Hin forvitnilega Flatey.

Já við fórum með Baldri yfir til Flateyjar, ég hafði aldrei komið þangað áður, en hafði lengi haft áhuga á að skoða þessa eyju.  Hún er sérstök fyrir margra hluta sakir.  Í dag eru þar tveir ábúendur, bændur  örugglega sjálfþurftarbændur, með kindur og hænsni.  En þarna erum mörg falleg hús og vel við haldið.  Miklu meiri byggð en ég bjóst við.  Þarna eiga menn sumarhús, og margir dvelja þarna sumarlangt.  Mér var sagt að þegar kvikmynd Baltasar var gerð þarna var gengið í að fá Gemsasamband þangað, en íbúar voru víst ekki hrifnir af slíku.  Og ekki vel séð að menn tali í þau tól í miðbænum.

23.8.081 107

Hér er verið að fara um borð.  Vestfirðingar fá sérkjör á bátinn.

23.8.081 109

Hér eru unglingarnir okkar.  Þetta var síðasta ferð sumarsins, þar sem báturinn siglir tvisvar yfir Breiðafjörðin, það voru því síðustu forvöð að dvelja þarna milli ferða.

23.8.081 110

Það þarf að fylgjast með fuglum og svoleiðis.

23.8.081 111

Okkar erlendu vinir, Kaj frá Austurríki og Leon frá Þýskalandi.  Þeir skemmtu sér ekki síðu en hin börnin.

23.8.081 113

Það er gott að sitja hjá mömmu, þar er öryggið.

23.8.081 126

Þúsund eyja klasi, sem ekki er hægt að telja.  En fallegt er hér.

23.8.081 127

Sumir voru nú samt dálítið sjóveikir.

23.8.081 131

Og svo var komið í Flatey og nú var bara að ganga á land.

23.8.081 134

Aðalgatan í átt að þorpinu. 

23.8.081 136

Læknishús stóð utan á þessu húsi, og þarna má greina sultukrukkur sem voru örugglega til sölu.

23.8.081 138

Hér eru engir malbikaðir breiðvegir, heldur svona slóðar, alveg eins og fólkið hér vill hafa það.

23.8.081 139

Íslenskar hænur á vappi.  Allt svo frjálslegt og notalegt hér.

23.8.081 141

Sumir eru einfaldlega prinsessur, og prinsessur þurfa að halda uppi kjólfaldinum, þegar þær vaða yfir polla LoL Það er örugglega meðfætt.

23.8.081 148

Og meðan sumir príla...

23.8.081 150

Vilja aðrir sulla.

23.8.081 154

Og nóg um að vera fyrir ærslafulla krakka.

23.8.081 156

En prinsessur eru líka alltaf settlegri...

23.8.081 159

Já það var margt um að vera.

23.8.081 162

Og börn eru alltaf svöng á ferðalögum ekki satt?

23.8.081 165

Ömmur líka Tounge

23.8.081 167

Svo er gott að leggja sig aðeins eftir matinn.

23.8.081 172

Hún er alveg eins og amma sín, öll í grjótinu.

23.8.081 175

Það eru mörg falleg hús hér eins og ég sagði áðan, og öllum vel við haldið.

23.8.081 177

Hér er hótelið þeirra kaffihúsið og barinn.

23.8.081 180

Það var líka farið í kirkjuskoðun.

23.8.081 195

Bátar eru auðvitað lífsnauðsyn í Flatey.

23.8.081 210

Og heimurinn getur virkað ógnarsmár, meira að segja miðað við lítið kríli.

23.8.081 244

Kirkjan er fallega skreytt af Baltazar Samper.

23.8.081 246

Bæði altarið og kirkjuskipið.

23.8.081 247

Trú von og kærleikur heita þessir bátar.

23.8.081 249

Og ekki fer maður svo í Flatey að maður skoði ekki bókhlöðuna.

23.8.081 250

Og Flateyjarbók.

23.8.081 254

Hér er líka teikning af eyjunni frá árinu 1906.

23.8.081 256

Safnahúsið er eins og sjá má, risasmátt. 

23.8.081 263

Það er komin tími til að halda af stað niður á bryggju.

23.8.081 274

Farartækin hér eru af ýmsum stærðum og gerðum.

23.8.081 275

Eins og sjá má.

23.8.081 276

Já þau eru líka mis afkastamikil.

23.8.081 279

En það er nú bara eins og það er.

23.8.081 285

Hér er meira að segja bíll.

23.8.081 278

ég hugsa að þessi skreiðarhjallur og fiskurinn á honum, sé bara mjög stór á Flateyskan mælikvarða.  Þ.e. miðað við höfðatölu.

23.8.081 287

Og svo er komið niður á bryggju.

23.8.081 291

Hér er beðið eftir bátnum.

23.8.081 293

Og sumir orðnir lúnir.

23.8.081 312

Það var múgur og margmenni á bryggjunni, þegar skipið kom.

23.8.081 314

Flatey kvödd með virktum.

23.8.081 319

Og gamli vitinn lýsir leið.

23.8.081 329

Og það er notalegt að setjast niður og fá sér eitthvað í gogginn eða bara horfa á barnaefnið í sjónvarpinu.  En sumarbústaðarlífið heldur áfram.

Læknishús

Þessi er fyrir Kiddu mína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir að leyfa okkur að njóta þessara fallegu mynda með þér. Flatey er glæsileg og fólkið þitt líka!

Bóbó (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 20:41

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Bóbó

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.8.2008 kl. 20:47

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Frábær mynd af prinsessunni í pollinum

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 21:00

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er yndislegt að koma út í Flatey.  Takk fyrir myndræna ferðasögu, þú bregst ekki kæra Ásthildur

Sigrún Jónsdóttir, 25.8.2008 kl. 21:40

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þú ert í alvöru fyrsti ísfirðíngurinn sem ég þekki til sem að hafði ekki komið í Flatey áður.  Ég held að ég hafi farið þarna á milli með gamla Baldri fyrzt fyrir rúmum fjórum áratugum síðan, vegna samgöngubótanna fyrst & fremzt.

Nú stúmmaðir þú mig vinkona, en glæsimyndir eins & venjulega.

Steingrímur Helgason, 25.8.2008 kl. 21:41

6 identicon

Ekki man ég eftir að hafa heyrt að húsið sem vinkona mín ólst upp í, heiti Læknishúsið en efa það ekkert. Sonur hennar er sölumaðurinn á söluborðinu og selur allskonar varning sem hann tínir hér og þar um eyjuna og í öðrum eyjum. Sultukrukkurnar eru verk vinkonu minnar.

Alltaf gaman að sjá myndirnar þínar af fólkinu þínu

Kidda (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 21:44

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Læknishús

Þarna stendur það Kidda mín hehehehe.. En gaman að þú skulir þekkja fólkið. 

Jamm Steingrímur minn, ætli þetta sé ekki bara rétt hjá þér

Takk Sigrún mín.

Hehehe Hrönn mín, já þetta var fyndið, af því að þetta kom alveg ósjálfrátt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.8.2008 kl. 21:57

8 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Flatey er yndislegur staður  var svo heppin að eyða heilum degi þar f.gsm  og enduðum á saltfiskhlaðborði á hótelinu, hef ekki fengið betri saltfisk en í Flatey

En takk fyrir myndirnar af þér og þínum

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 25.8.2008 kl. 22:21

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heiða Þórðar, 25.8.2008 kl. 22:33

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er fallegt þarna en Flatey og eyjarnar í kring voru lengi í eigu Þingeyrarklausturs og eiga sér mjög merkilega sögu. Flatey var matarkista en áður fyrr var farið með þurfamenn "ómaga" út í sker eigi allangt frá eynni þar sem þeir fengu að veslast upp án þess að neyðaróp þeirra trufluðu virðulegri þegna. 

Sigurður Þórðarson, 25.8.2008 kl. 23:08

11 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Frábær myndin af prinsessunni með pilsfaldinn, greinilega með blátt blóð í æðum  Og litlu grallararnir, greinilega alltaf á útopnu  Skreiðarhjallurinn er svaka flottur! Ég hef ekki komið á Flatey ennþá, bara stoppað þar með Baldri. Takk fyrir þessa skemmtilegu myndrænu ferðasögu. Knús á ykkur.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 25.8.2008 kl. 23:12

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegar myndir, þetta á ég allt eftir. Takk fyrir að leyfa okkur að gægjast á gluga með þér.  GN.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 01:12

13 Smámynd: Helga skjol

Yndislegar myndir eins og alltaf hjá þér mín kæra

Helga skjol, 26.8.2008 kl. 06:24

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislegar myndir.  Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2008 kl. 08:17

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar. 

Takk Jenný mín.

Takk Helga mín

Ekki málið Ásdís mín.  Þú ættir endilega að fara þarna, það er sniðugt að fara milli ferða, og stoppa meðan skipið fer að Brjánslæk, svo er hægt að gista þarna eða tjalda. Góðan daginn.

Knús á þig líka Sigrún mín.  Já hún Hanna Sól er sko prinsessa, og hún fékk sitt eigið herbergi í kúlunni í gær.  Mamma hennar og Tinna frænka tóku sig til og gerðu prinessuherbergi þar sem var geymsla, og hún er svo sæl og glöð.

Já og litlu grallararnir, þær eru aldeilis frábærar litlar manneskjur.  Mæli með Flatey.

Ertu að meina þetta Sigurður, var þetta virkilega svona ?  En takk annars fyrir skemmtilega viðbót við söguna mína.

Knús á þig Heiða mín.

Já þetta er sennilega rétt Hulga mín fyrir og eftir GSM hehehe...  Mitt fólk var að tala um að næst myndu þau gista þarna.  Það er spes að vera þarna. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.8.2008 kl. 08:37

16 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Gaman að fara með þér í ferðaleg út í Flatey. Hef farið þangað svo þetta var enn skemmtilegra fyrir vikið. Kom mér á óvart að þú hafir aldrei farið þangað. En því miður er þetta líkt hérna megin. Hef aldrei komið í Mjóafjörð eystra en ótal sinnum í Mjóafjörð v/Djúp.

Gaman af myndunum. Börnin bregðast aldrei. Þau eru svo gefandi og fyndnar myndir og textinn gerir þær ennþá meira lifandi.

Takk fyrir ferðalagið með þér út í Flatey hér á blogginu. 

Vertu Guði falin.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.8.2008 kl. 09:37

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan elsku Rósa mín.  Já svona er þetta.  Ég er oftast á hraðferð þegar ég fer milli staða á landinu okkar.  En þess vegna er virkilega gaman að gefa sér tíma til að njóta þess sem fyrir augun ber. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.8.2008 kl. 10:14

18 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Já þetta var víst svona. Það eru til ítarlegar frásagnir af þessu í annálum sem geymdir eru úti í Flatey og fólk sem er þaðan þekkir til. Stundum var farið með svo marga í einu að það komust ekki allir í bátinn og voru þeir þá dregnir í snæri eftir bátum.  Þetta var ekki beinlínis aftaka því fólkið gat fundið sjódauðan fugl á reki. Tíðarandinn var víst svona og á þessum tíma svalt stór hluti þjóðarinnar til bana og ekki var nóg til skiptanna.  Mig grunar að fæstir hafi hlutfallslega farist úr hungri í N-Ísafjarðarsýslu og Breiðafarðareyjum.

Sigurður Þórðarson, 26.8.2008 kl. 12:02

19 identicon

Takk Cesil fyrir myndina Það er hægt að fá meðal annars gistingu í Læknishúsinu og í litlu húsi sem þau leigja út. Það er yndilegt að vera þarna út í Flatey. Og ekki hef ég reynslu að því að gsm samband náist þangað. Einhvern tímann minnir mig að hafa heyrt að það stæði til að hætta siglingum út í Flatey, það yrði algjör skömm.

Knús

Kidda (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 12:56

20 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það má aldrei gerast að þessar siglingar leggist af. Það er yndislegt að sigla til Flateyjar í góðu veðri en toppurinn er að gefa sér góðan tíma til að skoða eyjarnar og skerin sem eru þarna í hundraða tali og hafa hvert um sig sinn sjarma.

Sigurður Þórðarson, 26.8.2008 kl. 13:47

21 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Dásamlegar myndir.

 Takk fyrir mig

Anna Ragna Alexandersdóttir, 1.9.2008 kl. 09:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband