Þroskasaga karlanna!!!

Svona til gamans í hugleiðingu vegna jómfrúarræðu Ragnheiðar Ólafsdóttur á Alþingi í gær. 

 


1.


Barnaskólaárin eru mörgum fersk í minni

því miklar verða breytingarnar á líkamsstarfseminni.

Mörgum fer þá bráðlega að leiðast lestrarstritið

þá læðist gjarnan inn í kroppinn fyrsta hvolpavitið
 

.

2.

Svona kringum fermingu þá fá menn bassaróminn

og finnast vera tilbúnir að kenna leyndardóminn.

En þetta er oftast klúður og klaufalegir fundir

því kynlífið á líka sínar raunalegu stundir


.

3.

Fram að tvítugsaldri er talsvert um að vera

taumleysið er algert og mikið oft að gera.

Núna er það fjöldinn sem mestu skiftir

og margur maður óttalaus Grettistaki lyftir
 

.

4.

Frá tvítugu til þrítugs blómstrar lífsins leikur

löngunin er stöðug og andi holdsins veikur.

Þú lætur eins og knapi á ljónfjörugum hesti

þig langar til að gera það á klukkutímafresti .

5.

Frá þrítugu til fertugs nú gjarnan góðar stundir

geysilegur vilji og margir ástarfundir.

Af talsvert meiri nákvæmni þú tilfinningar metur

þú treinir þetta lengur, og gerir þetta betur .


6.

Síðan næsta tímabil fram að fimmtugsaldri

finnst þér alveg sjálfsagt að beita nýjum galdri

kroppurinn er fullur af fiðringi og vonum

þú ferð að vilja sofa hjá miklu yngri konum .

7.

Þessi löngun fylgir þér fram á sextugsaldur

þér finnst þú vera töffari og svakalega kaldur.

Um sextugt fer að hrella þig viðsjáll vöðvaslaki

þú verður oftar þreyttur og tollir illa á baki .


8.

Um sjötugsaldur finnst þér aftur fjörið vera að lægja

þú ferð nú yfirleitt að láta gömlu brýnin nægja.

Það miðar hægt ef vindurinn stendur beint í stefnið

þú stundar þetta bara til að halda þér við efnið
 

.

9.

Um árætt virðist sjálfsagt að hafa hug á konum

í hjartanu er ylur og löngunin að vonum.

þér finnst það skifta máli hjá meyjunum að vera

en mannst samt stundum ekki hvað þú ætlaðir að gera
.

10.

Eftir þennan tíma er löngun best að leyna

og láta ekki glepjast þó konan vilji reyna.

Í átökunum getur sálin gengið öll úr lagi

þú gætir orðið bráðkvaddur úr elli"reiðar"slagi.


 

Þá vitum við það hvernig eru á öllum áratugum

okkar kæru karlmenn, þeir leita í öllum smugum.

munum þetta  grínið vel á  góðum skemmtistundum

og gjarnan ræðum þetta vel á hinum ýmsu fundum.

(Smábreytt)
 

Goggikáboy


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góð

Sigrún Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 10:57

2 Smámynd:

, 12.2.2009 kl. 11:20

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er frábært. Aldrei heyrt þetta áður.

Helga Magnúsdóttir, 12.2.2009 kl. 11:26

4 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 12.2.2009 kl. 12:06

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm það leynist ýmislegt hér á langri ævi hehehehe...

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 12:10

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

KærleiksLjós frá mér

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.2.2009 kl. 15:27

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Flott hjá Ragnheiði að reyna að tjónka við samstarfsfólkið sitt sem hagar sér mjög heimskulega að eyða tímanum í karp þegar þjóðinni blæðir. Sýnir hverslags fólk þetta er. Innrætið ekki uppá marga fiska. Vona að fólk verði duglegt að fara í prófkjör og velja nýtt ferskt fólk til staðinn fyrir fólk sem er gegnsósað af spillingu og nú þegar orðið útbrunnið.

Frábærar myndir hjá þér eins og venjulega. Börnin eru svo falleg og þau hljóta að gefa þér mikla gleði en á sama skapi orkukrefjandi.

Guð veri með ykkur öllum á Ísafirði

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.2.2009 kl. 15:50

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

  kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 12.2.2009 kl. 20:34

9 Smámynd: Karl Tómasson

Karlar eru flottir mín kæra Ásthildur.

Bestu kveðjur frá Karli úr Mosó.

Karl Tómasson, 12.2.2009 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband