6.8.2008 | 21:41
Bara hitt og þetta í máli og myndum.
Ég hef verið rosalega upptekin undanfarna daga. Bæði af afmæli pabba, og svo fjölskyldunni almennt og bara að vera til, sem einstaklingur i samfélagi manna. Það tekur allt sinn tíma. En það gleðilega er, að hingað hafa komið manneskjur í heimsókn, bloggvinir og málverjavinir, sem ég þekki sem netvini, en hef fengið að kynnast þeim í raunheimum. Og ég get svo svarið það, að hversu yndislegt þetta fólk er á netinu, þá er það ennþá flottara í raunveruleikanum. Þess vegna var svo gaman að fá að hitta það og kynnast.
en fyrst aðeins að fjölskyldunni minni, hér er Bára mín og Hanna Sólin á góðri stund.
Knúsírófur.
Hér er svo Kay, hann er rosalega góður við stelpurnar, og passar þær fyrir Báru.
Litla skottið mitt. Þær verða báða hjá mér í vetur. Það var mitt boð til móður þeirra, mín lausn á að aðstoða hana við lærdómin. Ég elska þessar litlu stelpur, og ég elska barnið mitt hana Báru. Og þess vegna vil ég gera það sem hægt er til að hjálpa henni gegnum námið. Það er bara þannig.
Afi og Hanna Sólin, þau eru að fara aftur heim á Hellu.
Knúsa stóra bróður, eins og hún kallar Úlfinn.
Alltaf er nú erfiðast að segja bless. Þannig er það nú. Í hvert sinn sem þú kveður deyr eitthvað.
Hér er eitt dæmi um eitthvað svoleiðis. Þetta er betrekk frá minni barnæsku. Systir mín keypti hús föður míns, á efri hæðinni var æskuheimili mitt, en ég bjó hjá ömmu og afa. Það er búið að taka alla íbúð æsku minnar í burtu, alla veggi og allt, nema skápinn sem var í svefnherberginu sem við sváfum í öll þrjú. Einhverra hluta vegna, stendur skápurinn ennþá þar, og betrekkið eins og ég man frá því að ég man eftir mér. Í þessum skáp voru allskyns spennandi hlutir, sem mér þótti gaman að skoða. Þegar ég var lítill var hann risastór. Núna með alla innveggi horfna, þá er hann svo pínulítill. En betrekkið er þarna ennþá.
ein gleðin enn, elskulega Huld mín frá Akureyri kom við hjá mér, og við áttum yndislega stund saman. Þau eru flott hjónin, og hundarnir fengu aðeins að fá sér sprett. Ég hefði viljað hafa þau hér yfir nóttina, en þau voru búin að ákveða að fara út í Bolungarvík. Og Huld er algjörlega frábær, meira að segja ennþá frábærari en ég hafði gert mér í hugarlund, og var þó stórt áætlað. Takk Huld mín.
Önnur yndisleg kona kom í heimsókn til mín Anna Svartfugl. Við áttum gott spjall saman, og hún er alveg frábær.
Hún sagði líka svo margt sem skiptir máli. Meðal annars spurði hún mig; hvað er fjölmenning?
Mér var svarafátt. Mitt í allri umræðu um útlendinga, og fólk sem kemur hingað til að setjast að. Hún sagði, ég er íslendingur og er stolt af því, en ég ef af serbneskum ættum og íslenskum. Sonur minn er líka íslendingur, en hann er með tyrkneskt blóð í æðum líka Hollenskt, serbneskt og íslenskt. Hún segir það er ekkert til sem heitir fjölmenning. Heldur er það þannig, að það fólk sem hingað kemur til að setjast hér að, og kemur með sína siði og venjur, eru íslendingar, þar með eru þessir siðir og venjur íslenskir. Þannig breytist umhverfið. Þannig þurfum við að taka afstöðu til þeirra sem hingað koma. Þeir eru íslenskir, og þeirra siðir og venjur verða þar með íslensk. Okkar hefðir verða umfangsmeiri. Við verðum að taka við fólkinu af hjartans einlægni, og taka þeim eins og þeir eru. Það fólk sem hingað kemur þarf auðvitað að vilja aðlaga sig að íslensku þjóðfélagi, en á sama tíma, þurfum við að viðurkenna að þeirra arfleifð verður ósjálfrátt íslensk. Þegar fólk tala um fjölmenningarsamfélag, segir Anna, þá eru menn að skipta fólki upp í mismunandi þjóðfélög. Þeir sem hinga vilja koma og setjast að, eru einfaldlega íslendingar, og þeirra menning þar með íslensk. Mér finnst Anna hafa mikið til síns máls.
Þeir féllu saman eins og flís við rass þessir tveir, Úlfur og Tómas.
Knúsírófurna hennar ömmu, Júlíana Lind og Óðinn Freyr sváfu hjá ömmu í nótt.
Og reyndar Alejandra ömmustelpa líka.
Þau voru öll á leið í heita pottinn.
Það var gaman hjá þeim.
Himnagalleríið er reyndar opið oftast hér í góða veðrinu, sem ekki má tala um á Ísafirði.
Og ég komst að því í morgun þegar ég loksins fór í að höggva eina risahvönnina, að hún er ekki bara skaðræði við mannfólkið, heldur eru þessir svörtu blettir dauðar flugur sem hún hefur tælt til sín og drepið. Það var fjöldinn allur af geitungum og slíkum flugum dauð föst í ógnvaldinum.
Systir mín sem býr í Danmörku sagði mér líka að Bjarnarklóin væri þvílíkur skaðvaldur í Danmörku að það væri markvisst verið að útrýma henni þar. Og það væri hreinlega bannað að hafa hana á opinberum stöðum. Fólk væri hvatt til að útrýma henni í görðum sínum. Og sveitarfélög færu til fólks og útrýmdu henni, þar sem hún væri. Því hún væri algjör skaðvaldur þar sem hún væri. Þetta er líka að gerast hér, því miður. ALgjör risaeðla... eða þannig.
ég bauð systursonum mínum í mat í kvöld, og við áttum yndislega stund saman. Elli bauð þeim síðan með sér á Kajak. Pollurinn er sléttur og veðrið er yndislegt. Og ég hef þar með tíma til að spjalla við ykkur elsku bloggvinir mínir.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk Arna mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.8.2008 kl. 22:01
Falleg færsla..falleg orð , sérstaklega um dóttir þína og barnabörn. Ég fékk næstum tár í augun við lesturinn..ég meina það :))) Þú ert nú algjörlega yndisleg manneskja Ásthildur mín.
Ester Júlía, 6.8.2008 kl. 22:08
Það er alltaf nóg um að vera í kringum þig, rkki dautt augnablik. Ég var að hugsa þegar þú talaðir um að ég hefði átt að heyra ræðuna hans Adda, að það fer að verða tímabært að Stakkanespúkar taki sig saman og hittist. Þó svæðið væri ekki stórt var hópurinn svo stór og breiður og aldursmörkin svo teygjanleg. Ég minnist þess að leika mér með fólki sem fór að búa og eignast börn áður en ég varð hálffullorðin. Okkur þótti þetta sjálfsagt. Og ef verður drifið í að hóa fólki saman þarf að hafa smáleiki með. Kannski ekki stórfiskaleik, en eitthvað sem öllum
h
entar. Myndi fúslega taka þátt á einhvern skemmtilegan hátt
Dísa (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 22:13
Takk fyrir mig.
Knús í kúluna.
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 6.8.2008 kl. 22:16
Takk fyrir falleg orð um mig Ásthildur mín
Það var yndislegt að hitta ykkur hjónin og að ég tali nú ekki um að fá að sjá litlu skotturnar þínar og hann Úlf, skemmtilegur strákur 
Knús í kúluna
P.S. mikið skelfilega er ég einkennileg á svipinn þarna
Huld S. Ringsted, 6.8.2008 kl. 22:24
Þú átt ekki margar dauðar stundir, alltaf nóg fyrir stafni. þegar þú nefndir að eg hefði átt að heyra ræðuna hans Adda, hvarflaði að mér að tími væri kominn til að Stakkanespúkar sameinist. Þó svæðið væri ekki stórt vorum við svo mörg og á mismunandi aldri og lékum okkur í bolta og skessuleikjum, tjarnasiglingum , dorgi og fleiru. Mætti fara að rifja það upp
Dísa (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 22:28
Sæl Ásthildur mín.
Mikið er dóttir þín lánsöm að eiga þig að. Skemmtilegar myndir og skemmtileg skrif. Betrekkið var virkilega flott og alveg ástæða að taka mynd af því til að hafa í minningarbankanum.
Myndin þar sem var verið að knúsa stóra bróður var mjög krúttleg.
Þú ert dugnaðarkona sem notar hverja mínútu og býður fólki í mat og dekur. Það væri nú ágætt ef einhver myndi dekra við þig líka.
Guð veri með ykkur öllum.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.8.2008 kl. 22:50
Perla.
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2008 kl. 23:30
Vem kan segla förutan vind
Jag kan segla förutan vind. Jag kan rå utan åror. Men ej skiljas från vännen min utan att fälla tårar. Hver getur siglt þó gefi ei byr? Hver getur róið án ára? Hver getur kvatt sinn besta vin? kvatt hann án skilnaðartára. Ég get siglt þó gefi ei byr. Ég get róið án ára. En ei kvatt minn besta vin kvatt hann án skilnaðartára. Knús á þigVem kan ro utan åror
Vem kan skiljas från vännen sin?
utan att fälla tårar.
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 6.8.2008 kl. 23:48
Þú ert ótrúlega rík af þinni fjölskyldu, sem og þau af þér. Stelpurnar verða í góðum höndum hjá ömmu og afa. Gott að geta stutt svona við börnin sín
Ég fell alveg fyrir gróðrinum sem sést á myndunum, rosalega fallegt, hlýtur að vera ofsa notalegt að hafa þetta í kringum sig 
Kærleiksknús Ásthildur mín
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.8.2008 kl. 23:53
Frábært að vanda, er að þvælast hér inni um miðja nótt, ætti löngu að vera sofnuð en bara ekkert syfjuð. Kær kveðja í kærleikshúsið þitt.
góða nótt
Ásdís Sigurðardóttir, 7.8.2008 kl. 02:16
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 7.8.2008 kl. 03:30
Ásthildur mín þegar ég las þessa færslu hjá þér fór ég í "naflaskoðun" og spurði sjálfan mig að því hvort ég myndi gera það fyrir börnin mín, sem þú hefur gert, að vera með barnabörnin í heilan vetur. Svarið var; ég held ekki, til þess er ég of sjálfselskur og ég er bara enginn maður til þess lengur að vera með smábörn. Það sem þú hefur gert ber vott um svo mikla ást, umhyggju og fórnfýsi að leitun er að öðru sambærilegu. Guð hlýtur að vera með sérstakan stað, sem er ætlaður fólki eins og ykkur hjónunum (því ekki hefur þú tekið þessa ákvörðun ein) þegar þar að kemur.
Jóhann Elíasson, 7.8.2008 kl. 09:59
Cesil, þú ert í einu orði sagt Frábær.
Það er ekki bara fjölskylda þín sem er heppin að þú ert eins og þú ert heldur við öll.
Knús í hamingjukúluna
Kidda (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 10:22
innlitskvitt
Emma Agneta Björgvinsdóttir, 7.8.2008 kl. 12:08
Yndislegt, bara yndislegt
Helga skjol, 7.8.2008 kl. 12:59
Í hjarta þínu virðast vera fleiri vistarverur en hjá flestum
. Bestu kveðjur og takk fyrir daglegt blogg
Sigrún Jónsdóttir, 7.8.2008 kl. 13:08
voðalega er þetta allt notalegt hjá þér !
kærleikur á þig
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 7.8.2008 kl. 13:34
Það er alltaf allt svo yndislegt hjá þér og þú átt svo yndislega og fallega fjölskyldu. Til hamingju með pabba þinn.
Takk fyrir mig
Linda litla, 7.8.2008 kl. 16:35
Þú er nú svo sjálf svo dásamleg, og alltaf gott að fara á bloggið þitt og mikið var gaman að sjá Huld hjá þér kærar kveðjur.
Kristín Katla Árnadóttir, 7.8.2008 kl. 17:33
Hrönn Sigurðardóttir, 7.8.2008 kl. 21:44
Takk Hrönn mín.
Kær kveðja til þín líka Katla mín, og knús
Takk Linda mín.
Knús á þig líka Steina mín.
Elsku Sigrún mín, nema það sé eitthvað tómarúm sem hægt er að stafla inní
Knús elskuleg mín 
Takk Helga Skjól mín.
Knús Emma mín.
Takk fyrir þetta elsku Kidda mín.
Minn elskulegi Jóhann, nei ég tók þessa ákvörðun að höfðu samráði við Elías minn og svo stubbinn okkar. Þetta er okkar sameiginlega ákvörðun, enda stór og skiptir máli.
Takk fyrir hlý orð.
Knús Lilja mín.
Ásdís mín, ég ætla að vona að það hafi ekki verið verkir sem héldu fyrir þér vöku mín kæra. Knús á þig.
Sigrún mín, já gróðurinn er yndæll. En það var fyrir nokkrum árum að ég var að passa Óðinn Frey, þá sennilega þriggja ára, ég leit af honum augnablik, og búms hann var horfinn. 'Eg leitaði allstaðar um lóðina, en það voru allstaðar tré og runnar, ég var mest hrædd um að hann hefði dottið ofan í annan hvern lækinn sem renna hér sitt hvoru megin við húsið. Ég hringdi á lögguna, þegar ég var orðin nógu desperat. Og viti menn, þau komu með stubbinn, hann hafði þá farið hina leiðina yfir götuna og niður á lóð Áhaldahúss bæjarins, og var að dunda sér við gröfurnar. Það var martröð, get ég sagt.
Tack for det Hulda mín, jag gillar denna sången jätte mycket.
Knús Jenný mín.
Elsku Rósa mín, þið dekrið við mig. Bloggvinir mínir og aðrir. Hlý og falleg orð gefa mikið. Og svo sannarlega gefa þau mér mikið. Meðan ljót orð og hugsanir særa, þá gefa og lækna fallegar og hlýjar hugsanir. Marg oft hef ég komið hér inn dauðþreytt og lúin, og orðin ykkar hafa gefið mér styrk og ró til að fara upp í holuna mína og slaka á. þá fer ég yfir allt það sem þið segið og það endurómar í hjarta mínu, og mér líður svo vel. Ég veit ekki hvort fólk almennt gerir sér grein fyrir, hvað það getur haft mikil áhrif, til góðs eða ills, með bara orðum og hugsunum. Þess vegna er svo mikilvægt að gæta sín, og þjálfa sig í því fallega og góða. Það skiptir svo miklu máli.
Huld mín, þú ert flott kona, og það var yndislegt að sitja með ykkur hjónum og rabba. Ég er svo ánægð með að þið skylduð gefa ykkur tíma til að koma. Og svo áttu svo myndarlegan mann elskuleg
Algjör sjarmur.
Knús á þig til baka elsku Búkolla mín.
Knús Þórdís mín.
Dísa það er alveg laukrétt hjá þér. Það er komin tími til að halda Stakkanespúkaþing, og ræða um þá gömlu góðu daga, þegar við vorum að alast upp. Allt það sem við vorum að spá og spekulera, prakkarastrikin og allt það heheheh.. Það væri reglulega gaman.
En fyrst hittumst við fermingarsystkinin um miðjan september. Magni er búin að láta mig hafa nafnalistann, ég þarf bara að senda ykkur hann, svo við getum hringt út, og látið fólkið okkar vita. Knús á þig.
Takk fyrir þetta elsku Ester Júlía mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.8.2008 kl. 23:22
Eg vil þakka fyrir mig og gott kaffi Tómas Þór MIkael var heillaður af Úlfi!!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 10.8.2008 kl. 01:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.