Frú Ragnheiður Ólafsdóttir þinn er heiðurinn.

Ég vil byrja á að lýsa hreykni minni yfir frammistöðu minnar ágætu vinkonu Ragnheiðar Ólafsdóttur á alþingi í dag.  Ég hlustaði á ræðuna hennar og svo sannarlega eins og hennar er von og vísa brilleraði hún algjörlega;

 

Ragnheiður Ólafsdóttir.

Innlent | mbl.is | 11.2.2009 | 14:11

Látið karpið bíða til kosningabaráttunnar

  • bíða til kosningabaráttunnar, sagði Ragnheiður Ólafsdóttir, nýr varaþingmaður Frjálslynda flokksins, sem las þingmönnum pistilinn á Alþingi í dag.

Ragnheiður tók til máls undir liðnum störf þingsins. Hún sagðist lengi hafa fylgst með Alþingi en þó sérstaklega eftir að hún vissi það í síðustu viku að hún myndi taka sæti á þinginu.

„Miðvikudaginn 4. febrúar, þá var mikið karp um kosningu forseta Alþingis. Ótrúlegt. Fimmtudagur 5. febrúar. Fyrsti heili starfsdagur Alþingis með nýrri ríkisstjórn. Þá var umræða um greiðsluaðlögun. Rifrildi, frammíköll og  að  mínu mati hálfgerð upplausn um hver samdi frumvarpið eins og það skipti fólk úti í þjóðfélaginu einhverju máli, eða hvað?

Föstudagurinn 6. febrúar. Umræða um Seðlabankann. Karp, frammíköll, málþóf.

Í gær, minn  fyrsta dag hér á Alþingi þá upplifði ég ekki mjög málefnalegar umræður; frammíköll og ýmis upphrópunarefni og mér fannst ég vera komin á framboðsfund vestur á fjörðum hér í gamla daga með Matta Bjarna, Sighvati Björgvins, Vilmundi Gylfa og Karvel Pálma. Þá var ekkert sjónvarp svo allir íbúarnir voru að fara á skemmtifund og höfðu gaman af.

Mér finnst sorglegt að horfa upp á sjálfstæðismenn eiga mjög erfitt með að vera í stjórnarandstöðu hér og ekki getað fótað sig. En almenningur, sem heima situr og horfir agndofa á slíkar umræður, bíður í ofvæni eftir að Alþingi segi eitthvað og geri eitthvað í til að hjálpa heimilum og fyrirtækja þessa lands.... Ég bið ykkur þingmenn að hafa  aðgát í nærveru sálar. Sýnið þingi og þjóð þá virðingu að láta karpið bíða til kosningabaráttunnar," sagði Ragnheiður. 

Þetta er algjörlega brilliant.  Og ég verð að segja að ég á minn þátt í því að þessi flotta kona er þarna í dag og ekki lítinn.  Því hreyknari er ég af hennar frammistöðu vitandi að það var mikið til fyrir mín orð og baráttu sem hún er í þessum sporum í dag. Innilega til hamingju elsku Ragnheiður mín fyrir frammistöðuna í dag, ég er svo hreykin af þér.

490076A

Flottust mín.Heart

 

 

En svo ætla ég að setja inn nokkrar myndir undir svefninn.

IMG_5733

Litla skottið mitt á það sammerkt með ömmu sinni að hún er algjört dansfífl.

IMG_5734

Sjáið hvernig hún notar allan líkaman í dansinn, meira að segja puttana.

IMG_5735

Og allur likamin er með í dansinum við glansmyndina.

IMG_5736

Lílfsgleðin er svo sönn.

IMG_5738

Og svo er allt sett upp í grín og gleði.

IMG_5740

Stóra prinsessan aftur á móti er kúlasta stelpan í heiminum.

IMG_5760

Og svo er bara litað og haft það gott.

IMG_5766

Og hér er bein útsending frá landsfundi Framsóknarflokksins, þar sem fram fer námskeið í hnífastungum LoL

IMG_5776

Flottar litlar gellur í garðskála.

IMG_5783

Yndislegust mín Heart

Nokkrar fjallamyndir fyrir fjallafólkið mitt.

IMG_5724

Þvílík birta.

IMG_5750

Himnagalleríið opið.

IMG_5753

Ísinn... er kaldur.

IMG_5756

Ísilagður pollur, en enginn smápollur, heldur Pollurinn hehehe þetta skilja ísfirðingar og sumir jafnvel muna eftir því þegar pollinn lagði og allir fóru á skauta.

IMG_5757

Þetta er náttúrulega ekkert síðra en himnagalleríið, bara sjórinn pikkfastur í ís, en svona líka flottur.

IMG_5758

Nema himininn er hvolfþak, sjórinn flatur.

IMG_5759

Elska þennan stað og alla sem þar eru.Heart

IMG_5773

Naustahvilftin hér dansa dísir.

Það dregur að skiladögum, þar sem við ágætu landar mínir þurfum að velja milli þess sem er heiðarlegt og fullt af vilja til að breyta og laga, og svo þess sem vill bara halda í það sem var, og notar öll meðul til þess. Þeir sem vilja bara halda í forréttindin munu nota allar leiðir til að afvegaleiða okkur, ljúga, vera með áróður og reyna að telja okkur trú um að það eina sem muni bjarga sé einmitt þau sem völdin hafa borið s.l. sautján ár.  Og þó allt sé í rúst einmitt vegna þeirra framlags í þessi sautján ár, þá munu þau reyna allt til að telja okkur trú um að allt annað sé það versta sem fyrir okkur geti komið.  Þau munu koma í flokkum, segja sömu lygarnar mörg sitt úr hvorri áttinni, eins og hýenur í veiði, til að réttlæta tilveru sína.  Því þau hafa aldrei upplifað neitt annað en að deila og drottna, og þau skilja einfaldlega ekki að það geti neinn annar komið og gert betur.  Þau eru sum ef til vill ekki vond eða óheiðarleg, en samt sem áður gjörspillt og trúa virkilega því sem þau segja.  En eins og hjá öðrum trúfélögum, þá eru flest þeirra nytsamir sakleysingjar, sem virkilega trúa að þau séu að fara með rétt mál, meðan markaðs- og forræðishyggjan liggur i leyni og lætur þau tala eins og búktalara.  Verum á verði fyrir falsi og fláræði, látum ekki plata okkur lengur eins og gert hefur verið síðastliðinn átján ár.  Hlustum, meðtökum og verum á verði, því í fyrsta skipti á okkar dögum skiptum við litli jón og litla gunna máli, því landið hefur ekki fyrr lent í öðru eins fyrr á okkar tímum, svo það skiptir miklu máli að við allavega skoðum á hvern hátt við getum sjálf hjálpað til að reisa landið úr þeirri krýsu sem það er í í dag.  Og ég get alveg lofað þvi að það verður EKKI með þátttöku svokallaðs sjálfstæðisflokks, heldur með sameinuðu átaki allra hinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert flott Ásthildur og Ragnheiður var frábær í þinginu í dag, ég bloggaði líka um það álit mitt.

Klakahrönglið í fjörumyndunum færði mér minningar....vorið nálgast

Yndislegar stelpuskotturnar þínar  Knús á ykkur öll í Kúlu

Sigrún Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 01:23

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já áskorun okkar kvenna í Landssambandinu til að fá Ragnheiði inn á þing var flott.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.2.2009 kl. 01:36

3 Smámynd: Auður Proppé

Ég er svo sammála þessari tímaeyðslu á Alþingi, vildi óska þess að þingmenn myndu koma sér að því að vinna að málunum

Ömmubörnin krútt eins og alltaf, þessi litla rauðhærða er gott efni í skemmtikraft, ég sé hana fyrir mér á sviðinu

Auður Proppé, 12.2.2009 kl. 07:29

4 identicon

Sammála, mér fannst góð áminningin hjá Ragnheiði, fólk þarf að fara að hugsa um að vinna að einhverju saman og koma landinu uppúr þessarri holu. Það er nógur tími til að þrasa þegar betur gengur. Stelpurnar eru alltaf flottar en myndirnar af Pollinum snertu gamalt hólf í hjartanu og ég fékk smá nostalgíukast. Mig langar að skauta á pollinum eins og þá. Kannski eins gott að vera fjarri og þurfa ekki að láta á reyna haha.

Dísa (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 08:30

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe Dísa mín, já það var gaman að skauta á Pollinum.  

Litla Skottið mitt Auður mín er rosalega skemmtileg lítil stúlka, full af orku og ást.

Já Gmaría mín Ragnheiður stóð sig mjög vel.

Takk sömuleiðis Sigrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 08:39

6 identicon

Hún var flott eins og hennar er von og vísa

Eins og myndirnar þínar sem fá mann til að brosa,  sumar valda kuldahrolli eða löngun í að fara vestur í útilegu.  

Knús í kúluna.

Kidda (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 08:56

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ragnheiður frábær..vil sjá meira af alvöru fólki eina og henni við stjórnun landsins..gott hjá henni að skamma villingana á alþingi. Eða á maður að segja vanvitana sen haga sér eins og óþægir smákrakkar?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.2.2009 kl. 09:55

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín, alltaf gaman að heyra að þið getið notið myndanna minna

Já Katrín mín ætli vanvitar sé ekki réttnefni í mörgum tilfellum þarna niður við sirkusinn við Austurstræti.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 10:29

9 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Vel mælt hjá Ragnheiði. Er það ekki einmitt út af þessu sem við þurfum að fá nýtt fólk á þing? Fólk sem hefur áhuga á því að vinna fyrir okkur hin. Að karpa um það eins og börn í sandkassa hverjum datt hitt eða þetta í hug finnst mér bara fáránlegt. Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur og mér gæti ekki verið meira sama um það, hverjum dytti eitthvað snjallræði í hug, ef það væri til að bjarga einhverju hjá minni þjóð.

Ég fer bara að dansa við að sjá myndirnar af Ásthildi, hún hrífur mann alveg með sér, litli stuðboltinn  

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 12.2.2009 kl. 10:50

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha henni ætti ekki að verða skotaskuld úr því Búkolla mín

Takk Sigrún mín, já hún dansar með öllum líkamanum þessi litla skvísa.  Og ég er sammála þér með flesta þarna inni, þeir eru orðnir svo samdauna salnum að þau gleyma að það er fólk þarna úti sem þarf að hlú að.  Þjóðin bíður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 10:53

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ragnheiður er alltaf skörugleg en þarna bar hún af!

Sigurður Þórðarson, 13.2.2009 kl. 00:09

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ALgjörlega sammála þér þar Siggi minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2009 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband