Ævintýralandið.

Það kom dálítið skemmtilegt upp á hjá mér núna.  En ég var með hugleiðingar á blogginu hennar Hnetu bloggvinkonu minnar, þar sem hún var að tala um að hún hefði verið að kaupa miða á leikrit vetrarins fyrir sig og sína. http://hneta.blog.is/blog/hneta/ m.a. að hún ætlaði að sjá Skilaboðaskjóðuna, ég sagði við hana, að ég hefði einmitt samið leikrit fyrir nokkrum árum, thema sem skilaboðaskjóðan byggir á. 

Forsaga málsins er sú, að fyrir mörgum árum, var ég með leiklistarkennslu í Grunnskólanum á Ísafirði, í samstarfi við Litla Leikklúbbinn, við höfðum themað ævintýrin og ofbeldið í þeim.  Upp úr því samdi ég þetta leikrit, þar sem tveir menn detta ofan í ævintýralandið, annar er jákvæður og hinn neikvæður, þeir sjá svo hvert ævintýrið á fætur öðru, en það er búið að breyta þeim, þannig að ofbeldið er að mestu tekið út.  Það var virkilega gaman að vinna með krökkunum, við settum þetta svo á svið og sýndum í Grunnskólanum.  Við sendum þetta svo inn til Bandalags ísl. leikfélaga, og þar gleymdi ég því alveg, þangað til í fyrra að það var haft samband frá grunnskólanum á Borgarfirði eystri, og spurt hvort þau fengju leyfi til að setja upp leikritið mitt.  Sem var auðvitað auðsótt mál, og ég auðvitað mjög montin.  Þau höfðu svo samband aftur og vildu fá eitthvað í endirinn, það varð út að ég setti saman texta við gamalt lag sem lokalag.  Þetta rifjaðist svo upp fyrir mér, þegar Sigrún Hneta, fór að tala um Skilaboðaskjóðuna, sem kom svo síðar.  Og ég fór að skoða hvað hefði nú orðið af þessu skemmtilega afkvæmi mínu.  Og viti menn, þarna var umsögn og myndir. 

http://www.leit.is/thjonsla/go.aspx?r=le&url=http://www.google.com

Ævintýralandið

Þetta er örugglega vonda drottningin í Mjallhvít og dvergarnir sjö.

Ævintýralandið2

Þetta eru nú sennilega Aulabárður og bræður hans.

Ævintýralandið3

Nornin í Hans og Grétu.

Ævintýralandið4

Rauðhetta, amma og Úlfurinn.

Ævintýralandi5

Hér gæti svo verið lokasöngurinn.

Því miður á ég engar myndir af okkar uppsetningu, það væri gaman ef einhver, foreldri eða aðstandendur hefðu mynd af henni í fórum sínum til  að leyfa mér að sjá.  En ég vil bara vona að krakkarnir á Borgarfirði eystri hafi haft jafn gaman af að setja þetta upp og við hér hinum megin á landinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Mín ágæta Vestfjarðavalkyrja, alltaf heyrir maður eitthvað nýtt hjá þér, bætist meir og meir á afrekaskrána.Ert kannski ævisagnaritari og arkitekt í laumi líka!?

En hvað segir þú, heldurðu að dáðadrengurinn Þorvaldur Þorsteins hafi samið sitt verk og gríðarvinsælu bækur um ama efni upp úr þínu verki, eða fengið hugmyndir frá því?

Hann var nú staddur hérna á neðri hæðinni í húsinu minu um helgina svo ég hefði nú getað spurt hann ef ég hefði vitað þetta fyrr, en held nú að hann sé farin.

Magnús Geir Guðmundsson, 26.8.2008 kl. 14:42

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En þú hefur ekki ætlað að skella þér austur þegar verkið var sett upp þar?

Magnús Geir Guðmundsson, 26.8.2008 kl. 14:45

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég held ekki þetta er bara svona vangaveltur, þetta er þannig vaxið að það er auðvelt að sjá hlutina í þessu ljósi.  Og eflaust hafa margir fengið slíkar hugmyndir  Ég hefði haft gaman af að fara austur, en ég var einmitt eins og alltaf gríðarlega upptekin.  Ég þarf víst að fá mér tímakvóta einhversstaðar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.8.2008 kl. 15:43

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 Gaman að sjá börnin leika!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.8.2008 kl. 15:47

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm, aldrei nóg af tímanum mín kæra, en þar sem engum hefur dottið í hug enn að opna tímauppboðsmarkað merkilegt nokk, þá legg ég til að þú skaffir þér tíma stundum allavega á kosnað ektakarlsins, eldir bara fyrir hann mest þrisvar í viku í staðin fyrir a.m.k. þrisvar á dag, látir hann ryksuga og setja í þvottavélina næstu vikurnar og svona annað smotterí sem köllum mörgum finnst svo erfitt!Kæmist þannig örugglega í helgarferð til Færeyja í vetur þegar svo hefur ráðist, að verkið verður sett upp þar, eftir að vinur okkar Jens Guð hefur lesið þetta og kippt í nokkra spotta.

Klárt mál bara ekki satt!?

Magnús Geir Guðmundsson, 26.8.2008 kl. 16:02

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.8.2008 kl. 16:55

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gott að þú ert komin aftur Áthildur mín og risastórt knús.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.8.2008 kl. 18:02

8 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er svo gaman að svona ævintýrum. Sérstaklega finnst mér skemmtilegt að fylgjast með börnunum fara á hugmyndaflug. Ég hlakka til að fara á sýninguna og á örugglega eftir að hugsa til þín á meðan

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 26.8.2008 kl. 21:27

9 Smámynd: Brynja skordal

velkomin heim í kúlusæluna ykkar aftur yndislegar allar myndirnar úr ferðinni gaman að skoða mín ísafjarðamær er í heimsókn hjá mér núna yndislegt að hafa hana Hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 26.8.2008 kl. 22:07

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús í Brynja mín

takk Sigrún mín,

Risaknús á þig lika elsku Katla mín

Hurðu nú mig Magnús minn, sko... minn kall þrífur húsið, ég elda matinn, hann vaskar upp, við skiptum þessu bróðurlega á milli okkar, málið er minn kæri, að ég er alltaf að gera eitthvað annað, hehehehe..... hefur ekkert með húsþrif eða uppvask að gera sko. 

Jóhanna mín, já þau eru svo full að gleði og tjáningu að það er aldeilis frábært.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2008 kl. 02:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband