Með pottaglamur í eyrum.

Mig dreymdi í nótt að ég stóð vaktina fyrir framan Seðlabankann og barði potta og pönnur.  Ætli þetta þýði ekki að innst inni sé það einmitt það sem ég hef þörf fyrir núna til að fá reiðina og leiðindin út úr systeminu hjá mér.  Það hreinsar ótrúlega vel út að hitta annað fólk og standa saman við að láta hugsanir okkar í ljós með þessum hætti.

Ég er líka hugsandi yfir gærdeginum og svo miklu fleira auðvitað.  En ég get ekki hrakið myndina úr huga mér þar sem blaðamenn eltu bankastjórann númer eitt um allar trissur, þar sem karlinn reyndi að hrista þá af sér.  En er greinilega ekki vanur svona hlutum, og fórst það klaufalega úr hendi.  Þetta er svona tragikómiskt, ef ekki bara sorglegt.

Og ég get ekki varist því að hugsa; hvernig líður fólki sem hefur komið sér í þessa aðstöðu?  Maður sem hélt að hann ætti heiminn, gæti ráðið öllu og var búin að koma sér upp hirð fólks sem hann hafði kring um sig, sennilega flestir vegna ótta, aðrir af einlægri aðdáun á meistara sínum.  Svo hrinur heimurinn gjörsamlega fyrir fætur honum.  En ekki á sama hátt og veröldin hrundi fyrir þjóðinni.  Nei hann þarf ekki að hafa áhyggjur af efnahag, hann hefur gætt þess að mylja vel undir sig fjárhagslega, með fjórföld eftirlaun og þau ekki af verri endanum.  Nei hann þarf ekki að kvíða atvinnuleysi eða að eiga ekki salt í grautinn, því síður þarf hann að hanga fyrir utan mæðrastyrksnefnd og sníkja mat.  Hann taldi sig hafa búið vel um hnútana, svo vel að ekkert gæti haggað honum. 

En þá kemur þessi skríll til sögunnar, rumpulíður og vesalmenni sem fara út á göturnar og velta ríkisstjórninni hans.  Ég hugsa að aldrei hafi honum dottið í hug eitt augnablik að þetta gæti gerst.  Þess vegna er han algjörlega óviðbúin árás úr þeirri áttinni.  Þarna er sagan um Davíð og Golíat enn og aftur, nema nú er það Golíat sem fellir Davíð. 

Ég hef verið að reyna að setja mig inn í þær hugsanir sem bærast í hausnum á þessum tveimur sem neita að víkja, og ætla sér að sitja þangað til..................... ætli þeir hafi hugsað það til enda?

Hver pantaði líka bréf frá Alþjóðagjaldeyrisstjóðnum, og hvers vegna vissu sjáflstæðismenn það fyrstir manna?  Getur verið að þeir hafi að kvistlinga sið haft samband af fyrra bragði til að bjarga sínu eigin skinni?  Alveg gæti ég trúað því.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú sýnt sitt rétta andlit, grímulaust er það ekki falleg sjón.  Þeim er í fyrsta lagi ekkert heilagt nema foringinn.  Þjóðin, þeirra eigin samviska, öllu skal fórnað á altari egósins og flokksins. 

Það var aumkunarvert að sjá Svein Andra í Kastljósinu í gær, hann var flóttalegur, og ætlaði að byrja á því að æsa Helga upp, til að verja Samfylkinguna.  En Helgi sá við honum, þarna sat hann pollrólegur og brosti, kom svo með það að auðvitað bæru þau öll ábyrgð á þessu hruni.  Og enginn ætti að skorast þar undan.  Þeirra mál yrðu svo lögð í dóm kjósenda í kosningum í vor. 

Í svona málum hafa Sjálfstæðismenn alltaf getað snúið sig út úr vandanum, með allskonar smjörklípum, enda er þeirra kosningamaskína vel smurð.  Nú er búið að leggja línurnar, það virðist alltaf vera gert þannig, að fyrst eru upphugsaðar smjörklípurnar, síðan er vel völdum snötum beitt til að byrja með áróðurinn, og svo er tekið undir af fleirum, þar sem fólk veit að ef þú segir lygina nógu oft fer fólk að trúa henni. 

Svona lítur þetta út;

Í fyrsta lagi Davíð Oddsson er lagður í einelti.

Jóhanna Sigurðar er bara flugfreyja og hefur ekkert vit á pólitík.

Jóhanna var í ríkisstjórninni og ber því fulla ábyrgð á ástandinu, ríkari ábyrgð en forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann í síðustu ríkisstjórn.

Það á ekki að klína hruninu á sjálfstæðismenn, því þetta var öllum að kenna, sérstaklega heimskreppunni miklu.

Á þessu er hamrað eins og það sé sannleikurinn hinn eini.  Og ég held að forysta sjálfstæðisflokksins trúi því sjálf að þetta dugi til að fólk trúi þeim og kjósi þá aftur í næstu kosningum.   'Eg segi nú bara ef fólk hefur ekki meiri yfirsýn á líðandi stund en það, þá eru okkur allar bjargir bannaðar. 

Samt eru þeir að mælast með yfir 30% í skoðanakönnunum.  Er þetta í lagi?  Ég segi nei.  Flokkurinn hefur verið við völd í 17 ár, og mest allan þann tíma haft völdin í forsætis- og fjármálaráðuneytinu.  Þeir hafa komið sínu fólki allstaðar inn í kerfið, og bera þyngstu ábyrgðina á ástandinu, ásamt auðvitað Framsóknarflokknum, sem nú hefur breytt yfir sig lambsgæru til að sýnast saklaus. 

En ég get ekki ímyndað mér að okkar manni líði vel þessa stundina, með pottaglamur í eyrunum og eltingaleik við blaðamenn til og frá.  Þetta sýnir að mínu mati að það er sama hversu menn halda að þeir hafi búið sér öruggt skjól, ef innrætið er ekki í takt við talið, þá falla þeir á eigin bragði fyrr en síðar.  Og því hærra sem menn klifra upp á stallinn, því hærra verður fallið þegar að því kemur. 

En við skulum halda áfram að láta til okkar taka.  Halda ráðamönnum við efnið.  Það góða sem þessi ríkisstjórn vill gera, verður hún að fá frið til að framkvæma.  Hér er þjóðarheill í húfi en ekki sært stolt nokkurra pólitíkusa, sem halda að lífið á Íslandi snúist um þá og þeirra ráð eða ráðaleysi. 

Við skulum auðvitað ekki persónugera vandann, heldur reyna að standa saman um að hreinsa til og rísa upp til varnar almenningi í landinu.  Látum ekki hatursfull skrif trúarhóps Sjálfstæðisflokksins villa okkur sýn.  Hér er Ísland og þjóðin í spilinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þetta er allt með ólíkindum það verður að segjast eins og er.

Tókstu eftir í sambandi við þessa skoðanakönnun sem þú nefnir að sjálfstæðismenn hafi fengið 30% ; úrtakið var 800 manns, ca 400 svöruðu, af þeim voru 40% óákveðnir en 30% af þeim sem eftir voru völdu sjálfstæðisflokkinn! þetta minnir mig á gamlan spilagaldur sem gekk alltaf upp af því maður valdi frá eða að eins og maður vildi og enginn tók eftir platinu...  

Við sem viljum Nýtt og betra Ísland, verðum að standa saman og koma þessum ólíkindatólum í burtu svo hægt sé að hreinsa almennilega út áður en nýtt Ísland, vakandi Ísland fer af stað. Ég tromma með heiman að frá mér... 

Ragnhildur Jónsdóttir, 10.2.2009 kl. 12:16

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er eiginlega kominn í sama bátinn og Búkollabaular.  Er tilbúin að yfirgefa landið mitt ef stórfjölskyldan kemur með.

Ef sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur til valda í vor, er ég farin, með eða án fjölskyldu

Sigrún Jónsdóttir, 10.2.2009 kl. 12:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég tók eftir þessu Ragnhildur, og þetta segir meira en nokkur orð hve spillingin er allstaðar og hve vel þeir hafa komið sínum snötum allstaðar fyrir til að verja flokkinn, þetta er eins og faraldur. 

En það má ekki gerast að sjálfstæðisflokkurinin nái völdum aftur.  Ég hugsa til þess með hryllingi.  Það verður að koma í veg fyrir slíka með öllum þeim ráðum sem við höfum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 12:39

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er alveg hárrétt, valdapotintátarnir telja sig eiga völdin. Það er sorglegra en tárum taki að sjá þá glotta núna þegar vandræði steðja að stjórninni.  Það er eins og þeim sé sama um landið og þjóðina, bara ef þeir geta klekkt á þeim sem tóku að sér að reyna að bjarga landinu.  En þeim skal ekki verða sú kápan úr klæðinu, glotti þeir bara, við hvert einasta glott og glósur munu þeir tapa virðingu fólks sem hefur eitthvað annað milli eyrnanna en öfgatrú á Sjálfstæðisflokkinn.  Ég legg á og mæli um að þeir verði undir 10 % í næstu kosningum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 12:56

5 Smámynd: Auður Proppé

Ég er svo sammála Búkollubaular, en málið er það að við erum í vítahring.  Enginn getur selt eignir sínar og maður þarf jú pening til að flytja á milli landa o.s.frv........... Við erum föst í netinu 

Auður Proppé, 10.2.2009 kl. 13:06

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Auður mín.  Við þekkjum þetta hér fyrir vestan, þegar Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðismenn kipptu fótunum undan byggðum landsins með frjálsa framsalinu á kvótanum.  Húsin okkar urðu verðlaus og fólk gat ekki farið, nema að skilja allt sitt eftir.  Það má því segja að við þekkjum ástandið nokkuð allavega.  Enda húsaverð hér ekkert á því róli sem það er eða var fyrir sunnan, og því minni lánveitingar sem kemur okkur til góða í dag.

En hingað mætti ungur maður í morgun var að leita sér að vinnu.  Hann var nýkomin frá Danmörku þar sem honum var sagt að væri nóg vinna.  Hann taldi sig vera búin að fá vinnu og flutti með fjölskylduna til Danmerkur bara til að uppgötva að allt tal um vinnu var hjóm eitt, hann þurfti því að hrökklast heim aftur, og á heimleiðinni mætti hann tveimur öðrum fjölskyldum sem eins var ástatt fyrir.  Það er því að mörgu að hyggja áður en lagt er af stað upp í langleið með fjölsylduna í leit að betra lífi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 13:31

7 Smámynd: Herdís Alberta Jónsdóttir

Já ég verð mjög MJÖG vonsvikin með mína góðu þjóð ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur til valda eftir kosningar í vor, en það er hárrétt hjá þér Ásthildur það er farið að þrengjast um vinnu á hinum norðurlöndunum. Ég þekki persónulega fólk sem er að koma heim aftur og það er rosalega erfitt ef heil fjölskylda er með í för, fram og tilbaka.

Herdís Alberta Jónsdóttir, 10.2.2009 kl. 14:19

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Algjörlega brilljant samantekt hjá þér.

Annars var ég að lesa um sjálfsdýrkendasyndróm sem þjáir suma valdamenn.

Þeir eru með mikilmennskubrjálæði og það bara vex og vex.

Slíkt fólk er hættulegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.2.2009 kl. 14:44

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Herdís ég skil ekki af hverju fólk er ekki varað við, áður en það heldur á vit ævintýranna.  Margir halda að grasið sé grænna hinu megin, og þetta er oftast gert í örvæntingu, þegar fólk sér ekki fram á neitt annað.  Það þyrfti að koma einhverslags viðvörun um að fólk verði að ganga tryggilega frá vinnu, áður en það fer út með fjölskylduna.

Takk Jenný mín.  Ég er alveg hárviss um að margir pólitíkusar eru haldnir svona mikilmennskubrjálæði, og flestir þeirra eru innanborð hjá Dlistanum því miður.  Þar hefur þessi Hólmsteinska verið kennd í stjórnmálaskólanum og það hlýtur allt að vera rétt sem þaðan kemur ekki satt?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 15:00

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ekki fer ég af landi brott vegna ástandsins, frekar bara ef mig langar. Annars er ég sammála flestu í pistlinum þínum. Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2009 kl. 15:06

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis kveðja til þín elsku Ásdís mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 15:12

12 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég hef nú heyrt varað við því að fólk flytji af stað með heila fjölskyldu. Það er ekki nóg að heyra einhverja tala um nóga vinnu einhvers staðar. Það þarf að fá vinnuna fyrst, og helst byrja í henni, áður en öll fjölskyldan flytur. Ég þekki sjálf mann sem hélt að nóg vinna væri í boði fyrir hans atvinnugrein í Noregi. Hann fór þangað og sóttist eftir vinnu en hefur ekki enn fengið.

Mér finnst það hrikalega sorglegt að fólk þurfi að gefast upp hér heima og leita annað. Þetta er meira en bara bara, því hverri fjölskyldu fylgir stórfjölskylda og vinir.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.2.2009 kl. 15:18

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þessi ungi maður taldi sig vera með vinnu vísa úti.  en það var bara ekki klárara en þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 16:31

14 Smámynd: Tiger

Brilljant pistill hjá þér Ásthildur mín, eins og svo oft áður! Útlitið er sannarlega svart og næsta víst að margir munu fara yfirum - verða gjaldþrota og fara héðan með það á bakinu. Hversu erfitt verður það ekki fyrir þá að komast aftur heim til að byrja á nýtt þegar og ef ástandið batnar? Uss uss ...

Knús og kram í þitt hús elskulegust og takk fyrir þessa góðu grein.

Tiger, 10.2.2009 kl. 16:59

15 Smámynd:

Stundum minnir þetta þjóðfélagsmein mig á "myndina af Dorian Gray" eftir Oscar Wilde. Í þeirri sögu helst Dorian alltaf jafn fallegur á meðan myndin af honum sem hangir í felum verður ógeðfelldari með hverju óþverraverkinu sem hann vinnur. En vegna þess hvað hann helst fallegur grunar hann enginn um græsku. Ræð öllum að lesa þessa sögu.

, 10.2.2009 kl. 18:00

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta verður erfitt fyrir fullt af fólki Tiger minn.  Vonandi tekst samt að hjálpa sem flestum að halda sjó, eða eins og Dorrit sagði, hér er nóg af húsum, það ættu allir að hafa þak yfir höfuðið.  Ekki er betra að láta húsin standa auð eller hur?

Já gríman verður sífellt ljótari og ljótari, afi minn kallaði til dæmis Ragnar Arnalds alltaf Lúsífer, hann sagði að þar færi erkiengilinn fallni með ásjónu engils.  En hann var reyndar hlutdrægur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 18:25

17 Smámynd: Gló Magnaða

Ég komst að því eftir bæjarstjórnarkosningarnar síðustu að það borgar sig að segjast ætla að kjósa sjálfstæðisflokkinn í skoðanakönnunum og þess vegna geri ég það alltaf. Ég viðurkenni að ég er með kúkabragð í munninum meðan ég svara en það marg borgar sig fyrir okkur öll að flokkurinn fái góða útkomu í könnunum. Ef þeir fá lélega útkomu þá fara þeir af stað með sína maskínu og beita öllum sínum óþverrabrögðum til þess að sannfæra fólk að kjósa sig. Því miður eru alltof margir sem gleypa við þessum óhróðri, þó að maður trúi því ekki að slíkt geti gerst eftir alla þessa spillingu. Maður veit samt aldrei hvað gerist og því skora ég á alla að segja í skoðanakönnunum að þeir ætli að kjósa sjálfstæðisflokkinn.

Gló Magnaða, 10.2.2009 kl. 19:12

18 identicon

Takk fyrir góðann pistil. Verst að sennilega þarf ástandið að versn töluvert áður en þð byrjar að batna hjá okkur. Erum ekki enn farin að sjá það svartasta áður en birtir. Hef á tilfinningunni að það sé sama hver verði við stjórn að það ráðist ekki neitt við neitt og að við ráðum orðið engu. Alla vega óttast ég að við höfum ekki fengið að vita allt í sambandi við IMF og þar eigi eftir að koma ýmislegt í ljós sem hafi verið haldið leyndu fyrir okkur. Vonandi hefur Jóhanna kjark til að segja okkur það sem við megum ekki vita. Hún verður að segja okkur þjóðinni allt smáa letrið og engin undanbrögð.

Knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 19:41

19 identicon

Heil og sæl vinkona góð, og takk fyrir mig, þú ert mögnuð, ekkert undanlát hjá þér, heldur áfram að berjast, fylgist með þér af athygli og aðdáun.... kær kveðja úr Borgarfirði, Steini Árna

Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 22:54

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Steini minn.  Vonandi komið þið á landsþingið í Stykkishólmi svo maður geti knúsað ykkur. 

Kidda mín það er ósköp hætt við því að það versni.  En sem betur fer þá held ég í vonina um að við séum velferðarríki svo stjórnvöld leggi metnað sinn í að halda sjó.  Við verðum bara að vona það.  Knús elskuleg mín

Gló mín þú ert góð hehehe... Ætla að taka þetta til athugunar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.2.2009 kl. 23:16

21 identicon

Sæl Ásthildur.

Þetta er frábær grein hjá þér.

Svo sannarlega kanntu að koma orðum að þessum málum.

Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband