Veðrið á Ísafirði og smá mömmublogg.

Mömmukrúttfærsla.

IMG_1668

Það er verið að borða morgunmatinn hérna, Ásthildur vill fá bita líka LoL

IMG_1670

Svo er verið að gera sig klára í bílinn, og það er gott að hafa kexköku til að maula á leiðinni.

IMG_1673

Á Suðureyri eru svo ungar á tjörninni, þeir koma hlaupandi þegar maður birtist, og nú ætlar amma að hafa með sér brauð til að gefa þeim.

IMG_1676

Svanirnir eru farnir suður á bóginn. 

IMG_1679

Og í gær var Hanna Sól umsjónarmaður á leikskólanum, það er mikið ábyrgðarstarf, sem hún hefur áreiðanlega sinnt með miklum sóma.

IMG_1680

Litla skottið komin á leikskólann.

IMG_1682

Við fórum svo í sund eftir leikskólann.  Úlfur kom með sem sérlegur aðstoðarmaður.

IMG_1684

Hann er nefnilega rosalega duglegur að hjálpa ömmu sinni með stelpurnar.

IMG_1683

Eftir sundið var haldið heim á leið.

IMG_1688

Já það er fjör.

IMG_1690

Afi kennir þeirri stuttu að vaska upp !

IMG_1692

Og nú getur hún þetta alveg sjálf, enda rosalega gaman að sulla LoL

Veðrið er dásamlegt dag eftir dag.

IMG_1678

Hlýtt logn og friður.

IMG_1681

Gaman að sjá allt speglast í firðinum.

IMG_1699

Og tilkomumikið listaverkið sem umlykur allan pollinn, þegar fjöllin speglast í honum.  Það kemur yfir mann ró og friður.

IMG_1696

En þetta er næstum dagleg sjón hér á sumrin, sérstaklega á morgnana.

IMG_1700

Eigið góðan dag elskurnar.  Ég verð að biðjast afsökunar á hve ég hef lítið verið á ferðinni, en það er bara svo mikið að gera hjá mér þessa dagana.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Þau eru svo miklar rúslur, góða helgi og takk í dag

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 5.9.2008 kl. 15:19

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krúttkast.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2008 kl. 15:21

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 5.9.2008 kl. 15:25

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mikið ertu lánsöm að Úlfur er svona duglegur að hjálpa þér.

Jóhann Elíasson, 5.9.2008 kl. 15:28

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Yndislegt Ásthildur mínEigðu góða helgi

Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2008 kl. 16:22

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis Katla mín.

Já Jóhann ég er mjög heppinn með stubbinn minn.

Knús Sunna Dóra mín.

Knús Jenný mín

Sömuleiðis Hulda mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2008 kl. 16:44

7 identicon

Rosalega ertu heppin að eiga Úlf, veit ekki hvernig þú færir að án hans. Það er auðséð að þær litlu líta rosalega upp til hans. Gott að eiga svona uppáhaldsfrænda.

Dísa (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 16:45

8 Smámynd: Laufey B Waage

Góða helgi. Góða skemmtum með fermingarsystkinunum.

Laufey B Waage, 5.9.2008 kl. 16:52

9 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.9.2008 kl. 19:24

10 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er ekki ónýtt hjá þér að hafa svona duglegan aðstoðarmann með þér. Svo sýnist mér Ásthildur vera orðin liðtæk líka  Það er heilmikil upphefð í því að vera umsjónarmaður á leikskólanum  Hafðu góða helgi Ásthildur mín.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 5.9.2008 kl. 19:31

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þau eru öll alveg yndisleg Ásthildur mín.  Skilaðu kveðju til unganna á tjörninni minni með einum brauðmolanum

Sigrún Jónsdóttir, 5.9.2008 kl. 22:59

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Laufey mín,  ég er farin að hlakka mikið til.

Knús á þig Linda mín.

Já einmitt hún er sko liðtæki í uppvaskinu sú stutta.  Fór líka á koppin sjálf í morgun og gerði stórt, og var ekki lítið hreykin.

Já Sigrún mín ég skal skila kveðjunni þinni til unganna á tjörninni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2008 kl. 09:47

13 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Innlitskvitt.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 6.9.2008 kl. 11:11

14 identicon

Sæl Ásthildur mín.

 Ég hef ekki miki verið að skrifa ,einhver óðaflensa hitti mig,og þá er ekki að spyrja ég virðist vera svo öruggt skotmark,en allt gengur yfir og ég er að hressast. Og þá er ein góð leið til bata og það er að kíkja á síðuna þína. Hún yljar mér alltaf.

Góð kveðja til þín og allra þinna.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 11:47

15 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 6.9.2008 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband