4.9.2008 | 12:10
Fermingarbörn Ísafirði, fædd 1944.
Kæru fermingarsystkini mín, nær og fjær. Eins og þið hafið vonandi öll frétt, þá ætlum við að hittast á 50 ára fermingarafmælinu okkar, hér á Ísafirði þann 13. September. Okkur hér fannst að það væri ekki hægt annað en að hittast á þessu merka ári. Og það gafst ekki tími í vor til að vinna að þessu. Við höfum svo nokkrar tekið okkur saman um að koma þessum hitting á núna í haust. Þ.e. Ég, Dísa, Þorbjörg, Ásgeir, og svo Guðjón Arnar og Maggi Reynir sem hafa hjálpar til og Óli Halldórs.
Meiningin er, að hittast um eitt leytið upp á bókasafni, gamla sjúkrahúsinu, ganga þaðan um bæinn okkar, fá að skoða kirkjuna ef einhver vill, og ef einhverjar aðrar óskir berast, verður reynt að verða við því. Síðan munum við öll fara til Óla Halldórs, og spjalla saman, þar verður eitthvað gott í boði, síðan verður matur að hætti Magnúsar Haukssonar í tjöruhúsinu kl. sex um kvöldið. Magnús er orðin þekktur langt út fyrir landsteinanna með sína frábæru fiskirétti og fleira. Ég þarf að fara að gefa honum tölu í hve margir ætla að mæta. Svo ég vil biðja þau sem lesa þetta, að koma til mín upplýsingum um þátttöku, eða til Tobbu eða Dísu.
Hér er ein mynd af okkur, við gamla barnaskólann, með kennurum.
Þessi var svo tekinn á síðasta hitting í krúsinni, fyrir fjórum árum síðan. Hér með mökum.
Það var rosalega gaman, og vonandi komast sem flestir til að taka þátt í gleðinni með okkur. En endilega látið vita.
Með bestu kveðjum Ásthildur.
P.S. það eru laus sæti í tveimur bílum vestur á föstudagskvöldið, og heim aftur seinnipart á sunnudegi, ef einhver vill nýta sér það, þá er bara að láta vita.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ertu sitjandi í fremstu röð lengst til hægri?
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.9.2008 kl. 12:17
Rosalega ertu glögg, Jenný. Sá þetta um leið og þú varst búin að benda á það.
Helga Magnúsdóttir, 4.9.2008 kl. 12:23
Já einmitt
Nýrri myndinn þriðja frá hægri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 12:27
Góða skemmtun
. Hvar er Addi Kitta Gau á gömlu myndinni?
Sigrún Jónsdóttir, 4.9.2008 kl. 12:46
Ætli hann sé ekki bara út á sjó
en Kristján Pálsson fyrrverandi alþingismaður er þarna fjórði frá hægri í annari fremstu röðinni, og svo er skattakóngur líka þarna standandi til vinstri, þetta er nú enginn slorhópur sko
Og tveir prestar til að blessa yfir okkur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 12:55
Nei mér sýnist hann vera þarna fjórði til hægri fremst fyrir miðri myndinni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 12:56
Ha, ha....Kristján hefur ekkert breyst...nema hárið
. Skrítið hvað hárlitur strákanna hverfur fljótt
.
Sigrún Jónsdóttir, 4.9.2008 kl. 13:04
Já skrýtið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 13:11
Ég var að koma af fundi með fulltrúum frá Jafnréttisstofu, þar sem var verið að kynna nýju jafnréttislögin (www.jafnretti.is)
Mér varð litið á kynjasamsetninguna í kennarahópnum og fæ ekki betur séð en að það hafi verið fiftí-fiftí
Ekki er þetta hún Kristín Jóhannesdóttir kennari sem stendur t.h. á myndinni? Það væri allav. með ólíkindum, þetta er nefnilega fæðingarárið mitt og hún virkar frekar fullorðin þarna
...samt, konur litu út fyrir að vera miklu eldri hérna áður fyrr...
Faktor, 4.9.2008 kl. 14:00
Æ hvað þið eruð nú sæt
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 4.9.2008 kl. 16:53
Mikið svakalega er gaman af þessari gömlu skólamynd.Ég þekkti þig Dísu og Adda strax alla kennarana ,minnir líka að ein heiti Sigga Bogga.Annars sit ég hér og tauta hver er þetta og hvað heitir þessi aftur.
ps.Villtu skoða færsluna mína Vestamanneyingar -Ísfirðingar og er um viðurnefni,,uppnefni og seigja mér hvað þér finnst.
Rannveig H, 4.9.2008 kl. 17:26
Faktor, í okkar árgangi voru bara tvær Kristínar, önnur Kristmundsdóttir, og hin Símonar Helga.
Takk Hulda mín.
Já ég skal gera það, Rannveig mín.
Arna já veistu að það er frábært. Það hefur aukist með árunum áhugi okkar á að hittast og spjalla, og mér er sagt að margir maka okkar séu nú þegar orðnir góður hluti af hópnum, og ekki síður spenntir að koma og hittast. Sem er frábært.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 18:50
Það er ofsalega gaman af þessum myndum , ég þekkti þig og Adda Kidda Gaui af neðri myndinni en engan af efri þó að ég hafi fengið hjálp. Mig vantar hann móðurbróður minn , hvar hann er á báðum myndunum , og hvar Dísa er einnig á báðum myndum?
Knús kveðjur og góða skemmtun
Elísabet Sigmarsdóttir, 4.9.2008 kl. 19:00
Já Elísabet mín hvar er Jónas ? Hann verður með á þeirri næstu, ég dreg hann fram fyrir myndavélina, ef ekki vill betur til
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 19:13
Kristín sem ég spurði um var kennari ekki nemandi
Faktor, 4.9.2008 kl. 21:06
...frekar ósenilegt, myndin hlýtur að vera eldri en fermingarárið ykkar
Faktor, 4.9.2008 kl. 21:08
Fyrirgefðu faktor mín, já þetta er Kristín kennari.
Átti heima á Seljalandsvegi 33, eða eitthvað, fór í aukatíma hjá henni í einhverju fagi, man ekki hvað. En hún var frábær kennari.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 21:19
Hahahaha já man ekki hvenær þessi mynd var tekin fékk hana hjá Þuríði Símonar, en sennilega erum við svona tíu ára eða eitthvað. Annars man Dísa þetta allt, hún man allt hún Dísa, hún hlýtur að koma hér inn bráðum, og segja eitthvað
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 21:21
Mig minnir að Kristín hafi einhvertíma átt heima í risinu á Túngötu 2, þegar Hafsteinn bankastjóri átti heima þar.
Rannveig H, 4.9.2008 kl. 21:31
Það getur verið, en þegar ég fór í tíma til hennar, átti hún heima í húsinu sem Ella systir Lúlúlar á í dag. Eða þar sem hún er núna.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 21:38
Ég fann þig strax á myndinni. Ég sá bara Báru sitja þarna og sá um leið að það værir þú
Gaman hjá ykkur að hittast svona og gera ykkur dagamun. 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 4.9.2008 kl. 23:05
En hvað með Dísu ? Þarftu að draga hana framm fyrir líka ? Ég get ekki séð hana.
Elísabet Sigmarsdóttir, 4.9.2008 kl. 23:31
Dísa mín er í þriðjuröð frá vinstri í peysunni með hvitu á öxlunum. Þar er Kristinn Lilli sýslumannssonur, og svo Oddur Guðmunds og kemur Dísa. svo Hanna, svo Rósa, Kistín Kristmunds, Þá Jóka, Iðunn, Erla og fleiri. Sennilega eru þessi skólasystkin mín ekki svo mikið í tölvum, og ef til vill lesa ekki svo margir bloggið mitt, en ef einhverjir sem þekkja til, börn eða vandamenn sjá þetta, þá bið ég um að þeir segi frá, og viðkomandi svari hér eða hafi samband. Knús á ykkur elsku skólasystkin mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2008 kl. 23:43
Ég man ekki hvaða ár þessi mynd er tekin, við höfum líklega verið tólf-þrettán ára. Nálægt því sem við kláruðum barnaskóla. Man bara eftir þessarri mynd í Vestanpóstinum fyrir mörgum árum, þá fengin frá Kristni. Man óljóst eftir að hún var tekin. Sé þig um helgina.


Dísa (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 09:45
Góða skemmtun Ásthildur mín - og kveðja til þeirra sem ég þekki í hópnum
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 5.9.2008 kl. 09:46
Já sjáumst Dísa mín.
Takk Ólína mín, og ég skal skila kveðjunni.
Gaman að heyra þetta Sigrún mín. Það hefur reyndar alltaf verið sagt að við séum líkar mæðgurnar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2008 kl. 10:09
Ía m mín, ég er búin að sjá Dísu á efri myndinni en kem ekki auga á hana á neðri myndinni . Svo mikið veit ég að Jónas er mikið hættur að vera í tölvunni en hann móðurbróður minn út í Nýja Sjálandi , hann Rósi fer reglulega inn á síðuna þína til að skoða myndirnar þínar.
Góða skemmtun á helginni og kveðjur á ykkur sem ég þekki
Elísabet Sigmarsdóttir, 5.9.2008 kl. 10:36
Góða skemmtun elsku Ásthildur mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2008 kl. 12:10
Takk Katla mín.
Gaman að heyra með Rósa, Elísabet mín, við vorum saman í hljómsveit hér í den. Ég hef heyrt að honum líði rosalega vel þarna úti á Nýja Sjálandi, bóndi þar, eins og Hjálmar, kúabóndi reyndar ekki satt. Takk og ég skal skila kveðju.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2008 kl. 15:03
Ía, getur þú sent mér netfangið þitt ,ég þarf að tala við þig . Ég get ekki sagt þét þetta á blogginu. Netfangið mitt er á minni síðu.
Góð kveðja
Beta
Elísabet Sigmarsdóttir, 5.9.2008 kl. 16:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.