Spádómur Vestfjarðarnornarinnar.

Fullt að spáynjum hafa látið ljósið sitt skina undanfarið og allt í lagi með það.  Þær hafa spáð ýmsu til  dæmis að ekki myndu verða kosningar í vor, eða  þá að það yrðu kosningar í vor.  Flokkar myndu þurrkast út.  Þessa spár eru að mínu mati mengaðar af væntinum spákvennanna, og af hverju í and......... eru það bara konur sem eru spurðar um framtiðina? eru þær eitthvað forspárri en karlmenn.  Ókey með það.

Hér er mín spá og hún er ókeypis.

Ríkisstjórnin mun reyna að hrókera meö ráðuneytisstjóra og ráðherra til að reyna að skapa frið. Það mun ekki heppnast.  Mótmæli munu ágerast og virkilega fara að hafa sín áhrif í þá átt að grafa undan samtryggingu kjötkatlafólkins.  Það munu verða kosningar í vor. 

 Samfylkingin mun líða undi lok, en upp mun rísa Alþýðuflokkur og þeir sem ekki finna sig þar munu ganga í flokkinn sem nú heitir Vinstri grænir,  Sá flokkur mun þá ekki ná nema broti af því sem hann er samkvæmt skoðanakönnum í dag.

Þá mun koma fram flokkur anarkista sem ætlar sér stóra hluti, en þeir munu ekki koma manni að.

Frjálslyndi flokkurinn munn koma sterkur inn, en með endurnýuðum liðsmönnum, sem virkilega munu taka flokkin yfir, og þar innanborðs verður lunginn af mótmælendum, sem hafa ákveðið að láta til sín taka innan flokkana, og sjá að Frjálslyndi flokkurinn er ungur og nógu lítill til að hægt sé að hreinlega taka hann yfir. 

Framsóknarflokkurinn mun ekki verða það afl sem hann vonast til þrátt fyrir allar mannabreytingar og stjörnur sem hafa gengið í flokkinn. 

Þetta mun leiða af sér að það verður róttæk endurskoðun á stjórnarskár og það inniber að aldei aftur getur framkvæmdavaldið komið fram af þvílíkum endemis hroka  og yfirgengilegheitum og nú á sér stað.  Sem segir að við munum læra af þeirri dapurlegu reynslu sem við höfum núna af valdstjórninni.

Jamm það eru breytingar í farvatninu breytinga sem engin getur séð fyrir sérstakega ekki einvhverjar spákerlingar sem hafa ekki yfirsýn yfir landslag pólitíkur, frekar en ég, og þess vegna er þessi spá mín ekkert síðri en þeirra.  Svo er bara að sjá til ekki satt?

Burt með spillingarliðið, megi ráðdeild, sanngirni og réttlæti varða veginn héðan í frá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Já það er vonandi að breytingar séu framundan.

, 12.1.2009 kl. 01:30

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú rokkar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.1.2009 kl. 07:36

3 Smámynd: Rannveig H

Seigi bara eins og Jenný þú rokkar feitt sko.

Rannveig H, 12.1.2009 kl. 09:46

4 Smámynd: Laufey B Waage

Já er það ekki merkilegt að konur skuli alltaf vera spurðar um hið óorðna, óáþreifanlega og yfirnáttúrulega, - en karlar eru spurðir um blákaldar staðreyndir.

Laufey B Waage, 12.1.2009 kl. 10:54

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk  

Já ég gæti alveg séð það fyrir mér að Alþýðuflokkurinn með nýtt fólk í brúnni gæti slegið í gegn.  En ég held að ESB umræðan muni detta niður, ég held að þetta bandalag muni gliðna í sundur og glansinn fara af því fyrr en menn grunar. 

Laufey þannig er þetta bara, og það er skrýtið þegar maður hugsar út í það. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.1.2009 kl. 11:12

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ásthildur, mín þenkjandi og mjög svo þokkafulla norn!

Kannski ekki alls kostar rétt að konur séu bara í þessum bransa, að segja til um framtíðina um áramót, þó vissulega séu spákonurnar mjög áberandi. Man eftir allavega þremur karlmönnum sem allir hafa sinnt því líka auk margs annars á öðrum tímum ársins, Hermundi talnaspekingi, Gulla stjörnu og Þórhalli miðli, þó sá síðasttaldi hafi kannski minnst sinnt slíku.

En Haha, spáin þín er nú óneitanlega svolítið lituð af óskhyggju elskan mín,hví ekki alveg eins að Íslandshreyfingin t.d. verði tekin yfir eins og þinn heittelskaði FF? Sá flokkur bæði yngri og enn minni!

Og vegna þess að ég fylgist voða lítið með B flokknum, hvaða stjörnur hafa´gengið í glokkin? VArla áttu við Jónínu frænku mína eða þá Gumma Steingríms? Hann jú að vísu fínn strákur og hæfileikaríkur, en þessi ákvörðun hans já dálítið skrýtin að ganga í Framsókn þrátt fyrir að hann eigi kyn til þar innanborðs.reynslan með til dæmis bæði Finn og Árna Magg, sannar að það getur verið ansi tvíbent að öðlast skjótan frama þar og ég trúi ekki að það eingöngu hafi kitlað GS!

En áttu ekki fleiri spádóma, t.d. um olíufund eða ekki, virkjanir eða ekki,næsta Seðlabankastjóra kannski, nú eða bara hvernig Íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta muni vegna í úrslitum EM í Finnlandi í sumar!?

Magnús Geir Guðmundsson, 12.1.2009 kl. 14:09

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Miðað við þær spár, sem ég hef lesið erþín spá ekkert óraunhæfari

Sigrún Jónsdóttir, 12.1.2009 kl. 15:11

8 identicon

Vonandi að spá þín um að ESB eigi eftir að hrina verði rétt. Með bestu kveðju vestur. Elinborg

Eliborg Baldvinsdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 15:55

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Breytingar það vill ég sjá og svo sjáum við bara til Ásthildur mín
Kveðja úr nepjunni á Húsavík
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2009 kl. 15:56

10 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég les aldrei spádóma svo ég veit ekkert hverju þessar spákonur hafa spáð. Þú ert örugglega ekkert síðri norn en þær

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 12.1.2009 kl. 17:27

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Jamm!  Mér líst vel á spá þína spákona góð. - Ég vil bæta við minni spá, sem er í takt við tillögu Njarðar P. Njarðvík. -  Við munum byggja annað lýðveldi, en áður en það gerist munum við setja af þá stjórn sem nú er við völd,  og setja á neyðarstjórn í 12 - 18 mánuði, á meðan gerð er ný Stjórnarskrá. - Þegar ný Stjórnarskrá er tilbúin,   er kosið um Stjórnarskrána og kosið til Alþingis.  Alþingismönnum fækkað niður í 41 þingmann.  Forseti Alþingis er kosinn sér.  Alþingismenn verða að segja afsér þingmennsku ef þeir verða ráðherrar. - Og svona get ég haldið áfram endalaust. - Hverng líst þér á mína spá?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.1.2009 kl. 17:53

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér lýst rosalega vel á hana Lilja mín. Við kýlum bara á þetta. 

Hehehe Sigrún mín

Kveðja til þín líka Milla mín

Elínborg ég held að Efnahagsbandalagið muni liðast í sundur þegar kreppir að og menn sjá ekki fram úr sínum eigin vanda, þá er alveg pottþétt að þeir eru ekki tilbúnir til að rétta öðrum af því sem ekkert er.

Nefnilega þannig Sigrún mín.

Magnús minn, Þórhallur er miðill hann heldur skyggnilýsingafundi og talar um að Gunnu finnist ennþá gaman að prjóna og svoleiðis, Gunnlaugur spáir í stjörnurnar og hvernig tunglið liggi að sól og svoleiðis, talnaspekinginn þekki ég ekki. 

Þetta með Íslandshreyfinguna er nú þannig að þar eru stjörnur sólóistar, flokkurinn hefur legið ofan í skúffu og örugglega rykfallið

Hef ekki grænan grun um boltaleiki  Næsti seðlabankastjóri verður erlendur hagfræðingur, sem mun vera skipaður þegar Nýja Ísland rís úr öskunni.  Olíu munum við ekki finna næstu tíu árin eða svo, en það mun koma eitthvað annað sem kemur okkur upp úr öldudalnum, einhver tækni sem gerir okkur ekki minna rík en olía myndi gera.  Það þýðir líka að virkjanir eins og við sjáum þær í dag verða ekki byggðar meir.  Jamm og jamm öllu fleygir nú fram. 

Það er nefnilega rétt handan við hornið ný uppgötvun sem kemur vegna kreppunnar í heiminum, kreppan neyðir menn til framkvæmda.  Olíufurstar og bílaiðnaðurinn hafa haldið aftur af allri framþróun vegna græðgi.  Þegar fólk hefur ekki lengur efni á hlutunum, er tilgangslaust að hafa góða hluti í felum.  Þannig verða menn svínbeygðir einmitt vegna ástandsins. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.1.2009 kl. 23:24

13 identicon

já nú rokkiði feitt.....frábært.  Ég varð alveg uppnuminn af Nirði P Njarðvík og þvi sem hann hafði fram að færa, held að ef okkur auðnast að komast út ur þessu SPILLINGAR FORAÐS FENI, sem einkennir ALLA okkar stjórnsýslu í dag, þá ætti okkur að geta farnaðst vel, þ.e.s. ef við einhverntíman komumst út úr skuldasúpunni..... bjartsýnis kv. Steini Árna.

Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 10:17

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Steini minn VIÐ MUNUM KOMAST UPP ÚR ÞESSU FENI.  Og því fyrr sem við losum hlekkina við spillinguna því fyrr.  Njörður er flottur og við ættum að ganga hreinlega í það verk að fara að eins og hann og fleira gott fólk leggur til.  Það er nú eða aldrei.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.1.2009 kl. 11:55

15 identicon

Mín ósk er að flokkakerfið verði aflagt, við erum of fá fyrir flokkakerfið að mínu mati og mér líst vel á neyðarstjórn svo framarlega að enginn pólítíkus komi nálægt henni. Og það sem fyrst svo að ekki verði búið að einkavinavæða allar sjúkrastofnanir fyrir mánaðarmót. 

Knús í gleðikúluna

Kidda (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 17:20

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég er sammála þessu Kidda mín.  Knús til baka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.1.2009 kl. 21:16

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég vil fá þig í starf formanns eða framkvæmdastjóra til að koma einhverjum af þessum hugmyndum nornarinnar í framkvæmd. Annars er ég hræddur um að' ekkert verði úr neinu af þessu.

Sigurður Þórðarson, 14.1.2009 kl. 18:30

18 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Það er aldeilis!

En Ásthildur mín, þú varst að tala um framtíðarspádóma, fyrir næsta ár eða svo og lengra, allir þessir þrír hafa svo ég hef heyrt verið fengnir til þess, þannig er það nú bara og ég var að benda þér í allri vinsemd á það. Talnaspekingurinn sem heitir víst Hermundur, hefur til dæmis oftar en einu sinni bæði á bylgjunni og hjá Arnþrúði Karls á hennar stöð, verið fengin sérstaklega til þess arna og Gunnlaugur sömuleiðis margoft í gegnum tíðina!

Ný byltingarkennd uppgötvun já, sem koma á þá í stað olíunnar að einvherju leiti, ef ég skil þig rétt? En ef svo fer já, nýtt ferli hefjist með því, hlýtur sama hringrásin að fara í gang aftur og þeir sem ráða mest yfir nýunginni vilja hafa sem mest upp úr henni, græða ekki satt? Og þá verðum við Ísafoldarbúar nýuppreistir segir þú já! Gott ef satt reyndist, en á meðan olían er yfir höfuð til staðar og enn finnast nýjar lindir, verður hún nú í aðalhlutverki að þeirri einföldu ástæðu að við erum svo háð henni á nanast öllum daglegum athöfnum. Hún er ekki bara orkugjafi í margvíslegri mynd, heldur eru úr henni og alls kyns þróuðum útgáfum hennar, unnar flestar þær neysluvöruur sem við notum og þekkjum, alt frá nærfötum til véla og nanast allt þar á milli!

Þetta verður því að vera aldeilis krassandi uppgötvun mín kæra norn!

Hins vegar eru í orkugjöfum nú þegar margar hugmyndir í gerjun og þróun, þó enn sé ekki nein þeirra komin svo langt að segja megi að hún geti leist olíuna að hólmi!Vetni, Moetanól, vistvænt gas og fleira allt eitthvað sem möguleikar hafa lengi þótt felast í.

Magnús Geir Guðmundsson, 15.1.2009 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband