Túristar og viðmið, hversu pottþétt eru þau ?

Það fer ekkert á milli mála að ferðamanna straumurinn er í algleymingi.  Hér á hjara veraldar hefur aukist til mikilla muna koma skemmtiferðaskipa.  Allt í einu eru bærinn fullur af röltandi túrhestum, fer eftir þjóðerni hvort þeir eru vinalegir og brosandi, eða kuldalegir með fjarrænan glampa í augum.  En samt er það svo að þegar þeir eru komnir hingað inn að kúlunni, þá eru margir sem koma við og vilja annað hvort taka myndir eða kíkja aðeins inn í garðskálann og garðinn að þá verður brosið ofaná. 

IMG_9412

Sum þessara skipa eru enginn smásmíði, og furðulegt að þessir stóru dasar geti lagt við bryggju hér hjá okkur.

IMG_9414

Hér sést svo auðvitað lognið sem er svo algengt hér.  Það var að vísu rigning í dag, en hún var lóðrétt, og hlýtt í veðri.

IMG_9416

Stóru húsin á höfninni verða einhvernveginn svo ósköp lítil miðað við, og sjáiði litla gula bátinn fyrir miðju, hann er reyndar ekkert svo lítill.  Þetta vekur manni nefnilega hugsun um það sem er afstætt.  Hvernig allt samhengi breytist þegar kemur annað viðmið.  Þetta er mikið notað á okkur sálrænt í vinsældarkapphlaupi stjórnmálanna.  Þegar eitthvað verður óþægilegt fyrir segjum stjórnvöld, þá er kastað fram einhverju öðru, til að augu okkar beinist í aðra átt.  Þá breytist viðmiðið, og við verðum ráðvilt, og erum ekki viss lengur um það sem verið var að gagnrýna.  Eins og núna til dæmis er verið að innprennta okkur að það hafi verið Sjálfstæðisflokkurinn sem alla tíð hafi verið í forystu fyrir því að taka upp evruna.  Og við auðvitað trúum því og hugsum, hvað framsýnn flokkurinn sé, og hve vitrir forystumenn hans séu.  Sannleikurinn er gjörsamlega endurskapaður frá grunni, og við fáum ný viðmið.  Allt í einu er Björn Bjarnason og Geir H. Haarde frumkvöðlar í Evrópumálum.  Og við gleymum því snarlega að Það var ekki til umræðu að taka upp Evru fyrir tveimur árum, þegar Björn Bjarnason sagði að engum dytti slík fyrra í hug nema Valgerði Sverrisdóttur.  Og Geir spilaði því út fyrir nokkru að mun betur lægi við að taka upp dollara.  Nei við gleypum við þessu öllu eins og mér hefur alltaf fundist húsin á höfninni vera risastór, en svo eru þau bara pínulítill, þegar smjörklípa í formi skemmtiferðaskips leggst við kantinn og smækkar allt sem þar er fyrir.

IMG_9417

Já það breytast öll viðmið, þegar eitthvað allt annað kemur upp.

IMG_9418

Svona erum við bara, og ekkert við því að gera, nema ef okkur ber gæfa til að skilja kjarnan frá hisminu, og vita að þegar skipið er farið, verða húsin aftur stór.

IMG_9419

Fyrir þá sem hafa verið eitthvað í burtu, þá er þetta nýji barnaskólinn, glæsibygging, sem eykur örugglega og bætir aðstöðu kennaranna í bænum.  Verst er að lóðin minnkar, og þess vegna reyna stjórnvöld að troða sér inn á Austurvöll, á sviknum forsendum.  Þar breytist viðmiðið líka, því þeir hafa skilgreint aðalskrúðgarð bæjarins sem leiksvæði, en segja samt að þar verði áfram skrúðgarður.  Hann er teiknaður af Jóni H. Björnssyni einum mest metna og elsta skrúðgarðaarkitekt okkar, þetta er systurgarður Hallargarðsins, og nú stendur til að breyta það öllu, koma upp leiktækjum í jaðrinum á honum, og þrengja hann þannig.  Breyta garði sem er orðin yfir 50 ára gamall, og hefur unnið sér hefð og er einn af fjórum hönnuðum skrúðgörðum í Ísafjarðar bæ, sem er einstakt í sögu Íslands, þar eru, Austurvöllur, Jónsgarður, Simsonsgarður og SKrúður. 

IMG_9420

Hér er Austurvegurinn, það er verið að helluleggja hann og gera fínan, ég vona að menn fari svo nærfærnum höndum um Austurvöllinn, og detti ekki í þá gryfju að fara að breyta honum, bara til að ná í leiksvæði fyrir börnin, þar ætti að vera hægt að finna aðra lausn.

IMG_9421

Ég skrapp á Flateyri í morgun, og auðvitað tók ég mynd af bautasteininum hans Einars Odds.  Ég hygg að Einar Oddur hafi verið vel að þessum virðingarvotti kominn.  Þó ég væri ekki sammála stefnu hans í þjóðmálum, og þeir vinir og samherjar Einar Kristinn og Einar Oddur segðu stundum eitt og gerðu annað eftir kosningar.  Þá verð ég að segja að mér líkaði alltaf vel við Einar, það var ef til vill garðyrkjumaðurinn í honum sem mér þótti vænt um.  Hvað áttu nýtt og spennandi núna Ásthildur mín, sagði hann.  Ég hitti hann bara nokkrum dögum áður en hann dó.  Þá röltum við um garðinn hans, og hann sýndi mér stoltur öll uppáhaldstrén sín, hann mundi alveg hvenær hann hafði gróðursett þau, og hvar keypt.  Þennan hlyn keypti ég hjá þér, sagði hann, og hann er stolt mitt í garðinum.  Hann er farin að dafna svo vel. 

IMG_5757

Ætli hann hefi ekki bara fengið betri bautastein hér á síðasta ári þann 19. júní, þegar feministar ákváðu að gefa honum bleikan stein.  Já mér þótti vænt um karlinn,  Þó ég væri ekki sátt við hvernig þeir fóru með sjávarútveginn.  En öllum getur orðið á,  og grein sem hann skrifaði stuttu áður en hann kvaddi þennan heim, í viðtali í BB, segir mér, að hann hafi verið farinn að átta sig á því að stefnan var ekki alveg samkvæmt kompás.  Blessuð sé minning þín minn kæri.  Þú varst held ég fyrst og fremst ræktunarmaður, og flateyringur.  Þó pólitíkinn hafi glapið þig á refilstigu kvótakerfisins.  Þá varstu samt hlý manneskja og þið hjónin miklir mannvinir og menningarvitar. Enda ertu örugglega einhversstaðar í aldin garðinum Eden að gróðursetja hlyn og blágreni. 

IMG_9423

Hér er Flateyri, margt hefur dunið á þorpinu, en dugnaður og þrautsegja einkenna fólkið.  Þau hafa rifið sig upp úr sorginni og aukið sínu fólki trú á framtíðina, með allskonar góðum hlutum.  Einmitt núna eru þar veraldarvinir, sem hafa komið til að leggja sitt af mörkum, líkt og í fyrra.  'Eg ætla einmitt að stjórna þeim í viku, frá 17 til 22 júlí.  Það er nóg að gera við minningargarðinn, sem þau hafa reist af miklum myndarskap.  En ég segi örugglega meira frá því seinna, og set inn myndir af þessu unga ævintýrafólki sem er frá mörgum þjóðlöndum. 

Læt ég þessu rausi svo lokið um viðmið.  Þau eru hvort sem er ekki raunveruleg að því leyti, að þau blinda mann oft og leiða mann afvega.  Því er best að hafa sinn bautastein á hreinu, og vita hvar maður stendur í baráttunni.  Ef maður gerir það, þá getur ekkert falskt viðmið haggað manni af réttri braut.  Knús á ykkur elskulegust. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Rétt viðmið og manni miðar fram á við. - Fallegt, fallegt, fallegt elskulega Ásthildur.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.7.2008 kl. 22:34

2 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

svaakalega stór skip, og þá verður veröldin í kring ósköp lítil

Svala Erlendsdóttir, 14.7.2008 kl. 22:36

3 Smámynd: Helga skjol

Þetta er bara snilldarfærsla hjá þér Ásthildur mín og svo sönn.

Knús á þig elskulegust

Helga skjol, 14.7.2008 kl. 22:58

4 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Knús inn í nóttina

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 14.7.2008 kl. 23:03

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 14.7.2008 kl. 23:48

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Frábær færsla að vanda og myndirnar eftir því

Margrét St Hafsteinsdóttir, 15.7.2008 kl. 02:31

7 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Thad er alltaf jafn ahugavert og skemmtilegt ad kikja inna bloggid thitt, kaera Asthildur min. Ahugaverdur pistill og skemmtilegar myndir, serstaklega ad fa ad sja gamla skolann minn... Eg vildi lika lata thig vita ad eg og mamma min erum ad tala saman, og erum ad reyna ad laga sambandid okkar, vid bidum svo bara og sjaum hvernig thad fer allt saman, en eg er til i ad reyna ad betrumbaeta sambandid mitt vid hana, hun er eina mamma min sem eg a. Takk enn og aftur fyrir frabaeran pistill, fardu vel med thig

Bertha Sigmundsdóttir, 15.7.2008 kl. 04:08

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku Bertha mín mikið þykir mér vænt um að heyra að þið mæðgur eruð að skoða ykkar mál.  Þið eruð báðar frábærar og elskulegar konur, svo ég er alveg viss um að þið náið saman sem aldrei fyrr.  Knús á ykkur báðar, og blessun.

Takk Margrét mín.

Knús Huld mín

Knús á þig líka Hulda mín.

Takk Helga mín, og knús á þig líka.

Einmitt Svala mín, það smækkar allt, þegar eitthvað svona risastórt birtist

Já einmitt Lilja mín  Takk

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 09:34

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Merkilegar pælingar hjá þér, Ásthildur, og ég er svo sannarlega sammála því sem þú segir um þá félaga Björn og Geir.

Helga Magnúsdóttir, 15.7.2008 kl. 10:21

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt Helga mín.  Þetta er frekar skondið að hlusta á.  En svo gleyma allir að þetta er nýbyrjaður söngur hjá þeim, er ég hrædd um.

Mín er ánægjan Guðlaug mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 11:57

11 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Frábærlega skrifað hjá þér og mikill sannleikur í þessu. Við erum allt of fljót að gleyma og stjórnvöld reyna alltaf að mata fólkið, halda bara að allir séu fífl og gleypi við öllu sem þeir segja.

Gaman að sjá þessar myndir frá Ísafirði. Þú ættir að vera á launum hjá ferðamálaráði bæjarins, ég er viss um að þú nærð að draga fólk í heimsókn með þessum skemmtilegu myndum

Knús til þín

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 15.7.2008 kl. 12:21

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sigrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 12:28

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hlýjar kveðjur frá mér elsku Ásthildur mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.7.2008 kl. 13:39

14 Smámynd: G Antonia

Allt rétt !!!  knús á þig

G Antonia, 15.7.2008 kl. 13:52

15 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Takk fyrir góða færslu !

Sunna Dóra Möller, 15.7.2008 kl. 13:54

16 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi færsla er bara snilldarleg og ekkert meira um það að segja.  Þetta er með þeim albestu lýsingum sem ég hef á ævi minni lesið á "vinsældapólitíkusunum" okkar og einhver sú sannasta sem til er.  Þegar ég var að vinna í Sjómannaskólanum (áður en hann var einkavinavæddur) kom til okkar "gamall" nemandi, sem var stýrimaður á svona skemmtiferðaskipi, þar voru þrískiptar vaktir og voru alltaf tveir stýrimenn á vakt.  Það sem mér fannst skondnast af því sem hann sagði var, að skipstjórinn átti alltaf að fara út á brúarvæng og taka sólarhæðina klukkan tólf á hádegi, hvernig sem veður eða skýjafar var, því það væri svo traustvekjandi fyrir farþegana að sjá "að þarna kunnu menn sko til verka".  Sel þetta ekki dýrara en ég keypti en sagan er samt góð.

Jóhann Elíasson, 15.7.2008 kl. 15:51

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Jóhann minn, og hehehe sagan er góð.  Og örugglega sönn líka, þetta líf er í raun og veru rosalegt show, fyrir fólkið. 

Knús Sunna Dóra mín.

Knús á þig til baka G.Antonía mín.

Sömuleiðis mín elskulega Katla.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband