Myndir frá Síldarvertíð á Siglufirði, kannast einhver við fólkið ?

Ég komst yfir gamalt myndaalbúm frá ömmu minni.  Ég ætla að skanna inn myndirnar og setja þær svo hér inn. Hér koma svo fyrstu myndirnar úr þeirri seríu.  Þessar myndir eru frá Siglufirði, síldarævintýrið, amma mín fór alltaf á vertíð á Sigló, þegar ég var barn að aldri, og nú kemur í ljós að til eru myndir frá þessum tíma.  En hér koma myndirnar.  Ég vil biðja þá sem þekkja fólkið um að hafa samband, annað hvort að svara hér, eða inn á gestabókina.

amma

Föngulegar konur, amma mín er þarna sú þriðja frá vinstri.

konur

Mér finnst eins og þessi kona til vinstri á myndinni geti verið kona sem kölluð var hér Jóka stóra.  Veit ekki hvað hún hét.  En vænt þætti mér um að fá nöfnin á þessum konum.

Sigló.amma2

Hér er líka fólk sem gaman væri ef einhver þekkti.

Stúlka á svölum

Og hér.

ungt fólk

ég á eftir að setja inn fleiri.  En ef þið þekkið einhverja af þessu unga fólki, þá endilega sendið mér eitthvað um það. 

Síldarævintýrin a Sigló.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Þetta hefur örugglega verið frábær tími, hitti einmitt konu í Færeyjum á dögunum sem hafði verið í síld á Norfirði og það kom glampi í augun á henni þegar hún fór að rifja það upp

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 7.8.2008 kl. 23:49

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er örugglega rétt hjá þér Hulda mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.8.2008 kl. 23:59

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég þekki ekki þessar persónur, en það er alltaf gaman að sjá myndir frá síldarævintýrinu og heyra sögur frá fólkinu sem upplifði það.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 8.8.2008 kl. 00:30

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Cesil.

Mamma var á síld á Sigufirði í den og ég er með nokkrar myndir sem ég þarf að skanna inn, það er stórgaman að sjá þessar myndir.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.8.2008 kl. 00:48

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú hefði ég þurft að hafa mömmu hjá mér, hún ætti að þekkja einhverja.  Skemmtilegar myndir og það verður gaman að fá fleiri.  Kveðja vestur

Ásdís Sigurðardóttir, 8.8.2008 kl. 01:14

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Gaman að þessum myndum, en hvenær eru þær teknar heldurðu ?  Um  1935 - 1940, gæti það verið?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.8.2008 kl. 02:04

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Flottar myndir en þarna er ég skák og mát. En hefðir þú haft síldarmyndir frá Vopnafirði þá hefði ég eða faðir minn getað hjálpað. Árið 1956 var byrjað að salta hér rétt fyrir neðan þar sem ég á heima. Ég var ekki há í loftinu þegar ég byrjaði að salta. Má þakka fyrir að hafa ekki farið á eftir síldinni ofaní tunnuna þegar ég var að raða neðstu lögin. Ósköp var maður stuttur í annan endann þá.  Svo hófst nýtt ævintýri um 1980. Það var líka fjör þá.

Gangi þér vel að finna út hverjir eru á myndunum. Þessar gömlu myndir hafa einhverja töfra og ég tala nú ekki um síldarsöltunarmyndir.

Guð gefi þér góðan dag.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.8.2008 kl. 08:29

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús á þig elsku Ásthildur mín og áttu góðan dag mín kæra

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 8.8.2008 kl. 08:58

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir göð viðbrögð, ég held að amma hafi verið að fara þarna milli 50 og 60.  Pabbi keypti svo bragga þarna kring um 1966 og saltaði svolítið á þeim tíma, en þá var síldarævintýrið á enda.  Ég hugsa að þessar konur séu nú flestar frá Ísafirði eins og amma mín.  En ef til vill kemur einhver sem þekkir til.

Knús á þig líka Linda mín.

Lilja mín ég hugsa að þetta hafi verið milli 1950 til 60.  Ég man að þau fóru á hverju vori norður afi og amma.  Og komu að hausti, og þá fékk ég altaf eitthvað fallegt.

EIns og eg sagði við Lilju milli 50 og 60 Guðlaug mín.

Takk ÁSdís mín, já stundum vantar mann þá sem eru horfnir.  Knús á þig.

Gmaría mín, já það er gaman að rifja upp þessa skemmtilegu tíma.

Einmitt Sigrún mín.

Elsku Rósa mín, mikið hefðum við misst af hefðir þú verið send eins og síld í tunnu  Já þetta hefur örugglega verið skemmtilegur tími.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.8.2008 kl. 09:37

10 Smámynd: Faktor

Þetta minnir mig á síldarplönin á Eskifirði og Norðfirði á æskuárum mínum   það vantar bara "peningalyktina" sem er sérstaklega minnisstæð frá Eskifirði

Faktor, 8.8.2008 kl. 11:13

11 Smámynd: Brynja skordal

yndislegar myndir hafðu ljúfa og skemmtilega helgi Elskuleg:)

Brynja skordal, 8.8.2008 kl. 11:46

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Faktor mín, hehehe peningalyktina er erfitt að finna gegnum myndir.

Takk sömuleiðis Brynja mín.

Góða helgi til þín líka Arna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.8.2008 kl. 20:15

13 identicon

Sæl Ásthildur, 

Ég kíki oft á síðuna hjá þér og vil þakka þér fyrir allar myndirnar, og skemmtilegheitin. Ég get sagt þér að hún Alda Ólafsd. á Seljalandsveg 8 er hafsjór af fróðleik um Siglufjörð, hún hefur oft sýnt mér fullt af gömlum myndum bæði þaðan og frá Ísafirði í gamla daga. Þú gætir örugglega fengið verðmæta þekkingu hjá henni því þetta er ekkert annað en merkileg menningarverðmæti sem liggja í þessum gömlu myndum, gamlar heimildir.  Og það er leitt til þess að vita ef að þessi vitneskja hverfur með fólkinu sem þekkir þessar myndir.

kv. Hulda. 

Hulda Hafsteinsd. (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 00:55

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hulda mín, ég ætla að kíkja í kaffi til hennar Öldu þegar hægist um hjá mér.  Ég á inni hjá henni kaffiboð.  Hitti hana reyndar stundum niðrí Samkaup.  Hún gaf mér einmitt myndir frá Siglufirði frá fjölskyldunni minni, en það var frá 1966. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.8.2008 kl. 11:29

15 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Þetta eru nú það gamlar myndir að ég efa að ég hafi náð að fikta í neinum þessara kvenna.En þegar ég var á Sigló var nóg þar af lauslátu kvenfólki og allt fljótandi í víni.

ENdilega birtu þessar myndir frá 1966. Ég hlýt að þekkja einhverjar þeirra kvenna, sumar þeirra jafnvel nokkuð vel.

Sigurður Sigurðsson, 10.8.2008 kl. 18:17

16 identicon

Sæl Ásthildur.

Ég kannaðist strax við eina konu, fannst þetta hljóta að vera ein af ömmusystrum mínum úr Víkinni. Mamma staðfesti það svo við mig áðan að þessi lengst til hægri á efstu myndinni væri Gurra ömmusystir mín - Guðrún Finnbogadóttir Bernódussonar. Ég held alveg ábyggilega að hún sé líka þessi til vinstri á neðstu myndinni.

Mamma ætlar að prenta þetta út og sýna Gurru frænku sem býr í Kópavogi og þá fást eflaust nöfn á alla á myndunum!

Bestu kveðjur frá Osló.

Sigga

Sigríður Gísladóttir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 18:06

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe Sigurður, ég skal finna þessar myndir frá Sigló 1966.  Reyndar voru þær komnar nokkuð við aldur konurnar sem þar voru á mynd ef mig misminnir ekki. 

Þakka þér fyrir þessar upplýsingar Sigríður, það verður gaman að fá nöfnin.  Takk fyrir það. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.8.2008 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband