Yndisleg helgi að baki.

Helgin var svo sannarlega dásamleg.  Veðrið spilaði þar líka stórt inn í, því það var dásemdin ein alla helgina og er ennþá.  Ætli þetta sé í boði nýrrar ríkisstjórnar?  Jamm ég ætla að óska okkur öllum til hamingju með þessa nýju hundrað daga stjórn, og vona að hún nái markmiðum sínum, okkur öllum til hagsbóta.  Ég held að þau muni gera það sem þau segja, hlusta á raddir fólksins, svona í byrjun allavega.  Það er svo okkar allra að passa upp á að þau gleymi okkur ekki, þegar þau fara að njóta þess að sitja í stólunum. 

En við lögðum af stað í glampandi sól.

IMG_5446

Ljúft ferðaveður.  Við höfðum pantað íbúð, svo við höfðum með okkur heilmikin mat svona millisnakk, þar sem börnin eru jú alltaf svöng í útilegum.

IMG_5453

Við lögðum ekki af stað fyrr en um fjögurleytið, hér er Álftafjörðurinn dýrðin ein.

IMG_5458

Tröllabyggð örugglega, og tröllið horfir upp í tungl og Venus, allt í rétta átt þar.

IMG_5461

Hesturinn frjáls og fagur.

IMG_5462

Þið getið örugglega aldrei giskað á hvað þetta  myndefni er!!! en þetta eru Máni gamli og Venus í ástarleik, tekinn á vitlaust stillta myndavélina hehehehehe...

IMG_5463

Þetta er skrifað í himininn, en er sennilega helst arabiska eða eitthvað álíka. 

IMG_5465

Tveggja tíma akstur að baki, og gott að pússla smá. Þau voru samt rosalega góð alla leiðina.

IMG_5468

Strákarnir telfdu, þegar þeir voru ekki í lauginni.  Höfðu það mjög gott.

IMG_5475

Og menn voru að týnast í hús einn af öðrum. 

IMG_5476

Og auðvitað voru kajakar fyrir alla.  Þeir vildu endilega koma mér út á sjó, ég sagði þeim að þeir gætu ef til vill troðið mér ofan í kajak en aldrei upp úr honum aftur LoL

Svo var farið í laugina um kvöldið.  Hressandi eins og alltaf í Reykjanesinu, yndislegt algjörlega.

IMG_5477

Svo var auðvitað byrjað á að fara í laugina morgunin eftir.

IMG_5478

Hér er fólk á öllum aldri eins og sjá má.

IMG_5483

Hér stendur yfir kennslustund í að velta sér.  Eitthvað sem er bráðnauðsynlegt að kunna ef maður ætlar að róa út á rúmsjó, eins að koma sér upp í kajakinn aftur, ef maður þarf að fara úr honum.  Þá skiptir máli að kunna réttu handtökin.

IMG_5484

Eins og ég segi yndislegasti staður á jörðinni er bara rétt við túnfótinn hjá mér.

IMG_5487

Eins gott að fá sér maltöl, manni þyrstir svo af laugarferðinni.

IMG_5489

Já og svo verður maður svangur líka.

IMG_5490

Amma taktu mynd af höndunum á okkur eftir sundið!!!

IMG_5492

Lítið er ungs manns gaman.

IMG_5493

Og allt verður manni að leikdóti.

IMG_5494

Sund sund sund....

IMG_5495

Sumir tolla nú líka í tískunni.....

IMG_5496

Annað er bara gamalt og gott.

IMG_5498

Og svo er notalegt þegar afi les fyrir mann.  En það er reyndar gert á hverju kvöldi.

IMG_5499

Á laugardagskvöldið var Þorrablót og dans á eftir. Maturinn alveg meiriháttar og vel útilátinn.

IMG_5501

Auðvitað voru líka skemmtiatriði eins og á Þorrablótum.

IMG_5504

Þarna var líka eitthvað við allra hæfi.

IMG_5505

Troðin trog af alsnægtum og góðum mat.

IMG_5506

Hér stendur vertinnan Sigga við barinn.  Morgunmaturinn er líka vel útilátinn, það er enginn svikinn af að skella sér í Reykjanesið, nóg pláss og elskulegt fólk.

IMG_5508

Flottir gaurar líka hehehehehe

IMG_5511

Hér er Júlía nýji framkvæmdastjóri kajakklúbbsins.

IMG_5514

Tveir flottir saman, einn eigandinn Jói nýkomin frá Thailandi brúnn og sætur, og vertinn, sem er algjör engill, vill allt fyrir mann gera.

Við gátum því miður ekki verið á ballinu.  En áttum bara góða stund saman í íbúðinni sem við höfðum.

 

IMG_5515

En það er líka gaman í sturtu.

IMG_5522

Lífið það er leikur...

IMG_5524

Er þetta ekki alveg dásamlegt eldur og ís í okkar fagra landi.

IMG_5525

Land andstæðna, er nema von að við séum sjálf dálítið villt og mótsagnakennd.

IMG_5527

Afi ætlar í smáróður áður en við leggjum í hann heim. 

IMG_5532

Svo er ekkert annað en að kveðja og þakka kærlega fyrir okkur. Heart

IMG_5533

Hvað er yndislegra en okkar fallega land?

IMG_5534

Fjöll og dalir og firðir og flóar.

IMG_5535

Og brattir fjallatindar.

IMG_5538

Ytra skarð hér og á fleiri myndum það er á Snæfjallaströndinni.

IMG_5539

Litli bær í Skötufirði. Rétt hjá sumarbústaðnum hennar Sollu okkar hérna.

IMG_5540

Hesturinn gnæfir við himinn.

IMG_5542

Og bærinn minn kæri.  Við erum komin heim.

IMG_5543

En þar sem ég ætla að fara að slaka á eftir ferðina, sé ég ekki þessa flottu stráka út um gluggann minn, svo ég opna, er þá ekki bara komnir hingað á dyraþrepið hjá mér herra Ítalía, herra Indland, herra Kórea og ég man ekki hvað minnir herra Mexico.  Svona líka flottir.

IMG_5544

ég held að þeir séu hér að læra eitthvað um sjávarútveginn... er samt ekki viss.

IMG_5545

Alveg er ég viss um að allar stelpurnar sem eru á lausu, eru kolfallnar fyrir þeim. Cool

IMG_5546

Síðasta myndin er svo tekin núna í hádeginu, svo þið sjáið að veðrið er ennþá upp á sitt besta. 
En nú þarf ég að fara og sækja litlu stelpurnar mínar á leikskólann, en mamma þeirra kemur með vélinni á eftir, svo það verða fagnaðarfundir.  Hún ætlar að vera hér í febrúar,  svo það eru spennandi tímar framundan hjá mér, meira að segja meira spennandi en þá Þorgerði Katrínu og ég veit ekki hvað!!!

Eigið góðan dag elskurnar mínar og innilega takk fyrir hlýju orðin ykkar sem glöddu mig. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já Djúpið er líka fagurt um vetrartímann, kannski ekkert síðra.  Gott að þið nutuð ferðarinnar og yndislegt fyrir stelpurnar að fá mömmu heim í smátíma...og þig dótturina

Sigrún Jónsdóttir, 2.2.2009 kl. 15:24

2 identicon

Alltaf eru vestfirðirnir jafn yndislegir hvort sem er að vetri eða sumri

Knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 15:44

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Alltaf lýsir þú og myndefnið þitt upp daginn hjá mér.

Í þetta skiptið var svo sannarlega ekki vanþörf á.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.2.2009 kl. 16:15

4 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Gaman að ferðin var skemmtileg hjá ykkur og ekkert leiðinlegt heldur að fá svona herramenn í heimsókn  Það verða fagnaðarfundir að fá Báru heim  Knús á ykkur

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.2.2009 kl. 16:30

5 Smámynd:

Þetta hefur verið frábær helgi hjá ykkur. Og hvílíkar myndir. Þið eruð heppin að eiga hvert annað og svona yndisleg tækifæri til skemmtunar og notalegheita í næsta nágrenni.

, 2.2.2009 kl. 17:39

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Fæ nú bara þrá í maga og hjarta Ásthildur mín æðislega hefur þetta verið skemmtileg ferð og fjöllin og útsýnið stórkostlegt.
Takk fyrir mig ljúfust.
Kveðjur vestur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.2.2009 kl. 20:12

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Cesil.

Sá elsku besta frænda hann Jóa, á einni af þessum flottu myndum.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.2.2009 kl. 22:46

8 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Váá !!! Hvað þetta eru stórkostleg ferðalýsing og magnaðar myndir, já Ísland, gamla Ísland, með litina, fjöllin eins og meitluð í hvítan marmara, svo fallaga formuð, himinininn svo heiður og blár, og afleiðing ástaleiks Venusar og Mána eins og mánasilfursfrumukeðjur sem svífa um himinhvolfið í leit að festingu, til fjróvgunar fyrir sköpun á betri heimi fyrir börn framtíðarinnar. - Veistu Ásthildur þegar ég var lítil hélt ég alltaf að þarna hefði hófurinn á hestinum orðið eftir við dagrenningu þegar hestar Goða og Guða gleymdu sér við hestalæti og hófaspörk. - En auðvitað heitir fjallið Hestur.

Takk fyrir yndilegan pistil. Nú fer ég sátt að sofa. - Já, og til hamingju með nýju ríkisstjórnina, hún mun nú ekki sitja nema í 84 daga, svo þau hafa engan tíma til að hagræða sér í ráðherrastólunum, ef þau ætla "að láta verkin tala" eins og þau boða.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 3.2.2009 kl. 02:01

9 identicon

Stjörnuskrifin frábær, hugsa að helst væri að fá araba til að lesa úr.. Gaman að sjá vetrarmyndir úr Djúpinu, vekur upp bæði ljúfar og sárar minningar að sjá það í vetrarham. En veðrið hefur augsýnilega verið yndislegt hjá ykkur fyrir vesta eins og held ég flestum hér á landi. Nú er búið að vera nánast logn í viku og bjart og yndislegt, en kalt. Það er jú líka hávetur núna. Til hamingju að fá Báru heim, get ímyndað mér að henni líði vel að fá smátíma með litlu englunum sínum. 

Dísa (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 08:16

10 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Þetta eru alveg einstakar myndir. Fegurð himinsins er aldrei meiri en þegar frostið er mikið, himininn heiður og fjöllin speglast í hafinu. Knús og kveðjur til þín og þinna og hafðu það ætíð sem allra, allra best.

Sigurlaug B. Gröndal, 3.2.2009 kl. 09:41

11 Smámynd: Laufey B Waage

Það er greinilega fallegt þorraveður fyrir vestan líka.

Laufey B Waage, 3.2.2009 kl. 09:44

12 Smámynd: Solla Guðjóns

 Alveg frábærar myndir úr greinilega skemmtilegri ferð.Ég sá strax hvaðan myndin af Snæfjallaströnd var tekin.Speglamyndin af Hestinum er sú albesta sem ég hef séð til þessa af því fjalli.Og Litlibær,Reykjanesið.Hugur minn er svo sannarlega núna vestur í djúpi.

Alltaf líf og fjör hjá Kúlubúum,gestum og gangandi.Lýsir vel þinni yndislegu persónu.

Solla Guðjóns, 3.2.2009 kl. 09:59

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nú látið þið mig klökkna við lesturinn mínir elskulegu bloggvinir.  Hvað get ég sagt nema TAKK!!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.2.2009 kl. 10:27

14 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Hrikalega hafið þið verið heppin með veðrið, þessar myndir eru æðislegar og birtan svo falleg.

Hafið það gott í kúlunni. 

Kv. Þórdís

Þórdís Einarsdóttir, 3.2.2009 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 2023214

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband