Fjallamyndir og veður á Ísó.

Veðrið er gott hér fyrir vestan þessa dagana. 

IMG_5064

Pápi gamli komst í mat, því hægt var loksins að aka alveg upp að dyrum í kúlunni. Við grilluðum meira að segja.

IMG_5060

Lítill stubbur í heimsókn.

IMG_5063

Ásthildur fær sér kex..

IMG_5069

Ó Ó brennandi heitt segir hún og passar sig voða vel.

IMG_5066

Veðrið í gær, það er greinilega orðin meiri birta og dagarnir lengjast.

IMG_5070

Veðrið var líka fallegt í morgun.

IMG_5073

Og fyrstu sólargeislarnir á fjallatoppnum, svo færist hún neðar og neðar.

IMG_5078

Ó þú Íslenska fjallatign.

IMG_5081

Í morgun var Snæfjallaströndin bleik, svo varð hún blá.

IMG_5084

Kyrrð og lygna á Pollinum.

IMG_5085

Og Ísafjörður kúrir milli fjallanna.

IMG_5086

Þó snjór hylji jörð þá þarf samt að framleiða meiri snjó í skíðabrekkurnar.

IMG_5087

Þessi er fyrir Sigrúnu, tekinn á Suðureyri og Gölturinn blasir við.

IMG_5089

Og hann Júlli minn er sífellt að þróa betur tæknina, þessi steinbítur er næstum ætur svei mér þá.

Svo segi ég bara góða nótt og sofið rótt.  Setjið áhyggjurnar og reiðina í hvítan poka og sendið hann upp í ljósið og kærleikann.  Hafið ekki áhyggjur af því að það komi ekki nýjar á morgun til að takast á við. Bæði ný verkefni og nýjar áhyggjur, þess vegna er ágætt að tæma þær burtu á kvöldin, maður sefur betur á eftir.  Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.1.2009 kl. 22:17

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

nótt nótt

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 13.1.2009 kl. 22:19

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Alla vega er ég enn rólegur, enda róandi að leza & myndskoða þitt bloggerí, venkona.

Steingrímur Helgason, 13.1.2009 kl. 22:24

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann Júlli verður að passa sig að gera fiskana ekki of "ekta", þá gætu þeir orðið kvótasettir og er hann ekki kvótalaus? Og svo eru þeir örugglega harðir undir tönn og gætu gefið orðinu harðfiskur nýja merkingu.

Jóhann Elíasson, 13.1.2009 kl. 22:45

5 Smámynd: Elín Helgadóttir

fallegt !

Elín Helgadóttir, 13.1.2009 kl. 22:46

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Steinbíturinn flottur  Takk kærlega fyrir mig

Sigrún Jónsdóttir, 14.1.2009 kl. 00:56

7 identicon

Frábærar vetrarmyndir og gaman að sjá pabba þinn. Satt segirðu, steinbíturinn lítur mjög raunverulega út sannast þar að æfingin skapar meistarann og alúð lögð við. Nú eru bara 10 dagar þar til sólin getur skinið á þig, fyrr en neðribæingana. Þegar ég sá kexið í glasinu hjá Ásthildi datt mér amma þín og nafna ykkar í hug og bolli fullur af kexi með vel sykruðu og mjólkurblönduðu kaffi sem maður mokaði upp með skeið og þótti mjög gott. Ég sé okkur fyrir okkur sína hvoru megin við borðshornið með bollana okkar.

Dísa (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 09:00

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dísa mín ég fæ mér ennþá þennan eðaldrykk  Þaðan  hefur barnið þetta auðvitað.  Nema hún fær bara mjólk en ekki kaffi.   Já ég tel niður dagana uns sólin sést í kúlunni.  Þá byrjar allt að lifna trén að bruma inni í garðskálanum.  Og þá er hægt að grilla þar ef snjór hylur ekki plastið.  Sem það gerir ekki núna hveð sem verður.  Júlli minn er flottur.  Bróðir hans Ingi hjálpaði honum með slípunina reyndar.

Knús Sigrún mín

Takk Ella mín

Hahahaha góður Jóhann, nei hann á ekki kvóta þó afi hans hafi átt og gert út eitt mesta aflaskipið Júlíus Geirmundsson, þá er hann farin úr hans eigu.  Þetta með harðfiskinn er bráðsniðugt.

Gott Steingrímur minn

Góðan dag á þig Hulda mín

Knús Jenný mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.1.2009 kl. 09:33

9 Smámynd:

Takk enn og aftur fyrir fallegar myndir

, 14.1.2009 kl. 12:45

10 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Maður finnur orkuna frá þessum fallegu myndum af fjöllunum ykkar. Góður þessi með harðfiskinn  Ég ætla að fá mér svona alvöru Vestfirskan harðfisk!

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 14.1.2009 kl. 12:52

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég lifna öll við að sjá þessi fjöll og yndislega fjörð

Solla Guðjóns, 14.1.2009 kl. 14:36

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar mín er ánægjan. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.1.2009 kl. 14:46

13 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hertur steinbítur auðvitað lostæti,en sömuleiðis getur hann já verið efni í listaverk!

Mikið gæfi ég fyrir að vera viðstaddur kel ykkar Jennýar og knús, frú Cesil, hjá slíkum kjarnakvinnum yrði það ekkert minna en listrænn GJÖRNINGUR!

Og..

Aðeins þekki eina Norn,

afburða er skygn og kæn.

Sögð er eigi freyja forn,

en fögur mjög og brjóstavæn!?

Magnús Geir Guðmundsson, 14.1.2009 kl. 18:43

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir mig

Ásdís Sigurðardóttir, 14.1.2009 kl. 20:08

15 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Fiskurinn er flottur, hvort sem hann telst utan kvóta eða ekki. :)

Kveðja

Þórdís

Þórdís Einarsdóttir, 15.1.2009 kl. 09:45

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Magnús hehehe flottur eins og venjulega

Knús Ásdís min

Jú Þórdís mín utan kvóta..... ennþá hvað sem þeir finna upp á þessir karlar í leit að peningum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.1.2009 kl. 10:39

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ja, sæmilegur allavega og það þótt ég sé stundum líka alvarlegur og nöldri í norninni!?

Þyrfti kannski pínu hér í pistli dagsins að ofan hm!?

Magnús Geir Guðmundsson, 15.1.2009 kl. 14:11

18 Smámynd: Karl Tómasson

Á ekki að fá sér gas kæra Ásthildur ??? Það er draumur.

Steinbíturinn er æðislegur.

Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 15.1.2009 kl. 21:44

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm þú ert prakkari Magnús minn

Kalli minn nei ég ætla að láta kolin duga, það er eitthvað svo rómó við kolagrill.  Takk og bestu kveðjur til þín líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.1.2009 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband