Ég fór í leikhús.......

Ég fór í leikshús í gær og ég skemmti mér þvílíkt vel.

IMG_5914

Þetta var úr leiksmiðju Jóns Múla og Jónasar Árnasona unnið upp af Elvari Loga bloggvini mínum og leikhúsmanni.  Við heimtum aukavinnu heitir afurðin, en er mest söngvar og skemmtilegheit upp úr verkum bræðranna góðkunnu.

Ég verð að segja að þetta var frábær skemmtun, Elvari Loga tókst vel upp eins og hans er von og vísa, hvergi dauður punktur, leikgleðin réði ríkjum og sum atriðin óborganlega fyndin, því miður mátti ég ekki taka myndir á sýningunni, en reyndi að nappa myndum eftir hana.

Hér sést uppröðunin, það var líka opinn bar og fólk gat setið með bjór og rauðvín og virkilega slakað á.

 

IMG_5919

Þetta er eitt af lokaaatriðunum, þegar leikararnir fara út í sal og sækja eitt stykki Jörund Hundadagakonung setja á hann kórónu og hylla hann.

IMG_5920

Þau voru óborganlega fyndinn.  Ég horfi með mikilli bjartsýni á Litla leikklúbbinn með allt þetta unga skemmtilega fólk innanborðs.  Og það var ekki hægt að sjá að þau væru ekki professional, það skrifast að einhverju leyti á Elvar Loga, en líka á þau sjálf og þá útgeislun sem þau hafa.

IMG_5921

Ég get bara sagt fyrir mig að ég grenjaði af hlátri á stundum.

IMG_5923

Hljómsveitin var líka flott, enda Gummi Hjalta þar í forsvari.

IMG_5924

Þetta stelpuskott syngur hreinlega eins og engill.  Og það var ekki síst hún sem gaf sýningunni þetta frábæra yfirbragð.

 IMG_5926

Þau voru ótrúlega flott öll sem eitt.

IMG_5936

Baksviðs, ég vildi fá þau til að pósa fyrir mig eftir sýningu, en á laugardagskvöldi eru allir að fara að gera eitthvað.  Ég sé eftir að hafa hlýtt reglunum og ekki tekið myndir af þeim meðan á sýningunni stóð, þá hefðuð þið séð hve flott þau voru.

IMG_5937

Palli minn ansi þungur á brún hehehehe... gamall í hettunni, en þetta eru reyndar Skuggasveinn og Ketil skrækur.

IMG_5941

Að öllum öðrum ólöstuðum fór þessi unga dama svo gjörsamlega með mig þegar hún söng fylleríislagið sitt, og brilleraði þvílíkt, þessi með Smirnovið Elín Sveinsdóttir, Guð minn góður hvernig er hægt að vera svona fyndinn...

IMG_5943

eins og í heyrt og séð, slummað og sleikt og soleiðis eigum við okkar stjörnur líka, hér eru Harpa og Gauji litil okkar, flott í leikhúsinu, þau þekkjast út körfuboltanum og Ísfólkinu.

IMG_5946

Ásthildur ekki taka mynd af mér!!! hehehe Guðrún á Rúv að skemmta sér LoL

Elvar Logi enn eitt skiptið hefurðu sýnt hve mikill snilli þú ert að vinna með fólki.  Þetta var áreynslulaus sýning, gekk snurðulaust og aldrei nokkur glufa, allt smalll vel saman og allt var bara ótrúlega gott og skemmtilegt.  Ég átti yndislega stund í leikhúsinu okkar, og vil bara þakka innilega fyrir mig.  Á svona erfiðum tímum er nauðsynlegt að geta hlegið og skemmt sér, ég ætla bara rétt að vona að þessar sýningar verði fram yfir páska, og vil virkilega hvetja fólk til að fara og upplifa skemmtun sem stendur fyllilega undir væntingum.  Batnar örugglega ef eitthvað er.  Ég vildi samt óska að ég mætti vera á einni sýningu og taka myndir af öllum þessum skemmtilegum mómentum sem verkið býður upp á. 

Elsku LL, Elvar Logi og leikara, söngvarar tónlistarmenn, og allir baksviðs innilega takk fyrir mig, luv jea. HeartOg er rosastollt af ykkur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Ásthildur..!

Viltu vinsamlegast taka þessa mynd af mér og Lindu út... (mynd nr. 2 ) :D Ekki alveg að fíla þessa mynd og og var ekki tilbúinn þegar þú smelltir mynd af okkur þarna...!  

Takk fyrir

Elmar Björgvin (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 23:15

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg sjálfsagt að verða við því Elmar minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2009 kl. 23:52

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það hefur verið góð stemming þarna í leikhúsinu  Örugglega verið góð skemmtun.

Sigrún Jónsdóttir, 16.2.2009 kl. 00:01

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Cesil.

Gott að þú hafðir gaman í leikhúsinu. Var að svara þér í commentum hjá Guðsteini og spyrja nokkurra spurninga, vænti svara við tækifæri mín kæra.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.2.2009 kl. 01:50

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Það liggur margt óborganlega skemmtilegt eftir þessa bræður. Við settum upp "Þið munið hann Jörund" fyrir löngu síðan hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar, ég fyllist ennþá gleði og brosi við minninguna. Þetta hefur greinilega verið skemmtilegt kvöld í gærkvöldi

Ragnhildur Jónsdóttir, 16.2.2009 kl. 13:43

6 Smámynd: Hjördís Þráinsdóttir

Blessuð, og takk fyrir komuna í leikhúsið og þessa góðu dóma.

Ég verð samt að segja að bæði ég og flestir vinir mínir erum búin að hlæja ansi mikið að því að þú kallir mig stelpuskott! Nærri þrítug bredda! Fyndið...

Kveðja, Hjördís Þr.

Hjördís Þráinsdóttir, 16.2.2009 kl. 22:35

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Til hamingju með Litla Leikklúbbinn og  snillinginn hann Elvar Loga sá hefur aldeilis gert góða.  Mikið held ég að það hafi verið gaman á sýningunni, er það rétt hjá mér að hinn þungbrýndi Palli sé sjálfur Páll Gunnar Loftsson fyrrum Kópavogsbúi m.m.?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.2.2009 kl. 00:58

8 Smámynd: Laufey B Waage

Alveg hreint ótrúlegt hvað LL er að gera það gott, þrátt fyrir að við tvær séum horfnar úr sviðsljósinu.

Laufey B Waage, 17.2.2009 kl. 09:56

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll, það hefur verið mikið að gera hjá mér þessa daga, stelpurnar í aðlögun á nýjan leikskóla, foreldrafundur í skólanum og svo auðvitað vinnan mín. 

Takk fyrir kommentin ykkar. 
Segðu Laufey mín hehehe...

Já Lilja mín þetta er hann Palli Lofts, hann er mikið í leikhúsinu hér mörg undanfarin ár að leika, setja upp og bara vera til fyrir leikhúsið.

Rokkfiskur mín fyrir sextuga kerlingu ertu stelpuskott.  Þú er flott og hefur þá útgeislun sem skilar sér allt til enda, það er bara þannig.  Skamm skamm bredda ertu ekki, bara eins og minn maður sagði oft við mig, mikið til að elska

Við settum líka upp Þið munið hann Jörund, ég lék þá meyjuna sem dansaði við Jörund, og það var leikið bak við hýjalín og ég fór út næstum öllu, bara naríurnar eftir, það er ekki laust við að mótleikara mínum væri ómótt hehehehe..

ég kíki á þetta Gmaría mín.

Jamm Sigrún mín það var gaman  

Knús Helga mín.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.2.2009 kl. 18:28

10 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Fátt jafnast á við gott leikhús.

Helga Magnúsdóttir, 17.2.2009 kl. 20:55

11 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Takk fyrir góð orð mín kæra vinkona og takk fyrir komuna í leikhúsið. Já þeir bærður Árnasynir eru sko ekkert slor ættum við bara ekki að setja upp Deleríum næst...???

Elfar Logi Hannesson, 18.2.2009 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband