Every time you say good bye, I die a little.

Hér er hún Solla stirða í allri sinni dýrð.

CIMG5944-1 

Ömmustelpan mín er nú ansi lík henni Sollu stirðu, með þennan lit og klippingu.

2008.27.8. 002

Krakkarnir og kisa.  Það er sorg í hjarta mínu, því dóttir mín er farin suður, til að læra undir próf, síðan liggur leiðin hennar til Vínar, þar sem hún sest á skólabekkinn.  Litlu stelpurnar hennar eru hér, og það hefur ekki verið auðveld kveðjustundin.  Ég er líka í sárum, því ég á afskaplega erfitt með kveðjur.  Í hvert sinn sem einhver kveður deyr einhver hluti af manni.  En nóg um það.  Ég næ mér fljótlega.  Gat ekki skrifað neitt í gær, var of aum til þess. InLove

2008.27.8. 008

Brandur er allavega glaður að fá frið á heimilinu fyrir þessu litla skrímsli, sem sífellt var að bögga hann.  En hann hafði hina mestu skömm á, og var jafnvel hræddur við til að byrja með.

2008.27.8. 011

Heimilislífið dottið í sama farið, að fá afa í mat á sunnudögum.

2008.27.8. 013

Þessi ágæta kona, sem mér var sagt að væri bæjarstjóri, minnir í Nanortalik, kom og keypti hjá mér plöntur, hér er hún að leggja af stað út á völl, með fríðu föruneyti og blómin frá mér, til að fljúga beint heim til sín.  Þar dafna blómin vonandi vel.

2008.27.8. 014

Ballerínan og riddarinn, eiga vel saman.

2008.27.8. 017

Með allt á hreinu.

2008.27.8. 019

Og hér er svo litla Heidy, en hún var eins og allir vita frá Austurríki.

2008.27.8. 028

Svo er auðvitað tekið til að að skoða gamla dótið upp á nýtt.

2008.27.8. 031

Prinsessur þurfa líka aðeins að sinna þeim málum.

2008.27.8. 035

En góða veðrið er ennþá hér.  Milt og lygnt.

2008.27.8. 036

eins og sjá má.

2008.27.8. 037

Húsin í bænum standa gjarnan á haus.

2008.27.8. 038

Nýlega bættist í flota ísfirskra bátaeigenda.  Þessi skúta er bæði afskaplega flott og kostar ekkert smá skilst mér.

2008.27.8. 039

Til lukku með hana Rabbi.

2008.27.8. 043

en það gerðist líka dálítið dapurlegt, þegar kviknaði í aðstöðu Sæfara, og margir kajakar eyðilögðust í eldi.  Og húsið stórskemmdist líka.  Aðstaða þeirra kajakmanna.

2008.27.8. 044

Lögreglan og eigandi að átta sig á aðstæðum.  Sannarlega sorglegt mál.  En vonandi verður þetta allt byggt upp aftur, og vonandi hafa kajakarnir verið tryggðir.  Sem betur fór slapp minn karl við skemmdir á sínum kajak.  En aðstaðan þeirra er mjög skemmd.

2008.27.8. 045

Vil óska þeim góðs gengis við endurbygginguna.

2008.27.8. 047

en kúlan er enn á sínum stað og þeir sem þar dvelja oft og lengi.

2008.27.8. 053

Litlu grallararnir mínir þar á meðal.

2008.27.8. 067

Þetta er miljón króna svipur á Evítu, hún er ótrúleg með svipbrigði stelpan sú.

2008.27.8. 070

Og svo eru þær alveg að fara að tala, það koma orð og stundum heilar setningar hjá Evítu.

2008.27.8. 076

Jamm grallaraspóar Heart

2008.27.8. 080

Og Hanna Sól verður örugglega fyrirsæta.

2008.27.8. 085

Aríel litla er algjörlega hlutlaus, og búin að finna sér verðugan andstæðing LoL

2008.27.8. 088

Svo fékk hún rúm, eða hún fann það eiginlega alveg sjálf.

2008.27.8. 092

Í nýja prinsessuherbergi heimasætunnar Hönnu Sólar. 

2008.27.8. 095

Og veðrið er ennþá gott.

2008.27.8. 096

Hér er svo elskuleg fyrrverandi nágrannakona mín hún Magný.  Þau búa núna úti á Spáni, í Andalúsíu, þar sem þau leigja út íbúðir Competa, Perla í fjöllum Andalúsíu, það er hægt að hafa samband við þau á www.competa.is, ef þið viljið ferðast til Andalúsíu og leigja ykkur íbúð á fögrum stað, ég var að skoða myndir.  Er ákveðin í að bregða mér þangað fyrr en seinna, og ryfja upp skemmtileg ár með þeim hjónum sem nágrönnum mínum. 

2008.27.8. 098

Þá er allt að verða klárt fyrir brottför.  Síðustu mínúturunar fara í að sitja með foreldrum sínum og fá sér kaffisopa á uppáhaldsstað okkar, fyrir framan kúluna.

2008.27.8. 099

Og Kay hjálpar til.  Hann er svo duglegur drengur og góður hann fer að byrja í skólnum í Austurríki.

2008.27.8. 101

Og þá er allt orðið klárt að leggja í hann.  Góða ferð elsku barnið mitt, og knús þangað til við sjáumst aftur.  Ég ætla að gæta litlu englanna þinna eins vel og ég get.  Heart

2008.27.8. 104

Og hér eru aðrir farfuglar að tygja sig til heimferðar.  Þeir fara líka fljúgandi, eru farnir að hópast saman, en þeir fara gjarnan margir saman.  Í augnablikinu eru þeir innan um fjárhóp, og virka svipað stórir, þetta sumar hefur því verið þeim gott og gjöfult af mat. 

eigið góðan dag elskurnar mínar og takk fyrir hve þið eruð góð við mig endalaust. Heart 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Sko bara, komin í útflugning á trjám! Er þetta bær frá Grænlandi? Leiðinlegt með brunann. Vonandi gengur vel að byggja upp að nýju.

Ég fæ sko bara tár í augun að lesa þetta, skil vel sorgina í hjarta þínu. Það er alltaf sárt að kveðja og er einstaklega erfitt í svona tilvikum, þar sem litlar skottur sjá á eftir mömmu sinni og mamman að þurfa að fara  en mundu að það birtir aftur, elsku Ásthildur mín. *Faðmlag til þín*

Hún Hanna Sól er svo mikil prinsessa í ballerínu-múnderingunni að maður dáist bara að henni. Svo eiga þær eftir að verða góðar saman, litlu grallaraspóarnir tveir. Eins gott að hafa mörg augu að fylgjast með þeim...

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 28.8.2008 kl. 15:44

2 Smámynd: Helga skjol

Æji þú ert alltaf svo yndisleg Ásthildur mín og mikið skil ég þig vel þetta með það að kveðja, ég hreint og beint þoli það ekki.

Mikið eru þær yndislegar litlu dúllurnar þínar

Knús á þig og þína mín kæra

Helga skjol, 28.8.2008 kl. 17:12

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Svo þegar þú ert búin að fara til Andalúsíu, þá fer konan til Grænlands að skoða enn fleiri afkvæmi

Knús á þig

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 28.8.2008 kl. 17:46

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tíminn er svo fljótur að líða Ásthildur mín að það er ekki langt í að það verði alltof hljótt í "kúlunni" þess vegna skulum við njóta hvers dags sem við höfum með þeim sem okkur þykir vænt um, eins og sá dagur sé hinn síðasti.

Jóhann Elíasson, 28.8.2008 kl. 18:19

5 Smámynd: Rannveig H

Þetta er frábær færsla og myndir,hafðu það alltaf sem best elsku Ía mín.

Rannveig H, 28.8.2008 kl. 18:54

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Jóhann minn, það er alveg rétt hjá þér vinur minn.  Það er um að gera að njóta hverrar mínútu með þessum yndislegu einstaklingum.

Hahaha Hulda mín, já ætli þaggi bara

Takk Helga mín kæra.

Takk Sigrún mín.  Ég veit að þú hittir hana dóttur mína þarna hjá Áróru.  Hanna Sól er rosalega flott í ballettkjólnum.  Ég vildi að ég hefði tíma til að koma henni í ballett.  Það er bara svo mikið mál að sækja hana alla leið á Suðureyri til að fara í danstíma, og þá er litla skottið eftir, en ég ætla samt að skoða það mál.  Og já ég er aldeilis komin í útfluttning hehehe

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.8.2008 kl. 18:55

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fallegar myndir og fallegt fólk. Skil svo vel þessar móður-dóttur tilfinningar. Ég er aldrei alveg heil nema hafa ungana helst alla undir vængnum. En það er kannski ekki alveg normal...

Knús og krams Ásthildur mín   og örugglega ein besta amma í heimi.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.8.2008 kl. 20:48

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jóhanna mín  Var einmitt að svæfa litla skottið, hún rásaði um allt rúmið, sofnaði í hjónarúminu.  Afi færir hana á eftir í sitt rúm.  En svo á milli knúsaði hún ömmu sína, og snuddaðist allt í kring um mig, þangað til hún lak út af enda dauðþreytt.   En það er rétt sem þú segir, það er svo gott að hafa alla ungana undir vængnum.  Þannig líður okkur best.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.8.2008 kl. 21:12

9 identicon

Elsku Íja mín, það er sárt að sjá á eftir ungunum sínum, en þú hefur mikið eftir. Ég kenni meira í brjósti um Báru að þurfa að skilja sínar dúllur eftir, þó þær séu í góðum höndum. Hugsaðu þér bara fjörið sem á eftir að vera í Kúlu, stundum of en alltaf gaman eftirá. Knús á þig

Dísa (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 21:43

10 identicon

ææ, knús í kúluna

Kidda (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 21:59

11 identicon

já, áttu heima í kúlunni, ég hef einu sinni komið til Ísafjarðar og auðvitað var farinn rúntur til að skoða þetta skemmtilega hús, gaman

alva (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 22:33

12 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Það tekur á að kveðja og sérstaklega núna þar sem dóttir þín er að fara erlendis.

Frábærar myndir eins og venjulega og nóg af fréttum frá ykkur og Ísafirði. Leitt með brunann.

Gaman af börnunum. Stelpurnar að klæða sig uppá og Hanna sól er algjör fyrirsæta.

Það verður nóg að gera hjá þér í vetur. Endilega þiggðu alla þá hjálp sem í boði er og eins ef vinir og vandamenn vilja vera til taks þá hiklaust að þiggja hjálp annars kannski ofgerir þú þér. Við erum nú ekkert lengur nein unglömb.

Vertu Guði falin

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 28.8.2008 kl. 23:00

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elsku Rósa mín, alltaf jafn hugulsöm og yndisleg.  Já ég skal fara að þínum ráðum og þiggja þá hjálp sem mér er boðin.  Og já það er erfitt að kveðja barnið sitt.  Það sem eftir stendur eru þessi yndislegu börn, sem eru hrein og fölskvalaus, ástin hrein og tær.  Og þær elska ömmu sína, svo greinilega að það er yndislegt.  Takk mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.8.2008 kl. 23:23

14 Smámynd: Brynja skordal

Æ já skil þig svo vel Ásdís mín þetta hefur verið erfitt á báða bóga en hún dóttir þín á svona yndislegan stað fyrir sínar Dúllur í kúlunni hjá ömmu og Afa umvafðar Ást og hamingju það er yndislegt  Myndirnar eru æðislegar Börnin blómstra vel í ömmukúlu Nú kem ég vestur örugglega einhvern tíman í október ekki alveg ákveðið hvenar en í kúluhúsið skal ég mæta og hlakka til en mun láta vita hvenar ég mun birtastGóða nótt Elskuleg

Brynja skordal, 28.8.2008 kl. 23:59

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hlakka til að sjá þig Brynja mín, vertu velkomin

Hahaha gaman að heyra Alva mín, jamm ég á heima í kúlunni.

Takk elsku Kidda mín, vonandi er allt gott að frétta hjá þér.

Já Dísa mín það er alveg rétt hjá þér, og hluti af þessum blues mínum er auðvitað vegna hennar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 00:51

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2008 kl. 01:10

17 identicon

Sæl Ásthildur.

Mjór er til mikils vísir.

Sala á BlÓMUM til Grænlendinga, það líst mér vel á. Eins og venjulega flottar myndir.

Mínar bestu kveðjur.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 07:33

18 Smámynd: Laufey B Waage

Já það er erfitt að hafa börnin langt í burtu - og sérstaklega erfitt að kveðja.

Laufey B Waage, 29.8.2008 kl. 08:38

19 Smámynd: Faktor

Ég skil þig vel!  Öll mín barnabörn eru í Danmörku, ég var einmitt að koma þaðan úr stuttu "fæðingarorlofi".  Það var MJÖG erfitt að kveðja þau  Þar eru 2 FJÖRUGAR systur, önnur tæplega 3ja ára og hin tæplega 4ra ára, auk litla bróður þeirra sem er nú rétt 1ns mánaðar gamall  

Faktor, 29.8.2008 kl. 09:37

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús Jenný mín

Já segðu Þói minn.  Þetta á eftir að aukast held ég, með betri samskiptum. 

Já Laufey mín, það er erfitt.

Ó ég samhryggist þér Faktor mín vegna skilnaðarins við börnin, en innilega til hamingju með litla kútinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 09:50

21 identicon

Ég hef misst af einhverju einhvern tíman, hvar er hjálparhellan þín? Fór hún heim eins og sú fyrri?

Knús í kúluna

Kidda (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 11:47

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hún átti flug út og vildi sækja dóttur sína, kærastinn hennar var búin að fá vinnu í Reykjavík, svo hún fór til hans.  Svo við erum bara fjölskyldan núna.  Ég ætla að reyna að hafa það þannig í vetur, þar sem ég get farið með þær sjálf á leikskólann.  En þegar vorar fæ ég mér aðra Aupair Kidda mín.

Já Guðlaug mín, hansarósir og reynir.  Takk mín kæra.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 13:52

23 Smámynd: Linda litla

Vá hvað það er gott að koma á síðuna þína, ég hef ekki farið blogghring lengi. Ákvað að drífa mig í það, ég þarf þá ekki að taka til á meðan hehehehe

Eins og alltaf yndislegar myndir hjá þér. Þær eru heppnar ömmustelpurnar þínar að eiga svona yndislega og góða ömmu sem gerir allt fyrir þær. Systurnar eru svo sannarlega heppnar að eiga þig að, eða öll þín fjölskylda er heppin að eiga þig.

Þú ert yndisleg og góð kona, það er örugglega mikils virði að þekkja þig Ásthildur mín.

Hafðu það gott með allri fjölskyldunni í kúlunni þinni og njóttu helgarinnar.

Linda litla, 29.8.2008 kl. 14:00

24 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Linda mín.  Sömuleiðis knús.

Takk Ditta mín.  Sömuleiðis og knús á þig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 15:19

25 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

weekend_662605.gif

Anna Ragna Alexandersdóttir, 5.9.2008 kl. 23:20

26 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis Anna Ragna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2008 kl. 09:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband