Þorrablót og frumsamið ljóð.

Ég er að fara á þorrablót í kvöld.  Þá verður frumflutt lag Baldurs Geirmundssonar við ljóðið mitt um Fljótavík.  Baldur útsetti lagið fyrir kór, og það var dálítið sérstakt að heyra heilan kór fara með ljóðið mitt.  Ég er mjög stolt af þessu. 

Fljótavík.

  

Einn á ég unaðsreit.

Engan ég betri veit                   

 

 Paradís, prýði slík

 

Perla engu lík.

 

Ég löngum þar legg mína leið.

 

Þar lífið er auðnan greið.

 

Í norðrinu fagra og falda.

 

Þú  fryssandi hvíta alda.

 

Syngur við kvöldsins kyrrð.

 

 

 

Mín fagra Fljótavík

 

Af friði ertu rík.

 

Þögnin er eðal þitt

 

Þakklætið er mitt.

 

Tiplar þar tófa létt um sand.

 

Tilheyrir henni það land.

 

Í ánni svo silungur syndir

 

Sál mín þann unaðinn fyndir,

 

fylgja þar landvætta hirð.

 

 

 

Svo Dísir á ströndinni dansinn sinn stíga.

 

Stormurinn ógnandi brýtur þar land.

 

Öskrandi helkaldar öldurnar hníga

 

Og ærslandi leika við fjörunnar sand.

 

   

Svo hljóðnar Ægisönd

 

Og andar sær við strönd.

 

Létt fer um vog og vík

 

volgran engu lík.

 

Hvíslar angurvær og hlý

 

hafsins golan enn á ný.

 

Og lýðurinn gleðst yfir ljóði.

 

landsins, og biður í hljóði

 

Um hollvætta nálægð og firrð.

  

 

Þú ert reyndar alls engu lík

 

Mín ástkæra Fljótavík.

 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir 9. október 2008. 

  En í dag hefur staðið yfir afmælisveisla fyrir Hönnu Sól, hún á reyndar ekki afmæli fyrr en á mánudag.  En mamma hennar og pabbi ákváðu að halda upp á það í dag.  Hér er búið að vera fjör.  Ég set inn myndir af tertunum seinna.  Tinna tengdadóttir á mestan heiðurinn af kökunum, en notaðar voru uppskriftirnar hennar Sigrúnar bloggvinkonu.  Takk fyrir það Sigrún mín.  Í kvöld eru svo unglingarnir með hrekkjavökupartý, hér verða um 10 unglingar, Bjarki ætlar að baka pizzur og það verður allskonar gúmmilaði.  En við verðum sum sé á Þorrablóti, eða réttara sagt Góublóti.  Konudagurinn á morgunn og alles.  Þá ætla ég að skælast alla leið norður í Húnavatnssýslu í Reykjaskóla á fund.  Elli minn ætlar að aka mig, en það er kjördæmaráðsfundur hjá Frjálslyndum.  IMG_5989

 

Hönnuðurinn Hann Sól með sýningarstúlkuna sína.  

IMG_6009

 

Amma á Hellu sendi henni skólabækur, sem hún er mjög ánægð með, reiknisbók og lestrarbók, nú þarf að læra að lesa.  Hér er verið að vinna verkefnin. 

IMG_6013

IMG_6024

 

Þetta er alveg kjörið hrekkavökuveður.  En ég óska ykkur góðrar helgi mín kæru.  Og góða skemmtun.  Ég er ákveðin í að skemmta mér vel. Heart

.

   

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Flott ljóð og til hamingju með afmælisbarnið.  Góða skemmtun í kvöld.

Jóhann Elíasson, 21.2.2009 kl. 17:39

2 identicon

Sæl Ásthildur. Þetta er eðal ljóð vel ort eins og allt sem frá þér kemur

kv sighaf

Sigurður J. Hafberg (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 17:50

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jóhann minn

Siggi minn þakka þér kærlega fyrir þessi fallegu orð

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2009 kl. 19:37

4 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Þú ert algjör meistari. Trúi því vel að það hafi verið sérstök tilfinning að heyra heilan kór syngja ljóðið þitt.

Til hamingju með Hönnu Sól afmælisbarn. Vona að kökurnar hafi smakkast vel. Gott að geta orðið að liði.

Skemmtu þér vel í kvöld  

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 21.2.2009 kl. 21:00

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur:=)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.2.2009 kl. 22:11

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Flott ljóð. Það er alveg sama hvað þú tekur þér fyrir hendur, allt jafn flott.

Góða skemmtun.

Til hamingju með konudaginn á morgunn

Vertu Guði falin

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.2.2009 kl. 01:55

7 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

flott ljóð, gaman að þessu og til hamingju

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 22.2.2009 kl. 10:40

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan daginn í Kúlu.  Ég vona að allir hafi skemmt sér vel á Þorra/Góu blóti

Til hamingju með afmælisbarnið

Sigrún Jónsdóttir, 22.2.2009 kl. 11:41

9 Smámynd: Elín Helgadóttir

Þakka þér fyrir flott ljóð frú mín góð.... 

Elín Helgadóttir, 22.2.2009 kl. 19:11

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Án efa var gaman á þorrablótinu Ásthildur

Huld S. Ringsted, 22.2.2009 kl. 19:48

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fallegt ljóðið þitt. Vonandi skemmtir þú þér á þorrablótinu :)

Hrönn Sigurðardóttir, 22.2.2009 kl. 20:15

12 identicon

Vona að þú hafir skemmt þér vel á blóti frú mín góð, ég skemmti mér amk í súgandafirðinum :)

Ég vil nú samt leiðrétta með kökuskrímslin, ég á nú ekki allan heiðurinn af þeim, því hún Bára átti þar mestan hluta verð ég að segja :) kom okkur öllum að óvörum :) heheh má nú ekki vera svona vond :):)

Tinna tengdó (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 21:09

13 identicon

Hjartanlegar hamingjuóskir til Hönnu Sólar á afmælinu. Vona að blótið hafi verið skemmtilegt, það hlýtur að hafa verið gaman að heyra textann sinn sunginn af kór. Þetta sýnir að rétt er að það er hægt að taka fólkið úr Fljótavíkinni, en ekki hægt að taka Fljótavíkina úr fólkinu, allavega ekki þér og Baldri.

Dísa (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 08:24

14 identicon

Til hamingju með allt það góða sem var um helgina

Knús í kúluna á vestfjörðum

Kidda (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 10:46

15 Smámynd: Ásta Björk Solis

glaesilegt ljod.

Ásta Björk Solis, 23.2.2009 kl. 21:50

16 Smámynd: Hilmar Sæberg Ásgeirsson

ÁSTHIILDUR MÍN ,INNILEG TIL HAMINGJU ÞETTA ER ALLVEG GLIMRANDI GOTT ,VÆRI GAMAN AÐ HEYRA KÓR FLYTJA ÞETTA EINHVERNTÍMAN .ÞÚ MÁTT VERA STOLT YFIR ÞÍNUM HÆFILEIKUM ,SEM ER GUÐS GJÖF .GÓÐA SKEMMTUN Á ÞORRABLÓTINU ,ÉG VILDI AÐ ÉG VÆRI KOMIN ÞANGAÐ TIL ÞESS AÐ HEYRA FRUMFLUTTNING ÞAÐ ER ALLTAF JAFN GAMAN,MIKIL SPENNA Í LOFTINU .ENN OG AFTUR TIL HAMINGJU ,ÞÚ MÁTT GERA MEIRA AF SVONA ,ÉG SKORA Á ÞIG .GÓÐA SKEMMTUN ,ÉG VEIT AÐ ALLT Á EFTIR AÐ GANGA ALLVEG GLIMRANDI GUÐ SÉR UM ÞAÐ ,ENGAR ÁHYGGJUR ÞESS ÓSKAR ÞINN BLOGGVINUR .KÆRLEIKS KVEÐJA FRÁ MÉR .HILMAR SÆBERG (DRENGUR GÓÐUR ).

Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 24.2.2009 kl. 00:15

17 Smámynd: Hilmar Sæberg Ásgeirsson

ÉG GLEYMDI EINU ,TAKK FYRIR SKEMMTILEGAR MYNDIR KÆRLEIKS KVEÐJA.

                    ÞINN BLOGGVINUR .HILMAR SÆBERG (DRENGUR GÓÐUR).

Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 24.2.2009 kl. 00:20

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll fyrir innitið.  Já þetta var mjög fínt og skemmtunin góð á Þorrablótinu.  Ég fór svo á fund að Reykjum á Sunnudaginn og var með hausverk þegar ég kom heim, og hef legið og slakað á í dag.  Svona er þetta bara.  En ég er að ná mér á strik aftur.  Takk enn og aftur fyrir að hugsa fallega til mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.2.2009 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband