Móðirin mikla og dulúðuga.

Það var rosalega flott birtan í morgun, og draumórum líkust.

IMG_9447

Þessi sérkennilegi blámi, sem þýddi að sólin var um það bil að bræða af sér þokuna.

IMG_9448

En hún lá inn með firðinum, eins og draumórar.

IMG_9449

Það var eins og lýsti af fjöllunum.

IMG_9450

Og allt var hljótt, nema fuglarnir sungu sinn morgunsöng.

IMG_9452

Þetta er eins og maður sé milli svefns og vöku og sé horfinn inn í drauminn, sem mann dreymdi um nóttina.  Maður heyrir grasið vaxa, ánamaðkana skríða milli hola, og blómin springa út. Heart Söngur móður jarðar.

IMG_9453

Þetta er vonandi ekki mengun frá skipinu LoL Nei reyndar ekki, en reykurinn frá strompnum stendur beint upp í loftið í þessu venjulega Ísafjarðar logni.

IMG_9455

Svo fer að rofa til, maður byrjar að heyra í bílum, og umferðin vaknar til lífsins, maður er ekki lengur einn í draumaheimi, heldur hefur bæst annað fólk í hópinn.

IMG_9456

Og bærinn fullur af ferðalöngum, sem hafa borgað stórfé fyrir að fá að koma og heimsækja okkur sveitavargana.

IMG_9457

Já skýin gerast viltari, og gallerí himin opnast upp á gátt í allri sinni fegurð.

IMG_9458

Hér er gyðjan góða að snúa skýjunum í kring um fjallið sitt, hún er sennilega að auka kraft sinn, sogar til sín orkuna, nýtir hana sjálf og gefur svo okkur ástvinum sínum stóran hluta af henni.

IMG_9459

Ekki veitir af, því margir eru tilkallaðir.

IMG_9461

Og það er ekki bara kajaknámskeið, goflnámskeið hér er líka gerfigrasvöllurinn nýttur í leikjanámskeið.  Bærin iðar af börnum í leik og starfi, og frábæru ungu fólki, sem stendur fyrir allskonar kennslu og þjálfun á ungviðinu.

IMG_9444

en ég faðma mitt gullregn og fer svo að horfa á Frost.  Góða nótt elskurnar, friður sé með ykkur öllum, og ég sendi ykkur orkuna frá Gyðjunni í Kubbanum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Takk fyrir daginn

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.7.2008 kl. 20:20

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Dásamlegir draumar og fallegar myndir knús inn í nóttina elsku Ásthildur mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.7.2008 kl. 20:27

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get ekki orða bundist myndirnar eru himneskar.  Góða nótt.

Jóhann Elíasson, 16.7.2008 kl. 20:45

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Dásamlegar myndir og flott færsla. Þetta er eins og fallegt ljóð.

Helga Magnúsdóttir, 16.7.2008 kl. 20:49

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislegar myndir, og ég féll fyrir "draumórunum" í loftinu.  Mikið skelfing gæfi ég mikið fyrir að hafa mína draumóra í skýjunum í staðinn fyrir á fullri ferð í hausnum á mér.

Góða nótt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.7.2008 kl. 21:08

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sæl Ásthildur mín,

Ég var að setja saman undirskriftarlista til stuðnings Ásmundar Jóhannssonar, sem ég mun svo afhenda stjórnvöldum þegar að því kemur.

Hann er að finna hér http://www.petitiononline.com/mod_perl/signed.cgi?asmundur 

Fyrrigefðu að þetta kemur greininni einni ekkert við, en ég veit að þú tekur vel í þetta. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.7.2008 kl. 22:45

7 Smámynd: Brynja skordal

Fallegar eru myndirnar og Falleg kona sem stendur þarna og faðmar sitt Gullregn hafðu Góða nótt Elskuleg

Brynja skordal, 16.7.2008 kl. 22:57

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góða nótt

Sunna Dóra Möller, 16.7.2008 kl. 22:58

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er ekki amalegt að koma heim úr vinnu en vera samt aðeins fyrir  vestan í smástund fyrir svefninn.  Takk fyrir mig kæra Ásthildur

Sigrún Jónsdóttir, 17.7.2008 kl. 00:15

10 identicon

Mikið geta ský verið heillandi myndefni. Kveðja til þín

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 00:26

11 identicon

Sæl Ásthildur mín.

Flott sýnishorn af veðraskiftum!

Þetta kannast ég svona mest við, nema ekki skemtiferðaskipið þar sem það  er.

Heldur átti sér stórratburður sér stað sem það  er á myndinni í den.----seinna!

Takk fyrir.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 03:53

12 Smámynd: Helga skjol

Yndislegar myndir hjá þér eins og alltaf Ásthildur mín. Hafðu góðan dag mín kæra

Helga skjol, 17.7.2008 kl. 08:04

13 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Hef verið í bloggleti. Búin að skoða og skoða færslurnar þínar. Flottar myndir og gaman að sjá fólkið og allt lífið á Ísafirðinum góða og í nágrenni.

Guð gefi þér góðan dag.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.7.2008 kl. 08:59

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góðan dag til þín líka Rósa mín.

Takk Helga mín.

Þói maður þarf að segja B á eftir A hvaða stóratburður ? maður verður forvitinn

Takk Anna mín.

Gaman að gleðja þig Sigrún mín.

Góðan dag Sunna Dóra mín.

Takk Brynja mín.

AUðvitað Haukur minn, þessi maður er hetja. 

Hehehe Jenný, þessir draumórar skila sér of í snilldarfærslum hjá þér.

Takk Helga mín.

Takk fyrir það Jóhann minn.

Hallgerður, ég lifi í draumi, hehehehe...

Knús á þig líka Katla mín.

Sömuleiðis Hulda mín.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.7.2008 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband