29.9.2008 | 12:52
Smá mömmublogg og bréfið hans Guðmundar.
Smá mömmublogg, svo langar mig til að setja hér inn frábæra grein frá Guðmundi Hagalínssyni, formanni eldri borgara í Önundarfirði, þar sem hann svarar Ástu Möller. Þar koma fram ýmsar upplýsingar, sem fólk ætti að vita af.
Mágkona mín kíkti við í gær og var með skemmtilegar gjafir handa stelpunum, en það eru óróar frá Indíjánum, sem hrekja vonda drauma í burtu.
Þessir kíktu líka við. Júlli fór svo í fjöruferð með Hönnu Sól og Sigurjón, hann er að leita að grjóti í fiska, hann ætlar fljótlega að opna sýningu í Edinborg.
Amma þurrka !!!
Sjáðu !! litla sullukollan mín.
Sunnudagslærið skorið.
Þórunn fór í morgun, og það var mikill spenningur að burðast með töskuna hennar.
Amma ég vil ekki fara á leikskólann.
En hérna kemur bréfið hans Guðmundar:
Ísafirði 23. september 2008. Mánudaginn 15. september og miðvikudaginn 17. sama mánaðar, litu dagsins ljós á síðum Morgunblaðsins tvær greinar eftir frú Ástu Möller alþingismann og formann heilbrigðisnefndar Alþingis. Mig langar til að velta fyrir mér ákveðnum þáttum er tengjast greinum frú Ástu fyrir mér. Frú Ástu og öðrum til íhugunar. Að sjálfsögðu ber að þakka það er færst hefur til betri vegar, en ég mun að sjálfsögðu benda þar frú Ástu á það óréttlæti er snýr beint að okkur eldri borgurum. Frú Ásta talar um það í greinum sínum að allar þær lagfæringar sem orðið hafa á tryggingakerfinu séu gerðar undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Var það ekki undir stjórn Sjálfstæðisflokksins sem tekið var úr sambandi það ákvæði að miða laun aldraðra við lægstu laun verkamanns? Sem var afnumið á Alþingi á vordögum að mig minnir 1995. Hvað varð um byggingu hjúkrunarheimilanna sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra Jón Kristjánsson skrifaði upp á að yrðu byggðar í tíð stjórnar Davíðs Oddssonar?Minna má á samkomulag Ásmunarnefndarinnar sem skipuð var í tíð stjórnar Sjálfstæðisflokksins, og segja má að stjórn LEB hafi í raun verið neydd til að skrifa undir, eftir fund með formönnum aðildarfélaganna að Stangarhyl 4 í júlímánuði 2006.Því þar var okkur tjáð að ef við myndum ekki undirrita samningsdrögin eins og þau lægju fyrir að öllu leyti, gætum við farið heim og yrðum við þá á byrjunarreit. Þessir samningar voru samykktir og nú skulum við rifja upp hvað í þeim stóð. Hvað varðar uppbyggingu hjúkrunarheimila 2007, 200 hjúkrunarheimili. 2008, 500 heimili, 2009, 900 heimili, 2010, 900 heimili.Þess vegna er ekki úr vegi að spyrja þig frú Ásta, er þetta samkomulag sem LEB skrifaði undir í góri trú, að haldið yrði við, eitthvað í samræmi við að sem þú frú Ásta ert að guma af að eigi að gera af núverandi ríkisstjórn til ársins 2010?Í upphafi talaði ég um það að það bæri að þakka það sem vel væri gert, og að sjálfsögðu er það spor í rétta átt að lofa fólki 67 ára og eldri að halda áfram að vinna án skerðingar tryggingabóta.Nú væri ekki úr vegi að spyrja þig frú Ásta, hvaða vinna er í boði fyrir okkur sem búum í sjávarþorpunum út um allt land, þar sem fiskveiðistjórnunarkerfið eins og það er, er við líði, og ef auglýst er eftir starfskrafti á þessu aatvinnusvæði, þá er háskólaprófs krafist. Nú er rétt að velta fyrir sér skerðingarákvæði tryggingabóta. Frú Ásta bendir réttilega á það að skerðingar hafi lækkað úr 67% frá síðustu aldamótum 25% 1. apríl 2008. Frú Ásta setur up dæmi um einstakling sem leysir út kr. 500.000.- úr séreignalífeyrissjóði og segir að skerðingin sé 248.000.-, en getur þess ekki að 35% skattur er af þessum 500.000.- og eftir því telst mér til að viðkomandi einstaklingur eigi eftir kr. 73.500.-, Það er rétt að vekja athygli frú Ástu og annara á því að ef einstaklingur eða hjón eiga sumarbústað eða einhverjar eignir, og hafa ekki náð að losa sig við þær fyrir 67 ára aldur, þá hirðir ríkið 60% í gegnum skatta og skerðingar af uppgefnu söluverði. Í dag borga ellilífeyrisþegar 35.72% skatt af lífeyristekjum og til viðbótar 25% skerðingu tryggingabóta. Það væri vissulega ánægjulegt frú Ásta ef þú gætir upplýst okkur eldri borgara um það hvaða lög það eru sem heimila þá eignaupptöku á lífeyristekjum og af fasteignum og öðru því er eldri borgarar vilja selja og nota sem viðbótarlífeyrir?Í lok þessarar greinar langar mig til að fara nokkrum orðum um tilurð lífeyrissjóða, í fyrsta lagi eru ákveðin % af launum og framlag atvinnurekenda, lífeyrissjóðirnir ávaxta sig á ýmsan hátt. Það er nánasat nokkuð víst að um 50% af greiðslum lífreyrissjóðanna er tilkomið í gegnum vexti og verðbætur, þess vegna væri eðlilegt að um mun lægri skattprósentu væri að ræða á lífeyristekjur til dæmis 15%.Að lokum frú Ásta væri ekki úr vegi að þú sæir þér fært að halda fund með okkur eldri borgurum svo við fengjum tækifæri til að fræða þig á því óréttlæti sem lögleitt var undir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins er mér telst til á 18 ára valdaferli Sjálfstæðisflokksins. Guðmundur B. Hagalínsson 425 Flateyri.Fyrrverandi bóndi. Formaður félags eldri borgara í Önundarfirði.Eigið góðan dag elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 61
- Frá upphafi: 2023214
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Pabbi minn elskulegur er svo rífandi pirraður á þessu blessaða kerfi að hann sagði við mig í síðustu viku "nú tek ég út þann aur sem ég á og hendi honum í sjóinn" maður má aldrei spara eða vera fosjáll, allt étið upp. Kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 29.9.2008 kl. 12:58
Sæl Ásthildur.
Allir vildu Lilju hafa kveðið, dettur mér í hug við lestur þessa bréfs.Veistu það að mér verður stundum óglatt,og þá er ég ekki í rökræðuham,ég held að þú áttir þig á því hvað ég meina.
Góðar stundir.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 13:11
Vona að Frú Ásta Möller svari þessu bréfi með sannleikann að leiðarljósi.
Knús
Kidda (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 17:31
Eyrún Gísladóttir, 29.9.2008 kl. 18:29
Það er ótrúlegt óréttlætið sem fólk þarf að þola.
Guðmundur Hagalínsson er hreint frábær.
Knús á ykkur í kúlunni
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 29.9.2008 kl. 23:15
Krúttlegar myndir eins og vanalega hjá þér Ásthildur. Knús til þín á Ísafjörð
Guðborg Eyjólfsdóttir, 30.9.2008 kl. 10:58
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 30.9.2008 kl. 17:01
Blóðþrýstingurinn í mér rýkur upp við svona lestur og mig langar að standa upp og halda ræðu
Takk fyrir krúttmyndir. Knús á ykkur. 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 1.10.2008 kl. 00:26
yndislegt að vanda. ég verð líka með sýningu í edenborg, með morten, ole og ráðhildi !
kærleikur til fallegrar konu
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.10.2008 kl. 06:43
þarft bréf hjá karlinum sem frú Ásta getur ekki skorast undan að svara.
Ég verð eins og svo margir alveg úthverf að reiði þegar kemur að þessum málum.
Solla Guðjóns, 1.10.2008 kl. 13:16
Takk öll sömul, já hvernig er hægt að mismuna fólki svona eftir aldri ? Hvernig voga stjórnvöld sér að arðræna þá sem komnir eru yfir ákveðin aldur, stendur ekki í stjórnarskránni að ALLIR EIGI AÐ HAFA SAMA RÉTT HÉR Á LANDI ?
Þetta er ekkert annað en viðbjóður og hana nú!!!
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.10.2008 kl. 15:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.