veður og annað.

Við skulum ylja okkur smástund við brosandi blóm í grámanum.

IMG_2462

Falleg smárós í sínu fegursta pússi.

IMG_2464

Þessi orðin klár til átu. slurb.

IMG_2465

Prímúlurnar blómstra oftast þegar enginn annar er í blóma.  Og fallegar eru þessar elskur.

IMG_2466

Drottning blómanna, að blómstra í þriðja sinn.

IMG_2467

Veðrið var fallegt í gær, nú er snjókoma og allt orðið hvítt.

IMG_2468

en það verður einhvernveginn allt svo skýrt í kuldanum.

IMG_2469

Eins og sjá má.

IMG_2472

Og nú er gott að hafa gerfigrasvöll, til að æfa sig á.

IMG_2473

Þetta er svolítið skondið, við vinnufélagarnir erum búin að spá í það í allt sumar hvaðan þessi leki kemur, þarna eru engar leiðslur, eða opin rör, samt hefur lekið þarna út í allt sumar, meira að segja meðan ekki kom dropi úr lofti, rann þetta endalaust svona.  Hvaðan sem þetta kemur, er okkur hulin ráðgáta.

IMG_2475

Haustlitirnir eru veisla fyrir augað og sálina.

IMG_2476

Og hér eru rætur bloggvinar míns Jóns Steinars.

IMG_2485

Og fjöllinn í Súgandafirði eru kraftmikil eins og önnur verstfisk fjöll.

IMG_2477

Og hér er hann Trausti með ömmu sinni.

IMG_2479

Maður þarf að fara í gó... þegar afi kemur að sækja mann.

IMG_2480

En Hanna Sól þurfti að ljúka við að pússla, áður en hún fór heim.

IMG_2482

Svo þarf maður úlpu, því nú er kalt úti.

IMG_2483

Og maður þarf að fá sér klaka, þó það sé kalt.

IMG_2484

Nammi namm...

IMG_2488

Svo fengu þau Hanna Sól og Sigurjón Dagur að fara að veiða með Júlla. Og fengu fiska.

IMG_2490

Jamm aldeilis veiði, hjá Sigurjóni Dag, en fiskurinn hennar Hönnu Sólar er náttúrulega fyrir Brand.

IMG_2492

Svo þurfti að sýna afa aflann auðvitað.

IMG_2491

Hér er svo Tinnfríður Fjóla, besta vinkona. 

IMG_2498

Og Óðinn Freyr kom í heimsókn, taktu fyndna mynd af mér amma!!!LoL

IMG_2499

Hann var að gera verkefni í skólanum og vantaði mynd af sér, og það er náttúrulega enginn sem tekur myndir nema amma sín.

IMG_2506

Hér er svo bleika prinessuherbergið.

IMG_2508

Skottið í baði.

IMG_2510

Svo þarf að þurrka manni, og þá er maður klár í svefninn.

IMG_2512

Já þessar elskur eru flottastar. Heart

Eitt gullkorn að lokum úr smiðju Matthildar bloggvinkonu;

Hrukkur, vinnulúnar heldur, slit og skalli sýna lífið. Undarleg þau skilaboð nútímans að reynsla og þekking séu góð en árin sem það tekur að öðlast reynslu og þekkingu skulu ekki sjást utan á okkur  

Wrinkles, vorking hands, boldness show live. Funny message that nowlegdes and experience is good, but the years it takes to earn theme must not show.

Eigið góðan dag elskurnar.  Ég er á leiðinni inn í Reykjanes á eftir, við förum öll fjölskyldan, það er Kajaksamkoma þar.  Og við ætlum að skella okkur, strákarnir með kajaka, við stelpurnar ætlum bara að hafa það notalegt saman. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þær eru alveg stórkostlegar andstæðurnar, sem þú sýnir okkur, haustið í  allri sinni dýrð og rósir (innandyra) í fullum blóma.

Jóhann Elíasson, 3.10.2008 kl. 13:13

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Tek undir með Jóhanni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2008 kl. 13:16

3 Smámynd: Brynja skordal

Yndislegar myndir hafið góða ferð og skemmtun í Reykjanesinu og ljúfa helgi Elskuleg

Brynja skordal, 3.10.2008 kl. 13:20

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 3.10.2008 kl. 13:38

5 Smámynd: Laufey B Waage

Farið varlega í hálkunni. Góða helgi.

Laufey B Waage, 3.10.2008 kl. 14:08

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góða helgi!

Sunna Dóra Möller, 3.10.2008 kl. 14:57

7 identicon

Góða helgi öll sömul. Bið að heilsa litlu prinsessunum :)

kv. frá Hellu, ,,stóra systir"

Hjördís Pétursd (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 15:14

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Bestu kveðjur vestur mín vaska!

Góða skemmtun um helgina og eigðu nú fína stund með kallinum!

Magnús Geir Guðmundsson, 3.10.2008 kl. 16:18

9 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Flottar myndir eins og alltaf hjá þér. Góða skemmtun á kajaksamkomu.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 3.10.2008 kl. 17:00

10 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Yndislegar rósirnar þínar, bæði blómin og börnin

Ragnhildur Jónsdóttir, 3.10.2008 kl. 17:11

11 Smámynd: Helga skjol

Þú ert algjör snillingur með vélina kona og það er alltaf jafngaman að kíkja til þín.

Knús á línuna

Helga skjol, 3.10.2008 kl. 19:04

12 identicon

æðislegt að fá að sjá blómin þín þegar snjórinn er úti. Líka ömmublómin glöð og kát. Smmála þér með hendurnar, hrukkurnar og skallann. Ég hef unnið fyrir öllum mínum hrukkum og er stolt af þeim. Vona að ykkur verði hlýtt í Reykjanesinu, alla vega í lauginni og sjónum næst landi í Hveravíkinni.

Dísa (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 19:22

13 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Mikið er gaman að sjá smá sumar ennþá í kúlunni hjá þér. Hér var bylur í gærkvöldi og bóndinn þurfti að moka frá bílnum svo ég kæmist í vinnuna. Ansi mikið vetrarlegt. Hvað afa-og ömmubörnin eru alltaf yndisleg. Myndirnar þínar eru líka svo frábærar. Það er svo mikil saga í þeim og líf. Hafðu það gott á Reykjanesi og knús og kveðjur á ykkur öll héðan úr Þorlákshöfn. Góða helgi.

Sigurlaug B. Gröndal, 3.10.2008 kl. 20:18

14 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Góða ferð í Reykjanes. Rosalega væri ég til í að liggja í sundlauginni þar í smá stund.

Kv. Þ

Þórdís Einarsdóttir, 4.10.2008 kl. 12:25

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er gott að koma til þín núna. Góða ferð og góða helgi elskuleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.10.2008 kl. 16:39

16 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Æðislegar myndir.. úff hvað mig langaði í fiskinn!  Og dularfulla vatnið sannar bara það sem við höfum alltaf vitað; Ísafjörður er upprennandi!

Lördaxknúz áðig, Vestfjarðarblómið mitt!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 4.10.2008 kl. 19:00

17 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 4.10.2008 kl. 19:32

18 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 5.10.2008 kl. 00:25

19 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 5.10.2008 kl. 11:19

20 Smámynd: kidda

Líst miklu betur á efstu myndirnar hjá þér núna Mér finnst það skelfileg tilhugsun að veturinn sé kominn, loksins þegar ég hef tíma til að sinna haustverkunum.

Hafið það gott á Reykjanesi.

Knús

kidda, 5.10.2008 kl. 12:16

21 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og yndislegar kveðjur inn í nýja viku

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.10.2008 kl. 17:30

22 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Æðislegar myndir.

Held að þið séuð flottustu og duglegustu amma og afi sem nokkurt barn gæti hugsað sérvona að ég verði svona dugleg í ömmuhlutverkinu sem er að bresta á hjá mér.

Eyrún Gísladóttir, 5.10.2008 kl. 18:02

23 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég held að ég sofi alltaf betur eftir að kíka hérna inn.

Steingrímur Helgason, 6.10.2008 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband