Gott veður á Ísó, og gott líf í kúlunni.

Það er dýrðar dagur í dag, milt og hlýtt veður, sólin svona við að brjótast fram. 

Ég brá mér í bíó með stubbnum í gærkveldi til að sjá Mamma Mía, og ég sé ekki eftir því.  Þetta var held ég sýning númer fimm hér og það var allt uppselt, sumir voru að fara í annað og jafnvel fjórða skiptið.  Enda stemningin algjör.  Það voru vídeóupptökur af Abba, bæði fyrir sýninguna og í hléi, svo fólkið var orðið vel upphitað fyrir sýninguna.  Þarna voru margar eldri konur eins og ég, og allt niður úr. En karlmenn líka.  Ég held að það sem geri útslagið með vinsældir þessarar myndar, er einlægnin og leikgleðin í aðalleikurunum öllum.  Þau bókstaflega virðast elska að vera þarna með.  Og Meril Streep Vá þvílíkur leikur, og gleði.  Brosnan var líka flottur, mér fannt hann töff að syngja svona, og ég sá í augunum á honum að þau gneistuðu af kæti, meðan hann var að syngja.  Þetta skilar sér alveg fram í kvikmyndahúsin og til áhorfenda.  Svo hef ég líka grun um að við þessar eldri, höfum gaman af að sjá að eldri konur geta verið aðal, og bæði töff og töfrandi.  En mér finnst hafa verið valin maður í hverju rúmi, og heildin þess vegna svona óskaplega skemmtileg og góð.

En að kúlúbúum.

IMG_1341

Við vorum með spaghetti í gær, krakkarnir elska svoleiðis.

IMG_1344

Tóm sæla tíhí.. LoL

IMG_1345

Og maður þarf nú ekki hnífapör í svona mat sko!!!

IMG_1346

En prinsessur eru nú settlegri..... eða þannig.

IMG_1349

Og Úlfur "stóri bróðir" er mjög duglegur við að hjálpa ömmu með stelpurnar.

IMG_1351

Hanna Sól er hér í bókmenntunum, þetta er reyndar ein af uppáhaldsbókum Úlfs, ásamt heimsmetabók Guinnes.

IMG_1353

Hér grípur hann aðeins niður í píanóið, en trommurnar eru hans aðall.

IMG_1354

Lillan horfir á sjónvarpið með athygli.

IMG_1368

Afi greyið þarf að fara að skola sótið úr kajakgallanum sínum, og Úlfs.  Sem betur fer slapp allur þeirra búnaður í brunanum.

IMG_1355

Af því að haustið er að koma, er ekki úr vegi að fá nokkrar blómamyndir.

IMG_1358

Rósir hafa aldrei verið fallegri en í sumar.

IMG_13591

Hvaða fallega blóm skyldi þetta nú vera. Tounge

IMG_1359

Jú bara venjuleg kartafla, ekkert flóknara en það. 

IMG_1362

ég get svo svarið það sem þessu barni dettur í hug, þetta gerði hún alveg sjálf, og þóttist sofa, bara leikaraskapur í litla grallaranum.

IMG_1364

En afi gefur prinsessunni blóm.

IMG_1366

Ó svona falleg Havaírós.

IMG_1370

Hún þarf auðvitað að fara í hárið.

IMG_1367

En veðrið er yndislegt, þó ekki sé full sól.  Eigið góðan dag elskurnar.Heart 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er svo sammála þér með Mamma Mia.....það er langt síðan að ég hef gengið út af bíómynd jafn sæl og glöð ! Góða helgi til ykkar í kúlunni !

Sunna Dóra Möller, 30.8.2008 kl. 13:50

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sunna Dóra mín, já einmitt ég var eitthvað svo létt og glöð, ég stóð mig af að stara með opin munninn og gjörsamlega gleyma mér og hlæja svo upphátt.  Þetta var ferlega skemmtilegt.  Góða helgi á þig líka elskulegust mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.8.2008 kl. 13:53

3 Smámynd: Linda litla

Ég er ekki búin að sjá mama mia, en hef bara heyrt gott af henni. Held að allir sem hafi farið á hana séu ánægðir.

Flottar myndirnar hjá þér. Bestu kveðjur í yndislegu hamingjukúluna. Takk fyrir mig.

Linda litla, 30.8.2008 kl. 15:06

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Grallarinn hún Ásthildur.  GMG.

Takk fyrir yndislegar myndir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.8.2008 kl. 15:17

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Daglegur skammtur af myndarlegu ástríki Ásthildar Cecil & fjölskyldu móttekin með gleði.

Takk.

Steingrímur Helgason, 30.8.2008 kl. 18:32

6 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 30.8.2008 kl. 19:25

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvittknús knús og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.8.2008 kl. 20:14

8 Smámynd: Elín Helgadóttir

...og eru öll þessi fallegu börn frændsystkyni mín ?

 spyr: ella helgabróðirelíasar-dóttir

Elín Helgadóttir, 30.8.2008 kl. 20:16

9 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Æðisleg prinsessa með Havaírósina og sæt myndin af stubbnum með "litlu systur". Ég held ég verði að drífa mig í bíó, það eru allar vinkonur mínar búnar að "reka" mig af stað að sjá Mamma mia.

Kúluknús til ykkar.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 30.8.2008 kl. 21:47

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Flottar myndir að vanda. Stelpurnar flottar og Ásthildur greinilega upprennandi leikari. Hún er flott þegar hún tekst á við spaghettið. Hanna Sól alltaf að æfa sig undir lífsstarfið, ekta sýningarstúlka. Alvöru lady.

Sammála þér að Rósir hafa aldrei verið fallegri en í sumar  Bara djók út af nafninu mínu.

Vertu Guði falin.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.8.2008 kl. 21:59

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Alveg er ég sammála þér um Mamma Mia, ég skemmti mér líka alveg konunglega og hló mikið. - Mér fannst líka allir leikararnir skemmta sér vel í hlutverkum sínum, og aukaleikararnir líka-

Mikið eru þær systur yndislegar, og húmorinn í nöfnu þinni þar sem hún leggur sig í tröppunni. - Og falleg er hún prinssessan Hanna Sól. - Það er líka aldeilis munur að hafa svona duglegan hjálparmann, sem hann er ömmustrákurinn þinn.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 31.8.2008 kl. 00:14

12 Smámynd: Katrín

Sammála þér með myndina..ég var einmitt að hugsa það sama og þú, þ.e. hve gaman allir leikararnir hefðu gaman af því sem þeir voru að gera.

Kveðjur í kúluhúsið á fallegum haustmorgni 

Katrín, 31.8.2008 kl. 10:24

13 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Sæl Ía mín ,já Mamma Mía er hreint alveg frábær mynd. Lögin , leikurinn og allt . Ég söng með öllum lögunum , en það var engin stemning í salnum , enda er ég ný búin að sjá hana . Mér var sagt að þetta væri síðsti sýningardagur , sem betur fer náði ég svo er bara að bíða eftir að hún komi á DVD , því að þetta er ein af myndu sem ég get séð aftur og eftur.

Knús á þíg og þína fjölskyldu

Elísabet Sigmarsdóttir, 31.8.2008 kl. 11:29

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

er hún sem sagt komin út á DVD Elísabet mín ?  Ég held bara að ég kaupi hana, því mér finnst hún vel þess virði.

Takk Ditta mín. , sömuleiði.

Já einmitt Katrín mín, það er bara óvenjulegt að sjá svona leikgleði hjá leikurum.  Og þess vegna gefur það manni eitthvað óútskýranlegt.  Knús á þig líka.

Takk Lilja mín, og já það er sjaldgæft að sjá svona heilt yfir leikgleði, eitthvað með aðferð leikstjórans að gera væntanlega, og svo bara hve lögin eru grípandi og sagan skemmtileg.  Yndislegt allt saman.  Ég vona að þú og dóttir þin barnabörnin og allir hafi það gott, þarna fyrir norðan. 

Hún Rósa A, hefur líka blómstrað fallega í sumar.  Það er nokkuð ljóst.

Sigrún ekki spurning að drífa sig í bió.  Þetta er bara alveg dúndurskemmtileg mynd.  Knús á þig

Ella mín gaman að sjá þig hér. Já reyndar stelpurnar eru dætur Báru, og stubburinn er reyndar skáfrændi þinn, bæði þessi litli rauðhærði og svo stóri stubburinn minn, en þeir eru synir Júlla.  Skafti á svo þrjú, sem koma hér reglulega fyrir, og Ingi Þór er með fjögur, svo það má segja að þú eigir þarna góðan frændboga.  Kær kveðja til þín frá okkur.

Knús á þig líka Linda mín.

Knús Helga mín.

Mín er ánægjan elsku Steingrímur minn

Já Jenný mín hún er sko grallari þessi stelpa.  En líka svo hlý og yndisleg.

Linda mín litla, þú verður að fara og sjá þessa mynd.  Þú sérð ekki eftir því.  Knús á þig líka og góðan dag,

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.8.2008 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband