Silfurtorg - mótmæli.

Fundurinn var frábær.  Nú finn ég hvað það er nauðsynlegt að fólk komi saman hlýði á kjarnyrtar ræður og finni samstöðuna.  Það þyrfti að gerast í hverjum bæ og bóli til að vekja fólkið upp til umhugsunar.

Ræðurnar voru fínar fundarstjórinn góður og allt fór vel fram.

IMG_5040

Veðrið var betra en ég hélt.

IMG_5042

Fyrst var farið að ná sér í skilti.

IMG_5043

Svo að taka sér stöðu.

IMG_5044

Fólk streymdi að úr öllum áttum, ég hugsa að þarna hafi ekki verið undir 150 - 200 manns.

IMG_5047

Fólk sem ekki lét veðrið aftra sér og ekki var veikt.

IMG_5045

Stubburinn valdi sér spjald við hæfi.

IMG_5048

Hér er fundarstjórinn Guðmundur Þór.

IMG_5050

Herdís Hübner hélt góða ræðu.  Hún bar saman þegar útrásarvíkingar voru að fara í skemmtireisu fyrir skömmu sem kostaði 4 milllur á manninn, var á sama tíma verið að bera aldrað fólk út af íverustöðum sínum, nauðugt og koma þeim fyrir eins og ám í stíu tveim og þrem saman í herbergjum.

IMG_5055

Lýður sagði að hann hefði komist að því að meðan við hefðum verið um borð í þjóðarskútunni, hefðu stjórnvöld alls ekki verið þar þegar skútan sigldi í strand, þeir hefðu verið í þotunum einkasnekkjunum og heimsreisum útrásarfurstanna, það hefði verið svo gaman að þeir hefðu ekki mátt vera að því að sigla  fleyi til hafnar, því fór sem fór.

Burt með þetta lið.

IMG_5056

en ég er viss um að það verða fleiri næst.

IMG_5057

Þó veðrið sé kalt þá er bara að klæða sig vel.

IMG_5058

Það má engin skorast undan að láta álit sitt í ljósi.  Þá er ég að tala um fólkið sem vill breytingar, hinir sitja auðvitað bara áfram á sínum rassi og njóta ylsins heima hjá sér svo lengi sem hann varir.

IMG_5036

En angarnir mínir fóru út að leika í snjónum í dag.

IMG_5037

Það er gaman að leika og byggja snjókarla og hús.

IMG_5039

En eigið góðan dag elskurnar mínar.  Ég er allavega rosalega sátt við daginn.  Takk félagar mínir sem voruð með mér á Silfurtorginu og þeir sem fjölmenntu á Austurvöllinn og allir sem mótmæla í hjarta og sinni.  Samstaðan er mikilvægust.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Það er gott  þegar gaman er ...en mín kæra er ekki fullmikið sagt að við sem ekki mætum með helvítis fokking fokk spjöldin séum bara heima og ylja á okkur rassinn. Hver hefur sinn máta til tjáningar....frelsið leyfir það. 

Sumir hafa einnig notað rassinn til tjáningar m.a. margir þeirra sem talað hafa á Austurvelli, a.m.k. ef miðað er við orðaforðann sem þaðan hefur komið.  Geri þó ráð fyrir að Herdís og Lýður hafi notað munninn enda ekki þekkt fyrir annað.

En sem sagt frelsið nær til allra....frelsi til að mótmæla á torgum, heima á rassinum í stofunni, í hjarta sér, og það sem mest er um vert frelsi til að vera maður sjálfur

Katrín, 10.1.2009 kl. 16:42

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir myndirnar, gaman að vel skildi til takast. Kær kveðja í veturinn hjá þér, hér er vorveður.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.1.2009 kl. 17:05

3 identicon

10 % minni þátttaka hjá ykkur en í bænum en ef dæminu væri snúið og miðað við höfðatöluna þá kemur annað í ljós.

Ég fór ekki á Austurvöllinn og held að það hafi stafað af leti og trúleysi. Er eiginlega búin að missa trúna á friðsöm mótmæli. Vona að hægt sé að gera friðsama byltingu.

Knús í kúluna í kuldanum

Kidda (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 17:16

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Flott mæting hjá ykkur og eflaust flottir ræðumenn.  Samstaðan, sem myndast á þessum fundum er bara byrjunin á einhverju stórkostlegu, það er ég handviss um.  En fólk þarf að mæta til að finna þetta....því þetta er ólýsanlegt.

Sigrún Jónsdóttir, 10.1.2009 kl. 17:53

5 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er ótrúlegt hvað samstaðan er mikil meðal fólks. Saman stöndum vér, sundruð föllum vér  Knús í helgina þína mín kæra.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.1.2009 kl. 21:04

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús á þig elskulegust og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.1.2009 kl. 22:04

7 Smámynd: Karl Tómasson

Elskulega Ásthildur. Silfurtorgið var málið hjá þér í dag en Silfursafnið hjá mér og mínum.

Höldum áfram, alltaf áfram, bjartsýn og uppbygjandi, það ert þú sannarlega.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 10.1.2009 kl. 23:11

8 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Njóttu helgarinar Ásthildur

Anna Ragna Alexandersdóttir, 10.1.2009 kl. 23:22

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott hjá ykkur í snjónum.  Hryllilega jólalegt þarna hjá ykkur.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.1.2009 kl. 23:27

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Baráttukveðjur!!! Núna er aldan að fara af stað og mun skola öllum spillingaröflum burt. Það getur ekkert stoppað íslenska réttlætisbylgju þegar hún fer af stað.  Knús til ykkar þarna fyrir vestan

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.1.2009 kl. 22:53

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Katrín mín Gunnars ég hef verið að reyna að skilja þessa ræðu þína.  Ertu þá að segja að þú teljir að það sé vænlegra til árangurs að sitja bara heima og gera ekki neitt? eða ertu sátt við ástandið.  Það er allt í lagi, hver hefur sína aðferðina og hugmyndirnar. 

Takk Ásdís mín, það er notalegra að hafa snjóinn en nakta dimma náttúruna á þessum tímum. 

Kidda mín ég vildi óska þess líka, og ég held að það sé hægt að gera friðsama byltingu, en einungis ef fólk stendur þétt saman.  Þegar skriðan er stór og fer hægt gerast góðir hlutir.

Gerði það takk Helga mín.

Já ég er sammála þér með það Sigrún, það er sérstakt að taka þátt, gott einhvernveginn að finna samstöðuna.

Já nákvæmlega Sigrún mín.

Sömuleiðis Linda mín.

Takk Kalli minn sömuleiðis.

Sömuleiðis Annar Ragna mín.

Jamm það er hryllilega jólalegt Jenný mín  

Nei Katrín mín við skulum ekki láta neitt stoppa réttlætið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.1.2009 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband