Pælingar um Frjálslyndaflokkinn vegna opins bréfs Guðrúnar Maríu til Guðjóns Arnars.

Ég ætla að eyða þessari færslu minni á að reyna að svara opnu bréfi frá Guðrúnu Maríu til Guðjóns Arnars.  Ég er auðvitað ekki hann, en ég þekki töluvert til þarna, og veit að Guðón og forystan hefur of mikið að gera til þess að svara.  Í litlum flokki mæðir mikið á þeim sem sjá um forystuna.

Ég vil að minnsta kosti að sýna Guðrúnu Maríu þá viðleitni að segja hlutina eins og þeir blasa við mér. 

 

Opið bréf til Guðjóns Arnars Krisjánssonar formanns Frjálslynda flokksins.Frjálslyndi flokkurinn átti 10 ára afmæli s.l. haust. Flokkurinn fékk tvo menn á þing fyrir 10 árum og árið 2003 og 2007 fjóra þingmenn kjörna. Samt sem áður er flokkurinn í dag með 1.5% fylgi í könnunum. Hvernig má það vera spyrja margir? Stefnuskrá flokksins er framsækin fyrir land og þjóð
Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um frelsi einstaklingsins, lýðræði og mannréttindi.
Frjálslyndi fllokkurinn vill kvótann aftur til þjóðarinnar.
Frjálslyndi fllokkurinn vill gera landið að einu kjördæmi.
Frjálslyndi flokkurinn vill afnema verðtrygginguna.
Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um íslenskan landbúnað.
Það virðist sem forysta fokksins skorti áhuga á að stækka flokkinn, efla innra starf flokksins og hleypa nýju fólki að. Það liggur ljóHvernig bregst forystan við nýju framboðunum? Jú, hún ákveður að flýja til fjalla með þingið. Það þarf ekki flokksmenn til að sjá að hér er verið að hindra endurnýjun á forystu flokksins. Landsþing í Stykkishólmi á kosningaári, þýðir minni aðsókn, og minni athygli. Allt virðist helst miðast við að engin endurnýjun verði og sömu menn haldi um valdataumana í flokknum, hvað sem það kostar. Hvað veldur ? Ósk um póstkosningu meðal flokksmanna um kjör í embætti flokksins fékk dræmar undirtektir en sú ósk var sett fram í ljósi þess að fjöldi félaga í flokknum hafði látið í ljósi andstöðu sína við staðsetningu þingsins. Hvað veldur Guðjón Arnar að engin í forystunni sér né hlustar á kall flokksmanna um breytingar? Þýðir eitthvað að safna undirskriftum Guðjón Arnar ? Við viljum sjá Frjálslynda flokkinn opinn og lýðræðislegan flokk þar sem hver getur nýtt sinn lýðræðislega rétt sem flokksmaður í stjórnmálaflokki. Guðjón Arnar, hver er þín sýn á hið nýja Ísland?

Guðrún María Óskarsdóttir.
    ´

 

 

Og svo það komi nú fram þá höfum við oft mælst með svona fylgi í upphafi kosningabaráttu og verið spáð útrýmingu.  Og ég held eins og Sigurjón Þórðar að við munum ná vopnum okkar í vor.

   Ég hringdi í framkvæmdastjóra flokksins og spurðist fyrir um þessi fjöldamótmæli við staðsetningu fundarins og hann kannaðist ekki við neitt slíkt.  Einstaka menn hafi hringt og spurt, en fengið þá skýringu að það yrðu sætaferðir á fundarstað.  Bara svo að það komi skírt fram.  Þar er einhver misskilningur á ferðinni.  Annað sem þarf að koma fram hér er að það er skýrt tekið fram í lögum flokksins að forystuna skal kjósa á Landsþingi, en ekki í póstkosningum, svo það atriði var ekki inn í myndinni.   

Eitt af aðalsmerkjum Frjálslynda flokksins er góð málefnaskrá.  Þú spyrð hvort forystuna skorti áhuga á að stækka flokkinn og efla innra starf.  Það getur vel verið að það hafi ekki gengið nógu vel að hlú að innra starfi flokksins.  En má ekki líka leita sökudólganna meðal þess fólks sem vildi efla það í Reykjavík, jafnvel á kostnað landsbyggðarinnar?     

Í mínum huga eru það málefnin og það sem flokkurinn var upphaflega stofnaður utan um sem skiptir máli.  Ekki fólkið sem þar vinnur.   Nema ég áskil mér rétt til að styðja það fólk sem ég veit að hefur verið trútt sinni sannfæringu og hefur staðið ótrautt vörð við þau málefni og sjónarmið sem flokkurinn vill kenna sig við.  Þar er fyrst og fremst að afnema þetta kvótakerfi, hlú að landbúnaði og virða réttindi eins og þú telur fram þarna í upphafi.     

Ég frétti frá fólki sem ég treysti að nokkrir  þeirra sem unnu í Reykjavík, vildu gera flokkinn að borgarflokki, með öðrum áherslum en þarna er talið upp.  Til dæmis heyrði ég að fólk vildi taka út áherslur um sjávarútvegsmál, það væri ekki upp á borði lengur.    Þær ávirðingar og upphrópanir sem fólk hefur viðhaft, hef ég ekki getað fundið stað.    

Að fólk hlaupi upp til handa og fóta yfir því að landsþingið er haldið á Stykkishólmi en ekki Reykjavík sýnir bara að mínu mati í hnotskurn áherslurnar á Reykjavík.  Það er nefnilega nákvæmlega jafn langt frá Reykjavík til Stykkishólms, eins og frá Stykkishólmi til Reykjavíkur.   Það eru líka boðaðar rútuferðir og laus pláss í bílum fyrir þá sem þess óska.    

Það getur vel verið að einhver hræðsla sé á smölun á fundinn, án þess að ég hafi orðið vör við það, en við höfum nú nýleg dæmi um slíkt, þegar fólk úr öðrum stjórnmálaflokki  var fengið til að koma inn og kjósa ákveðna einstaklinga.  Það er ekki skemmtilegt að vita að óviðkomandi fólk geti mætt til þess eins að spilla fyrir.  Það hefur ekkert með frelsi að gera.    

Við urðum líka fyrir því að hópur fólks gekk í flokkinn til að breyta honum í eitthvað annað.  Auðvitað var þar ekki við allan hópinn að sakast, en það er nokkuð ljóst að forysta þeirra kom inn með því hugarfari.  Enda talaði þeirra foringi þannig að það þyrfti að breyta málefnaskránni.  Þegar ljóst varð að gamla kjarnanum yrði ekki hnikað með málefnin, þá hvarf áhugi þeirra á að vera áfram í flokknum, margir þeirra hafa sagt sig úr honum, og  foringinn hefur nú gengið í herbúðir Sjálfstæðisflokksins.  Margrét Sverrisdóttir þekkti þetta betur, og ég get nú skilið hennar reiði út af því.  Málið er bara að maður getur ekki bannað fólki að ganga til liðs við stjórnmálaafl.  En maður ætti að geta komið í veg fyrir að slíkt fólk yfirtaki flokkinn og geri hann að einhverju öðru.      

Eitt dæmið um ávirðingar á forystuna  er  með Höllu Rut.  Hún var ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri fyrir Reykjavíkurfélögin.  Dugleg og skelegg kona, en forystunni  fannst  ekki hægt að ætlast til þess að Frjálslyndi flokkurinn greiddi henni laun, það hefði verið að mismuna landsfélögum.  Forystan bauð þeim að hún mætti vinna í húsnæði flokksins, og nota þar tölvur, síma og annað, fyrir sitt fyrirtæki og flokkinn.  Það var ekki þegið.  Sagt að forystan væri með klíkuskap og einræðistilburði.      

Ég hef það eftir Guðjóni Arnari að hann margbauð Reykjavíkurfélögunum að koma á fund og ræða málin og finna lausnir.  Það var einfaldlega ekki áhugi.  ‘Eg þekki  Guðjón Arnar mjög vel, og ég veit að hann hefur þurft að glíma við endalausar deilur milli manna.  Það hefur verið bæði erfitt og sálartætandi og ég er viss um að flestir í hans stöðu hefðu gefist upp fyrir löngu síðan.  ‘Eg veit líka að Guðjón er einlægur í því að vinna að málefnum flokksins og þeim loforðum sem við höfum gefið.  Hann hefur sýnt þvílíkt langlundargeð og rósemi að undrun sætir.     

Það kom fram á síðasta miðstjórnarfundi að Magnús Reynir, þessi framkvæmdastjóri sem “aldrei gerir neitt nema hirða launin sín” að sögn (Eríkur Stefánsson og fleiri), hefur greitt allar skuldir og samið niður aðrar, þannig að flokkurinn er skuldlaus í dag, og á inni nokkurt fé að auki.  En ef ég man rétt þá skuldaði flokkurinn um 17 milljónir eftir síðustu kosningar.  Svo sannarlega er þetta ekki neitt.... eða hvað? Það þarf  auðvitað að skipta út svona liði.     

Mér þykir auðvitað leitt þegar fólk finnur sig ekki og finnst jafnvel að því hafi ekki verið hampað nóg eða hrósað.  Það á að láta fólk finna að það hefur gert vel, og það hefur sýnilega misfarist.  En það er þá af því að álagið hefur verið gríðarlegt á forystu flokksins, og þau hafa ekki haft aukaorku til annars.  Það er alls ekki nógu gott, og þarf auðvitað að bæta þar úr.  En það gerir maður með því að vinna saman og standa saman um að gera betur.  Ekki hlaupa burt og geta síðan ekki stillt sig um að reyna að spilla fyrir.  Því hvað annað er hægt að kalla þá niðurrifs starfsemi sem hefur viðgengist undanfarið?   

Ég hef líka rætt um það á fundum við Guðjón og forystuna að umræðan sé ekki nóg,  um það góða sem þau gera, það kemst ekki til skila, en svo er hlaupið með allt sem miður fer í fjölmiðla.   Það er mjög neikvætt.  Þar er aðallega við fjölmiðla að sakast, sem hafa gert sitt til að þegja flokkinn í hel yfir góðum málefnum, en flenna upp slæmar fréttir.  Núna síðast makalausar árásir Eiríks Stefánssonar á Guðjón Arnar og aðra forystumenn flokksins á Útvarpi Sögu sem er ekkert annað en svívirðingar og ærumeiðinga af ósvífnasta toga og afar einkennilegt að Útvarp Saga sé ekki vandara að virðingu sinni en þetta.     

Ég er sjálf orðin hundleið á þessari niðurrifsstarfssemi og illindum.  En ég treysti því fólki sem nú situr við völdin til að framfylgja hugmyndafræði flokksins, og þess vegna styð ég þau.     

Fyrir mér er þessi flokkur samsafn af góðu fólki með fallegar hugmyndir um að gera þjóðlífið betra.  Aldrei hef ég heyrt annað en að þingmenn og forystumenn virði sáttmálann og vilji einlæglega gera sitt besta til að vinna samkvæmt honum.      

Mér finnst það mjög gott að sem flestir gefi kost á sér til starfa fyrir flokkinn, og mér finnst það ekkert síður gott að konur hafi  nú gefið sig fram til starfa í forystunni.   Þess vegna þótti mér leitt að heyra í morgun að þú hefðir dregið framboð þitt til baka.  Það er gott mál að konur séu virkar í forystu flokksins.     

Ég vil svo nota þetta tækifæri til að vísa því á bug að hér sé eitthvert plott í gangi til að halda fólkinu okkar frá Reykjavíkursvæðinu frá flokknum.  Málið er einfaldlega að það er miklu dýrara að halda fundinn í Reykjavík, og við erum að tala um 800.000 til 1.000.000.-  annarsvegar eða 60.000.-  hinsvegar,  svo það sér hver maður að örflokkur sem er að fara inn í erfiða kosningabaráttu þarf að huga að fjármálum sínum.     

Eg vil svo að lokum setja hér inn yfirlýsingu frá kjördæmum í Norðaustri og Suðvestri, en ég er nokkuð viss um að félagar mínir í þessum kjördæmum meti ástandið eins og ég.     

Kraginn: lýsa yfir stuðningi við Guðjón Arnar

Stjórn kjördæmafélags Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi tekur heilshugar undir stuðningsyfirlýsingu aðildarfélaga Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi. Yfirlýsingin barst í gær (16.feb.) en hún hljóðar svo:Aðildarfélög Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi lýsa hér með yfir eindregnum stuðningi við Guðjón Arnar Kristjánsson til áframhaldandi setu sem formaður flokksins. Við þær aðstæður sem nú eru teljum við brýnt að halda í heiðri þeim stefnumálum sem Frjálslyndi flokkurinn stendur fyrir og hefur gert alla tíð frá stofnun hans, en stefnuskrá flokksins er einstök meðal íslenskra stjórnmálaflokka, enda aðall hans og auðkenni. Guðjón Arnar hefur í raun orðið persónugervingur flokksins og fáir þekkja betur til þeirra aðstæðna sem stefnumál hans höfða til. Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að Frjálslyndi flokkurinn sé trúr sínum hugsjónum og teljum við engum betur treystandi til að framfylgja þeim, sem og til að leiða flokkinn í komandi kosningum, en núverandi formann. Stjórnir kjördæmisráðs og svæðisfélaga Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi.  

Það sem við þurfum á að halda núna er að standa saman, vinna saman að því að rétta flokkinn við.  Ég vil skora á alla sem vilja hag flokksins sem bestan að hætta að rífast og fara að vinna málefnalega að komandi kosningum.

Það er hið besta mál að takast á og bjóða sig fram til forystu.  En það vinnur enginn neinn sigur á því að ráðast að öðrum.  Maður vinnur fyrst og fremst á því að segja frá því hvað þeir ætli sjálfir að gera og vinna að, nái þeir kjöri.  Enda er það einmitt það sem skiptir mestu máli.  Ekki að ala á illindum meðal fólksins í flokknum.    

Ég vil líka óska þeim alls góðs sem hafa ákveðið að yfirgefa flokkinn, og vona að þeir hafi fundið sinn rétta farveg.  Því málefnalega erum við sammála um flesta hluti.  Einhverra hluta vegna hefur samt ekki verið grundvöllur fyrir það ágæta fólk innan raða hans.    

Ég ætla svo ekki að tjá mig meira um innri málefni flokksins opinberlega.  Það fer best á því að leysa vandamálin innan flokksins og á þeim stöðum sem leysa á ágreiningsmál.  Að rífast svona opinberlega gerir ekkert annað en að skemmta skrattanum.    

Vona að þetta skýri eitthvað af þínum pælingum Guðrún María mín.  Í fyrsta lagi er þetta orðið svo langt að enginn nennir að lesa það til enda í öðru lagi hef ég svarað þessu eftir bestu vitund minni og því sem ég hef heyrt og hrærst í. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þetta eru greinargóð svör eins og þín er von og vísa Ásthildur.

En ég verð að segja alveg hreint út að ég mér finnst dálítið dapurlegur  málflutningur þeirra sem eru öskuillir yfir að landsþingið skuli haldið úti á landi.

Þeir bera við, að miklu fleiri mundu mæta ef þingið væri í Reykjavík, það er eins og þeir hinir sömu skilji orðið "landsþing" sem "árshátíð" eða flokkspartý, þar sem hægt er að smala nógu mörgum til að ... ja, til hvers?

Og hvar er pólitíski áhuginn, áhuginn á að láta gott af sér leiða,  áhuginn á að byggja upp réttlátt þjóðfélag, áhuginn á að leggja sitt af mörkum til að svona atburðir sem efnahagshrunið er, geti ekki gerst aftur í okkar þjóðfélagi.

 Áhuginn á að halda landinu í byggð og svona mætti lengi telja. -

Mér finnst einhvernveginn að þessum háværu röddum sem hafa verið að ráðast að núverandi formanni, ráði framapotarar og eiginhagsmunaseggir og á þeim er ekki hægt að taka mark.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.2.2009 kl. 15:36

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður punktur hjá þér Lilja mín.  Hvað með áhugann á að láta gott af sér leiða.  Fer maður ekki heiminn á enda ef það skiptir mann máli.  Aftur á móti ef maður vill laumast einhversstaðar inn í partýið og gera óskunda, þá nennir maður ekki að fara lengra en í næsta hús. 

Landsþing er fyrir allt landið.  En sumu fólki gengur illa að skilja að allt landið er meira en 101 Reykjavík.   Mér finnst líka ef ég á að vera ærleg að manneskja sem var tilbúin til að leiða flokkinn á landsvísu en kvartar svo yfir því hvar fundurinn er haldinn, það er ekki traustvekjandi fyrir landsbyggðarbúa. 

Og ég er alveg sammála því með árásirnar á formanninn okkar, sem aldrei hefur sýnt af sér neitt annað en tryggð við málefni flokksins og hefur framfylgt þeim af trúmennsku. 

Takk annars fyrir kommentið það yljar mér.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2009 kl. 17:26

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mikil er trú þín Ásthildur mín. En það er að sama skapi ekki fallegt að gefa það til kynna að við sem erum stofnendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins frá upphafi séum andsnúin landsbyggðinni vegna þess eins að við búum í Reykjavík. Hafi þeir skömm fyrir sem skrökva þessum sögum að þér. Við eigum öll ættingja úri á landsbyggðinni og við höfum mörg hver unnið úti á landi og m.a. þess vegna hef ég sérstakar taugar til Vestfjarða. Við höfum sameiginlega tekið þátt í að móta stefnuskrá flokksins og ég minnist þess ekki að þar hafi borið skugga á. Hornsteinninn í stefnu okkar er stærsta byggðamálið þ.e. að  fólkið í sjávarbyggðunum fái  nýta staðbundna fiskistofna í mínum huga er sá réttur helgur.  Mér rennur blóðið til skyldunnar að skjóta skyldi fyrir Höllu Rut enda kom hún í flokkinn fyrir mín orð.  Halla Rut er dugnaðarforkur og öndvegiskona í alla staði. Hún hefði getað orðið hvalreki fyrir flokkinn enda kom hún með því hugarfari að láta gott af sér leiða og lagði sig alla fram um það.  Hún kom sjálf með öll skrifstofuáhöld bæðu tölvur prentara og annað enda átti flokkurinn ekkert slíkt.  Það er því ekki sannlekanum samkvæmt sem þú segir um hennar starfsaðstöðu.  Hún hélt húsnæði flokksins opnu og bauð kaffi og kökur sem hún borgaði úr eigin vasa og það var hlýlegt og gott að koma þarna við enda streymdi fólk í flokkinn. Þessu stóð sveitungum þínum ógn af, Halla þáði engin önnur laun en þakklæti frá velunnurum flokksins en að sama skapi tortryggni og jafnvel óvild frá flokksforystunni, sem að lokum flæmdi hana á brott. Ég kann ekki aðra skýringu en þá að með þessu sé vanmegnug flokksforystan að viðhalda völdum sínu, þó það skaði flokkinn.  Mér þykir miður að jafn mæt manneskja og þú ert Ásthildur skulir taka þátt í því af góðum hug sakir vináttu og trúgirni. 

         Undir orð þín tekur Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og dregur eftirfarandi ályktun:

"Mér finnst einhvernvegin að þessum háværu röddum sem hafa verið að ráðast að núverandi formanni, ráði framapotarar og eiginhagsmunaseggir og á þeim er ekki hægt að taka mark. "

 Við Lilju vil ég segja: Þessi orð eru ómakleg og ég get ekki tekið þau til mín.

Við getum enn snúið þess öllu okkur og hugsjónum flokksins í hag en þá verða allir að beygja af bæði ég og aðrir. Minnumst þess að við vorum bestu vinir og  samherjar í 9 ár þannig að aldrei bar minnsta skugga á.  Ég sakna þess tíma. 

Þinn vinur Siggi

p.s.  Maður á víst aldrei að skrifa tölvupóst rétt á meðan manni rennur í skap en ég læt þetta samt allt flakka

Sigurður Þórðarson, 19.2.2009 kl. 18:18

4 identicon

Takk fyrir Ásthildur, þetta var afbragðslesning og góðar útskýringar, ekki það að ég þyrfti þeirra við. Gott er að rifja upp síðasta landsfund, sem olli mér og mörgum öðrum miklum vonbrigðum, þar sem smölun fólks af götunni, sem ekki vissi neitt í sinn haus, nema það að það átti að ná í kjörseðla sem síðan yrðu fylltir út fyrir það. Þetta þótti mér heldur ógeðfelldar aðferðir.  Ég vona að eftir komandi landsfund verði friður til að vinna að stefnumálum flokksins og hann vinni sér þann sess sem þjóðin á skilið, því að enginn flokkur í landinu hefur betri málefnaskrá til að vinna með og það er von mín að almenningur fari nú að opna augun fyrir því og þeim góðu og réttlátu málefnum sem við erum að berjast fyrir.

Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 18:33

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Siggi minn það getur vel verið að ég sé gamalt trúgjarnt fífl.  En þetta er mitt mat.  Og ég hef ekki orðið vör við þessi óheilindi Guðjóns eða annara frjálslyndra sem ég umgengst.  Ég hef heldur ekki séð þá baknaga neinn af sínum gömlu félögum, eða ræða opinberlega á þeim nótum sem hér hefur sést töluvert mikið frá hinni hliðinni.  Ég tek mark á því sem gert er, en ekki hvað menn segja.  Og ég verð að segja það að það var talandi dæmi mismunur á málefnalegum miðstjórnarfundi síðast, en á þeim fundum þar á undan, þar sem ekki var vinnufriður fyrir illingum og naggi já og slagsmálum. 

Ég var upplýst um það í dag af manni sem þekkir til að það sama hafi verið í Reykjavíkurfélögunum.  Þar hafi ekki verið hægt að ræða eða taka á neinum málum málefnalega, vegna þess að það voru endlaus leiðindi og baknag.  Það verður svo bara að koma í ljós hvort ég er trúgjarnt flón eða skynsöm kona.  En ég er tilbúin til að taka því hvort sem kemur í ljós.    Líka þinn vinur Ásthildur.

Ég segi sama Þorsteinn miinn, svo sannarlega er komin tími til að friður ríki og við getum einbeitt okkur að okkar góðu málum og byggt upp flokkinn.  Hann á svo sannarlega erindi í pólitíkina í dag.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2009 kl. 20:16

6 Smámynd: Kolbeinn Már Guðjónsson

Þetta er laukrétt hjá þér Ásthildur og alltaf gaman að lesa pistlana þína.

Síðasta landsþing var ekki vel heppnað í umgjörð, það verður gott að koma í hólminn á þingið, og stutt að fara. Þó virðist það ótrúlega langt fyrir suma.

Kolbeinn Már Guðjónsson, 20.2.2009 kl. 17:42

7 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Í fyrsta lagi munar fólkið í Reykjavík ekkert um að fara út á land á fund. Þetta er spurning um að virða samþykktir miðstjórnar. En þær hafa oft og iðulega verið hundsaðar. Síðastliðið haust var samþykkt að halda það "innan 50 km. frá Reykjavík".  Það er fráleitt að halda því fram að kostnaðurinn hefði verið  800.000.- milljón. Það hefði heldur ekkert veitt af því að hafa þingið í tvo daga. Við fengum nasasjón af svona vinnu á landsráðsfundinum síðastliðið vor á Laugarvatni. Það var bara einn dagur og dugði ekki til. Til dæmis fékk "minn" málaflokkur engan tíma.

Hvernig getur þú fundið út að fólkið í Reykjavík hafi viljað efla starfið í Reykjavík á kostnað landsbyggðarinnar ?.

Þú segist hafa frétt það að nokkrir vildu gera flokkinn að borgaraflokki og taka sjávarútvegsmál af dagskrá. Það má vel vera að einn eða tveir hafi haft það á orði að þau mál brenni ekki heitast á Reykvíkingum, þó er það svo að hörðustu andstæðingar kvótakerfisins eru einmitt í Reykjavík. Nægir að nefna Tryggva, Valdimar og Bárð. Valdimar höfðaði meira að segja mál út af því.

Nú nýlega komumst við svo að því að Guðjón og Kristinn höfðu gefið kjósendum sínum fyrir vestan, loforð þess efnis að allur viðbótarkvóti upp að 170.000. tonnum yrði úthlutað eftir gamla gjafakvótakerfinu. Síðan að Guðjón sjálfur og þín fjölskylda eru innvikkluð í það kerfi. Það varð til þess að "við" fórum að efast um heilindi vestfirðinganna í þeim efnum.

Enn nefnir þú Höllu Rut. Henni bauðst ekkert “annað”. Hún á miklu öflugri græjur en flokkurinn nokkurn tíman. Hún fékk afnot af síma, allt annað kom hún með sjálf. Enn er ekki búið að tengja þá tölvudruslu sem flokkurinn á. Ekki hefur verið hægt að prenta né ljósrita nokkurn skapaðan hlut í þessu húsnæði. Við unnum þar hörðum höndum við að mála og koma því í stand. Ekki lét framkvæmdastjórinn svo lítið að láta sjá sig þar á meðan sú vinna fór fram. Okkur fannst sjálfsagt að flokkurinn hefði opna skrifstofu hluta úr degi á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdastjórnin hafði líka gefið okkur vilyrði um að koma til móts við okkur varðandi launagreiðslur til Höllu. Síðar, þegar til átti að taka kannaðist Guðjón og Kolbrún ekki við neitt.

Talandi um smölun á þingið. Ég var ekki í flokknum þegar síðasta þing var haldið. Ég fylgdist með því í fjölmiðlum og þótti ekki til fyrirmyndar. Samt er það nú svo að ef ekki hefði verið fyrir þessa “smölun” þá væri Magnús Þór ekki varaformaður í dag, jafnvel er óvíst að Guðjón væri formaður þar sem Margrét Sverrisdóttir beið með það fram á síðustu stundu að segja hvort embættið hún vildi. Það er eins og allir séu búnir að gleyma því.

Þú segist hafa það eftir Guðjóni Arnari að hann hafi margboðið Reykjavíkurfélögunum að koma á fund og ræða málin, það hafi ekki verið neinn áhugi. Það var þá, segi ég nú bara. Þetta eru hrein og klár ósannindi Það var nefnilega á hinn veginn. Margítrekað fór ég og Tryggvi fram á fund og fundi en fengum ekki. Tvisvar hittumst við á fundi til að ræða þessi mál. Sjaldnast var erindum okkar svarað.

Væntanlega tilheyri ég þessum “hópi fólks” sem gekk til liðs við flokkinn. Aldrei var ég vör við að það stæði til að breyta flokknum. Það var enginn ágreiningur um málefni. Það eina var að sum okkar vildu opna á umræðu um Evrópumál, punktur.

Það er greinilegt á þessum skrifum þínum að þú heyrir ekki nema brotabrot af því sem átt hefur sér stað og það litla sem þú hefur heyrt er fært úr lagi svo ekki sé meira sagt. Það sést best á því að þú og fleiri skuli hafa haldið að efling félagsstarfs í Reykjavík hafi átt að vera á kostnað landsbyggðarinnar. Ég veit ekki einu sinni hvernig það hefði átt að vera hægt.

Þóra Guðmundsdóttir, 20.2.2009 kl. 22:20

8 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Góð grein hjá þér Ásthildur og ég er þér sammála í því að þeir sem komu í flokkinn frá Nýju Afli undir forustu Jóns Magnússonar var að ganga í flokkinn til að reyna að yfirtaka hann.  Enda þegar Jón Magnússon sá að það myndi ekki takast þá yfirgaf hann flokkinn og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og ég segi bara farið hefur fé betra og gott að vera laus við hann úr flokknum.  Það vita allir sem vilja vita að grasrót flokksins er á landsbyggðinni og það er mikið til í því að ákveðnir aðilar ætluðu að efla flokkinn í Reykjavík á kostnað landsbyggðarinnar.  Þótt fylgið mælist nú lítið mun örugglega annað koma í ljós þegar verður kosið.  Guðjón Arnar er sá klettur sem heldur þessum flokki saman og nú þegar við erum laus við Jón Magnússon þá mun verða friður til að byggja flokkinn upp.  Það hefði verið betra að hlusta á viðvörunarorð Margrétar Sverrisdóttur á síðasta landsfundi um aðkomu Nýs Afls að flokknum.

Jakob Falur Kristinsson, 21.2.2009 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband