Hugleiðingar um jól og jólagjafir herrans árið 2008.

 IM001788

Ég veit að jólin verða mörgum erfið í ár.  Ástandið í samfélaginu er þannig, að margir eiga um sárt að binda. Mig langar því að koma á framfæri  smá hugmyndabanka um jólagjafir, sem ekki kosta mikið, eða jafnvel bara vinnu og umhyggju. Það þarf nefnilega ekki að kosta miklu til.  Nú gildir að láta dýru gjafirnar eiga sig, og hlú að því einlæga og kærleiksríka.   

IM001790

Hér eru nokkrar hugmyndir;  

Margir eiga efnisafganga eða garn inn í skáp, sem fólk veit ekki hvað á að gera við.  Það má taka fram saumavél, nál og tvinna eða garnafganga, og sauma,  hekla eða prjóna föt á uppáhaldsdúkku prinsessunnar.Þeir sem eru duglegir að teikna, geta teiknað dúkkulísur, þar má láta hugann reika og teikna allskonar falleg föt sem fylgja.   Þetta getur líka orðið hin besta skemmtun.

Það er hægt að fá spýtur, sög og nagla, og  smíða bíla, dúkkurúm eða dúkkuhús, foreldrar eða afi og amma, geta átt góðar stundir að föndra jólagjafirnar í atvinnuleysinu. 

Síðan má föndra allskonar innanstokks muni, sófa, borð stóla mottur, rúm og bara hvað sem er.   Þetta eru pottþétt velþegnar gjafir.

Fyrir fullorðna má föndra ýmislegt, eins og til dæmis sauma eða prjóna skemmtileg föt utan á rauðvínsflöskuna, tekönnuna, eða bara hvað sem er.  Það má nota fallegar litlar öskjur, til dæmis utan af ostum, höfðingjaöskjurnar eru reglulega flottar, og camerbert 

Þessar öskjur má mála eða sauma utan um,  í fallegum litum, og fylla af ást og kærleika.  Eða jafnvel sem skartgripaskrín.  Óendanlegir möguleikar, bara útsjónarsemi.

Þeir sem eru duglegri á tölvurnar, það má gera allskonar skemmtileg plaköt, eða myndir af viðkomandi.  Árita og prenta út. 

Eða mynd með fallegu ljóði, annað hvort frumsömdu, eða frá þekktum höfundum. 

Svo eru til manneskjur sem hafa gaman af að semja sögur, hvað er skemmtilegra en saga þar sem maður er sjálf söguhetjan samin af afa eða ömmu.  Gafst mjög vel hjá mér í fyrra.

Eins og sést, þá eru margir möguleikar að gera aðventuna og aðdraganda jólanna gleðilega, og sameinað fjölskylduna, þó lítið sé í buddunni, og alveg óþarfi að hætta að gefa jólagjafir. 

Og mín reynsla er sú, að einmitt þessar litlu, persónulegu gjafir gleðja mest.  Af því að fólkið, börnin okkar skynja að við höfum lagt eitthvað á okkur til að gleðja. 

Og eins og ég sagði áðan, þá leynist oft eitthvað nothæft í skápum og skúffum, sem hefur einmitt beðið eftir réttu hlutverki.  Nú er rétti tíminn til að fara að skipuleggja hvað það er sem við viljum gera og hentar hverjum og einum.  Og það verður jafnvel til þess að þessi tími myrkurs og örvæntingar verði ánægjulegri og sameini fjölskylduna meira en okkur órar fyrir.  Þið getið líka komið með fleiri hugmyndir hingað inn.  Eitthvað sem ykkur dettur í hug, eða hafið gert, og viljið miðla öðrum. 

Það er nefnilega það smáa og einlæga sem gefst best.  Látum þessi jól verða jól kærleikans, einfaldleikans og sameiningu fjölskyldunnar. 

frett_jola_api

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir þetta Ásthildur mín þetta var gott að lesa.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.10.2008 kl. 15:13

2 Smámynd: Helga skjol

Æji þú ert svo yndisleg að það er alveg meiriháttar, takk fyrir öll þessi frábæru ráð.

Knús á þig mín kæra

Helga skjol, 31.10.2008 kl. 17:32

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við gerum okkar besta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.10.2008 kl. 17:46

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Glitter Graphics

Rose Glitter Pictures

Sæl og blessuð.

Flott grein. Gjafir sem eru handgerðar gleðja oftmiklu meira en dýrar gjafir.

Myndirnar í færslunni fyrir neðan voru líka meiriháttar og börnin dásamleg í jólafötum nú í lok okt.  

Guðs blessun og góða helgi

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.10.2008 kl. 23:28

5 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Satt segirðu. Það þarf ekki endilega að kosta einhver ósköp að gera góð jól. Mér finnst samveran með fjölskyldunni skipta mestu máli. En svo eru það börnin, allir vilja gleðja börnin sín. Það þarf ekki að vera neitt rándýrt til að barnið verði ánægt. Það erum við sjálf sem spilum þetta alltaf upp.

Systir mín bjó í Tékklandi fyrstu tvö árin eftir að Þórdís fæddist. Ég hafði tekið upp heilmikið efni á video af henni og svo Eydísi þegar hún fæddist. Svo bjó ég til videospólur handa henni og mamma fékk líka eintak. Þetta er fín gjöf sem kostar lítið annað en smá föndur. Þá dettur mér nú bara í hug að fjölskyldur geta gert saman stuttmynd handa ömmu og afa, þ.e. þeir sem eiga svona videovél sem ég held að sé nokkuð algengt. Kærleiksknús á þig og þína.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 1.11.2008 kl. 00:51

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll.  Góð hugmynd með stuttmynd Sigrún mín.  Það er mjög skemmtileg gjöf.  Ég gaf pabba mínum í fyrra gamlar myndir, sem ég hafði skannað inn og prentaði út, setti í plastmöppu, hann táraðist þegar hann skoðaði þessar gömlu myndir af systkinum sínum og foreldrum.  Það vakti upp hjá honum ljúfsárar minningar.  Og það var auðséð að honum þótti vænt um gjöfina. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2008 kl. 12:58

7 Smámynd: Svanfríður Guðrún Gísladóttir

Já ég var einmitt að tala um það við mannin minn áðan að ég væri að hugsa um að fara að byrja að skrifa á jólakortin.Við skiptum þessu á milli okkar,ég skrifa vestur og norður en hann afgangin ,svo það kemur heldur meira í hans hlut.En ég  baka líka smá kökurnar en hann skrifar á meðan á kort  notarleg stund.Ég ætla að skrifa núna í ,,bloggið"mitt  hugmynd að jólaföndri eins og mamma mín gerði fyrir okkur systurnar.

             Bestu kveðjur Svanna

Svanfríður Guðrún Gísladóttir, 4.11.2008 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 2022151

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband