28.9.2008 | 15:34
Prinsessur og annað fólk.
Þórunn og Guðjón Arnar eru farin á fund með eldri borgurum sem hér er haldinn í dag í stjórnsýsluhúsinu. Ég ungamamman fór aftur á móti heim í kúluna. En Júlli minn er svo farin í fjöruferð með Sigurjón Dag og Hönnu Sól, og Ásthildur fékk að fara í heimsókn til Inga sonar míns. Svo hér er allt með kyrrum kjörum smástund.
Haustlitirnir verða alltaf skýrari og skýrari. Og fegurðin og litadýrðin eykst.
Himnagalleríið var líka opið í gær, og sendi magnaðar myndir niður til okkar.
Hér er Solla stirða komin á ný
Jamm hún er góð.
Hér er svo prinsessan í allri sinni dýrð, í hásætinu, Úlfur tók þessa mynd, og er líka útlitshönnuður.
Og í gær var prinsessuherbergið málað, bleikt, að ósk prinsessunnar, sú er ánægð.
Ævintýraprinsessan mín.
Og Úlfur er liðltækur við að mála.
Svo þarf að þrífa penslana og svoleiðis.
Ganga frá, og þá er nú gott að hjálpast að við verkin.
En ég og gestur minn, hún Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, fórum í bíltúr á Flateyri, og skoðuðum dúkkusafnið þar. Það er algjörlega frábært safn af dúkkum, sem var gefið til Flateyrar. Þar er líka hægt að kaupa sér kaffi og með því. Og kaupa frábærar handunnar vörur, bæði ullarfatnað, dúka og allskonar fallega muni sem konurnar gera sjálfar.
Þarna er margt fallegra muna til sölu. Þið megið ekki láta brúðusafnið á Flateyri fram hjá ykkur fara, og ekki gleyma bókabúðinni, svo er hægt að kaupa harðfisk hjá henni Guðrúnu Pálsdóttur, og jafnvel fara í róður með þeim hjónum. Það er margt hægt að gera á Flateyri, þessu fallega þorpi við ysta haf.
Það þarf að gefa sér góðan tíma til að skoða allar þessar frábæru dúkkur, sem þarna eru til sýnis.
Þær eru af öllum stærðum og gerðum, og allstaðar að úr heiminum.
Þessi er dálítið skondinn hehehehe.
Flottar ekki satt ?
Fyrirfólk og þjóðarbrot.
Þessar greinilega komnar langt að.
Þetta er bara brot af öllum þessum flottu brúðum, sem safnið býður upp á. Og svo eru hnallþórur og allskonar meðlæti með kaffinu, allt heimabakað af miklum myndarskap safnhaldara.
Litla skottið að borða rúsínur.
Ömmusnúlla
Guðjón Arnar er maður með mikla útgeislun, og börnin eru alltaf best í að dæma um það. Það væsir ekki um Ásthildi á hnjánum á honum.
Já það var ýmislegt rætt við eldhúsborðið hjá mér í morgun. Margt bæði viturlegt og gott, eins og vera ber.
En eigið góðan dag elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 2023212
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
yndislegar myndir að vanda, ég fæ alltaf svona heimilisró yfir mig þegar ég skoða og les bliggið þitt kæra kona.
Kærleikur til þín
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 28.9.2008 kl. 15:38
Góðar myndir. Alltaf gaman að sjá gömlu aflaklóna.
Jóhann Elíasson, 28.9.2008 kl. 15:45
Veistu Steina mín, að það er sama tilfinning hjá mér, við að lesa það sem þú setur inn, fullt af friði, kærleika og vitrunum. Kærleikskveðja til þín líka
Já hann er flottur hann Guðjón Arnar, og ég hugsa að sagan muni bera honum vel söguna Jóhann minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.9.2008 kl. 16:40
Hún Hanna Sól er á nákvæmlega sama stað og Jenný Una í prinsessufaraldrinum. Allt bleikt, prinsessukjólar eru þeir einu sem barnið fer í nema með eftirgangsmunum.
Ætli þetta standi lengi yfir?
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2008 kl. 16:51
Ég skal hundur heita ef hún Hanna Sól verður ekki fegurðardrottning og fyrirsæta og svo vitanlega sprenglærð framakona.
Ég þarf að drífa mig til Flateyrar, rak augun í flottar uglur í einni hillunni. Ég safna nefnilega uglum.
Helga Magnúsdóttir, 28.9.2008 kl. 16:54
Knús knús kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.9.2008 kl. 17:38
Alltaf gaman að skoða bloggið þitt. Kærleikskveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 28.9.2008 kl. 18:10
Auðvitað verða prinsessur að eiga bleikt herbergi. Jenný Anna spyr hvað bleiki faraldurinn standi lengi yfir. Ég á vinkonu sem er rúmlega fertug og hún er ennþá svona, hehe. Knús á ykkur.
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 28.9.2008 kl. 18:33
Kannast við þennan bleika prinsessutíma, mínar voru svona báðar og sú yngri á stundum afturhvarf í þann tíma, erfitt að hætta
Takk fyrir skemmtilegar myndir. Knús
Huld S. Ringsted, 28.9.2008 kl. 22:26
Ofsalega skemmtilegar myndir. Fær mig til að muna eftir tímanum sem ég bjó í Eyjum. Mikið getur það nú verið gott að búa í sveitinni :-)
Hildur Sif Thorarensen, 28.9.2008 kl. 23:19
Mikið var gaman að skoða þessar myndir. Tek undir orð þín um Guðjón.
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 01:50
Takk Anna mín.
Já Hildur mín, það er svo sannarlega gott að búa þar sem maður á sitt eigið pláss.
Huld mín, það er gott að vita að hún vex upp úr þessu bleikatímabili.
Knús Ditta mín.
Hehehe Sigrún mín, já það er spurning hvort hún verður önnur Barbara Cartland

Kærleikskveðja til þín líka Ásdís mín.
Vonandi ertu á góðu róli til bata.
Knús á móti Linda mín.
Helga upplagt að koma við á Flateyri næst þegar þú ferð í víking til Þingeyrar alveg í leiðinni.
Hehehe Jenný, já það er spurning, eins og hér hefur komið fram, getur þetta varað í 40 ár eða svo

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.9.2008 kl. 10:22
Hef stundum komið við í safninu á Flateyri á ferðum mínum vestur.
Knús í hamingjukúluna
Kidda (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.