10.8.2008 | 20:52
Lubbinn 2008 á Alviðru. Aldeilis frábær skemmtun.
Jæja þá er það Lubbinn 2008. Þetta verður dálítið maraþonmyndasýning, því ég einfaldlega get ekki gert upp á milli mynda, og mér fannst svo gaman og mikil stemning að það hálfa væri nóg.
Við lögðum af stað í glampandi sólskini og blíðu. Þegar við vorum að leggja af stað kom þýsk fjölskylda, og eins og svo margir aðrir stoppuðu þau og héldu að þetta væri blómabúð. Eruð þið að loka ? spurði maðurinn, þegar hann sá að við gerðum okkur líkleg til a leggja af stað. Þetta er heimili okkar, sagði ég. Og þá kemur þessi venjulegi undrunarsvipur, Ó ég hélt að þetta væri blómabúð. Mikið er þetta flott, og svo framvegis. Þetta var yndælis fólk og gaman að hitta þau. En svona er lífið.
Það er um klukkustundarakstur til Alviðru héðan. Og þegar við komum voru nokkrir þá þegar komnir og gerðu sér notalega stund í sólinni og blíðunni.
Matthildur fór svo og sýndi okkur húsnæðið. Sem reyndar er alveg frábært, og mikið og flott safn allskonar hluta, það er svo gaman að koma hér og skoða. Enginn verður svikinn af því.
Sjáið til dæmis þessa nýstárlegu ljósakrónu ?
Barinn náttúrulega á sínum stað. Til að forðast misskilning, þá var ekkert selt á þessum bar. Enda hér um að ræða tómar flöskur.
Sumt var náttúrulega dálítið ógnvænlegt á að líta. Þessi gæti verið beint úr Hringadróttinssögu.
Og Gunna genginn út, að vísu er karlinn mesti eintrjáningur Takið efir skiltinu Hætta sprengingar.
Já þarna var margt skemmtilegt að skoða. Gamli presturinn okkar hann séra Sigurður, líkti einmitt gamla og nýja testamentinu við gamla kola eldavél, og svo ....
Nýmóðins rafmagnseldavél.
Hannibal Lector ?? Nei Elías minn, með eitthvert áhald, sem talið er að sé gamalt kúfiskveiðitæki.
Já þetta er svona til heiðurs Gay Pride. Gunna búin að dekka Barbiebleikt borð.
Hér eru svo Matta Gummi og fjölskyldan hans að snæða.
Elli og Gummi, takið eftir bleika glasinu sem Gummi heldur á, þetta og á myndinni fyrir ofan er líka til heiðurs Hinsegin daga.
Grillað í góða veðrinu.
Hér er börnunum ekki gleymt. Þau fá sína skemmtun.
Mér fannst þetta mjög tilkomumikið, takið eftir rauðvinsglasinu mínu, til samanburðar
Hér grilluðu svo gestirnir. Hér voru um 160 manns, svo þetta var enginn smáveisla.
Gróðurinn auðvitað upp á sitt besta, reyndar er búið að vera dálítið þurrt í sumar
Hér er hún Matthildur með Írskt kaffi. það er svo merkilegt við hana Matthildi, að hún hefur lag á að gera allt í kring um sig svo afslappað. Hvort heldur sem það er stórveisla og keppni í Óbeislaðri fegurð, eða 160 manna grillveisla á sínu æskuheimili. Þá er hún bara ljúf og afslöppuð, og öllum líður vel í kring um hana. Þetta er eiginleiki sem ekki er öllum gefið.
en bóndinn á næsta bæ var bara að heyja í rólegheitum, og ætlaði örugglega að koma í kaffi á eftir, ef til vill Írskt kaffi
Já stemningin var frábær, rólegheit og gleði í yndislegu veðri.
tvær flottar.
Og gleðin var ríkjandi. Bara allt svo skemmtilegt og gaman.
Hér voru líka allra þjóða manneskjur. Hér voru veraldarvinir, sem voru að vinna á Þingeyri, og líka alþjóðlegir nemendur sem voru að læra íslensku á Núpi. Og svo eru heimamenn hér allstaðar að líka, meðal annars frá Perú og Kúpu. Svo þetta var alþjóðleg veisla.
Og sumir eins og bara beint úr tískunni frá París.
Sú dökkhærða hefur Veraldarvinina á sinni könnu, ljóskan er hún Helga frá Þýskalandi, sem vinnur hér við Grunnskólan og er að gera frábæra hluti með óstýriláta nemandur. Ég þekki það alveg frá mér. Hún er alveg frábær.
Og Gummi með gítariinn það var mikið sungið.
Hér er faðir að leggja syni sínum lífsreglurnar. Ég stóðst ekki mátið, því umhverfið er gjörsamlega dásamlegt. Sjáið hvað sonurinn hlustar vel eftir því sem pabbi segir ?
Hér sitja menn til borðs.
Gummi og Gló magnaða eiga hér heiminn sýnist mér.
Amma áttu ekki einhverjar litsterkar kúlur, sem hægt er að skreyta með? spurði Birta Möttudóttir, jú amma átti jú jólakúlurnar
Gvendur á Eyrinni kominn upp á svið með hljómsveitina.
Þessi fallega stúlka er frá Perú.
en gestirnir komu víða að, eins og ég gat um áðan.
Möttu fannst svo þurfa aðeins að lífga upp á selskapinn
hún sagði líka að hún hefði verið alveg viss um að í salnum var ákveðin manneskja sem myndi taka slaginn með henni Alltaf til í smáfíflagang.
Það sem ég vissi ekki, var að einhver hafði tekið það upp hjá sér að taka myndir af þessum skemmtilega leik Hrútasýningunni okkar.
ég held bara svei mér þá að hinir erlendu gestir hafi verið ánægðir með íslenska bjórinn.
en gamli eintrjáningurinn stóð vaktina fyrir utan, hálf leiður samt að fá ekki að taka þátt í gleðinni fyrir innan.
Þar var nefnilega heilmikið fjör. Gummi og hljómsveitinn sem samanstóð af nokkrum einstaklingum, sem komu og fóru var rosalega góð og setti fútt í hlutina.
Og stelpurnar tóku lagið. Þær voru flottar, hér er Gló hin magnaða að taka lagið.
Það var dansað fram eftir nóttu.
Allir í svaka stuði.
Svo þurfti að ganga frá í morgun. Og allir voru boðnir í kaffi heim að Alviðru, þar sem frú Jóna bauð gestum af sinni alkunnu gestrisni.
Við hjónin ákváðum að halda áfram og fara allaleið á Ingjaldsand. Flottur staður, og ótrúlegt að þarna skuli bara búa einn ábúandi, ung kona. Því það virtist fullt af lífi þarna.
en hrikaleg fegurð Vestfiskra fjalla er ótrúleg. Krafturinn sem maður finnur fyrir svo nálægur og sterkur að maður fyllist orku.
Hér erum við svo að verða komin heim. Elli að lesa um Gísla Súrsson, með Þingeyri í bakgrunni og Vestfirsku Alpana. Hrikaleg fegurð.
Og víkingarnir horfa hvössum augum í átt til Þingeyrar, þar sem þeir eiga sinn tilverustað.
Ég er rosalega ánægð með þessa ferð, og það var svo gaman. Elsku Matta mín og fjölskylda, mikið innilega takk fyrir mig. Það er ógleymanlegt að fá tækifæri til að skoða það sem þarna er upp á að bjóða. Og ég ráðlegg fólki að láta þetta ekki framhjá sér fara, ef það á leið um. Það er margt að skoða og gleðjast yfir.
Hjartansþökk fyrir mig.
Svona smá í lokin. Í tilefni af hinsegin dögum.
Ég vil auðvitað óska hommum og lesbíum til hamingju með þessa hinsegin daga. Ég las í Fréttablaðinu ágætis grein í dag, eftir Þórunni El´lisabetu Bogadóttur, þar sem hún segir svo;
Þessi ganga er tilefni fyrir okkur öll til þess að fagna mannréttingum. Til þess að gleðjast yfir því hversu langt við Íslendingar höfum náð í þessum málum og til þess að rifja upp hvað við eigum eftir. Til að heiðra þá sem ruddu brautina fyrir þá sem á eftir komu. (tilvitnun lokið)
En ég er hugsandi yfir þessum orðum. Og ég spyr. Hvar er viðtalið við manninn sem opnaði þessa umræðu upp á gátt ? hvar eru lögin hans í spiluninni í útvarpinu yfir þessa helgi. Hvar er umfjöllunin um það sem hann gerði, m.a. að stofna samtökin 78. Eða var það ekki Hörður Torfason sem opnaði sig fyrstur manna, og varð að flýja land, vegna ofsókna í kjölfarið. Þeir sem á eftir honum komu, hafa örugglega átt erfitt. En það sem hann gerði, var stórkostlegt. Og ég segi bara, ef þið virkilega viljið heiðra þá sem ruddu brautina. Þá ekki gleyma þeim sem fyrstur stóð upp og opinberaði kynhneygð sína. Hann á allan heiður skilið, ekkert síður en þeir sem á eftir honum komu. Þið eigið held ég töluvert mikið honum að þakka.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þvílíkt skemmtilegt að sjá þetta svona í máli og myndum, þetta er eitthvað sem útlendingarnir gleyma aldrei, man þegar ég var í Norge og tók þátt í allskonar afslöppuðum uppákomum með heimafólki, lifir enn í hjarta mínu og hlýjar mér. Þessi helgi hjá ykkur hefur verið algjör draumur. Takk fyrir að leyfa mér að fljóta með í huganum.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 21:02
Það hefur ekki verið leiðinlegt þarna hjá ykkur!
.. Æðislegar myndir .. stemningin kemur vel fram. Ég er sammála þér með Hörð Torfa, hann er frumkvöðull og kannski píslarvottur. Ég las líka svakalega gott viðtal við Karl Berndsen, held það hafi verið í Fréttablaðinu. Þar talaði hann um hvernig hann sem ungur maður ,,í skápnum" fylgdist með Herði Torfa í laumi og dáðist að honum.
.. féll fyrir hjörtunum hennar Ásdísar og stel þeim hér með!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.8.2008 kl. 21:39
Skemmtilegar stemningsmyndir og flott að hafa svona "hinsegin" borðbúnað
Mjög skemmtileg myndin af feðgunum á spjalli. Þetta hefur greinilega verið skemmtileg ferð hjá ykkur. 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.8.2008 kl. 22:01
Takk Ásdís mín, já ég held að þetta ágæta fólk fari heim með sól í sinni og gott veður á sálinni eftir svona viðkynningu við íslenskan almúga, og yndislegt fólk.
Jóhanna mín, þetta var yndisleg kvöldstund sem ég átti þarna.
Og ég vona að fleiri en Karl Berndsen vildi varðveita aðdáun sína á Herði Torfa.
Hann er hreinasta perla.
Hehehe Sigrún mín, þetta var alveg einstakt, þegar ég gekk þarna framhjá og sá þessa yndislegu sýn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.8.2008 kl. 22:31
Huld S. Ringsted, 10.8.2008 kl. 22:40
Já Ásthildur takk fyrir komuna og takk fyrir að taka þátt í hrútasýningunni með mér.
Það eru nú einkum gestirnir sem búa til stemninguna við gestgjafarnir útvegum bara húsnæðið. Þetta var mjög gaman og skemmtilega alþjóðlegt.
Þess má til gamans geta að systir mín, hún Kristín, skar út víkingarna sem horfa til Þingeyrar á síðustu myndinni hjá þér.
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 10.8.2008 kl. 23:10
Frábær lókal og mig langaði að vera með. Takk, takk. Ykkur er ekki fisjað saman fyrir vestan.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2008 kl. 23:58
Manni einföldum eiginlega finnzt maður hafa verið boðflenna í partýinu eftir þezza myndasýníngu.
'Þetta hefur þó verið teiti!'
Sammála þér með Hörð Torfa, auðvitað á að 'ztytta' hann!
(Já, eða þannig, sko ekki þannig, æji þúveizt....)
Steingrímur Helgason, 11.8.2008 kl. 00:00
Já það á að reisa honum til heiðurs styttu, mikið rétt Steingrímur minn. Hann er reyndar ekki neinn glamourgæji, en mér finnst að hommar og lesbíur geti gert honum hærra undir höfði í þessari hátíð. Það má ekki gleyma rótunum.
Takk Jenný mín.
Matthildur mín, það er nefnilega þannig að það er gestgjafinn sem skapar stemninguna. Svo er það gestanna að spila úr því sem þeir fá.
Knús Huld mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.8.2008 kl. 09:14
Gaman að sjá hvað allir hafa skemmt sér vel. Skemmtilegar myndir. Takk fyrir að fá að vera með í huganum. Kveðja.
Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 09:18
Hrikalega langaði mig að vera þarna! Greinilega frábært kvöld hjá ykkur
Hrönn Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 09:51
Lifandi myndasýning það liggur við að maður sér bara komin í gírinn
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 11.8.2008 kl. 10:06
Mikið hefur verið gaman, og flottar myndir hjá þér alltaf
Kristín Katla Árnadóttir, 11.8.2008 kl. 11:02
Mín er ánægjan Auður mín.
Já þetta var mjög skemmtilegt Hrönn mín.
Hehehe Hulda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.8.2008 kl. 11:04
Takk Katla mín. Já þetta var virkilega gaman.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.8.2008 kl. 11:08
Helga skjol, 11.8.2008 kl. 11:30
Kátínan er flott og fjörið skín af öllum hjá þér - mikið held ég að það hefði verið gaman að vera þarna á staðnum með ykkur - með hrútshaus og alles. Ljósakrónan "nýstárslega" er náttúrulega glæsileg með gömlu sjóglerkúlunum, man eftir því að hafa verið að safna slíkum kúlum í fjöruborðinu heima í gamla daga ..
Ég er hjartanlega sammála þér með Hörð Torfa, það hefði átt að spila miklu meira með honum og líka ræða meira við hann á þessum tímamótum. Hann stakk upp mikil spor á sínum tíma - öðrum til hjálpar sannarlega.
Tiger, 11.8.2008 kl. 12:17
Mikið eru þetta yndislegar myndir og lifandi frásögn. Gaman að þið skylduð fara inn á Ingjaldssand. Tengdamóðir mín er fædd og að mestu uppalinn að Álfadal á Ingjaldssandi og er síðasti íbúinn þar gömul skólasystir mannsins míns. Yfir fjallgarðinn í snjó upp í klof arkaði tengdamóðir mín heim til sín á gamlársdag en hún hafði fengið sólarhringsleyfi frá vist sem hún var í , í Dýrafirði og gekk fyrir heiðina ásamt prestinum á stígvélum. Ótrúleg harka. Þetta er fallegur staður. Álfadalur er löngu farið í eyði og sjást húsin vinstra megin við veginn. Það er alltaf fallegt fyrir vestan. Móðurafi minn var frá Keldudal í Dýrafirði. Vestfirðingar eru einstaklega harður "þjóðflokkur"! Knús og kveðjur frá mér héðan úr Þorlákshöfn.
Sigurlaug B. Gröndal, 11.8.2008 kl. 13:34
Knús Helga mín.
Takk fyrir TíCí minn. Og sömuleiðis. Ég hef saknað þín alveg heilmikið
Knús til þín líka Sigurlaug mín. gaman að heyra þetta með tengdamóður þína. Já það er harka í fólkinu í hinum dreyfðy byggðum. Þegar við vorum þarna var bóndinn að raka saman heyi á traktor. Það var eitthvað svo vinalegt að sjá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.8.2008 kl. 15:26
Takk elskuleg...mér finnst ég vera á staðnum
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.8.2008 kl. 20:13
Takk fyrir síðast Anna mín. Mikið var gaman að fá þig í heimsókn og litla stubbinn þinn fallega hann Tómas.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.8.2008 kl. 22:04
Ég segi nú bara VÁ !!!
Solla Guðjóns, 11.8.2008 kl. 22:40
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.8.2008 kl. 22:42
Gaman að kíkja í Alviðru með hjálp myndanna þinna
og að Ingjaldssandurinn hafi tekið svona vel á móti ykkur, ég hitti ekki alveg eins vel á um daginn, það var lágskýjað! Í Alviðru fékk maður himneskar pönnukökur hjá henni Siggu mömmu hennar Jónu og ömmu hennar Möttu
Zakki afabróðir Möttu var vinur minn, bjó hjá okkur síðustu ár ævinnar.
Afi ólst upp í Hrauni á Ingjaldssandi
Faktor, 11.8.2008 kl. 23:07
Ég sá að Sigurlaug minntist á Álfadal, þaðan var Jóhanna Ívarsdóttir, nafnið hennar er seinna nafnið mitt
Faktor, 11.8.2008 kl. 23:10
Frábærar myndir og alveg æðislegur staður greinilega.
Takk fyrir mig Ásthildur mín.
Linda litla, 11.8.2008 kl. 23:21
Takk mín kæra.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 12.8.2008 kl. 02:08
Knús Gmaría mín.
Mín er ánægjan Linda mín. Knús
Gaman að heyra Faktor. Þetta eru þá þínar heimaslóðir. Það vantar ekki myndarskapinn á Alviðru. Við ókum einmitt framhjá Hrauni, sá ekki betur en að tengdasonur Guðmundar væri þar í háslætti og hestarnir heima við tún. ALlt svo vinalegt.
Takk elsku Anna mín Svartfugl. Mér finnst þú líka vera algjörlega frábær manneskja. Og litla gullið þitt verður einhverntíman stór og sterkur, fallegur maður.
Solla mín, já einmitt, fólk stoppar labbar upp, og fer svo að hika þegar það kemur aðeins nær, og sér að þarna eru allskonar leikföng og heimilisdót
Lendi mjög oft í að róa fólk sem finnst það hafa verið að troða sér. Svo koma líka margir sem standast ekki forvitnina og vilja aðeins fá að kíkja, annað hvort á gróðurinn eða kúluna og taka myndir. Elli hefur gantast með þetta ég ætti bara að sitja fyrir utan, með lukkusteina og selja fólki aðgang, spá fyrir því og láta það svo fá orkusteina
Geri það ef til vill í næsta lífi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 09:36
Lubbinn er snilld!! Ekki spurning þetta er skemmtun ársins
Gló Magnaða, 12.8.2008 kl. 10:21
Fer að hallast að því Gló mín
Takk Guðlaug mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 13:15
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.8.2008 kl. 14:41
Lubbinn? Er það eitthvað kennt við mig? Það hlýtur að vera, - alla vega virðist þetta vera eitthvað einstaklega skemmtilegt.
Laufey B Waage, 12.8.2008 kl. 15:10
frábæra myndir, aæveg aldeilis gaman að skoða mannlífið í kringum þig yndislega kona.
kærleikur til þín og allra
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 15:36
Það er alltaf jafngaman að ferðast með þér hvert sem þú ferð.
Takk fyrir að bjóða okkur með í Alviðru og bara út um allt. Sakna þess svo að komast ekki á Vestfirðina.
Knús í kúluna
Kidda (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 16:53
Alltaf jafngaman að koma hingað inn Ásthildur mín
. Ég þekkti Jónu í Alviðru á Núpsárum mínum, minnir að hún hafi verið viðloðandi mötuneytið á þeim tíma. Falleg kona og ég áttaði mig á skyldleikanum við Matthildi, þegar þú sagðir hana vera frá Alviðru - mjög líkar mæðgur.
Knús í Kærleikskúlu
Sigrún Jónsdóttir, 12.8.2008 kl. 17:31
Það eru aldrei of margar myndir þegar þú ert annars vegar Ásthildur mín. Ofboðslega gaman að skoða. Takk fyrir mig
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 23:11
Mín er ánægjan Anna mín.
Já Sigrún mín, Jóna vann lengi í mötuneytinu á Núpi, þar hitti ég hana fyrst.
Takk Kidda mín.
Kærleikskveðjur til þín líka Steina mín.
Lubba mín elskuleg einmitt

Knús Linda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.8.2008 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.