Frostrósir og annað fallegt.

Smá góðanótt færsla.

IMG_5244

Óli Lokbrá stráði duftinu sínu í fallegu augun hennar svo nú sefur hún rótt eins og öll góð börn gera.

IMG_5252

Prakkarinn minn var aðeins lengur að sofna, því hún er að passa upp á mömmu sína, nú er amma í öðru sæti.

IMG_5270

Enn einn fallegur dagur.

IMG_5647

Sólin fikrar sig niður fjallið og kemur svo seinnipartinn alveg niður í garðskálann.

IMG_5648

Pollurinn aðeins lagður, og allt stillt og hljótt.

IMG_5650

Sólin alltaf einhversstaðar nærri, en það tekur hana tíma að klifra upp yfir fjallatindana.

IMG_5651

Sama mynd bara aðeins blárri.

IMG_5653

Heart

Frostrósir...

IMG_5641

Þær eru svo fallegar.

IMG_5642

Og sjást varla lengur með öll þessi tvöföldu gler.

IMG_5643

en er til eitthvað fínlegra og fallegra?

IMG_5644

Sérstaklega ef maður gefur þeim smá lit.

IMG_5645

Yndi alveg hreint.

Eg var að horfa á einn af mínum uppáhaldsþáttum Johnny Creek eða hvað hann nú annars heitir, og í upphafi stóð, vinsamlegast takið eftir í þessum þætti eru bæði blótsyrði og kynferðislegar athafnir sem krefjast þess að fullorðnir séu með börnunum sínum Smile  Minnist þess ekki að hafa séð svona hér á okkar landi.  Auk þess eru þetta gamanþættir um spæjarapar sem leggur meira upp úr því að vera fyndnir en nokkuð annað.  Að vísu var sýnt nakið fólk í baði LoL

IMG_5655

ein litil alveg tibúin í svefninn, mamma að tala við pabba í símann, og við segjum bara góða nótt!Heart

P.S. gleymdi að segja ykkur að ég þarf að skreppa suður og verð fram á helgi, verð víst lítið við netið.  En hugsa því meira til ykkar. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Alltaf jafnyndislegar prinsessurnar þínar og fallegu vestfirsku fjöllin og firðirnir

Frostrósir mmmm ég sakna þeirra en kannski ekki kuldans sem fylgir einföldu gleri haha Ekkert smá flottar myndir hjá þér Ásthildur.

Ragnhildur Jónsdóttir, 4.2.2009 kl. 22:40

2 Smámynd: Tiger

 Yndislegar myndir Ásthildur mín. Frostrósirnar eru æðislegar - en ungu blómarósirnar ekkert síðri, hvort sem þær eru vakandi eða sofandi.

Alltaf svo gaman að skoða myndirnar þínar og hef alltaf svo gaman að "heimsækja þig hérna" ..

Knús og kram á þig ljúfust og góða nóttina.

Tiger, 4.2.2009 kl. 22:42

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Alltaf bezt að kíkja hér við.

Tóm gæði í myndum & máli.

Steingrímur Helgason, 4.2.2009 kl. 22:43

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul.  Gaman að sá að þú ert á lífi Tiger minn

Frostrósir eru fallegar og alveg einstakar.  Takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2009 kl. 22:55

5 Smámynd: Auður Proppé

Rosalega er fallegt útsýni hjá þér og Frostrósirnar svo yndislega fínlegar.  Langt síðan ég hef séð svona fallegar Frostrósir.

Svo má ekki gleyma ömmubörnunum sem eru nú bara sætust

Auður Proppé, 4.2.2009 kl. 23:10

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vá, en fallegar frostrósamyndir

Góða ferð suður og farið varlega

Sigrún Jónsdóttir, 4.2.2009 kl. 23:32

7 identicon

Flottar frostrósamyndirnar þínar. Endilega láttu sjá þig ef þú átt mínútu eða tvær.

Dísa (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 08:19

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 08:48

9 Smámynd:

, 5.2.2009 kl. 09:18

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góða ferð Ásthildur mín og takk fyrir þessar frábæru myndir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2009 kl. 10:16

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég elska myndirnar þínar. Ég er viss um að ef þær væru sýndar víðar myndu þær koma í veg fyrir fólksfækkun á Vestfjörðum. Hver vill ekki eiga heima á svona fallegum stað? Svo eru prinsessurnar alltaf jafndásamlegar.

Helga Magnúsdóttir, 5.2.2009 kl. 10:24

12 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Fallegar myndirnar þínar. kv.Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 5.2.2009 kl. 15:56

13 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Fallegar frostrósirnar. Mikið skil ég hana Ásthildi litlu vel að vilja passa uppá mömmu sína. Góða ferð Ásthildur mín.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 5.2.2009 kl. 16:08

14 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Þú ert frábær

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.2.2009 kl. 11:36

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég elska frostrósir!! Sé þær alltof sjaldan.Frábær myndcasería að vanda

Solla Guðjóns, 6.2.2009 kl. 17:32

16 Smámynd: Karl Tómasson

Smágóðanóttkveðjaúrmosófrákallatommmínkæraogtakkfyrirallarfallegumyndirnarþínar.

Karl Tómasson, 6.2.2009 kl. 23:46

17 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Alltaf svo gaman ad sja fallegu myndirnar thinar af fallega Isafirdi minum, og lika af ommubornunum... Thad er gott ad heyra hversu stolt amma thu ert, og takk fyrir ad deila lifinu thinu og myndunum thinum med okkur her i bloggheiminum!!!! Kossar og knus yfir hafid!!

Bertha Sigmundsdóttir, 7.2.2009 kl. 01:40

18 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Yndislegar myndir og ég meina það.

Kristín Katla Árnadóttir, 7.2.2009 kl. 11:41

19 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

'Asthildur þakka fyrir að samþykkja bloggvináttu. Góða helgarrest. kv Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 7.2.2009 kl. 23:46

20 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Snilldarmyndir af Frostrósunum og svo af Blómarósunum. Þú ert dugleg að taka myndir. 

Vona að þú sért að taka ráðamenn í gegn í Froðuvík. 

Guð veri með ykkur öllum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.2.2009 kl. 00:14

21 Smámynd: Elín Helgadóttir

 Magnaðar myndir alltaf......

Elín Helgadóttir, 8.2.2009 kl. 00:28

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul.  Gaman að lesa svona frábærar undirtektir þegar maður kemur heim aftur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.2.2009 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband