Morgunstemning frá Ísafirði og Bolungarvík.

Svona nokkrar stemningsmyndir í morgunsárið. 

IMG_9464

Þegar nóttin er búin að segja bless, og dagurinn er ekki ennþá kominn.  Þessi birta heillar mig.

IMG_9463

Og róin yfir öllu, fjallið mótað í pollinn, og allt svo ferskt því í nótt rigndi enn á ný.  En nú er sólin að brjótast fram aftur.

IMG_9467

ég þurfti að skreppa út í Bolungarvík, og það er dálítið hrikaleg leið skal ég segja ykkur.  Eða eigum við að segja hrikalega falleg leið.  En næsta ár verða þarna göng, ég held samt að Óshlíðin verði opinn yfir sumartímann, svona til að fólk geti fengið óttahroll eins og að fara í rússíbana.

IMG_9476

Eftir 20 ár trúir enginn því að þetta hafi verið aðalvegurinn til og frá Bolungarvík árið 2008. 

IMG_9473

Þeir eru að stækka og laga félagsheimilið sitt Bolvíkingar, þar ríkir enginn smámunasemi skal ég segja ykkur.  Enda eru Bolvíkingar stórhuga menn.  Datt í hug að segja hér inn myndir af þessum aðalskemmtistað Bolungarvíkur til margra ára, fyrir þá sem ekki eru þar lengur.  Margir hafa stofnað til sambanda hér, og örugglega einhverjir orðið til, vegna þessa húss hehehe... og svo nálgast ástarvikan.  Gott að hafa það í huga.  Þó þetta hús verði ekki tilbúið þá.

IMG_9474

En það er alveg öruggt að einhverjir fá sæluhroll að minnast skemmtana í húsinu.  Og svo verður það fínt og flott, fyrir komandi kynslóðir að taka á móti, og gera þeim kleyft að kynnast og stofna til hjúskapar og barneigna.  Félagsheimilin eru auðvitað bráðnauðsynleg svona í dreyfbýlinu.  Heart

IMG_9477

Svo fór ég smárúnt á höfnina.  Það er eitthvað við þessi skip, sem bíða endalaust eftir því að einhver bjóði þeim í siglingu.  Sem sennilega verður ekki, nema þetta fjandans kvótkerfi verði afnumið eða breytt verulega. 

Enda skrýtið að heyra í fréttum í morgun, Valgerði Sverrisdóttur segja okkur frá því, að Evrópusambandið hefði boðið íslenskum sérfræðingum að taka þátt í mótum fiskveiðistjórnunarkerfi Evrópusambandsins, og vinna nánar með þeirra sérfræðingum, en íslenska ríkisstjórnin, eða sjálfstæðismenn hefðu lagst alfarið gegn því.  Það væri gaman að heyra þeirra útskýringar á því, hverju það sætti.  Sennilega þurft að vernda kvótakóngana, sem borga í kosningasjóðina þeirra.   Eða manni dettur það í hug.

Og svo vil ég nota tækifærið og vekja athygli á undirskriftasöfnun sem Guðsteinn Haukur hefur komið af stað til að styðja við bakið á Ásmundi Jóhannssyni sjómanni úr Sandgerði, sem er að róa kvótalausum bát, til að mótmæla þessu kerfi.  Hann á heiður skilið og stuðning allra réttlátra manna.  Því aðgerðir stjórnvalda eru mannréttindabrot á sjómönnum.   Ekkert minna en það. http://www.petitiononline.com/mod_perl/signed.cgi?asmundur

IMG_9478

Þó ekki hafi ríkt friður um byggingu nýju kirkjunnar á Ísafirði, þá er friður í þessari mynd.

IMG_9479

Og gamli pollinn, vísar leið til nýrra tíma, stjórnsýsluhúss, hótels og blokkar.  Bryggjan er farin að gefa sig, eins og kvótakerfið.  Brátt hrinur hún niður, og ég vona að það geri þetta arfavitlausa kvótakerfi líka.   Svo mitt í allri niðurníðslunni vaxa munablóm. Smile

IMG_9480

Já hvað vilja menn hafa betra veður en þetta?

IMG_9481

Menningarhúsið Edinborg og smábátar sem una sér vel í logninu.

IMG_9482

Og hér er hún María Júlía á kafi í drasli og dóti. 

En ég býð ykkur góðan og blessaðan daginn kæru bloggvinir. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Góðan daginn ljúfust, takk fyrir lognmolluna

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 17.7.2008 kl. 09:59

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig inn í daginn Hulda Bergrós mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.7.2008 kl. 10:52

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn Ásthildur mín, mikið er þær flottar myndirnar, að vanda,
það er þoka yfir álfabyggðinni í naustahvilftinni, það er nú ekki oft þannig.
Knús til þín og þinna.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.7.2008 kl. 11:49

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Milla mín, já nú er þokan horfinn og álfarnir dansa. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.7.2008 kl. 11:59

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Alltaf jafnæðislegt að skoða bloggið þitt. Takk fyrir mig.

Helga Magnúsdóttir, 17.7.2008 kl. 14:03

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Nú eru álfarnir að stríða mér, þetta er þriðja tilraun við að setja athugasemd inn á bloggið þitt  - en hún hverfur alltaf! Fallegar stemningsmyndir!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.7.2008 kl. 14:06

7 Smámynd: Faktor

Hún María Júlía tekur sig nú betur út á fyrri myndinn, en þeirri síðari

Faktor, 17.7.2008 kl. 14:26

8 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Fallegar myndir hjá þér. Ég er alltaf að sjá meira og meira nýtt þegar ég skoða myndirnar þínar. Það verður heilmargt að skoða næst þegar ég kem vestur.

Knús til þín elsku Ásthildur

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 17.7.2008 kl. 15:12

9 Smámynd: Brynja skordal

ó jú margar góðar og yndislegar minningar úr Félagsheimilinu í víkinni það verður gaman að sjá hvað þetta verður glæislegt eftir allar þessar fræmkvæmdir.....Ekki var nú ástarvikan byrjuð áður en ég flutti en samt sem áður náði ég að bæta við mig 3 börnum meðan ég bjó fyrir vestan já svona er nú frjósemin sem svífur yfir Fallegu fjöllinn þarna Hafðu það ljúft í sælunni

Brynja skordal, 17.7.2008 kl. 16:38

10 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Fallegar myndir eins og alltaf hjá þér enda myndaefnið fallegt.  En nú virðis þú jafa dottið ú sem minn bloggvinur og við verðum að kippa því +í lag strax.

Jakob Falur Kristinsson, 17.7.2008 kl. 17:21

11 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Neri fyrirgefðu Ásthildur mín það var bara röðin hjá mér sem hafði ruglast, ég var alltaf vanur að sjá þitt nafn mjög ofarlega, svo þetta er allt í lagi núna.  En ertu búinn að lesa grteinina sem Urður Ólafsdóttir skrifaði í Frtéttablaðið í dag.  Hún er frábær.

Jakob Falur Kristinsson, 17.7.2008 kl. 17:28

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jakob minn hef ekki gefið mér tíma til að lesa fréttablaðið í dag, en ætla að leita eftir þessari grein eftir þessa ábendingu

Hehehe Brynja mín, börn eru alltaf yndislega ástarvika eður ei.

Jamm Sigrún mín, og þegar þú kemur, endurnýjarðu kynnin við kúluna.

Já Faktor

Já Jóhanna mín, álfarnir stríða hehehehe.

Takk Helga mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.7.2008 kl. 20:36

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fallegar myndir að venju hjá þér knús.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.7.2008 kl. 20:57

14 Smámynd: Laufey B Waage

Mjög fallegar myndir. Sérstaklega af bátunum og pollanum. Eru þetta ekki Baldursbrár sem þú kallar (örugglega réttilega - sjálf fagmanneskjan) munablóm?

Laufey B Waage, 17.7.2008 kl. 21:29

15 identicon

Mig langar alltaf vestur þegar ég kem hingað í heimsókn.

Knús vestur í kúluna

Kidda (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 21:38

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig Katla mín líka

Laufey ég tók mér skáldaleyfi, þetta er auðvitað baldursbrá.

Vertu ævinlega velkomin Kidda mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.7.2008 kl. 22:53

17 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Yndisleg fyrsta myndin, og reyndar þær allar, og fallega samkomuhúsið í Bolungarvík, oh það vekur upp svo fallegar minningar, það er svo fallegt þar, og það er svo gott að leika þar, svo góðir straumar í þessu notalega húsi.- Og náttúrulega svo gott fólk þar.-  

Eins er nú Edinborgarhúsið fallegt, og mér er sagt að þar sé líka gott að leika, ég vona að ég eigi það eftir að leika þar. - Var að frétta að þið yrðuð með heimsþekkta listamenn hjá ykkur í Edinborgarhúsinu þann 19. ágúst.-  Þá vildi ég nú líka gjarnan, vera, á Ísafirði og sjá þá frábæru sýningu í ykkar fallega Menningarhúsi.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.7.2008 kl. 01:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband