3.8.2008 | 22:44
Þórður Júlíusson níræður.
Þð var mikið um að vera að dag, mýrarbolti, goflmót og fleira. En núna ætla ég bara að setja inn myndir frá afmælinu hans pabba míns.
Afmælisbarnið og litla systir hans. Falleg og flott.
Guðjón Arnar hélt aðalræðu kvöldisins, að minni beiðni, enda er hann uppalinn í Stakkaneshverfinu sem svo er nefnt, nágranni frá barnæsku.
Gunnar bróðir minn hélt svo skemmtilega ræðu óundirbúin og blaðalaust, enda frábær ræðumaður.
Hér er hún frú Matthildur Helga, óbeisluð, og í peysufötum. það eru margar konu hér sem eiga slíkan grip í dag, þökk sé þeim stöllum óbeisluðum að halda hér saumanámskeið til að sauma íslenska þjóðbúninga. Og það að auki gera þær sjálfar meira og minna þá skartgripi sem heyra búningnum til. Ég dáist að þeim, og er alvarlega að hugsa um að fá að vera með næst.
ég verð sennilega skorin í spað og tekin í karphúsið af systrum mínum fyrir að setja þessa mynd inn, en hér erum við systkinin með pápa mínum.
Og hér með mökum.
Hér er hún Sigga litla systir mín, með drengina sína, þeir hafa allir þjónað í danska hernum, og sá elsti með fullt af heiðursmerkjum frá stríðinu í Írak. Það var ekki auðvelt líf.
Þarna voru mættir margir sem vildu votta honum virðingu sína, þar á meðal sjávarútvegsráðherra vor.
Hér er föðursystir mín yndislega Judith Friðrikka, og Gunnar Friðriksson, sá mæti maður.
Ýmsir máttarstólpar samfélagsins hér voru mættir
Og svo alþingismenn.
m.a Guðjón Arnar með Barböru sína elskulegu pólsku eiginkonu.
Hehehe hver segir að það sé ekki hægt að bretta eitthvað annað en servíettur
Spúkí tengdadætur hehehehe
Pabbi naut sín vel þetta kvöld, hér er Ásthildur Cesil aðeins að hvíla sig
En sú gamla bara að hafa ánægju af öllu saman.
eða eins og sjá má, þá skemmti ég mér konunglega líka.
Já við fengum svona tjald utan við húsið til að gefa kost á því að vera utan dyra, og veðrið lék reyndar við okkur.
Það voru hnallþórur
Og rosalega flottar brauðtertur skreyttar af systur minni. Svo annað eins hefur varla sést. Hún hefur þetta frá móður okkar. meiri hátta, og þær voru líka bara svo góðar.
Hafið bara séð svona flottar brauðtertur?
Tekið áður en gestirnir komu, en mér telst til að hér hafi verið um 150 manns í það minnsta.
já hingað mættu margir. Meðal annars frá Sandgerði.
Og pabbi sker fyrstu kökuna.
Hér er svo lítið skott, sem fannst flott að borða í hillunni hennar ömmu
Og litlar prinsessur með pabba sínum.
En ég ætla að enda þennan pistil á að setja hér inn ræðuna mína.
Við komum hér saman í dag til að fagna með föður mínum Ingólfi Þórði Júlíusyni. Tilefnið er jú að hann er um það bil að vera níræður, eða næst komandi mánudag þann 4. ágúst. Pabbi minn hefur skilið eftir sig stórt spor í atvinnulífi Ísfirðinga. Eins og allir hér vita. Við erum hér líka 7 systkini sem værum ekki til ef hans hefði ekki notið við. Ég er nú eiginlega þakklátust fyrir það, svona persónulega. Allavega er ég ánægð með að foreldrar mínir áttu a.m.k. eitt barn. Pabbi tók það skýrt fram strax að hann vildi ekki þiggja neinar gjafir. Enda á maðurinn allt sem hann þarf og meira til. Það er samt ein gjöf sem ég ætla að færa honum. Sú gjöf er vegna þess að ég vil þakka honum fyrir svo margt. Fyrir það fyrsta, þá var hann mér góð fyrirmynd í heiðarleika, vinnusemi og alþýðlegri hegðun. Hann kenndi okkur börnunum sínum, að skorast ekki undan vinnunni, eða vera með hroka gagnvart öðrum. Pabbi gekk í öll þau verk sem unnin voru, meðan hann rak sín fyrirtæki, hvort sem það var skreiðarverkunin, rækjuverksmiðjan eða litla íshúsið sem hann byrjaði á í skúrinni ofan við húsið. Það getur verið að ég hafi fengið meira að njóta samvistanna við hann, því þegar tíminn leið, urðu börnin fleiri, og minni tími gafst til að sinna þeim. Pabbi vann alltaf manna mest, fór fyrstur út, og kom síðastur inn. Aldrei kvartaði hann yfir þreytu eða vinnuálagi. Hann kenndi okkur líka að meta það smáa í lífinu. Til dæmis spurði ég hann einhvertíman hvað hann langaði í í jólagjöf. Þú getur teiknað fyrir mig mynd, sagði pabbi. Og ég var hæstánægð með þá lausn. Það var líka pabbi sem kenndi okkur Nonna kvöldbænirnar. Ég minnist þess þegar við vorum að læra vertu nú yfir og allt um kring með einlægri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Önnur bæn sem ég var lengi að spá í, en það er bæninn Vertu Guð faðir faðir minnÍ frelsaran Jesú nafni, Hönd þín leiði mig út og inn.Svo allri synd ég hafni. Mér fannst þetta vera eitthvað um að allir væru að synda í höfninni. Sú mynd sveif svo alltaf fyrir hugskotsjónum mínum. Hvað var allt þetta fólk að gera að synda í höfninni og hvað kom það eiginlega Guði og Jésú við.
Ljóð:
Ungur lagði upp frá æskuströndum
Ekkert átti nema kjark og þor.
Verkin öll svo vann með tveimur höndum,
víða hér má sjá þau hraustu spor.
Svo komu börnin, sín á hverjum tíma,
krakkahópur átti altlot hans.
Kennslustund í kurteisi að sýna,
hann ætlaði að koma þeim til manns.
Sorgin kom og vont þá er að vera
viðkvæmur í þrautum svartnættis,
Þungt er sporið barnið sitt að bera,
bjargarlaus í faðminn almættis.
Sárt er líka maka sinn að missa,
maður verður stundum eins og leir.
Förunaut, sem var manns trú og vissa,
en verður örsnöggt þarna ekki meir.
Þú fagnað þessum fjársjóði nú getur,
föngulegum stórum barnaher.
Heimsins enginn gæði hæfa betur,
hér við gleðjumst öll saman með þér.
Níræður nú ertu klári kappinn.
Við komum saman til að fagna um sinn.
Og ég tel að ég sé heldur heppinn,
að hafa átt þig elsku pabbi minn.
Á hverju ári veitir forseti Íslands fjölda manns fálkaorðu, flestum bara fyrir að mæta í vinnuna sína, þetta er að verða einhverskonar snobbsamkoma, og það er sjaldgæft að alþýðan njóti þeirrar upphefðar. Þá á ég við þá sem puða í sveita síns andlitis, eignast peninga, og láta gott af sér leiða í sínu bæjarfélagi. Pabbi minn hefur aldrei fengið slíka orðu, þó hann hefði verið betur að henni komin en margur sem nú skartar slíkum grip. Hann er eiginlega of stór fyrir fálkaorðu. Þess vegna ætla ég að sæma föður minn orðu sem er stærri en fálka orðan. Ég ætla að biðja hann að koma hér upp og þiggja af mér Arnarorðuna þá fyrstu sem er gefinn út, hér á Ísafirði allavega. Og er hún gerð honum til heiðurs sérstaklega.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með pabba.
Sigurjón Þórðarson, 3.8.2008 kl. 22:49
Innilega til hamingju með pabba þinn, flottur kall og skemmtileg hópmyndin af ykkur systkynum. Aldeils blíðan verið hjá ykkur. Ég fer nú bara að slefa yfir þessum veitingum, þvílíkar kræsingar, rosalegar brauðtertur, trúi að þær hafi verið eins góðra og þær eru flottar, nammi namm. Kveðja í vestrið.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.8.2008 kl. 22:56
Til hamingju með föður þinn Ásthildur, glæsilegar myndir hjá þér,
kveðja úr Bolungarvík
Hallgrímur Óli Helgason, 3.8.2008 kl. 22:59
Til hamingju með elsku pabba þinn og takk takk fyrir yndislegar myndir mín ljúfust



Linda Linnet Hilmarsdóttir, 3.8.2008 kl. 23:03
Hrönn Sigurðardóttir, 3.8.2008 kl. 23:24
Happy Birthday Glitter
Sæl Ásthildur mín.
Enn og aftur til hamingju með pabba þinn. Hann ber aldurinn vel og er örugglega drengur góður.
Guð blessi ykkur öll.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.8.2008 kl. 23:29
Til hamingju med pabba thinn,hann er storhuggulegur og greinilega fekk flotta veislu
Ef thu getur bedid systir thina um uppskriftir af braudtertunum yrdi thad frabaert ad geta farid med svona flottar tertur a thorrablotid i Dallas a komandi ari.
Ásta Björk Solis, 3.8.2008 kl. 23:40
Til hamingju með velheppnaða veislu, og núna get ég sagt til hamingju með hann pabba þinn og afmælisdaginn hans. Þetta hefur verið skemmtileg og flott veisla, og mannmörg. - eins og myndirnar bera með sér. - En, það vantar myndina af orðunni, og orðuveitingunni sjálfri. - Ég hlakka til að sjá þær. Og mikið er hún falleg ræðan þín og ljóðið sem þú fluttir honum. Það var nú aldeilis flott gjöf. - Og mikið var sætt að sjá hana Ásthildi Cesil legga sig, í stólunum, og á hilluna. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 4.8.2008 kl. 00:38
Innilega til hamingju með þennan flotta pabba og stóra systkinahópinn.
Og svo eru krúsurnar tvær alltaf jafn yndislegar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.8.2008 kl. 00:39
Til hamingju Cesil, með föður þinn blessaðan níræðan.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 4.8.2008 kl. 02:09
Það að byrja daginn á því að fara á bloggið þitt varð til þess að morgunmaturinn hjá mér var óvenju vel útilátinn. Ræðan þín var meiriháttar góð hún hefur eflaust snortið pabba þinn djúpt og framtakið með ARNARORÐUNA er með því flottasta sem ég hef vitað lengi. En ég ætla að biðja þig að skrifa ALDREI aftur að þú sért gömul Ásthildur, það er nefnilega enginn eldri en honum finnst sjálfum alveg sama hvað árin segja og bloggið þitt ber þess vitni að aldur er EKKI þitt vandamál. Ég bið svo kærlega að heilsa vestur og megið þið öll hafa það sem best.
Jóhann Elíasson, 4.8.2008 kl. 09:23
Þetta hefur verið flott og afslöppuð veisla. Flott ræða og ljóð. Innilegar hamingjuóskir með pabba þinn níræðan
Sigrún Jónsdóttir, 4.8.2008 kl. 09:23
Þetta hefur verið frábær veisla og ég ímynda mér að besta gjöfin hans pabba þíns hafi verið að hafa öll börnin sín samankomin að fagna með sér. Það þarf oftast sérstök tilefni til að ná öllum saman og gott að tilefnið núna var gleðilegt. Bestu kveðjur til pabba þíns því nú er dagurinn upprunninn og til systkinanna. Það er svo langt síðan ég hef séð sum þeirra að það það tók mig smá stund að finna hver væri hver.
. Sammála Jóhanni hér fyrir ofan, þú ert ekki gömul, ég er fimm mánuðum eldri og finnst ég ekki gömul nema stöku sinnum, eins og í dag eftir að hafa gengið um fimmtán kílómetra í hrauninu nálægt Grindavík í fimm tíma í gær. En ég yngist þegar á daginn líður. þegar ég hitti þig um daginn varstu ekki enn orðin alveg fullorðin og við verðum held ég ekki gömul fyrr en við týnum barninu í okkur. Ég fann greinilega litlu Íju í þér.
Dísa (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 10:00
Til hamingju með afmælið öll sömul.
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 4.8.2008 kl. 11:48
Til hamingju með hann aftur. Gott ljóðið þitt, eins og þín var von og vísa. Gaman að sjá myndirnar. Ég hefði ekki þekkt Hjalta bróður þinn á götu, - mikið hefur hann breyst.
Laufey B Waage, 4.8.2008 kl. 15:45
Elsku Ásdís og fjölskylda, hjartanlega til hamingju með hann pabba þinn,
allt sem þú segir um hann er satt og rétt hann er stórbrotinn maður og þurfti að vinna sig upp úr þeirri fátækt sem þá var til staðar hjá svo mörgum, en hann sá vel fyrir sínum.
Gaman að sjá myndina af ykkur systkinunum, flottur hópur,
og auðvitað fór pabbi þinn fyrst í sjáfarfangið, rækjuna, hann er nú svo unglegur og flottur að maður trúir því varla að hann sé að verða 90 ræður.
Já og svo sé ég líka Pétur og Helgu Hjalta, þau voru kærir vinir er ég bjó í Sandgerði.
En verð samt að enda þetta á að segja að þú ert yndislega falleg kona vina mín
Svipurinn þinn býr yfir öllu því sem þú hefur reynt í lífinu, en ert samt svo blíð og glöð.
Ásthildur mín Guðs blessun til ykkar allra.
Þín Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.8.2008 kl. 17:33
Innilega til hamingju með pabba þinn . Ég veit hvað er dýrmætt að eiga góðan föður(og móðir) eiga stóran systkinahóp að vísu á ég enga systir en átti fimm bræður. Það rifjaðist ýmislegt upp hjá mér er ég las þessa frábæru ræðu og ljóð. Já og að fá að njóta foreldra svona lengi eru forréttindi. Þetta með orðuna er svo frábær hugmynd og þessi dugnaðar maður er vel sæmdur af henni. Myndirnar þínar eru frábærar eins og allt sem frá þér kemur.Endilega settu inn mynd af orðunni. En og aftur til hamingju með pabba þinn og þennan gleðidag í lífi ykkar.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 4.8.2008 kl. 17:38
Elsku bloggvinkona: Innilega til hamingju með hann pabba þinn.
Frábært að fá innsýn í veisluhöldin gegnum þessar myndir. Mikið af flottu fólki með mikla útgeislun.
Ég hef aldrei séð svona flottar brauðtertur fyrr, aldrei! Þetta eru listaverk.
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 18:11
....sendi þér póst á gmail..... ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 18:58
Takk öll sömul. Ég hef ekki haft tíma til að koma hér inn fyrr en núna, og mikið hafið þið glatt mig, með hlýjum orðum og fegurð mannlegs yndisleika
ég skal setja inn mynd af orðunni, og vita hvort einhver hefur tekið mynd af þeim atburði. Takk fyrir mig. Ég fer glöð í háttinn í kvöld, það get ég sagt ykkur
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.8.2008 kl. 20:24
Til hamingju kæra Ásthildur með föður þinn. Það er alltaf jafn gaman að koma í heimsókn til þín og upplifa öll ljósin í kringum þig og þína.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 4.8.2008 kl. 23:46
Til hamingju með hann pabba þinn, hann er flottur!!
Og takk fyrir góðan pistil og æðislegar myndir. Alltaf gaman að kíkja á þig.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 5.8.2008 kl. 01:57
Til hamingju med pabba tinn .Rædan tín var yndislega fallega skemmtileg......Ædislegar myndir og kræsingarnar madur minn eithvad svo verstfirskt og gott.Les oftast pistlanna tína mér til skemmtunnar.
Eigdu gódann dag
Gudrún Hauksdótttir, 8.8.2008 kl. 05:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.