Áherslupunktar Frjálslyndaflokksins.

Eins og fólk eflaust tók eftir, þá var Frjálslyndi flokkurinn inn í myndinni í upphafi með Framsóknarflokknum í að styðja þessa ríkisstjórn.  Svo var allt í einu hætt að telja hann upp í því sambandi, svo ég spurði Guðjón Arnar hverju það sætti. 

Hann sagði mér að hann hefði sett fram fjögur atriði sem yrði að vera til staðar svo hann gæti varið stjórnina.  Sagði að vísu að hann myndi halda áfram sem hingað til að styðja góð málefni, þessir áherslupunktar sem ekki var hægt að verða við eru eftirfarandi;

Að nota þessi 30.000 tonn sem aukið var um til að opna fyrir nýliðun í sjávarútvegi.

Að opna fyrir handfæraveiðar, sem allir gætu stundað sem hafa til þess tæki og tól.

Að halda inni leyfi til hvalveiða.

Frysting verðtryggingar þegar í stað. 

 

00000000000

 

Eitthvað vafðist þetta fyrir stjórnarliðum, svo Frjálslyndi flokkurinn var þess vegna ekki með í stuðningnum. 

Tek það samt fram að ég óska þessari ríkisstjórn alls hins besta, og að þeim takist að koma góðum málum í verk.  Skil samt ekki alveg af hverju ekki var hægt að fara þessar leiðir sem hér er minnst á.

 

Ég fékk líka í hendur bækling sem Ungir Frjálslyndir hafa gefið út.

Þar stendur;

Þetta viljum við sjá hjá Ungum frjálslyndum:

Höfnum algerlega Evrópusambandsaðild íslendinga.  Ríkisstjórnin og Alþingi athugi hvort tvíhliða viðskiptasamningar Íslands við sambandið séu hentugri fyrir þjóðina en núverandi samningur um Evrópska efnahagssvæðið.

 

Slítum stjórnmálasambandi við Bretland.  Breski sendiherrann verði sendur heim.  Beiting hryðjuverkalaga á Ísland var aðgerð sem við sættum okkur ekki við.

 

Krefjumst algerrar uppstokkunar og breytinga í stjórnsýslunni.  Aðskiljum framkvæmdavaldið og löggjafarvaldið skýrt og ákveðið.

 

Íslensk matvælaframleiðsla er spurning um þjóðaröryggi. Það er alger nauðsyn að við íslendingar séum sjálfbær þegar kemur að matvælaöflun.

 

Harðari dóma fyrir kynferðisafbrot.  Dómar í málaflokknum eru allof vægir og til háborinnar skammar.

 

Elta uppi þá fjárflæframenn sem komu þjóðinni á hauginn. Ákæra þá fyrir landráð.

 

Koma fiskveiðiréttinum aftur til fólksins.  Haga fiskveiðistjórn lanldsins þannig að mannréttindi séu ekki brotin.  Gefa ungu fólki tækifæri til að hefja rekstur í sjávarútvegi.

 

 Kraftur í unga fólkinu sem betur fer.

Annars var það fyrsta sem ég sá í fréttum að lögreglan hafi fengið mótmælendum bréf þar sem þeim er bent á að mótmæli sem þessi séu ólögleg og megi ekki nema með leyfi lögreglu. 

Manni dettur nú ýmislegt í hug við að heyra þetta.  Í fyrsta lagi sýnist mér á öllu að Davíð karlinn sé að fara á taugum.  Dettur ekki í hug að þetta komi frá nýjum dómsmálaráðherra, vona allavega ekki.  En mér finnst samt að hann þurfi að leiðrétta ef svo er. 

Í öðru lagi þá er þetta valdníðsla sem ekki á að líðast í lýðræðisþjóðfélagi.  En hægt er að benda á lönd eins og Kína ef við viljum bera okkur saman við einhverja.  Nú eða heimaland Aung  San Suu Kie.  Ekki leiðum að líkjast þar. 

Aung San Suu Kyi

En þetta er ef til vill framtíðinn hjá okkur, ef við gefumst upp fyrir einræðisherranum í svörtuloftunum.  Þá verður sennilega ekki langt í svona hanteringar.  Og þetta má örugglega spyrða saman við "Sjálfstæðisflokkinn", sem reyndar fer að verða háðsyrði, því hann er ekki sjálfstæður frekar en ég veit ekki hvað, heldur dindlaflokkur aftan í einum manni, þar sem allir dansa sama dansinn eftir borunni á honum.  Er það það sem við viljum?  Áframhaldandi þöggun lygar og drottununarsíki?

Nei ég held ekki.  Ég vona svo sannarlega að fólk hugsi sig alvarlega um áður en það fer á kjörstað í vor, og gefi öllum öðrum sitt atkvæði en því fólki sem við höfum horft upp á núna undanfarið, sem hefur nánast alla fjölmiðla enn á sínu valdi auk spillingarinnar í öllu stjórnkerfinu sem plantað hefur verið þar markvisst í 17 ár.

Ég ætla líka að vona að minn litli flokkur fái sitt.  Að fólk lesi stefnuskrána sem er mjög góð, og líti til þeirra mála sem okkar menn hafa lagt fram á alþingi undanfarið.  'Eg mun setja það hér inn síðar.  Það er erfitt að stofna nýja flokka svo vel sé, og erfitt að komast að.   Það getum við séð á Íslandshreyfingunni í síðustu kosningum, með mikinn meðbyr vegna Kárahnjúkavirkjunar og umhverfismála en náði ekki inn manni.  Þess vegna er betra að skoða stefnuskrár flokkanna, og líka uppbygginguna, og skoða hvort fólk getur hugsað sér að ganga til liðs við þá sem fyrir eru.  Í litlum flokki er líka auðveldara að koma sínum sjónarmiðum að ef þau eru í samræmi við stefnu flokksins.  Þess vegna vil ég hvetja fólk til að lesa og skoða hvað við höfum fram að færa.

Segi svo bara áfram Búsáhaldabylting! þið eru hetjur og allt sem þið gerið þarna er í mínu nafni líka.  Vonandi verður svo mótmælafundur á Ísafirði líka, ég er að hugsa um að taka með mér pott og sleif til að sýna samstöðu.  Áfram Nýja Ísland. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

Íslandi allt, þjóðinni allt.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Helgadóttir

Nýja Ísland...  heyr, heyr !!!

Elín Helgadóttir, 11.2.2009 kl. 11:19

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir þessa útskýringu.

Held að verðtryggingin sé ekki pís of keik að hætta með.

Löggan er að fylgja skipunum Davíðs auðvitað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.2.2009 kl. 11:57

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei enda var spurninginn um að frysta hana ekki afnema Jenný mín. 

Já ég er klár á því að þetta er beint úr svörtuloftunum.

Takk elskurnar

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2009 kl. 12:19

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Getur ekki nýr dómsmálaráðherra haft vit fyrir Löggunni..ekki verður lögreglan að hlýða Davíð??? Annars getur svo sem vel verið að löggan geri bara eins og Davíð vill...er það ekki einmitt þannig sem allt hefur verið og það sem menn óttast mest. Að óhlýðnast Davíð?? Fáránlegt hvernig allt er að þróast og í raun verulega óhuggulegt.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.2.2009 kl. 13:37

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Katrín, þess vegna vil ég fá það hreint og klárt hvaða hug dómsmálaráðherran ber til þessarar þöggunar lögreglunnar.  Á hún að fá að vaða uppi eins og hermenn Björns Bjarnasonar.  Eða fær maður að sjá nýja og hlýlegri ásýnd hennar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2009 kl. 14:07

6 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Járnkrumlurnar eru alls staðar

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 11.2.2009 kl. 16:43

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús knús og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.2.2009 kl. 16:54

8 Smámynd: ragnar bergsson

þetta er frábært!!

ragnar bergsson, 11.2.2009 kl. 19:15

9 identicon

Fíla alla vega nýjasta þingmanninn ykkar hefði viljað hlusta á hana þruma yfir sandkassaliðinu . Þið tvær ásamt fleiri manneskjum sem eru staddar á jörðinni á þing, það líst mér vel á.

Knús í kúluna fyrir vestan

Kidda (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 19:39

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Þessi atriði finnst mér mjög góð og eins tillögur frá Ungum Frjálslyndum.

Ég vil að Davíð og co. hætti í Seðlabankanum en við verðum að muna að þessir menn eiga fjölskyldur. Ekki viljum við skaða þessa menn hvorki andlega né líkamlega. Við verðum að fara varlega.

Guð veri með ykkur

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 11.2.2009 kl. 19:59

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Samsinni færzlunni & ber þá von að þetta fylgi prózentulega hífizt upp úr 'pilsner' í rúmgóða 'tíund'.

Steingrímur Helgason, 11.2.2009 kl. 23:15

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Atriði eitt og tvö nokkuð sem hægt væri að samþykkja, atriði fjögur er meira mál og vandasamara en lítur út fyrir. Gæti samt orðið að veruleika. En atriði þrjú mín kæra frábæra frú Cesil, einfaldlega ekki hægt að samþykkja það eins og mál standa, allt of miklir óvissuþættir til að segja bara já og láta að auki þetta dæmalausa útspil fv. ráðherrans frá Bolungarvík, standa sem sjálfsagðan hlut og góða stjórnsýslu!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.2.2009 kl. 23:47

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll.

Segjum tvær Kidda mín ég er rosalega ánægð með hana Ragnheiði mína.

Heheheh Steingrímur látum oss vona það!!!

Hvaða óvissuþættir Magnús minn með hvalveiðarnar?  Ókey ég viðurkenni alveg hreint að gjörðir svokallaðs sjávarútvegsráðherra var fyrir neðan allar hellur.  En Hvalveiðar munu blífa, ég sá í fréttum að 32 þingmenn voru fylgjandi hvalveiðum.  sem er meirihluti alþingis, þannig að svo er nú það.  Enda eigum við ekki að slefa eftir einhverjum útlendingum sem jafnvel hafa aldrei á sjó komið og halda að hvalir séu gjöf Guðs andlegar verur sem ekki megi hrófla við.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband