Ferði í Reykjanes.

Hæ komin heim frá Reykjanesi.  Sífellt fleiri bloggvinir tilkynna að þeir geti ekki staðið undir því að svara og koma við hjá bloggvinum sínum.  ég skl það mjög vel, því ég á líka í þessum erfiðleikum, reyndar tímabundið, því ég hef einfaldlega ekki nægan tíma til að fara sómasamlega gegnum mína bestu bloggvini, til að lesa og kommentera, og þó þykir mér svo vænt um svo marga hér, og hef tekið inn á mig sem yndislega vini og félaga, og hef áhuga á því sem þeir eru að segja okkur.  En ég veit líka að þegar vetrar að, þá verður meiri tími til að sinna ykkur mín kæru.  Heart

En Reykjanesið var alveg frábært, við ætluðum reyndar að hætta við að fara, þar sem ælupest herjaði á fjölskylduna, bara daginn fyrir ferðalagið, byrjaði með Ásthildi litlu, og síðan Úlfur, og við hjónin bæði með slæman maga, Hanna Sól slapp við æluna, en fékk niðurgang í kaupbæti.  En ég er samt glöð að við skyldum drífa okkur af stað, því ferðin var alveg frábær.

5.10.08 001

Á fullu að pakka niður. Það þurfti að pakka öllu inn í plastpoka, því allt þurfti að vera á pallinum, og það var úrkoma.

5.10.08 003

Að vísu var veðrið falleg heima, en aldrei að vita hvað kemur í ljós.

5.10.08 006

Búið að hlaða bílinn og kerran með Kajökum til reiðu.

5.10.08 008

Við vorum komin inn í Seyðisfjörð, þegar uppgötvaðist að lyfin hans Ella míns höfðu gleymst heima, við þruftum því að snúa við og aka heim aftur, og það tók tímann sinn, með lítil börn skiptir tíminn miklu máli, en þau voru alveg frábær þessar elskur, og Drekasagan var spiluð þrisvar sinnum, og ég er ekki að plata.  Versta við þessa Drekasögu er að lögin límast einhvernveginn á mann, og söngla inn i hausnum á manni tímunum saman, ótrúegt alveg.  En hér erum við komin í Reykanes, og hér er afi að fara yfir ennibein og auga, nebbi flipi, munnhola og hálsakot, nefnilega að  þvo og bursta tennur í stuttu máli. Smile

5.10.08 010

Jamm og járnbrautalesin frá Ikea, var eitt af leikföngunum sem tekin var með, hún er sígild og heillar jafnvel prinsessur.

5.10.08 011

Hér er hann Halldór Sveinbjarnar, gúrú kajakræðara á Ísafirði, meistari og kennari af fyrstu gráðu, flottastur í alvöru.

5.10.08 013

Sundlaugin í Reykjanesi er víðfræg, og einstök.

5.10.08 019

Meira að segja flott fyrir prinsessur.

5.10.08 025

Hér eru ræðararnir að leggja upp í ferð um Reykjafjörð

5.10.08 027

Eins og þið sjáið þá leikur veðrið við okkur þessa helgi.

5.10.08 030

En hér eru krakkarnir í lauginni að safna saman grænþörungum.  Elli sagði við mig einmitt í kvöld; Íja  er þetta ekki bara það heilbrigðasta sem til er, ég veit að fólk er farið að ganga um í laugunum í Reykjavík í ilskóm út af sveppasýkingum, en hér er ekkert slíkt, getur ekki verið að náttúran sjái um heilbrigðið ?Hér er þetta bara villt og enginn spáir í slíka mengun.  Guð láti gott á vita segi ég nú bara.  Botnin er hreinlega teppalagður með grænþörungum.

5.10.08 035

Úsinimínikrú á kajak í sundlauginni.

5.10.08 037

Já og svo er horft á Doru og Latabæ á kvöldin LoL

5.10.08 039

Eða að máta sundhetturnar sem amma keypti.

5.10.08 041

Svo var farið í fjöruferð.  Marin sagði að strákarnir hefðu gert sér heitan pott ofan í fjöru, og vildi að við kæmum með myndavélina.  Og við vorum einmitt að leggja af stað í fjöruferð.

5.10.08 042

Þetta er fallegur staður og býður upp á svo margt.

5.10.08 045

Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt, spurðu stákarnir, nei sagði ég en var með lygamerki á puttunum, og segi nú bara þetta eru svo flottir gaurar, og fallegt umhverfi.  Þeir eru hreinlega bara flottastir.

5.10.08 050

Þetta er hreinlega alveg rosalega flott.

5.10.08 051

Já þetta virðist vera rosalega notalegt ekki satt?

5.10.08 053

Landið elds og ísa, heitt og kalt.  Hvað viljum við meira og betra?

5.10.08 055

Nei þetta er bara fyrir stráka, stelpur mega ekki vera með, kannast einhver við svona ??

5.10.08 056

Krabbaskinn sem lét blekkjast af ylnum, og hafnaði í eldheitum polli, svona getur lífið leikið einstaklinga sem eru of trúgjarnir, eða halda að allt sé gull sem glóir, hann bara soðnaði í þessum heita potti, þegar sjórinn hvarf út á haf.

5.10.08 057

Sjáið bara eldur og ís, heitt og kalt kallast á.

5.10.08 068

Eg við gætum sætt okkur við það sem náttúran hefur að gefa okkur, værum við ef til vill ekki í þeim sporum, sem við erum í í dag. Að geta metið það einfalda og smáa.

5.10.08 069

Virt fyrir okkur heimsins gæði, og glaðst yfir litlu, það er leyndardómurinn að velgengni, eða í það minnsta hamingju.

5.10.08 071

Falleg glerbrot, einu sinni fann ég hreinræktaða gleði í því að fara og safna fallegum glerbrotum.  Ég hefði ekki skipt þeim fyrir pening, hvað þá íslenska krónu, eða neinn annan gjaldmiðil.

5.10.08 073

Nú eða halda á fjársjóði í litlum lófa, sínum augum lítur hver á silfrið.  Ættum við ekki aðeins að stoppa við og gá hvað það er sem skiptir máli ?

5.10.08 081

Og hóprunninn kemur heim þegar húmið leggst að, eftir góðan róður.

5.10.08 058

Þetta er svona fyrir þá sem voru í Reykjanesskóla, það finnast ennþá leyniskot, sem eru alveg eins og þau voru, hér var örugglega kennd matreiðsla, eller hur ?

5.10.08 060

Og hér eru ennþá skólastofur, og allt sem til þarf, og myndir á veggjum.  Fyrir þá sem finna hjá sér hvöt til að halda upp á eitthvert afmæli, elskurnar þá er þetta allt ennþá til staðar !

5.10.08 084

en ef til vill ekki miki lengur, svo ekki hika við að fara að stað, og fara að gera eitthvað í málunum, áður en það er of seint.

5.10.08 090

Hér er verið að borða.  Maturinn var góður.

5.10.08 094

Sumir komu langt að til að vera með.

5.10.08 101

Ókey afi, þú ert flottur!

5.10.08 102

Það er verið að fara í hópsiglingu.

5.10.08 103

Veðrið er ákjósanlegt eins og sést.

5.10.08 105

Bátarnir klárir.  Og það er ennþá brunalykt af búningum kajakmanna, eftir brunan i haust.

5.10.08 107

Stubbar klárir í slaginn.

5.10.08 110

Svo þarf að æfa ýmislegt í lauginni, m.a. að hvolfa sér, og geta rétt sig við aftur, það er nauðsynlegt þegar út í alvöruna er komið.

5.10.08 111

Og þar er enginn betri kennari en Halldór Sveinbjarnarson, það get ég alveg sagt með sanni. 

En ég þarf að skreppa suður á morgun, á mikilvægan fund.  það kemur svo í ljós, hversu mikilvægur hann er.  En svo tekur bara við þetta venjulega.  Þangað til þá, hafið það gott, knús á ykkur, og ég segi bara góða nótt. Heart

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gott að þið áttuð góða helgi Ásthildur mín.  Þið hafið fengið fallegt veður. Ég kom þarna í fyrsta skipti s.l. sumar og fannst mjög fallegt.

Ekki hafa áhyggjur af kommenta leysi

Sigrún Jónsdóttir, 6.10.2008 kl. 00:51

2 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég kannast við svona fjársjóði. Hér eru margar krukkur af skeljum og steinum sem stelpurnar meðhöndla eins og gull. Heimurinn væri betri ef við mundum njóta betur þess smáa. Gaman að þið áttuð góða helgi. Ég segi eins og nafna mín, ekki hafa áhyggjur af kommenta leysi. Þú gefur okkur hinum mikið með sögunum þínum og myndum. Góða ferð suður.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.10.2008 kl. 01:15

3 identicon

Sæl Ásthildur mín.

Það er eins mð mig og marga aðra "Tímabundið" að koma við að kvitta.

Þetta eru fallegar myndir úr Reykjanesinu. mér finnst svo gaman að sjá börnin hvað þau eru tilbúin í .það er sama hverju þau lenda í, allt skal klára eftir getu.

Heyrumst.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 04:20

4 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 6.10.2008 kl. 06:35

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Yndislegur staður!

Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 07:10

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Kærleikur til alls lífs og þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 08:29

7 identicon

Gaman að sjá hvað ykkur hefur liðið vel. Reykjanes er yndislegur staður og paradís fyrir kayakafólk. Pollinn minn kom þarna óvart í fyrra þegar námskeið stóð yfir. Og meðan matartíminn stóð yfir var einn sem tók að sér að kenna honum og fleirum sem komu í laugina að róa og snúa sér. Þetta var toppurinn í ferðinni. Ef þú átt stund í suðurferðinni væri æði að fá að sjá þig.

Dísa (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 08:39

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul.  Já Reykjanes er paradís okkar hér.  Dísa mín ég skal reyna að kíkja við.  Málið er að það verður mikið um fundi og slíkt.  En ég hef allavega samband.  Knús á ykkur öll. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.10.2008 kl. 09:52

9 Smámynd: G Antonia

Yndislegar myndir eins og ávallt og falleg og skemmtileg skrif. Innlitskvitt og góðar kveðjur frá Reykjanesbæ :-)**

G Antonia, 6.10.2008 kl. 09:54

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég gapi og klökkna nánast yfir náttúrufegurðinni þarna hjá þér kona.

Ásthildur með sundhettuna getur gengið frá mér þessi krakki.

Og ég ítreka við þig Ásthildur Cesil Þórðardóttir, það er ekki og á ekki að vera skylda að lesa blogg, hvað þá heldur kvitta út um allt.  Bloggið er skemmtun og ekki kvöð og ekki láta þér líða illa yfir því að þú skulir ekki vera í 10 eintökum.

Ég hinsvegar hef stundum alltof mikinn tíma og þá les ég gjarnan blogg.  En ég kíki alltaf á þig vegna þess að þú ert með ævintýralega skemmtilegt myndefni kona góð.

Og mér þykir vænt um þig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2008 kl. 10:03

11 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Hrrrrrikalega væri ég til í að vera í Reykjanesi núna. Þetta er æðislegur staður, stærsti heiti pottur landsins, fjaran og umhverfið.

Knús í kúluna. 

Þ

Þórdís Einarsdóttir, 6.10.2008 kl. 10:52

12 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já þetta er yndislegt land og yndislegt fólk sem byggir það. Það er svo gaman að lesa hjá þér bloggið því þú hefur ekkert gleymt þessu eins og margir hafa gert. bestu kveðjur

Ragnhildur Jónsdóttir, 6.10.2008 kl. 14:01

13 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Elsku elsku Ásthildur mínég vil taka undir með henni elsku Jenný og er svo hjartanlega  sammála henni

 það er ekki og á ekki að vera skylda að lesa blogg, hvað þá heldur kvitta út um allt.  Bloggið er skemmtun og ekki kvöð og ekki láta þér líða illa yfir því að þú skulir ekki vera í 10 eintökum.

Knús á ykkur og ykkar yndislegu fjölskyldu

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.10.2008 kl. 17:49

14 Smámynd: Laufey B Waage

Þetta hefur greinilega verið gaman.

Laufey B Waage, 6.10.2008 kl. 20:11

15 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, lætur ekki smá pest aftra þér heillin, enda heyri ég að þú hefur endurnærst af ferðinni.

Bestu kveðjur valkyrja og svei mér ef nýtt myndamet hefur ekki verið slegið hjá þér!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.10.2008 kl. 21:56

16 Smámynd: Ísdrottningin

Laugin í Reykjanesi er allra meina bót og alltaf gaman að rölta um gömlu skólagangana og skoða myndirnar.

Frábærar og einlægar myndir og myndasögur af ykkur, börnunum og umhverfinu. 

Knús og takk fyrir.

Ísdrottningin, 6.10.2008 kl. 22:23

17 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Úff hvað þetta eru æðislegar myndir! Vinkonur mínar sem áður voru varla búnar að heilsa þegar þær sögðu: "Helga darling, are we making wöfflur today??" hef ég nú grunaðar um að koma gagngert til að sjá "The westfjördur drottning fabulous pictures"!  Gaman aðessu!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 6.10.2008 kl. 22:42

18 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Vá þessar myndir og gleðin, þetta er sko vítamín sprauta inn í daginn

Guðborg Eyjólfsdóttir, 7.10.2008 kl. 09:07

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Guðborg mín, mín er ánægjan.

Hehehe Helga Guðrún mín

Mín er ánægjan kæra Ísdrottning.

Takk Magnús minn, já svo sannarlega tókst mér að hrista þetta slen af mér.

Já Laufey mín þetta var virkilega skemmtileg ferð.

Já Jóna mín, lífið er gott, það er bara spurning um hvernig maður umgengst það, og hvaða afstöðu maður hefur. 

Takk elsku Linda mín.

Takk Ragnheiður mín.

Já Þórdís mín og næsta sumar verður fljótekið þangað þegar nýja brúin verður komin í gagnið. 

Elsku Jenný mín, einhvernvegin höfum við nú fylgst að í langan tíma, bæði hér og annarsstaðar, og vænt um þykjan er svo sannarlega þarna.  Mér þykir ótrúlega vænt um manneskju sem ég hef aldrei hitt.  En ég er nefnilega viss um að við getum síður leynt sjálfinu í okkur með þessum skrifum, en í raunveruleikahitting.  Hér erum við raunverulegri en í raunveruleikanum.

Takk elsku G.Antonía mín.

Hjartan þakkir fyrir hve þið eruð alltaf góð við mig.  Og svo sannarlega getið þið glatt mig ótrúlega mikið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.10.2008 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband