17.2.2009 | 21:06
Karlarnir í lífi mínu.
Það er búið að vera heilmikið að gera hjá mér fyrir utan vinnuna. Aðlögun hjá stelpunum á nýjum leikskólum, Guði sé lof fyrir að mamma þeirra er hérna núna, kennarafundur hjá stuppnum, og svo dittedatte annað.
En dóttir mín sagði við mig um daginn, hefurðu ekki sett inn myndir af karlmönnunum í lífið þínu mamma. Nei sagði ég, mér hefur ekki dottið það í hug.
Þú verður að setja inn myndir af þeim, sagði hún ákveðin. Svo hér koma þeir þessar elskur. Ég er eini kvenmaðurinn á mínum vinnustað, og er borin á höndum.
Þeir mæta tímanlega á morgnanna og bíða eftir verkefnum. Sumir fara út að moka snjó, aðrir upp á skíðasvæði að vinna við lyfturnar. Þeir setja niður haustlauka og bara gera það sem gera þarf.
Hér má sjá Steina, hann er hestamaður meðfram sinni vinnu á skíðasvæðinu og í öllu sem þarf að gera í verkamannavinnu.
Þarna er svo Doddi yfirverkstjóri, hann er líka í hestunum og skemmtilegur karl.
Hinum myndunum er smellt af í kaffitímanum.
Þetta er hann Guðni, hann er afskaplega hagur maður, hér er hann að laga stytturnar hans Simsons og gerir það vel eins og allt annað.
Kaffitímana notar hann svo til að smíða svona skip, þetta er björgunarskipið okkar, það á eftir að málast og gera klárt.
Þetta er hann Bjössi, hann leggur á flótta út úr kaffistofunni þegar við byrjum að ræða pólitík.
Óli heldur um alla þræði í áhaldahúsinu, gerir við allt sem bilar svona smálegt, og hefur bókhald um allt sem kemur inn og út. Ég veit að hann sparar bænum fleiri þúsundir á hverju ári með því að passa vel upp á allt sem honum tilheyrir.
Svo er Svenni hann er gröfukarl og eðalgrillari í ferðalögum sem við skellum okkur í á sumrin.
Jónas er verkstjóri og svo er hann í karlakórnum Erni.
Flosi er viðgerðarmaðurinn og hann gerir við allt sem bilar í bílunum og tækjunum. Á sumrin þeysist hann um fjöll og firnindi sem rútubílstjóri með erlenda ferðamenn.
Hjálmar er líka gröfukarl og svo er hann bóndi í Hrauni.
Hér er Ari fróði. Hann veit afskaplega mikið, þekkir mjög víða til og er hafsjór af fróðleik. Ari er hinn íslenski verkamaður sem er vel lesin og víðsýnn. Svoleiðis er margt alþýðufólk þessa lands, ég held að það sé ekki víða erlendis sem maður rekst á svoleiðis, og ber að virða slíka menn.
Það vantar örugglega einn það er hann Jói, Jói er alltmúligmaður í áhaldahúsinu, hvort sem það þarf að grafa eitthvað, höggva tré eða senda í hafnarvörslu á firðina í kring, þá er kallað í Jóa. Hann er líka í björgunarsveitinni.
Þetta eru karlarnir mínir í áhaldahúsinu. Okkur kemur alltaf vel saman, og við eigum oft ágætis stundir saman förum meira að segja í ferðalög. Ég er ánægð með mína vinnufélaga og móralinn hjá okkur. Og svo eiga þér líka afskaplega yndislega konur þar á ofan.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 2023212
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skemmtileg frásögn um karlanna í lífi þínu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.2.2009 kl. 21:20
Jamm Lilja mín þetta er þjóðin, fólkið í landinu VIÐ
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.2.2009 kl. 21:24
Þú heldur vitanlega um töglin og hagldirnar í þessum fríða flokki.
Helga Magnúsdóttir, 17.2.2009 kl. 21:29
Jamm þeir gera náttúrulega allt fyrir mig þessar elskur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.2.2009 kl. 22:11
Þeir eru flottir karlarnir í lífi þínu, líka þeir sem nær þér standa
Sigrún Jónsdóttir, 17.2.2009 kl. 22:32
Góður karlahópur sem þú átt þarna.
, 17.2.2009 kl. 22:41
Kæra Ásthildur.
Að vanda eru myndir þínar óborganlegar.
Karl, það hlýtur að vera óborganlegt að hafa hann í lífi sínu.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 17.2.2009 kl. 22:48
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.2.2009 kl. 22:58
Hehe, væri nei ekki slæmt að hafa KARL líka meðal karla í lífi þínu, vestfjarðagyðjunnar miklu!
En já, ekki eru samt allir taldir, ekki Ellin og ekki..ÉG!?
Magnús Geir Guðmundsson, 17.2.2009 kl. 23:27
En lokasetningin í pistlinum er lúmsk!
Magnús Geir Guðmundsson, 17.2.2009 kl. 23:28
Oh, æðislegt að sjá hann með dömuna hans Simsens í makeover
, mér þykir svo vænt um þessar styttur enda tengjast þær bernskuminningum úr gamla blómagarðinum sem var heil ævintýraveröld fyrir lítinn barnshuga (og hver veit nema felist þurrkuð blóm ennþá í bókunum hans pabba? maður fékk svo sem skömm í hattinn fyrir að fylla þær af blómum í den - en svona eru bara börn 
knús til þín
Martha Elena Laxdal (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 04:07
flottir kallar sem þú deilir tíma þínum með.
Kærleiksknús frá Lejrekonunni
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.2.2009 kl. 06:59
Skemmtilegar myndir og pistill hjá þér. Skemmir ekki að kannast við suma. Skilaðu kveðju minni til Jónasar, Ara og Bjössa. Þeir hafa ekkert breyst mikið á þessum "fáu" árum síðan ég fór, frekar en ég hihihi

Dísa (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 08:25
Auður Proppé, 18.2.2009 kl. 13:08
Knús og kram á þig elsku Ásthildur mín og hafðu það ljúft!
Tiger, 18.2.2009 kl. 21:23
Flottir karlarnir þínir
Ég kannast við svona samsetningu frá mínum fyrrverandi vinnustað. Ég sat ein að öllum körlunum þar í tíu ár. Knús í kúlu 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 18.2.2009 kl. 23:14
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 18.2.2009 kl. 23:28
Takk öll
Ég skilaði kveðjunni til Jónasar Ara og Bjössa Dísa mín.
Gaman að heyra Martha mín, já þau eru flott karlinn og konan hans Simsons, þau eru bæði inn í áhaldahúsi orðin voða fín eftir Guðna.
Alltaf sami prakkarinn Magnús minn
Það er flott að hafa karl í lífi sínu Kalli minn
Knús á ykkur öll
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2009 kl. 17:41
Takk elskan, að vanda verður maður hrifin, þú skilar nú kveðju til þeirra allra en sér í lagi Bjössa míns, Ara fróða og Jóa þú mátt segja Jóa að það vanti mann hér á Húsavík sem kann að moka göturnar, þetta er hreinasta hörmung hér.
Knús til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.2.2009 kl. 17:55
Þeir eru frábærir þessir strákar.
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 19.2.2009 kl. 20:54
Milla ég ætla að gera mér far um að segja þeim ekki neitt um það hehehehe vil ekki missa þá norður
Já Sigga mín þeir eru sko flottir þessir strákar
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2009 kl. 21:02
Nei vissara fyrir þig að þegja yfir þessu, annars held ég að þeir myndu nú aldrei flytja þessir menn, orðnir rótgrónir.

Ljósið fer yfir til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.2.2009 kl. 13:36
Hehehe já ég hugsa það sem betur fer Milla mín. Þeir eru ánægðir yfir kommentunum strákarnir. Knús og góða helgi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2009 kl. 16:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.