Kajak og sól.

Já þá er stubburinn farin aftur á kajaknámskeið.  Það er mjög gott að geta komið börnunum á slík námskeið, þar sem þau læra að umgangast sjóinn og fjöruna.

IMG_9424

Aðstaðan er líka alveg prýðileg, náttúrleg fjara beint niður af Sæfarahúsinu.

IMG_9426

Hér er hann á tali við leiðbeinendurna.  Hann var mjög ánægður með daginn, þó hann vildi ekki alveg samþykkja að fara í fyrstunni. 

IMG_9429

Þau hafa bara svo gott af þessu börnin.

IMG_9430

Svo hnerraði Guð og það komu nákvæmlega tvær vindhviður, það þýddi náttúrulega ekkert að segja við aðal Guð hjálpi þér, því þetta var örugglega hann sjálfur.

IMG_9432

Svo voru bátarnir bara reistir við aftur, og áfram var lognið. 

IMG_9441

Hér er hún Dísa vinkona mín, að koma í heimsókn til mín.  Æskuvinkona mín og fermingarsystir.  Við sátum lengi yfir kaffi og höfðum margt að spjalla.  Það er hún sem stundum svarar hér á blogginu mínu.  Heart

IMG_9442

Það sem gerðist þegar Guð hnerraði, var að öll rigningarskýin fóru burtu, og eftir var bara sól og blíða hehehehe...  Gott mál. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flott hjá guði að losa ykkur við rigninguna.

Helga Magnúsdóttir, 15.7.2008 kl. 17:23

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Pollurinn" er náttúrulega ekkert annað en paradís til að vera á kajak.

Jóhann Elíasson, 15.7.2008 kl. 17:27

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já börnin hafa gott að því að umgangast sjóinn og fjöruna en gott að hann er komin heim krúttið. Svo eru þetta svo flottar myndir.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.7.2008 kl. 18:10

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

HANN hefði þurft að hnerra aðeins fyrr.  Það var yndislegt að hitta þig Ásthildur mín.  Þú hefur magnaða nærveru.  Heimsókn í "Kærleikskúlu" verður að bíða betri tíma en það var gott að ég gat þó knúsað þig sjálfa og hitt hluta af fjölskyldunni.  Kristrún Amelía biður fyrir kveðjur til Sóleyjar Ebbu og Úlfs.

Sigrún Jónsdóttir, 15.7.2008 kl. 18:41

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 15.7.2008 kl. 20:18

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Helga mín, við losuðum okkur við hana með tveimur hnerrum

Nákvæmlega Jóhann minn og nóta bena, ég hitti Konna í gær, hann ætlar að gefa mér saltað hrefnuspik, ég sagði honum frá þér

Takk Katla mín

Takk sömuleiðis Sigrún mín, mikið rosalega var gaman að hitta þig og knúsa

Hrönnslan mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 20:55

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hef aldrei heyrt þetta að guð hnerri, ég ætla að nota það í mínu máli líka. +knús

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.7.2008 kl. 21:25

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sammála .. hef heyrt talað um að guð gráti  þegar rignir og sé með flösu þegar snjóar en að hann hnerri..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.7.2008 kl. 22:08

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Hallgerður mín, að fá að alast upp í nágrenni við sjóinn er gjöfult

Jamm Steinunn mín, heheheh hann getur líka hnerrað sko  Knús

Hehehehe Jóhanna mín, jamm þegar koma svona vindsveipir, þá er Hann sko að HNERRA, ekkert meira eða minna

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 22:36

10 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 15.7.2008 kl. 22:57

11 Smámynd: Rannveig H

það held ég að hún Dísa yngist með hverju árinu. Alltaf er jafn gaman að skoða síðuna þína Íja mín

Rannveig H, 16.7.2008 kl. 00:06

12 Smámynd: Brynja skordal

Æðislegar myndir enda fæ ég alltaf fiðring í maga um að bruna bara vestur sem fyrst hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 16.7.2008 kl. 00:58

13 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það er nú nauðsynlegt að komast í kynni við sjóinn sannarlega.

góð kveðja.

gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.7.2008 kl. 02:23

14 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki veit ég hvort Konni sagði þér hvernig við tengjumst, en hvort sem er ætla ég að gera það, móðir konunnar hans Konna (hennar Önnu Guðmundsdóttur dóttur Guðmundar úr Þaralátursfirði), móðir hennar hét Lára Einarsdóttir, afi minn hét Gunnar Einarsson, Gunnar og Lára voru systkini.  Önnur systir hennar Önnu býr á Ísafirði, þegar ég var þarna var hún að vinna í Íslandsbanka (sem nú er Glitnir) veit ekki hvort sá banki er ennþá til og ég man ekki lengur nafnið á þessari konu.  En ég bið þig að skila kveðju til þeirra heiðurshjóna, Konna og Önnu, þegar þú hittir þau.

Jóhann Elíasson, 16.7.2008 kl. 08:49

15 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Þú gerir Vestfirðina svo heillandi með myndum þínum og skrifum

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.7.2008 kl. 09:21

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það skal ég gera Jóhann minn, þú ert að tala um hana Gúgú eða Ólöfu, Guðmundur bróðir þeirra var skólabróðir minn, Báru þekki ég líka, en hún býr held ég í Hveragerði, hún býr með föður Jóns Steinars bloggvinar míns, svo þar er komin heill hringur ekki satt ?  Svona er heimurinn lítill. 

Takk Hulda mín,  Einhverntímann heyrði ég að perlan Vestfirðir væri best geymda leyndarmál Íslands.

ALveg rétt Gmaría mín.  Og halda gangandi mótmælum gegn kvótakerfinu líka, það er vinna út af fyrir sig.

Hehehe Brynja mín, þú ert velkominn.

Rannveig ég er sammála þér með það að hún Dísa yngist með hverju árinu. 

Knús Helga mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2008 kl. 10:18

17 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.7.2008 kl. 10:53

18 identicon

Síðast þegar ég staldraði við í Vigur (líklega sumarið 2004) sá ég nokkra kajakræðara sigla meðfram eyjunni á ferð sinni um Djúpið. Ég myndi náttúrulega aldrei þora slíkt sjálf en það hlýtur að vera alveg hrikalegt ævintýri að ferðast á þennan hátt um landið. Takk fyrir myndir. Skemmtilegar - eins og venjulega - maður gengur orðið að því vísu að fá mannlífið í myndum beint í æð á síðunni þinni

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 11:24

19 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Fallegar myndir like always!!!! Ég fór einu sinni á kajak,ætlaði samt ekki að þora vegna þess hve vatnshrædd ég er, en Guð hvað það var gaman, ég ætlaði aldrei að koma mér upp úr ég skemmti mér svo vel. Sú vatnshrædda var sem sagt lengst út á vatninu Knús í kúlu Er ekki veðrið gott fyrir vestan í dag???? Það er frábært hér í borginni, stelpurnar mínar farnar í skólagarðanna og eru á leið í bíó með þeim að sjá KungfuPanda. Þær eru sko með græna fingur það get ég sagt þér og eru meira að segja búnar að fá verðlaun fyrir besta garðskikann. Er ekki fínt að frétta af fólkinu mín???? Hefurðu eitthvað rekist á þau???? Úff!!! Langt komment eitthvað En allvega, knús og meira knús

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 16.7.2008 kl. 11:26

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú Ella mín hér er sól og blíða.  Ég hef ekki rekist á neinn nýlega, er alltaf á svo mikilli ferð hehehe... Til hamingju með telpurnar þínar það er gaman að fá verðlaun fyrir vel unnin störf.  Knús á þig til baka

Takk Anna mín.  Já þeir segja að Djúpið sé kjörið til kajakróðra.

Knús á þig mín elskulega Einstaka Linda

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2008 kl. 12:19

21 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Ég elska sjóinn og vill vera þar sem ég sé hann enda Krabbi. Vinir mínir segja að´ég sé eins og múkkinn verði ófleyg ef ég fer of langt frá honum. Fallegar myndirnar þína og alltaf gaman að skoða þær.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 16.7.2008 kl. 14:41

22 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 16.7.2008 kl. 15:05

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég kannast við þá tilfinningu Ólöf mín.

Knús á þig líka Sunna Dóra mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2008 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband