Veturinn gekk í garð í nótt.

Það er alhvítt hér fyrir vestan.  Litlu dúllurnar mínar eru heima, því Ásthildur ældi í alla nótt.  Svo skemmtilegt sem það nú er, og amman vakti og vakti.  Maður er því ekki í neitt sérstöku formi þennan daginn.

IMG_2433

Vonandi bara smáskot.

IMG_2434

Já heldur hráslagalegt ekki satt ?

IMG_2412

Afi og Hanna Sól ræðast við fyrir matinn.  Hún þurfti að leita að Baby born dúkkunni sinni, og afi átti að hjálpa; ég hef svo miklar áhyggjur af henni, sagði Hanna Sól. Smile Hún fannst svo undir rúminu hennar.

IMG_2415

Úlfur í fánahyllingu, meðan Vallander lék lausum hala í sjónvarpinu.

IMG_2414

Sú stutta var hress í gærkveldi.

IMG_2419

Það er gaman að leika hott hott á hesti með afa.

IMG_2424

Hehehehe..

IMG_2426

Ú og púrrað í hálsakotið.

IMG_2427

Já ekki að sjá á henni mikinn veikindasvip þessari elsku.

IMG_2431

Svo þurfti líka að greiða ömmu sinni.

IMG_2432

Það var mjög vel gert eins og sjá má.

IMG_2436

Svo þurfti að koma barninu í svefninn. 

IMG_2417

Þessar prinsessur eru í herberginu hennar Hönnu Sólar.

IMG_2437

En hún kemst ekki út að leika í snjónum, því stígvélin hennar eru á Suðureyri, og gallinn var orðin of lítill, svo nú þarf að kaupa nýjan vetrarfatnað.  Hver vissi að veturinn kæmi í dag W00t

IMG_2438

Sú stutta fór nú samt út í kerruna sína til að sofa. 

En nu þarf að sinna henni, því hún er vöknuð og voða lystarlaus, en samt svöng, skiljanlega. 

Eigið góðan dag elskurnar.  Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 1.10.2008 kl. 15:37

2 identicon

Ææ, ælupest er með því leiðinlegra, bæði að fá hana og hjúkra sjúklingunum. Vonandi hressist hún fljótt og líka óskandi að aðrir taki ekki við. En það hefur verið gott að hafa ömmu í nótt og líklega lítill friður hjá ömmunni.

Dísa (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 15:37

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Það á eftir að hlýna aftur og þetta verður vonandi mildur vetur, eins og frómir spámenn hafa víst látið hafa eftir sér.

Þú ert bara aðeins úr formi, lagast, ert svo formfögur að upplagi!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.10.2008 kl. 15:58

4 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 1.10.2008 kl. 16:36

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Dettur bara í hug: sumarið er farið það fraus í hylnum eins og hvítt lín kom fyrsti snjórinn í nótt.

Knús vestur í veturinn

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.10.2008 kl. 16:59

6 Smámynd: Linda litla

Mér snarkólnaði við að sjá fyrstu myndina...... brrrrr, vetur konungur mættur til ykkar. Ekki öfunda ég ykkur, ég þoli ekki snjó, kulda og frost. En það styttist í þetta hjá okkur hérna fyrir sunnan.

Bestu kveðjur í snjóinn til þín.

Linda litla, 1.10.2008 kl. 17:16

7 Smámynd: Laufey B Waage

Jedúddamía. Bara allt orðið hvítt. Hér syðra er ískaldur vindur, mér finnst það nú alveg nóg.

Laufey B Waage, 1.10.2008 kl. 18:29

8 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Vona að skottan sé búin að ná sér. Sem betur fer ganga þessar gubbupestir fljótt yfir. Snjórinn bara mættur hjá ykkur! Hér er orðið ískalt en ætli komi nokkuð snjór hér alveg strax..Knús á ykkur.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 1.10.2008 kl. 18:46

9 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 1.10.2008 kl. 19:22

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Úff nú kom smá hrollur þó ég elski snjóinn

Solla Guðjóns, 1.10.2008 kl. 20:10

11 identicon

Ég reyni ítrekað að vera jákvæð þegar ég horfi upp í Hliðarfjall og Vaðlaheiðina þessa dagana en gengur ekkert of vel. Ég verð víst seint talin vetrarbarn. Hafðu það sem best þarna í vestrinu

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 20:22

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Brrrr. Kuldalegt hjá ykkur núna.

Helga Magnúsdóttir, 1.10.2008 kl. 20:44

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er brrrr kalt hérna líka.

Vonandi er gubbupestin afstaðin, en hún á það nú til að "dreifa úr sér".

Knús á ykkur öll í Kúluhúsi

p.s. bréfið hans Guðmundar var mjög gott.

Sigrún Jónsdóttir, 1.10.2008 kl. 20:45

14 Smámynd: Elín Helgadóttir

Vá.........

Gleðilegan vetur ásthildur !  og megi hann vera eins og best er á kosið fyrir þig og þína...  sem og aðra.

Hér er KALT en enginn snjór.

Elín Helgadóttir, 1.10.2008 kl. 21:09

15 Smámynd: Jóhann Elíasson

Úff mér varð bara kalt þegar ég sá myndirnar af þessu hvíta en óskaplega er nú notalegt í kúlunni í það minnsta sé ég ekki annað.

Jóhann Elíasson, 1.10.2008 kl. 21:31

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brrrrrrrrrrr

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.10.2008 kl. 23:53

17 identicon

Eiginleg finnst mér fyrstu tvær myndirnar skelfilegar

Knús í kúluna

Kidda (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 00:12

18 identicon

Sæl Ásthildur mín.

Já kuldalegt er á heimaslóð. Vonandi er sú stutta orðin hress af pestinni.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 05:45

19 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Ómæ bara allt hvítt góðan bata á litlu Dúlluna.

Eyrún Gísladóttir, 2.10.2008 kl. 09:05

20 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Hehe, ég var greinilega of fljót á mér í gær. Það var allt hvítt hér í morgun!

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.10.2008 kl. 09:45

21 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

mér finnst þetta bara alveg hræðilega huggulegt !!! snjór og innidagur, ekkert betra.

knús á þig og þína

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 2.10.2008 kl. 10:39

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig til baka Steinunn mín.  Já þetta er svo sem bara huggulegt að vera inni með stelpunum og hygge sig. 

Sigrún mín, já sem betur fer, þá fer snjórinn vel með gróðurinn, það er aftur á móti þurra frost og næðingur sem er verstur.  En nú þarf að fara að huga að vetrargöllum og kuldaskóm á liðið mitt. 

Takk Eyrún mín, hún var spræk í morgun, og þær fóru báðar á leikskólann. 

Já Þói minn, hún er alveg orðin hress, sú stutta, og við hin ekki fengið þetta ennþá sjö níu þrettán...  Í þessum skrifuðu orðum brýst sólin fram. 

Hehehe Kidda mín, bíddu bara   Annars er ég að koma suður á mánudaginn í stutt stopp, á ég að hafa fjólurnar meðferðis ?

Já Jenný, þetta er kuldalegt.  En gæti verið verra, þurra frost og næðingur er verri. 

Já Jóhann minn, það ER notalegt í kúlunni hjá okkur öllum.

Takk Elín mín, já það á að hlýna eftir helgina, svo þetta er víst bara smáskot.

Takk Sigrún mín, pestin hefur ekki dreyft sér ennþá, og vonandi losnum við hin við hana.  Það kemur í ljós á næstu klukkutímum hef ég trú á

Knús á þig mín kæra.

Ójá Helga mín, víst er það, en nú skín sólin aftur. Og þá birtir allt upp.

Anna min, já ætli við verðum ekki bara að vera í Pollýönnuleik  Ef ég kem hauslaukunum niður fyrir frost er ég ánægð, því kuldinn þýðir slökun fyrir mig, þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af haustverkunum lengur.  Og hef jafnvel meiri tíma fyrir ykkur elskulegu bloggvinir mínir. 

Já Solla mín, þýðir að við þurfum að klæða okkur betur ekki satt ?

Knús til baka Helga mín .

Jamm stóð ekki lengi Sigrún mín.

Laufey í raun er ískaldur vindur verra en snjókoma á allan hátt elskuleg mín.

Kveðja til þín líka Linda mín, já sem betur fer spáir hann hlýjindum eftir helgi, svo kannske sleppið þið um hríð enn.

Knús á móti Hulda mín, já frostið læddist að manni, en vonandi hlýnar aftur eftir helgi eins og spáð er.

Knús í knús Brynja mín.

Knús á móti Ditta mín.

Magnús hehehe  smjaðrarinn þinn  Já ég vona að þessi vetur verði mildur, gott að vita að svo hafi verið spáð.

Takk Dísa mín, já þetta var frekar svona ekki nógu skemmtilegt, allt útælt, greyið litla, svo vildi hún ekkert drekka, og að lokum kom bara gall.  Ótrúlegt hvað hún var samt dugleg og góð þessi elska.  En aðrir á heimilinu hafa ekki fengið þetta enn, veit ekki hvort ég á að segja því miður eða sem betur fer, vonandi sleppum við hin þó alveg.

Knús Hrönn mín, ég kem í bæinn á mánudaginn, er að hugsa um að hafa fiskinn meðferðis.  Verð í sambandi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.10.2008 kl. 11:52

23 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Batakveðjur til dúllusnúllu ömmunöfnustelpu!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 2.10.2008 kl. 12:47

24 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Helga Guðrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.10.2008 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband