Gátuvísur og ljóð í tilefni aðstæðna.

        Ég mun setja inn myndir seinna í dag.  En ég er að grúska í safninu mínu og þar er ýmislegt skemmtilegt.

 Hér er til dæmis ljóð þýtt af Helga Hálfdánarsyni.  Gott að vita í kreppunni, þegar fólk hefur ekki of mikla peninga til að bruðla með mat.



MATARÆÐI


Enn þjakar Adams niðja

ýmisleg bölvuð mæða,

sárlegust samt af öllum

sú sem er kölluð fæða.

 

Fiskurinn eyðir óðar

öllum krafti úr skrokknum

allt kjöt er óhollt líka

einkum úr gæðaflokknum.



 

Mjólk dregur merg úr beinum

máttleysi veldur rjómi

enginn sem ostinn spænir

aftrað fær skapadómi.

 

Kál sýkir lungu og lifur

laukur er viðsjáll sagður

hver sem á baunum bragðar

brátt verður kistulagður.



 

Kæfa sem kemst í magann

kvelur sárt innan rifja

alla sem átu pylsur

óhætt mun strax að kryfja.

 

Þeir sem af súpu sötra

senn munu helveg troða

svali menn sér á kaffi

sálarheill er í voða.



 

Brauðið herðir á hungri

hvar sem það er til sölu

vitsmuni vora slekkur

vatnið, alla með tölu.

 

Súrt kveikir synd í huga

sætt spillir hjónabandi

salt verður fljótt og að fullu

fjárhag vorum að grandi.

 


Hvorki varð hrátt né soðið

heilsunni gæfuvegur

mun það og mála sannast

að matur er háskalegur.

 

Íþrótt er vond, og vinna

verður engum til þrifa

óhollast samt af öllu

það uppátæki---að lifa.

 

 Svo er hér vísukorn um Gildi orðsins ort af Ingibjörgu Sigurðardóttur frá Kálfshamarsvík.  Líka gott að hafa í huga á þessum tímum þegar menn eru að fara í kosningabaráttu og kenna hvorir öðrum um hitt og þetta.   

 

Gildi orðsins.

Af gnægðum hjartans mælir munnur,

mynda orðin sálargerð

Öll þau speglar andans brunnur.

eru þau hugans dýra sverð.

 

 Orðin birta eðli manns,

illt og gott í fari hans.

Góður maður gott fram setur

góðum sjóði hjartans frá.

Göfugleikans gull hann metur

grandvör orð og sannleiks-þrá.

 

 Tungan hlýðir hugsun manns,

hún er lykill sálar hans.

Vondur maður orðin illu

ávallt lætur fús í té.

Sína eykur syndavillu

saurgar heilög andans vé.

 Hver sem iðkar orðin ljót,

allri blessun vinnur mót.

  

Því er vert að vanda tungu,

varhyggð rétta temja sér.

Gróðursetja í eðli ungu

allt,sem manni þroska ber

Orðsins gildi gullvægt er,

ef göfug hugsun saman fer!

 

    Svo til gamans ég dundaði mér við það fyrir nokkrum árum að setja saman svona gátuvísur.  Þær eru barn síns tíma og ekkert sérstakar, en þær eru þannig að þær erum um eitt orð.  Hver setning á að lýsa einni meiningu sama orðsins, sem getur merkt mismunandi hluti eða hugtök.  Hér eru tvær slíkar.  Getið þið giskað á hvaða orð hér er verið að leita að? hver hending er sérstök upplýsing um sama orðið.   

Það er löngum sagt um leitarmann

Líka er  gáfan  náðar.

Á höfuðfötum þetta fann.

Á fyrirlestrum sá‘ ða.   

 

Hvaða orð erð þetta?  

 

Konunafn þið kunnið eitt.

Enginn vill slíkan bera.

Orðanna hljóðan,  illa breytt.

Aldnir oft það gera.

Og svo þetta hér?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk, takk mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2009 kl. 14:41

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir kreppukvæðið Ásthildur mín. kærleiks kveðjur

Kristín Katla Árnadóttir, 13.2.2009 kl. 19:22

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 13.2.2009 kl. 21:09

4 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

kúluknús og góða helgi

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 13.2.2009 kl. 22:32

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Flott kvæði. Ingibjörg Sigurðardóttir hefur gert mörg falleg kvæði og bækurnar eru líka fallegar.

Guðs blessun og Góða helgi

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.2.2009 kl. 22:57

6 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 13.2.2009 kl. 23:25

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Fáum við svör við gátuvísunum?....ég er búin að klóra mér til blóðs í höfuðleðrið

Sigrún Jónsdóttir, 14.2.2009 kl. 13:02

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehehe jamm Sigrún mín fyrra orðið er Skyggna, að skyggnast um, skyggn maður, skyggni á derhúfu, og svo  eru skyggnur notaðar við kennslu.

 Seinni vísan ber nafnið Halla í sér.  Konunafnið Halla, Enginn vil bera halla, að halla réttu máli og og gamla fólkið hallar sér á annað eyrað. 

Þar er nú það.  En ég er að fara í barnaafmæli, ætla að lofa ykkur mundum þegar ég kem heim á eftir, m.a. myndir af Báru minni og pabba sínum á kajak og gamla mynd af mér og hljómsveitinni Ásgeir og félagar.  En það kemur inn seinna í dag.  Knús á ykkur öll.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2009 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband