Nokkrar góðviðrismyndir frá Ísafirði og góða nótt.

Þessi færsla er bara til að sýna ykkur að góða veðrið er hér ennþá.  Ég er að fara að halla mér, var að horfa á inspecktor Frost.  Og er alveg tilbúin til að kúra hjá mínum elskulega, sem ekki gat haldið út þáttin til enda. Heart

IMG_0378

Himnagalleríið opið.

IMG_0379

Það er samt einhver tignarleg ró yfir fjöllunum, og samspili skýja og sjávar.

IMG_0380

Sólin er farin að stytta göngu sína, svona undir haustið.  En haustið er líka minn tími.

IMG_0381

Ég er að vona að þetta sé dalalæða frekar en mengun frá Funa. 

IMG_0384

Og börnin koma í heimsókn.  Ólöf Dagmar var í berjamó, og er öll blá í framan, þau hlæja berjablá.

Svo langar mig til að segja, vegna fréttanna í kvöld um fölsun kínverja í beinu útsendingunni af setningunni.  Að ég sá hana, reyndar í endursýningu, og ég verð að segja að ég fylltist sorg.  Það sem ég sá var yfirdrifinn sýndarmennska, blóð sviti og tár, jafnvel dauði, hvað munar um einn þarna í mergðinni.   Þetta var svo sem nógu flott og fínt. En einhvernveginn steindautt, þá á ég við gleðina og frumkraftinn, sem er nauðsynlegur til að heilla áhorfendurna.  Jafnvel smámistök.  Hlaupinn í allskonar hringi og form, minntu mig mest á maura.  Þegar svo ofan á þetta bætist að þeir fölsuðu hluta af sýningunni, þá var mér nóg boðið.  Kínverjar, og eflaust fleiri þjóðir, hafa ekki hugmynd um hvað frumkraftur þýðir.  Þetta spontant sem getur farið á þennan eða hinn veginn.  Nei ef eitthvað klikkar, þá er þeim hent út.  Þetta er svona svipað og fegurðarsamkeppni, þar sem allt er lagt upp úr útlitinu og svokallaðri "fegurð", sem er í rauninni ekki hægt að skilgreina.  Það er ekki hægt að dæma í fegurð, því hin raunverulega fegurð kemur innan frá. Það er heldur ekki hægt að höndla frumkraftinn, því hann kemur líka innan frá, og er ekki hægt að ná fram með kúgun, þjálfun eða neinu öðru.  Hann bara ER, og ef hann fær ekki að brjótast fram af sjálfsdaðum, verður allt svona fínpússað ef til vill óaðfinnanlegt og fullkomið.  En er það virkilega það sem maðurinn vill ?  Ekki ég allavega.  Ég vil sjá að fólk sé mannlegt, að það hafi sínar takmarkanir, tilfinningar, og ófullkomleika.  Aðeins þannig get ég látið mér þykja vænt um einhvern. Af því að þá finn ég að þetta er raunveruleg manneskja eins og ég.

En annars góða nótt sofið rótt, og knús á ykkur öll inn í þessa yndislegu nótt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða nótt og takk fyrir fallegar myndir. En mig langar að spyrja, hvaða þjóð sem hefur haldið uppá olympiuleikana síðstu ár, hefur ekki verið að gera sitt besta.  Vitum við hvort viðkomandi þjóð sé að sinna mannréttindamálum betur en Kínverjar?? eru hlutirnir kannski betur faldir en hjá öðrum, ég bara spyr til að fá umræðu, ekki að mín skoðun sé sú að Kínverjar séu að gera svo góða hluti.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.8.2008 kl. 00:36

2 identicon

Flottar myndir.  OL og allt sem þeim fylgir hafa alveg farið fram hjá mér.  Það er svo mikið að gera hjá mér þessa dagana að kassinn er óhreyfður síðan í vor eða eitthvað...

alva (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 00:47

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

LAKU NOC

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 13.8.2008 kl. 01:22

4 Smámynd: Tiger

Yndislegar myndir hjá þér VeðurDrottning Vestfjarðarríkis. Alltaf gaman að kíkja á þig elskulega Ásthildur mín.

Ég hef ekkert séð af þessum Olympíuleikum - enda ekkert sérstaklega fyrir íþróttir sem slíkt. Því hef ég ekki séð það sem þú ræðir um og get ekkert dæmt um það - en samt get ég látið uppi mínar áhyggjur af því hvernig topparnir í Kína stíga linnulaust á alþýðunni án nokkurs samviskubits að því er virðist. Hefði ekkert grátið það þó Íslendingar hefðu hundsað þessa leika alfarið í þetta sinn ...

Knús og kram á þig mín ljúfa og hafðu yndislega nótt..

Tiger, 13.8.2008 kl. 04:37

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Takk fyrir allar fallegu myndirnar. Tigercopper aðal gæinn á blogginu búinn að heimsækja þig. Það er ekki dónalegt að fá svona gæja í heimsókn og maðurinn þinn steinsofandi.

Ég get nú ekki að því gert að það fer um mig hrollur þegar Bush er að gagnrýna aðra eins og nú Kínverja sem jú fremja mannréttindabrot en það gerir Bush líka, bæði ljóst og leynt. Því miður.

Guð gefi þér góðan dag.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.8.2008 kl. 06:19

6 identicon

Horfi sama sem ekkert á sjónvarp en hefði viljað sjá Frost.

Knús í kúluna 

Kidda (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 09:55

7 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það sem mér fannst sorglegast við opnunina á ÓL, var að lítil stúlka, 7 ára, sem átti að syngja við opnunina, var ekki nógu "falleg" til að hægt væri að láta hana syngja. Heldur þurfti að stilla annarri stúlku upp og láta hana hreyfa varirnar í stíl við upptöku af söngnum. Ég varð mjög reið yfir þessu, hvernig getur 7 ára barn verið "ekki nógu fallegt"? Þeir hafa a.m.k. ekki fallegt hjarta þessir sýndarmennskuskipuleggjendur í Kína.

Takk fyrir myndasýningu, Ásthildur mín.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 13.8.2008 kl. 11:08

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.8.2008 kl. 11:37

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.8.2008 kl. 11:50

10 Smámynd: Ásta Björk Solis

Hvad er fegurd?Ju varasongstelpan er falleg en su sem saung er algjort krutt i minum augum.

Ásta Björk Solis, 13.8.2008 kl. 18:53

11 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 13.8.2008 kl. 19:21

12 Smámynd: Linda litla

Mikið sem ég varð reið..... kemur fegurðin ekki innan frá ?? Ég bara spyr.

Linda litla, 13.8.2008 kl. 20:19

13 identicon

Takk fyrir fallegar myndir.

Ég sá ekki opnunarhátíðina en finnst þessi uppákoma með litlu stúlkuna ein af þessum birtingarmyndum yfirborðsmennskunnar og sýndarmennskunnar sem einkennir alla framkomu kínverskra yfirvalda í kringum Ólympíuleikana.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 21:16

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Frábærar myndir!

Ég sá ekki opnunarhátíðina en ég er sammála Önnu hér að ofan um þessa uppákomu með litlu stúlkun. Svo gætum við spurt í framhaldinu hvað þetta gerir sjálfsmynd hennar í framtíðinni!

Hún var algjört krútt og hefði svo sannarlega átt að fá að sjást! 

Hrönn Sigurðardóttir, 13.8.2008 kl. 21:43

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góðan daginn Arna mín.  Takk.

Já það er sorgleg skilaboð fyrir 7 ára stúlku að hún sé ekki nógu falleg.  Barn sem varla veit hvað það inniber.  Svei þeim bara Hrönn mín.

Já Anna mín ætli þetta dæmi hafi ekki verið einmitt það skírasta. 

Jú fegurðin kemur innanfrá, þó allof margir horfi einungis á það sem utaná liggur Linda mín.

Knús á þig Sunna Dóra mín.

Von að þú spyrjir Ásta mín, hvað er fegurð

Knús á þig Jenný mín.

Knús á þig Linda mín.

Sigrún mín þeir hafa ekkert hjarta, þeir hafa tölvukubb.  Enginn með hjarta gæti hagað sér eins og kínverjar gera. Kúga fólkið sitt, bera fólk út úr húsum sínum á götuna, og brjóta svo niður húsin til að reisa glæsihallir, og vei þeim sem taka þátt í þessu eins og ekker sé.

Knús til Vestmannaeyja Búkolla mín.

Hehehe Guðlaug mín, ég sá endinn pabbinn gerði það sjálfur

Það er alveg hárrétt hjá þér Rósa mín, Búskurinn hefur ekki efni á að opna munn, því hann er jú allstaðar með krumlurnar að skipta sér af.  hmpr...

TíCí minn ég er antisportisti, ég sat fyrir framan sjónvarpið og ákvað að sitja og horfa hehehe... en það var vond tilfinning mitt í öllum þessum rosalega glamour.  Knús á þig elskulegi maður, þú er laaaaangflottastur. 

Knús á þig líka Anna mín.

Svona á þetta að vera Alva mín.  Ég horfi reyndar ekki mikið á sjónvarp heldur, á þessum tíma.  

Reyndar alveg rétt hjá þér Ásdís mín, með að allir gera sitt besta, það er bara spurning um hversu langt þjóðarleiðtogar ganga, eins og til dæmis að reka fólk út af heimilum sínum, og brjóta þau niður til að byggja hús undir væntanlega gesti.  Hvað svo, verða glæsihúsin rifin aftur og fólkinu tryggt húsnæði sitt? Nei ég held ekki, ég held að þau sem sáust á skjánum hafi farið beint í fangelsi fyrir að tjá sig um þetta.  Þar fá þau að sitja, má segja að það sé húsaskjól.  En ekki alveg samkvæmt bókinni.  Ætli það sé ekki það lengsta sem hægt er að ganga í viðbjóði og yfirgangi ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2008 kl. 08:52

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús inn í daginn Ásthildur mín

Sigrún Jónsdóttir, 14.8.2008 kl. 10:16

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis Sigrún mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2008 kl. 10:42

18 identicon

Sæl, Ásthildur.  Það er alltaf jafn gaman að skoða síðuna þína, og sjá myndir frá Ísafirðinum mínum kæra.  Ég fæ alltaf e-a hamingjutilfinningu og fyllist ró, við að skoða þær.  Takk fyrir góða og skemmtilega síðu.  Vona líka að ég geti e-n tímann keypt einn af fallegu fiskunum hans Júlla, sá myndir hjá þér, og heillaðist alveg.  Kær kveðja vestur.  Ebba Sturludóttir

Ebba (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 13:18

19 Smámynd: Helga skjol

Yndialega fallegar myndir hjá þér eins og alltaf mín kæra.

Knús á alla kúlubúa

Helga skjol, 14.8.2008 kl. 18:33

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ebba mín, já hann á fullt af fiskum þessi elska. 

Takk og knús Helga mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband