kl. 11:03
Takk Jenný mín.
Ég skal knúsa stóru stelpuna mína frá ykkur kæru bloggvinir.
Já Sigrún mín kakan vakti mikla ánægju get ég sagt þér. Og svo voru pizzurnar ekkert slor heldur hjá tengdasyninum. Hann stóð sig rosalega vel í afmælinu að baka bæði vöfflur og pizzur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.2.2009 kl. 11:26
Til hamingju með þá einu sönnu prinsessu sem ég veit um, hún er algjör dúlla þessi elska

Helga skjol, 24.2.2009 kl. 14:51
Sæl Ásthildur mín. Mikið hefur þetta verið glæsilegt afmæli! Sú hefur verið sæl í prinsessufötunum og með prinsessuborðbúnaðinn. Ég dáist af dugnaðinum í þér!!!
Þú ert bara alveg hreint ótrúleg. Myndirnar þínar eru líka svo fallegar og skemmtilegar. Ég get aldrei hætt að dásama þær. Þær sýna svo mikið líf og mikinn kærleika í kringum þig og fólkið þitt. Knús og kossar frá mér. 
Sigurlaug B. Gröndal, 24.2.2009 kl. 16:33
Hamingjuóskir með prinsessuna, ég ætla að halda mér svona prinsessuveislu næst þegar ég á afmæli
ekkert smá flott
Alltaf nóg að gera á stóru heimili sé ég, knús í kúlu
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 24.2.2009 kl. 16:58
Flottasta myndin, fannst mér, var af ykkur nöfnunum, sú mynd lýsir þeirri ást og umhyggju sem þú berð til barnanna svo vel að engin orð gerðu það betur.
Jóhann Elíasson, 24.2.2009 kl. 23:48
Takk fyrir þessi hlýju orð Jóhann minn
En hve ég skil þig vel Hulda mín, prinsessuveislur eru fyrir allar prinsessur
Knús til þín á móti.
Takk innilega Sigurlaug mín fyrir þessi hlýju orð til mín. þau ylja
Knús til þín.
Takk Helga mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2009 kl. 11:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.