9.1.2009 | 23:38
Munið mótmælin kl. þrjú á morgun.
Á morgun verða mótmæli á Silfurtorgi á Ísafirði. Ég fór í dag til Dagnýjar Þrastar og herjaði út skilti fyrir mig og Úlf. Hann vill endilega bera líka skilti. Ég er náttúrlega alveg rosalega stressuð, vegna þess að ég veit að börn mega ekki taka þátt í mótmælum, en innrætingin er svo rosaleg hjá mér hlýtur að vera.
Ég hlakka til. Það verður spennandi að sjá hvort einhver verður svo óforskammaður að hylja andlit sitt. Svo verður líka spennandi að vita hvernig veðrið verður. Það er spáð leiðinda veðri, en var svo dregið til baka að einhverju leyti þ.e. það á ekki að blása mikið en það á samt að snjóa.
Það sem ég veit er að ræðurnar verða góðar bæði Herdis Hübner systir hans Tryggva gítarleikara og Lýður Árna eru flottir ræðumenn. Fundarstjórnin verður líka í góðum höndum því þar heldur á veldissprota Guðmundur Þór, þó hann komist náttúrulega ekki með rassinn þar sem Hörður hefur magann.... eða þannig
Ég vona að það mæti sem flestir, nú verðum við að fara að sýna samstöðu. Mér finnst eins og sumir sitji bara og flatmagi á sófanum heima hjá sér, setjist svo niður við tölvuna og fjandist út í fólkið sem er að mótmæla, finna því allt til foráttu, og leita eftir veikum punktum. Þó held ég að flestir séu á því að hér hafi verið framið óréttlæti sem ekki verði við unað.
Hvað vakir fyrir þessu liði veit ég ekki, hvort að er einhversskonar sjálfskipuð fyrirhyggja, eða hvort þeim finnist að þeir séu útundan er ekki víst. Ef til vill dreymir þetta fólk um að standa í fararbroddi og vera hetjur, en fyrst það tekst ekki, þá er um að gera að rakka allt niður sem aðrir eru að gera. Og benda á að þetta sé nú heldur betra svona, eða geta ekki tekið þátt af því að þetta er hinsegin. Þjóðverjarnir sem voru hér að mótmæla sögðu að við kynnum ekki að mótmæla, og sennilega hafa þau rétt fyrir sér. Við höfum aldrei gert neitt þessu líkt áður. Þess meiri hetjur eru þeir sem komu þessu af stað.
Ef til vill finnst þessum sjálfskipuðu fyrirhyggjupostulum sem allt vita betur, bara allt vera í fínu lagi og ekki þörf á að breyta neinu. Spurningin er bara hve margir þeir eru og svo auðvitað hvort þetta er týnda þjóðin hennar Ingibjargar.
Ég er allavega þakklát því fólki sem fór af stað hér í minni heimabyggð. Því mér fannst ég sitja utanvið allt, sérstaklega þegar heiglarnir stoppuðu af að sent væri beint út frá fundunum. Sú þöggun sem þar sýndi sig var eftirtektarverð og sýnir svo ekki verður um villst að málstaðurinn er ekki beysin hjá stjórnvöldum. Þau vilja ekki að við stöndum upp og mótmælum. Þau vilja hafa okkur áfram sofandi sauði, helst að við förm í hár saman og eyðum orkunni í að gagnrýna aðferðir hvors annars.
En ég held að það takist ekki. Vona það alla vega því mótmælendur eru af öllum stærðum og gerðum, á öllum aldri og þverskurður af ekki - þjóðinni hennar Ingibjargar. Áberandi er að fremst í fríðum flokki fara þroskaðar konur. Það eitt og sér bendir til alvarleika mótmælanna. Konur eru ef eitthvað er seinþreyttari til vandræða en karlmenn. En þegar sverfur að og grunngildi þeirra fjölskyldan og öryggið er í hættu þá er ekkert dýr grimmara en kvendýrið, hvort sem það er mannvera eða annað dýr. Við verjum það sem okkur er kærast. Og það sem þyngra vegur er að hér er ekki um að ræða eitthvað feministakjaftæði eins og sumir myndu kalla það, heldur hin venjulega húsmóðir, mamma, amma og jafnvel langamma sem stjórnvöld þurfa að díla við.
Mætum öll þau sem finnst við vera órétti beitt og látum í okkur heyra. Látum spillingaröflin finna að okkur er ekki sama og að við viljum breytingar.
En svo eru nokkrar myndir svona til upplífgunar.
Fiskur er herramannsmatur.
Hér er verið að búa til eyju sem verður svo etin af svangri tröllskessu sem heitir SólHanna.
Svo þarf auðvitað að vaska upp og ganga frá eins og gengur.
svo má afi teikna kalla á handarbakið, sem er mjög spennandi.
En veðrið....
Klukkan er hálffjögur og rétt að koma að göngunum Ísafjarðarmegin. Það er byrjað að snjóa.
Og það hefur snjóað töluvert á þessum klukkutíma sem tók að sækja stelpurnar.
Þið hafið ef til vill tekið eftir því að það er fullt tungl, þessi er því spúkí, tekinn á 1600 Iso og dálítið hreyfð en hér gætu vappað inn álfar og tröll ef þið gætið ekki að ykkur.
Aðrir litir með flassinu.
Já þetta er eins og ævintýraland.
Eigið góða nótt og góða drauma elskuleg mín
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 2023221
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gangi ykkur vel á morgun og ég vona að mæting verði góð
Sigrún Jónsdóttir, 9.1.2009 kl. 23:42
Ég er ekki frá því að ég hafi séð Álf ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 23:45
Skemmtilegar myndir að venju. Óska Ísfirðingum góðs baráttufundar á morgun. Áfram Ísland og Íslendingar
, 9.1.2009 kl. 23:56
baráttukveðjur úr höfuðborginni.....
Elín Helgadóttir, 10.1.2009 kl. 01:56
Takk Sigrún mín
Hehehehe Hrönn þarna er fullt af álfum skal ég segja þér
Takk Dagný mín
Takk Elín mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.1.2009 kl. 02:08
Ég er því miður með flensu og kemst ekki í dag. Verð með í anda.
Baráttukveðjur.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 10.1.2009 kl. 11:19
Takk Ólína mín og vonandi batnar þér sem fyrst.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.1.2009 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.